Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2000, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2000, Síða 25
MÁNUDAGUR. 3 JANÚAR 2000 49 Fréttir Skaftfellingar gera átak 1 ferðamálum: Gönguleiðir merktar Gerður hefur verið samstarfs- samningur milli sveitarfélagsins Hornafjarðar og stjórnar átaks í merkingu gönguleiða í Austur- Skaftafellssýslu. Stjórn átaksins skipa flmm fulltrúar. Sveitarfélagið mun sjá um verkstjóm unglinga- vinnuflokka sem vinna við merk- ingu gönguleiða og fleiri verkefni í þágu átaksins. Einnig fær stjórn átaksins afnot af kortagrunni sem unninn hefur verið af sveitarfélag- inu vegna gerðar aðalskipulags ásamt ömefnakortum. Ekki er gert ráð fyrir beinum fjárframlögum úr bæjarsjóði vegna verkefnisins. Stjórn átaksins ábyrgist að á hverjum tíma sé til nægilegt fé til að greiða kostnað við verkefnið. Tvö ár eru síðan farið var að huga að gerð gönguleiða í sýslunni og eru víða orðnar merktar leiðir. Verið er að gera kort og leiðarlýs- ingu af þessum ieiðum og hugmynd- ir eru um að merkja sögustaði og ör- nefni. Margir hafa lagt þessu göngu- leiðaverkefni lið, bæði með vinnu og fjárframlögum, og t.d. hefur um- hverfissjóður verslunarinnar tví- vegis lagt 500 þúsund krónur til verksins'. -JI Garðar Jónsson bæjarstjóri og Sigurlaug Gissurardóttir skrifa undir sam- starfssamninginn. DV-mynd Júlía Búðardalur: Tíu milljónir til safhahúss DV, Vesturlandi: Ákveðið hefur verið að veita tíu milljónir króna til uppbyggingar safnahúss 1 Búðardal, sem færist á Eiríksstaðanefnd á fjárlögum, en samkvæmt upphaflegu fjárlaga- frumvarpi, eins og það var lagt fram í haust, komu 20 milljónir króna í hlut Eiríksstaðanefndar. Þessi við- bótartillaga sem nú héfur verið samþykkt er til að standa straum af kostnaði við uppbyggingu sýninga en tillögur eru um sérstakar sýning- ar og móttöku ferðamanna i gamla kaupfélagshúsinu. -DVÓ Ragnar Örn Pétursson, formaður Heilbrigðisnefnar Suðurnesja, og Ólafur Pór Ólafsson, íþrótta- og tómstundafull- trúi í Sandgerði, skrifa undir samninginn milli nefndarinnar og SamSuö. Lengst til hægri er Berglind Bjarnadóttir, forstööumaöur félagsmiðstöðvarinnar Fjörheima í Reykjanesbæ. DV-mynd Arnheiður Kanna sölu tóbaks til ungmenna - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja tekur við eftirliti með tóbakssölu DV, Suðurnesjum: Heilbrigðisnefnd Suðurnesja og SamSuð, Samtök félagsmiðstöðva á Suðurnesjum, hafa gert með sér samstarfssamning um kannanir á sölu tóbaks til barna og ungmenna á svæðinu. Samningurinn gerir ráð fyrir að SamSuð geri a.m.k. þrjár reglu- bundnar kannanir á tóbakssölu ungmenna undir 18 ára aldri á samningstímanum og skulu þær fara fram á útsölustöðum tóbaks á Suðumesjum og gerðar í samráði við Heilbrigðiseftirlitið. Samningstíminn er til að byrja með eitt ár, frá 1. janúar til loka árs- ins 2000. Þá stendur SamSuð fyrir samkeppni um slagorð gegn sölu á tóbaki til ungmenna og lætur útbúa veggspjöld með upplýsingum um skaðsemi reykinga og reglur um sölu tóbaks. Samkvæmt lögfræðiáliti, sem Tó- baksvarnanefnd óskaði eftir nú í haust um það hver ætti að hafa eft- irlit með því að börnum sé hvorki selt né afhent tóbak, kemur fram að heilbrigðisnefndir skuli hafa eftir- litið. Heilbrigðisnefnd Suðurnesja er fyrsta nefndin á landinu sem fer af stað með sérstakt átak sem felur í sér eftirlit með útsölustöðum tó- baks. -AG V' 108 Reykjavík Faxafeni 8 sími: 533 1555 Öskar landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir viðskiptin og viðtökur á nýliðnu ári 603 Akureyri Sunnuhlíð sími:462 4111 Útsalan hefst 5. janúar í Reykjavík 6. janúar á Akureyri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.