Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Qupperneq 14
1 ■f Það þarf vart að kynna Siguijón Sighvatsson fyrir íslendingum. Hann er óskabarnið okkar. Fór 25 ára tii Banda- ríkjanna og er stærsta meikið okkar í heimi kvikmynda. Fókus hafði samband við strákinn og spjallaði við hann í GSM á meðan hann gekk úr sér daginn. Islendingar h verið að tala u fá mig heim í „Tökum líkur 5. nóvember," út- skýrir Sigurjón Sighvatsson að- spurður um stöðuna á The Weight of Water sem hann framleiðir en Catheline Bikalow leikstýrir og Liz Hurley og Sean Penn leika í. „Myndin fjallar um norska innflytj- endur í Kanada og er gerð eftir samnefndri skáldsögu," heldur Sig- uijón áfram og bætir því við að það sé íslendingur, Karl Júlíusson, sem sjái um leikmynd og því sé þetta nokkuð skandinavísk Hollywood-mynd. „Ég hef alltaf haft áhuga á að gera svona mynd sem tengist Skandinavíu og þess vegna er þetta mjög spennandi mynd fyrir mig og ég væri til í að gera fleiri svona í framtíðinni.“ En svona svo viö setjum þetta allt í samhengi þá ertu hœttur hjá Lakeshore og búinn aö kaupa nýtt fyrirtœki? „Já. Ég var hjá Lakeshore í fjög- ur ár en keypti Panomar í maí og er nú að byggja það fyrirtæki upp. Þetta er alhliða framleiðslufyrir- tæki. Ekki jafnsérhæft í kvikmynd- um og Lakeshore heldur framleiðir það mikið af auglýsingum, músík- myndum og heimildarmyndum." Væntanlegt frá Sigurjóni „Ég var að gera fimm kvikmynd- ir á ári hjá Lakeshore en nú minnka ég það og get því einbeitt mér að því að gera þær myndir sem mig langar til að gera. En ég var einmitt að missa tökin á því sem ég vildi gera hjá Lakeshore. Runaway Bride er til dæmis ekki mynd sem ég var mjög heitur fyrir. En samt kom ég að henni hjá Lakeshore. Hjá Panomar get ég aft- ur á móti stjómað þessu betur og einbeitt mér að því að gera myndir sem mér þykir vænt um,“ segir Sig- urjón og ítrekar að hann vilji hafa fullt vald yfir þeim myndum sem hann gerir og þar gerir Panomar gæfumuninn því það fyrirtæki á hann en hjá Lakeshore var hann starfsmaður. Þaö síöasta sem viö sáum í þinni framleiöslu var Arlington Road. Hverju eigum viö von á? „Það á eftir að frumsýna Passion of Mind með Demi Moore en það var síðasta myndin sem ég gerði hjá Paramount. En annars er það þessi mynd sem við erum að klára núna, The Weight of Water og svo eru um tíu myndir í þróun hjá okk- ur. Þá erum við ýmist að vinna í fjármagni eða leita að leikurum eða leikstjórum. Svo erum við að gera heimildarmynd um munka- klaustur sem var breytt í alnæmis- sjúkrahús, aðra um Frank Zappa, Steely Dawn og eina mjög athygls- verða um samkynhneigðar fjöl- skyldur. Þá homma og lesbíur sem eiga böm.“ En hvað kvikmyndimar varðar þá er Panomar að vinna með Jodi Ferill Sigurjóns sem framleiðanda: Þ6 er ekkl hægt ab blrta allt sem SlgurJÓn hefur snert sem framlelbandl, sérstaklega hvab sjönvarpsefnl, múslkmyndbönd og auglýslngar varbar. Sjónvarp 1993 Tales of the City - 6 þættir 1992 Memphis - sjónvarpsmynd 1991 Heat Wave - sjónvarpsmynd 1991 Beverly Hills 90210 - 13 þættir 1991 Twin Peaks - þáttaseríur Bíó 2000 The Welght of Water 2000 Passion of Mind 1999 200 Cigarettes 1998 Arlington Road 1998 Phoenix 1998 The Polish Wedding 1998 Homegrown 1998 The Real Blonde 1997 Going all the Way 1997 A Thousand Acres 1997 Box of Moonlight 1997 ‘Till There Was You 1996 Basquait 1996 Kids in the Hall: Brain Candy 1996 A Pig’s Tale 1998 Canadian Bacon 1998 Lord of lllusions 1998 Candyman: Farewell to the Flesh 1996 S.F.W. 1994 Dream Lover 1994 Red Rock West 1994 Dead Connection 1993 Kalifornia 1992 Candyman 1992 A Stranger Among Us 1992 Ruby 1991A Climate for Killing 1991 The Long Day Closes 1990 Wild at Heart 1990 Daddy's Dyin': Who’s Got the Wlll 1989 Fear Anxiety and Depression 1989 Kill Me again 1988 The Blue iguana 1988 Aria 1987 Private Investigations 1986 Rib 1986 Hard Rock Zomies 1986 American Drive in Sigurjón Sighvatsson: „Þab er hálfgert gullgrafaraástand á íslandi núna. Það hefur alltaf verið ofsalegan auð að finna á íslandi en hingað til hefur hann verið í höndum allof fárra. Foster að endurgerð á japanskri mynd og annarri filmu sem Sean Penn á að leikstýra. Sú mynd heit- ir Knockout Artist og fjallar um undirmálsfólk í Suðurríkjum Bandaríkjanna. Jón Ólafsson íslendingar erlendis eru auðvit- að sér þjóðflokkur og Sigurjón til- heyrir þeim þjóðflokki. Hann býr í útlöndum og fær send blöðin. Kíkir aðeins á Netið og tekur púlsinn á því sem er í gangi á klakanum. Auk þess er hann héma að jafnaði tvo mánuði á ári og fylgist því nokkuð vel með því sem er að ger- ast og einn af viðkiptafélögum hans, Jón Ólafsson, hefur verið mikið í fjölmiðlunum undanfama mánuði vegna kaupa á FBA. „Það era bara margir sem vilja hafa hlutina á núilpunkti og þegar það koma nýir aðilar inn á markað- inn og raska jafnvæginu þá berjast þeir á móti þvi,“ segir Sigurjón um þá umræðu og bætir því við að menn verði alltaf að hafa einhverja óvini og að margir finni sinn sam- eiginlega óvin í Jóni ólafssyni. „Þetta er líklega vegna þess að fólk vill ekki hafa nein grá svæði. Hlut- irnir verða að vera svartir eða hvítir og viss öfl í þjóðfélaginu heima vilja ýta Jóni yfír á svarta svæðið.“ En nú hafið þið Jón átt sam- leið í viðskiptum? „Já. Við Jón eigum kannski margt sameiginlegt. Við erum báð- ir fæddir í sjávarplássi, aldir upp af einstæðum foreldrum og erum sjálfsskapaðir menn. Við höfum orðið að vinna hörðum höndum fyrir öllu því sem við eigum í dag.“ Hvaö meö fyrirgreiöslupólitik, stundaröu slíkt? „Ég fór það snemma til Ameríku að ég hefði ekki tíma til þess að Bíómyndir eru eitthvað sem ég hef alltaf viljað gera og hef verið að því í tíu, fimmtán ár og þó þær séu ekki allar góðar eru þær allar góðar tilraunir. byggja upp pólitísk tengsl heima. Enda finnst mér slíkt brambolt og pólitískar vangaveltur taka of mikinn tíma. Ég nenni ekki að standa í fyrir- greiðslupólitík og þó slíkt geti átt rétt á sér í einstaka tilvikum þá reyni ég að lifa eftir málshættinum: Gerðu það sem þú tekur þér fyrir hendur vel og af heilindum og þá munu góðir hlutir fylgja í kjölfarið," segir Sigurjón og útskýrir að til dæmis þegar hann hafi komið inn í Stöð 2 á sínum tíma hafi það hvorki verið vegna hugsjóna eða stjómmála. „Þetta var fyrst og fremst vegna þess að þama var álitleg fjár- festing." Skjár 1 „Ég er mjög mikill áhugamaður um innlenda dagskrárgerð. Amer- ískt afþreyingarefni á ekkert endi- lega að virka heldur innlendir þættir. Og þó ég sjái ekki mikinn fjárhagsgrundvöll fyrir Skjá 1 þá finnst mér samt gaman að sjá alla þessa nýju þætti spretta upp.“ Þú heldur þá aö þetta muni ekki standa undir sér? „Á Norðurlöndum stórtapa svona frjálsar sjónvarpsstöðvar að minnsta kosti fyrstu fimm árin svo ég held að það sé mjög erfitt að láta þetta Skjá 1 dæmi ganga upp. Sem kvikmyndagerðarmaður vona ég að þetta gangi en sem bissnessmað- ur væri líklega best fyrir mig að þetta færi á hausinn á morgun. Og sem kvikmyndagerðarmaður fagna ég tækifærunum sem ungt fólk fær þama á Skjá 1 því það verður að viðurkennast að við á Stöð 2 og Ríkisútvarpinu höfum ekki verið að veita ungu fólki nógu mörg tækifæri." En hvernig koma allar breyting- arnar á íslandi þér fyrir sjónir? „Það er hálfgert gullgrafaraá- stand á íslandi núna. ísland hefur alltaf átt yfir miklum auð að búa en hingað til hefur hann verið í hönd- um allt of fárra. En nú eru athafna- menn undir þritugu að taka ákvarðanir sem eiga eftir að bylta þjóðfélaginu. Þeir sem hafa völdin í dag koma til með að missa stóran hluta af þeim á næstu árum,“ segir Sigurjón og bætir því við að gull- grafaramir séu þessir ungu menn, I f Ó k U S 5. nóvember 1999 I I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.