Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1999, Side 2
24
MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 1999
Sport
i>v
Hvað finnst þér?
Hvaöa íþrótt finnst
þér skemmtilegast
að horfa á í
sjónvarpi?
Pétur Torfi Guðmundsson:
Mér finnst langskemmtilegast
að horfa á körfubolta. Hann er
líka í miklu uppáhaldi hjá mér.
Birgir Guðbjartsson:
Á handboltann er gaman að
horfa, hann er hraður,
skemmtilegur og mikið að ger-
ast í honum.
Bradley G. Guðmundsson:
Fótboltinn er
þrælskemmtilegur og ég horfl
alltaf á hann þegar Manchester
United er að spila.
Magnús Finnur Hauksson:
Ég horfi á allar boltaíþróttir í
sjónvarpi. Ætli mér fmnist ekki
fótboltinn skemmtilegastur.
Erling Proppé Sturluson:
Ég horfi eiginlega á allar
íþróttir. Ef ég ætti að nefna
eitthvað finnst mér fótbolti og
körfubolti besta efnið.
Rivaldo bestur á árinu
Knattspyrnutímaritið World Soccer Magazine kunngerði um helgina
niðurstöðuna í kjöri á knattspymumanni ársins sem lesendur blaðsins
tóku þátt í. Hinn brasilíski Rivaldo hjá spænska liðinu Barcelona fékk
glæsilega kosningu eða alls 42,27 prósent atkvæða. Annar í kjörinu varð
David Beckham hjá Manchester United með 26,55% atkvæða og í þriðja
sæti kom Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko sem leikur með ítalska
liðinu AC Milan með 9,02% atkvæða. Rivaldo er talinn líklegur til að
verða kjörinn knattspyrnumaður ársins í Evrópu en niðurstaða í því
kjöri verður kunngjörð nú í vikunni. Þrír efstu í kjörinu í fyrra, Zinedi-
ne Zidane, Michael Owen og Ronaldo, komust ekki inn á lista tíu efstu
manna. Manchester United er lið ársins og ætti sú niðurstaða ekki að
koma neinum á óvart. -JKS
Jesus vildi endur-
greiða miðana
Eins og áhugamenn um knattspymu vita hefur hvorki gengið né rek-
ið hjá spænska liðinu Real Madrid það sem af er leiktíðinni þar í landi.
Mikil óánægja hefur verið með gengi liðsins og stuðningsmennirnir æfir.
Sl. mánudag gerði Jesus Gil, forseti félagsins, þeim tilboð. Þeir sem áttu
ársmiða á leiki Real Madrid gátu fengið andvirði þeirra endurgreitt ef
þeir gerðu vart við sig fyrir fóstudag. Aðeins 43 af um 25.000 stuðnings-
mönnum félagsins sóttu aurana sína.
Helga Torfadóttir, markvörður Víkings og landsliðsins:
Framar vonum
Kvennalið Víkings í handbolta
hefur verið að leika sérlega vel til
þessa i vetur og trónir í efsta sætinu
í deildinni. Víkingur er eina tap-
lausa liðið í deildinni sem hefur
raunar sjaldan verið jafnari en
einmitt nú. 5-6 lið em í einum
hnapp og ljóst að skemmtileg og
spenandi keppni er fram undan hjá
stelpunum í vetur. Vikingsliðið er
sterk liðsheild og það kannski öðm
fremur er ástæða fyrir því að liðið
situr á toppnum.
Variö markiö af stakri prýöi til
þessa ívetur
Á engan er þó hallað að segja að
Helga Torfadóttir eigi stóran þátt í
gengi liðsins en hún hefur varið
markið af stakri prýði og ósjaldan
verið að veija í kringum 20-25 skot í
leik. Það munar um minna að hafa
slíkan markvörð á bak við vömina.
Helga Torfadóttir er 22 ára gömul
og stundar nám í sjúkraþjálfun í Há-
skóla íslands og er þar á fyrsta ári.
Hún hefur átt sæti í íslenska lands-
liðinu undanfarin flmm ár. Helga er
borin og barnfæddur Víkingur ef
hægt er að segja svo en handbolta
byrjaöi hún að æfa þegar hún var 12
ára gömul.
- Hefur gengi liðsins i vetur ver-
ið betra en þið sjálfar áttuð von á
í upphafi?
„Það hefur gengið ótrúlega vel og
að vera í fyrsta sætinu og hafa ekki
tapað leik er framar vonum. Miðað
við það hvernig okkur gekk á
Reykjavíkurmótinu í haust er gam-
an að sjá hvemig liðinu hefur vaxið
ásmegin. Ég þakka þetta samheldn-
um hóp, við erum samstíga og stað-
ráðnar í að standa okkur. Þetta held
ég að hafl gert gæfumuninn og ég hef
fulla trú á því að við höldum áfram
á sömu braut eftir áramótin."
- Hvernig finnst þér annars
handboltinn báinn að vera i vetur?
„Það er rosalega gaman að sjá
hvað deildin er jöfn en það hefur
hún ekki verið í langan tíma. Þetta
gerir handboltann mun skemmti-
legri en ella. Liðin eru flest frekar
ung en það hafa verið að koma fram
ungar stelpur sem setja vissulega
svip sinn á mótið. Ég held að deildin
verði þetta jöfn allt fram til loka og
fyrir vikið verður hvert stig dýrmæt-
ara.“
Lék í tvö tímabil í Noregi og
Svíþjóö
Helga lék í tvö ár erlendis. í Sví-
þjóð með Eslöv og í Noregi með
Bryne, og eftir veruna þar kom hún
sterkari markvörður til baka.
- Nú hefur þá reynslu af þvi að
leika erlendis. i hverju liggur
munurinn samanborið við ísland?
„Bestu liðin í Svíþjóð er sterkari
en liðin hér heima. í Noregi lék ég í
B-deild en handboltinn þar er yfir
höfuð töluvert sterkari en hér. Til að
nálgast bestu þjóðimar í Evrópu
þurfum við einfaldlega að æfa betur.
í bestu deildunum erlendis gera
stelpumar ekkert annað en að æfa
og keppa en hér emm við í námi eða
fullri vinnu með. Uppbyggingin og
framtíðarsýnin þarf að vera með
markvissari hætti en hún er í dag.“
- Ná vilja margir meina að
framfarir hafi verið þónokkrar á
siðustu árum. Ertu ekki sammála
því?
„Jú, ég merkti þær alveg sérstak-
lega eftir að ég kom erlendis frá. Lið-
in era jafnari en áður en ekki held
ég að þau séu að æfa meira en áður
var.“
- Hvað með framtíðaráform. Ef
þér byðist að fara aftur át myndir
þá slá til?
Já, ég myndi fara strax. Mig lang-
ar að leika i A-deildinni í Noregi. Ég
fékk að vísu tilboð þaðan frá tveim-
ur félögum fyrir tímabilið en var þá
búin að skrifa undir hjá Víkingi og
ákveðin að fara í Háskólann. Það er
vonandi að mér bjóðist aftur slíkt
tækifæri þegar betur stendur á.
- Hvað með einkalífið hjá þér?
- Ég er kona einsömul og sé ekki
fram á breytingu í þeim efhmn á
næstunni. Námið og handboltinn
hefur forgang nú um stundir," sagði
Helga Torfadóttir. -JKS