Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1999, Qupperneq 8
-26
MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1999
Sport
m
t»YSKALAND
Willstatt - Wuppertal ......26-24
Wetzlar - Schutterwald......24-17
Gummersbach - Dormagen .. . 25-22
Nordhom - Bad Schwartau . . . 25-20
Flensburg 11 10
Kiel 10 8
Nordhorn 11 7
Magdeburg 11 7
Essen
12 8
Lemgo 11
Minden 11
Grosswallst. 11
Frankfurt 12
Nettelstedt 11
Wetzlar 11
Gummersb. 12
B.Schwartaull
Wuppertal 11
Eisenach 11
Dormagen 11
Willstatt 12
Schutterw. 12
0 8
1 8
0 10
1 11
320-265 20
282-232 17
288-243 16
261-216 16
303-287 16
278-242 15
291-271 15
270-258 14
270-260 11
290-297 11
261-268 11
277-285 10
230-266 8
253-284
251-283
233-262
256-331
245-309
Bland í nolca
Flensburg frá Þýskalandi sigraði
Alsmeer, 23-29, í Hollandi i fyrri leik
liðanna í 16-liða úrslitum EHF-bik-
arsins í handknattleik á laugardag.
Lars Christiansen skoraði 10 mörk
fyrir Flensburg.
Aron Kristjánsson náði ekki að
skora fyrir Skjern Crá Danmörku sem
tapaði, 16-20, fyrir Zaporozhje frá
Úkrainu í meistaradeild Evrópu.
Skjern hefur tapað öllum þremur
leikjum sínum.
Kiel valtaði yfir hið sterka lið Ade-
mar Leon frá Spáni, 39-24, í meist-
aradeildinni i gær og er með örugga
stöðu í sínum riðli. Lemgo vann hins
vegar nauman sigur á Dukla Prag,
25-23, i Evrópukeppni bikarhafa.
Arsene Wenger, knattspymustjóri
hjá Arsenal, er efstur á óskalista for-
ráðamanna Real Madrid um að taka
við starfi Walesverjans John Tos-
hack sem þjálfari liðsins. Toshack er
valtur í sessi en fékk gálgafrest þegar
Madridarliðið bar sigurorð af toppliði
Rayo Vallecano um siöustu helgi.
1 fyrsta sinn hefur Ryan Giggs,
útherjinn snjalli hjá Manchester
United, gefið það í skyn að hann yfir-
gefi United. „Ég á 3 ár eftir af samn-
ingi mínum og hver veit hvað gerist
eftir það. Við gætum unniö Evrópu-
bikarinn næstu 2-3 árum og ef það
yrði niðurstaðan gæti ég viljað prófa
eitthvað annað,“ segir Giggs.
Celtic hefur slegist í hóp Real Ma-
drid, Lazio og Inter Milano sem vilja
fá Roy Keane, fyrirliða Man.Utd, í
sínar raðir, fari svo aö írinn ákveði
að yfirgefa United í lok leiktiðar.
-VS/GH
visir.is
Notaðu vísifingurinn!
Þýski handboltinn:
Gústaf
með 9
- og Willstátt vann annan leikinn í röð
Gústaf Bjarnason, landsliðs-
maður í handknattleik, var mað-
urinn á bak við annan sigur
Willstátt í röð í þýsku A-deiIdinni
á laugardagskvöldið. Willstátt,
sem hafði tapað fyrstu 10 leikjum
sínum í deildinni, fylgdi eftir góð-
um sigri á Schutterwald á dögun-
um með því að leggja Wuppertal,
26-24, og skoraði Gústaf 9 mörk í
leiknum.
Magnús Sigurðsson skoraði 4
mörk og íslendingarnir tveir
gerðu því helminginn af mörkum
liðsins. Dagur Sigurðsson lék á
ný með Wuppertal eftir meiðsli
og skoraði eitt mark en Valdimar
Grímsson er enn frá keppni.
Þjálfarinn Stephan Schöne var at-
kvæðamestur hjá Wuppertal og
skoraði 8 mörk.
Dormagen missti niður
góða forystu
íslendingaliðið Dormagen fór
illa að ráði sínu gegn Gummers-
bach og tapaði, 25-22, eftir að
hafa náð fjögurra marka forystu í
síðari háifleiknum. Róbert Sig-
hvatsson, sem varð 27 ára á laug-
ardaginn, skoraði 5 mörk, Héðinn
Gilsson 2 og Daði Hafþórsson eitt.
„Við lékum illa síðasta korter-
ið, spiluðum of stuttar sóknir og
vorum líka mikið manni færri.
Nú verðum við að vinna næsta
leik sem er gegn Wetzlar á heima-
velli,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson, annar þjálfara Dor-
magen, við þýska fjölmiðla eftir
leikinn.
Sigrar hjá Wetzlar og
Nordhorn
Sigurður Bjamason skoraði 2
mörk fyrir Wetzlar sem kom sér
enn lengra frá botninum með
stórsigri, 24-17, á neðsta liðinu,
Schutterwald, en staðan var 14-7
í hálfleik.
Guðmundur Hrafhkelsson og
félagar í Nordhorn halda áfram í
við efstu liðin eftir sigur á Bad
Schwartau i gær, 25-20. Þeir
höfðu örugga forystu allan leik-
inn en þóttu þó ekki spila eins vel
og í fyrstu umferðunum. Norð-
maðurinn Frode Hagen var at-
kvæðamestur hjá Nordhom með
7 mörk.
fleiri leikir voru ekki á dag-
skrá þar sem fimm þýsk lið voru
í eldlínunni í Evrópumótum fé-
lagsliða um helgina. -VS
m
1. DEILD KVENNA
Valur 9 6 1 2 212-154 13
Grótta/KR 8 6 1 1 188-147 13
Víkingur R. 7 5 2 0 151-119 12
Haukar 8 4 2 2 192-159 10
Stjaman 9 5 0 4 248-208 10
ÍBV 7 4 1 2 177-148 9
FH 8 3 2 3 184-156 8
Fram 8 4 0 4 184-175 8
ÍR 8 2 0 6 126-180 4
KA 8 0 1 7 133-186 1
Afturelding 8 0 0 8 134-289 0
Gústaf Bjarnason hefur leikið vel með Willstátt að undanförnu og hann skoraði
9 mörk gegn Wuppertal á laugardaginn.
1. deild kvenna í handknattleik:
Bylting hjá Fram
- sagði Guðríður eftir góðan sigur á Haukum
Framkonur eru á hraðri uppleið
eftir slæma byrjun á íslandsmóti
•kvenna í handknattleik. Eftir fjögur
töp í fyrstu fimm leikjunum unnu
þær sinn þriðja sigur í röð á laugar-
daginn þegar Haukar komu í heim-
sókn í Safamýrina. Lokatölur urðu
23-21 fyrir þær bláklæddu eftir
14-11 í hálfleik.
„Þetta var góður leikur hjá okkur
og það hefur orðið hrein bylting á
liðinu síðan Gústaf Bjömsson tók
við þjálfuninni á ný,“ sagði Guðríð-
ur Guðjónsdóttir, handknattleiks-
konan margreynda, við DV en hún
starfar nú í meistaraflokksráði
kvenna hjá Fram.
Hugrún Þorsteinsdóttir var að
öðrum ólöstuðum besti leikmaður
Fram en hún varði um 20 skot í
leiknum.
Mörk Fram: Björk Tómasdóttir 6,
Marina Zoueva 4, Díana Guðjónsdóttir 4,
Olga Prokorova 3, Bjarney Björnsdóttir 3,
Hafdís Guðjónsdóttir 2, Sara Smart 1.
Mörk Hauka: Harpa Melsteð 5,
Hanna G. Stefánsdóttir 4, Sandra Anulyte
3, Tinna Halldórsdóttir 3, Inga Fríða
Tryggvadóttir 3, Ragnheiður Guðmunds-
dóttir 2, Hekla Daðadóttir 1.
Víkingur skoraði 39
Víkingur vann Aftureldingu auð-
veldlega eins og vænta mátti, 39-20,
í Víkinni en staðan var 23-6 í hálf-
leik.
Mörk Víkings: Heiðrún Guðmunds-
dóttir 11, Kristín Guömundsdóttir 7,
Ragnheiður Ásgeirsdóttir 4, Margrét Eg-
ilsdóttir 4, Helga B. Brynjólfsdóttir 4, Eva
Halldórsdóttir 3, Steinunn Bjarnason 2,
Anna Kristín Árnadóttir 2, Guðrún Krist-
jánsdóttir 1, Bryndís Kristjánsdóttir 1.
Mörk Aftureldlngar: Jolanta Lind-
aite 10, Ingibjörg Magnúsdóttir 5, Sigur-
björg Kristjánsdóttir 2, Aníta Pálsdóttir
2, Edda Eggertsdóttir 1.
Valur í vandræðum
Valur lenti í mikum vandræðum
með ört vaxandi lið KA á Akureyri
og vann nauman sigur, 18-19. Stað-
an í hálfleik var 8-12, Val i hag.
Sextán ára stúlka, Asdís Sigurðar-
dóttir, skoraði helminginn af mörk-
um KA.
Mörk KA: Ásdís Sigurðardóttir 9,
Inga Huld Pálsdóttir 3, Þórunn Sigurðar-
dóttir 3, Martha Hermannsdóttir 2, Arna
Pálsdóttir 1.
Mörk Vals: Helga Sólveig Ormsdóttir
9, Arna Grímsdóttir 5, Eivor Pála Blöndal
3, Gerður Beta Jóhannsdóttir 1, Sigur-
laug Rúna Rúnarsdóttir 1.
Öruggur sigur ÍBV
ÍBV sigraði ÍR örugglega í Selja-
skóla í gær, 13-20. Jafnræði var til
að byrja með en síðan náði ÍBV
góðri forystu, leiddi 5-10 í hálfleik
og var ekki í vandræðum eftir það.-
Mörk ÍR: Ingibjörg Jóhannsdóttir 5,
Inga Jóna Ingimundardóttir 3, Katrin
Guðmundsdóttir 2, Þorbjörg Eysteins-
dóttir 1, Heiða Guðmundsdóttir 1, Anna
Margrét Sigurðardóttir 1.
Mörk ÍBV: Anita Andersen 7, Amelia
Hegic 5, Ingibjörg Jónsdóttir 5, Guðbjörg
Guðmannsdóttir 2, Edda S. Snorradóttir
1. -VS
Mistakaleikur
„Þetta var mistakaleikur enda
markatalan ekki há. Það var mikið
um mistök, óvönduð skot og glötuð
dauðafæri. En markvarslan var
góð og báðir markmennirnir eiga
hrós skilið," sagði Ragnheiður
Stephensen, fyrirliði Stjömunnar,
eftir sigur á FH, 22-20, í 1. deild
kvenna á laugardag.
Stjarnan náði yfirhöndinni í
fyrri hálfleiknum og leiddi 10-8 í
hálfleik. í seinni hálfleik náðu
Garðbæingar mest fjögurra marka
forskoti en FH bætti leik sinn þeg-
ar Drífa Skúladóttir kom til sög-
unnar, náði að minnka muninn í
eitt mark, 19-18. Stjarnan var ekki
á því að gefa sigurinn eftir, skoraði
þrjú mörk 1 röð og tvö mörk frá
Drífu Skúladóttur í lokin komu
ekki í veg fyrir sigur Stjörnunnar,
22-20.
Jolanta Slapikiene, markvörður
FH, var frábær í þessum leik, varði
24 skot og forðaði FHfrá stærra
tapi. Björk Ægisdóttir lék best úti-
leikmanna FH. Hjá Stjömunni léku
þær Þóra B. Helgadóttir og Anna
Blöndal best.
Mörk Stjörnunnar: Anna Blöndal 5,
Þóra B. Helgadóttir 5, Svava B. Jónsdótt-
ir 4, Margrét Vilhjálmsdóttir 3, Ragn-
heiður Stephensen 3, Nína K. Björns-
dóttir 2. Varin skot: Sóley Halldórsdótt-
ir: 10.
Mörk FH: Björk Ægisdóttir 5, Hrafn-
hildur Skúladóttir 5, Þórdís Brynjólfs-
dóttir 3/3, Drífa Skúladóttir 3, Dagný
Skúladóttir 2, Gunnur Sveinsdóttir 1,
Hafdís Hinriksdóttir 1/1. Varin skot:
Jolanta Slapikiene: 24/1. -ih