Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Síða 20
i
í
l
V
\
í
t
i
i
i
|
i
t
kvikmyndin
í janúar á næsta ári hefjast
tökur í Berlín á Enemy at the
Gates sem sögð er
dýrasta kvikmyndin jF
sem gerð hefur verið
í Evrópu. Franski m
leikstjórinn Jean-
Jacques Annaud
(Quest for Fire,
Name of the Rose,
The Lover) leik-
stýrir þessu stór-
virki sem fjallar
um umsátur Þjóðverja um
Stalíngrad í síðari heimsstyrj-
öldinni. í því umsátri týndu
250.000 þýskir hermenn lifi og
112 þúsund voru hnepptir i
varðhald. Áætlaður kosnaður
við myndina er 85 milljón doll-
arar. í aðalhlutverkum eru Ed
Harris, Joseph Fiennes, Jude
Law og Rachel Weisz. Annaud
sagði í blaðaviðtali að hann
ætlaði að gera myndin svo
raunverulega að áhorfandinn
héldi að hann væri á staðnum.
Mikið að gera hjá
Arquette
Patricia Arquette hefur verið
dugleg að leika í kvikmyndum
á síðustu misserum og áður en
árið er liðið hafa þrjár kvik-
myndir með henni verið frum-
sýndar. Fyrst var
það frekar slök
mynd, Goodbye
Lover, þá kom
vinsæl hryllings-
mynd, Stig-
mata, og nýlega
var frumsýnd
við góðar und-
irtektir Bring-
ing out the Dead.
Frú Nicholas Cage ætlar ekki
að slaka á því hún hefur samið
um að leika í þremur myndum.
Fyrst er það Little Nicky, þar
sem mótleikarar hennar eru
Adam Sandler og Harvey
Keitel, þá mun hún leika í lítilli
óháðri mynd, Human Nature,
og þriðja myndin er Boom,
Boom Room sem byggð verður
á leikriti eftir David Rabe.
Loks komin dag-
setning á The Beach
The Beach er ein þeirra
kvikmynda sem ólukkan leggur
í einelti. Þessi nýjasta kvik-
mynd Leonardos DiCaprios er
komin langt
fram úr áætluð-
um kostnaði.
Upprunalega
átti að frum-
sýna myndina
um þessi jól en
nú hefur verið
ákveðið að
frumsýningardaguir verði 1.
febrúar. Leikstjóri myndarinn-
ar er Danny Boyle (Trainspott-
ing) og var hún að mestu tekin
á Tahiti þar sem þegar er búið
að hefja málsókn á hendur
framleiðendum þar sem segir
að skilið hafl verið við strönd-
ina þar sem tökur fóru fram
eins og um náttúruhamfarir
haft verið að ræða.
Brad Pitt leikur Tyler Durden, leiótogann í Slagsmálaklúbbnum.
Fight Club, sem frumsýnd verð-
ur í dag í Regnboganum, Sam-bíó-
um og Laugarásbíói, er byggð á
fyrstu skáldsögu Chuck Pala-
hniuks, sem var bifvélavirki áður
en hann hóf skriftir, og segir frá
einrænum imgum manni (Edward
Norton) sem er með dauðann á
heilanum. Eina dægradvöl hans er
að fara á fund með aðstandendum
krabbameinssjúkra. Hið tilgangs-
lausa lif hans breytist heldur betur
þegar hann hittir Tyler Durden
(Brad Pitt), sjálfskipaðan gúrú í
undirheknum, sem kynnir hann
fyrir leynilegum félagsskap sem
kallast Slagsmálaklúbburinn. Þar
fá imgir menn, sem vinna venju-
lega vinnu, útrás fyrir adrenalínið
með þvi að berja hver á öðrum.
Þeim verður vel til vina í fyrstu og
ungi maðurinn, sem hafði litið á líf
sitt sem sóun, fær aukinn kraft. En
þegar þeir fá báðir áhuga á dópist-
anum Marla Singer (Helen Bon-
ham Carter) er stutt í átökin þeirra
á milli.
í Fight Club leika tveir af athyglis-
Fight Club, sem
frumsýnd er í dag,
er sú kvikmynd
sem beðið hefur
verið með hvað \
mestri eftirvænt-
ingu að undan-
förnu en mikið hef-
ur verið skrifað og
rætt um myhdina
sem þykir ofbeldis-
full. \|
verðustu ungu leikurum samtímans,
Brat Pitt og Edward Norton. Brad
Pitt, sem fékk íljúgandi start í
Thelma and Louise og fylgdi því eftir
í A River Runs Through It og Intervi-
ew with the Vampire, hefur kannski
ekki alveg staðið undir væntingum.
Hann hefur þó leikið í úrvalsmynd-
um á borð við Twelve Monkeys en
miðlungsmyndirnar hafa verið fleiri.
Hann lagði mikið á sig við gerð The
Fight Club og fór meðal annars til
tannlæknis til að láta taka úr sér
tönn fyrir eitt atriðið.
Edward Norton á stuttan en afar
glæsilegan feril að baki í kvikmynd-
um. Fimm myndir á þremur árum
og tvær óskarsverðlaunatilnefning-
ar bera vott um einhverja mestu
leikhæfileika hans kynslóðar. Hann
var óþekktur leikari sem aldrei
hafði leikið í kvikmynd áður þegar
hann skaust fram á sjónarsviðið
árið 1996 í kjölfar magnaðr-
ar frammistöðu í
Primal Fear, svo
magnaðrar að hann
var kominn með
hlutverk í kvik-
myndum hjá
Milos Forman
og Woody
Allen áður en
Primal Fear var komin í kvik-
myndahús og var strax farinn að
þurfa að hafna hlutverkum. Skyndi-
leg ffægð hans virðist ekki hafa stig-
ið honum til höfuðs og hann hefur
orð á sér fyrir að vera kurteis, við-
kunncuilegur og einlægur.
Leikstjórinn David Fincher á að
baki þrjár kvikmyndir. Eftir að
hafa verið um árabil einn helsti
leikstjóri tónlistarmyndbanda fékk
hann að leikstýra Alien 3. Þrátt fyr-
ir ágæta spretti stóð þessi þriðja
mynd seríunnar nokkuð að baki
fyrri tveimur myndunum sem
Ridley Scott og James Cameron
höfðu leikstýrt. Hann sannaði
ágæti sitt með Seven, einhverri
áhrifaríkustu sakamála-
mynd áratugarins. Þriðja
mynd hans, The Game,
fékk ekki eins góðar
viðtökur en miðað við
umtal og væntingar
þá ætti Fight Club
að koma honum
aftur í fremstu
röð. -HK
r- ) ' '
J #» \ r* \ *>-i *■> \
p \ r—j .—-j j r—J
Reese Witherspoon er örugglega
meðal athyglisverðustu ungu
leikkvenna í Hollywood, hefur hún
unnið hvern leiksigurinn á fætur
öðrum, nú síðast í Election og Best
Laid Plans, sem frumsýnd var í sið-
asta mánuði i Bandaríkjunum.
Whitherspoon er metnaðargjörn,
sjálfsörugg ung stúlka sem veit
hvað hún vill. Nýlega varð hún
móðir, átti bam á þeim sérstaka
degi 9.9. 1999. Whiterspoon hefur
ekki látið blekkjast af gulli og
grænum skógum í Hollywood og
farið eigin leiðir og segist ekki hafa
neina löngum til að leika í kvik-
mynd sem fyrirfram er búist við að
muni skOa miklu í kassann.
1 «
Whiterspoon, sem fæddist 22.
mars 1976, hefur verið að leika frá
því hún var sjö ára gömul en hef-
ur ekki leikið í mörgum kvik-
myndum, þar sem hún hefur
stundað háskólanám með leiklist-
inni. Witherspoon tekur svo djúpt
í árinni að segja að hún þakki
guði fyrir það að engin þeirra
kvikmynda sem hún hefur leikið í
hafl verið metaðsóknarmynd. Það
hefði aðeins taflð hana frá námi
og gert lífið erfíðara.
Meðfram bamaskóla og grunn-
skóla lék Reese Witherspoon aðal-
lega í auglýsingum og sjónvarpi.
Strax í fyrstu kvikmynd sinni, The
Man in the Moon, árið 1991 vakti
hún athygli fyrir
þroskaðan leik.
Þegar Wither-
spoon hafði
1 o k i ð
m e n n t a - Reese Witherspoon leikur
skólanámi, aðallega með hjálp
faxtækja og tölva, settist hún á há-
skólabekk í Stanford-háskólanum
þar sem hún nam enskar bók-
menntir og lék í fáeinum sjón-
varpsmyndum með skólanum. í
þrjú ár lék hún ekki í kvikmynd en
kom síðan sem fullsköpuð leikkona
á móti Mark Wahlberg í sakamála-
myndinni Fear. Hér á eftir fer listi
ytir þær kvikmyndir sem Reese
Whiterspoon hefur leikið í:
K SS
hlna ofvlrku Tracy Fllck í Electlon.
The Man in the Moon, 1991
A Far off Place, 1993
S.F.W, 1994
Fear, 1996
Overnight Delivery, 1996
Pleasantville, 1998
Twilight, 1998
Cruel Intentions, 1999
Election, 1999
Best Laid Plans, 1999
HK
—
bíódómur
Háskólabíó — Election ★★★'á
Þær era búnar að koma margar,
amerísku framhaldsskólagelgju-
myndimar, allt of margar. Maður
stendur sjálfan sig allt of oft að því
að sitja undir einhverjum klapp-
stýram og þaðan af verra, ræðandi
það hver sé sætastur og önnur
minni háttar drama. Einstaka sinii-
um koma þó góðar svona myndir
og er Election án efa með þeim
bestu. Myndin gerir stólpagrín að
víðómatýpum skólanna og gerir
það vel. Hana mætti kalla ádeilu á
framhaldsskólalíf þeirra vestan-
hafsmanna. í byrjun kynnumst við
Jim McAllister (Broderick), kenn-
ara við Carver High skólann. Hann
unir sér mjög vel í starfi sínu og
hefur gert það lengi. í skólanum er
tíð kosninga að renna upp. Sú eina
sem ætlar að bjóða sig fram til for-
manns er einn af nemendum
McAllisters, Tracy Flick (Wither-
spoon). Tracy Flick er einmitt sá
nemandi sem Jim þolir minnst af
öllum. Hún er ótrúlega metnaðar-
gjörn, ofvirk í félagslífinu, rekur
hendina alltaf upp þegar spurt er
og stefnir hátt í líflnu. En hún er
líka valdurinn að því að besti vin-
ur Jims, sem var meðkennari hans,
var rekinn frá skólanum eftir ást-
arsamband þeirra. Jim þolir ekki
að Tracy sé á hraðri leið upp með-
orðastigann þannig að hann grípur
til þess ráðs að fá vinsælasta
íþróttamann skólans, Paul Metzler,
sem lenti nýlega í skíðaslysi, til að
bjóða sig fram á móti henni. Úr
verður frábær barátta þar sem eng-
um er hlíft og við söguna bætast
margar undirfléttur. Það sem þó
helst stendur upp úr er frábær leik-
ur Witherspoon i hlutverki Tracy
Flick. Hún var sprenghlægileg og
ég þarf rétt svo að rifja upp nafnið
tU að fara að hlæja. Broderick var
líka fmn og það er gott að sjá hann
í einhverju öðra en lélegum mega-
myndum. Þá hefur leikstjórinn Al-
exander Payne greinilega nóg að
segja og hér tókst honum stórvel
UP£e ikstjóri : Alexander Payne.
Handrit: Tom Perotta, Alexander
Payne, Jim Taylor. Aðalhlutverk:
Matthew Broderick, Reese
Witherspoon.
Halldór V. Sveinsson
20
f ÓktlS 5. nóvember 1999