Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2000, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2000, Blaðsíða 34
58 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 Afmæli Sveinn Torfi Sveinsson Sveinn Sveinsson verkfræðingur, Hraungörðum, Garðabæ, varð sjö- tíu og fimm ára í gær. Starfsferill Sveinn fæddist á Hvítárbakka í Andakílshreppi í Borgarfirði en ólst upp í Reykjavík. Hann lauk stúd- entsprófi frá MR 1944, fyrri hluta- verkfræðiprófi frá HÍ og seinni hluta-verkfræðiprófl frá Danmarks Tekniske Hojskole 1949. Sveinn var verkfræðingur við Hitaveitu Reykjavíkur 1949, deildar- verkfræðingur þar 1950-61 en hefur starfrækt eigin verkfræðistofu frá 1961. Sveinn sat í ritnefnd Ökuþórs, tímarits FÍB 1950-52, var formaður FÍB 1952-56, í þyggingarnefnd Garðabæjar og formaður hennar i nokkur ár, í almannavarnanefnd Hafnarfjarðarumdæmis 1971-94 og formaður þar frá 1986, í stjórn Hag- tryggingar hf. frá 1965-86, og í lands- þjónustunefnd AA-samtakanna frá 1994. Hann hefur starfaði í Rotaryklúbbnum í Garðabæ frá stofnun 1965, sat í stjórn klúbbsins og var forseti hans i eitt ár. Fjölskylda Sveinn kvæntist 4.7. 1953 Elísabetu Hinriks- dóttur, f. 8.4. 1925, hús- móður. Hún er dóttir Henriks Schumanns Wagles, vélgæslumanns af norskum ættum er varð íslenskur ríkisborg- ari, og Önnu Ámadóttur húsmóður. Dætur Sveins og Elísa- betar eru Vilborg Elín Torfadóttir, f. 23.10. 1954, húsmóðir í Garðabæ, var gift Einari J. Benediktssyni vél- gæslumanni en sambýlismaður hennar er Stefán Sigurðsson verk- taki; Ingibjörg Ásdís Torfadóttir, f. 22.5. 1959, húsmóðir í Hafnarflrði, gift Jóni I. Ragnarssyni húsgagna- smið. Dóttir Sveins og Þórunnar Árna- dóttur ljósmóður er Ingibjörg Erna Sveinsdóttir, f. 16.7.1962, húsmóðir, gift Helga Ó. Ólafssyni líffræðingi. Systir Sveins er Sigrún Ásdís Sveinsson, f. 15.1. 1935, búsett í Bali i Indónesínu, var gift Vinko Mir, hagfræðingi í Ljubljara i Slóveníu og síðar bankastjóra, en þau skildu og er sonur þeirra Jón Alexander Mir, f. 16.9. 1962, raf- magnsverkfræðingur, kvæntur Önnu Nusa Mir. Foreldrar Sveins voru Gústaf Adolf Sveinsson, f. 7.1.1898, d. 5.1.1971, hrl. í Reykjavík, og k.h., Olga Dagmar Sveinsson, f. Jónsdóttir, f. 15.8. 1898, d. 27.8. 1981, húsmóðir. Ætt Gústaf Adolf var bróðir dr. Ein- ars Ólafs Sveinssonar, fóður Sveins, leikskálds og leikstjóra. Gústaf Ad- olf var sonur Sveins, b. í Suður- Hvammi í Mýrdal, bróður Guðrún- ar, móður Orms, rafveitustjóra í Borgarnesi og Ólafs, foður Orms, formanns Kvæðamannafélagsins Ið- unnar, föður Ólafs rithöfundar. Guðrún var einnig móðir Eiríks og Jóns er stofnuðu fyrirtækið Bræð- umir Ormsson en Jón var faðir Jóns Aðalsteins, fyrrv. forstöðu- manns Orðabókar HÍ, föður Jóns Viðars leiklistargagnrýnanda. Sveinn var sonur Ólafs, b. í Eystri- Lyngum, Sveinssonar, bróður Ingi- mundar, afa Jóhannesar Kjarvals. Móðir Sveins var Guðrún Bjarna- dóttir, b. í Efri-Ey, Runólfssonar og Ingibjargar Nikulásdóttur. Móðir Gústafs Adolfs var Vilborg Einarsdóttir, oddvita í Efri-Ey, Ein- arssonar og Rannveigar Magnús- dóttur. Olga var dóttir Jóns, sölustjóra í Efnagerð Reykjavíkur, Gíslasonar, b. á Lambanes-Reykjum í Fljótum, Árnasonar, b. á Brekku í Vall- hólma, Gíslasonar. Móðir Gísla var Guðbjörg, systir Margrétar, ömmu Einars, alþm. á Hraunum í Fljótum, fóður Páls borgarstjóra, fóður verk- fræðinganna Einars borgarverk- fræðings og Ólafs, föður Unnar veð- urfræðings. Guðbjörg var dóttir Gísla, prests í Stærra-Árskógi, Jóns- sonar biskups Teitssonar. Móðir Olgu var Ásdís Jónsdóttir, sjómanns frá Miðdalshúsum, Hall- dórssonar og Guðrúnar Nikulásdótt- ur, b. i Hraunkoti í Grímsnesi, Þórðarsonar. Móðir Guðrúnar var Ingunn Erlendsdóttir. Sveinn Torfi Sveinsson. UWtFeBÐ^B báð___ Góður hjálmur uppfyllir þessar kröfur: Hann skal vera prófaður af viðurkenndri stofnun og merktur með (g-merki. Hann verndar enni, hnakka, gagnaugu og koll, passarvel, situr þétt á höfðinu, rennur ekki aftur á hnakka.hindrar hvorki sjón né dregur úr heyrn, er mjúkur næst höfðinu, er léttur og með loftopum, er með stillanlegt hökuband og spennu sem auðvelt er að opna og loka. Spennan á að vera til hliðar en ekki undir hökunni. Er auðveldur í notki Hiátroof yeogur nýjan! Fleygið honum 09 Samkvæmt umferðarlögum má barn yngra en 7 ára ekki hjóla á akbraut nema undir eftirliti fullorðinna. Höfum þó í huga að börn hafa almennt ekki öðlast þá færni sem hjólreiðar í umferð krefjast fyrr en við 10-12 ára aldur. Allir hjólreiðamenn undir 15 ára aldri eiga að nota hlífðarhjálm. Til hamingju með afmælið 3. janúar 90 ára Kristján Ágúst Lárusson, Jökulgrunni 4, Reykjavík. 85 ára Kristín Jónsdóttir, Draflastöðum, Eyjafjarðarsv. 80 ára Guðmundur Axelsson, Valdarási syðri, V. Hún. Sigurður Sigurðsson, Aðalstræti 97, Patreksfirði. 75 ára Róbert Róbertsson, Brún, Árnessýslu. 70 ára Árni Baldvin Hermannsson, Hátúni 26, Keflavík. Elín Grímsdóttir, Húnabraut 9, Blönduósi. 60 ára Anna María Jóhannsdóttir, Sunnuhlíð 21e, Akureyri. Guðbjörg Svavarsdóttir, Réttarholti 5, Borgarnesi. Hugrún Selma Hermannsdóttir, Vogsholti 5, Raufarhöfn. Jón Ragnar Björnsson, Laugavegi 83, Reykjavík. Ólafur Larsen, Kotárgerði 1, Akureyri. 50 ára Álfheiður E Sigurðardóttir, Laugarásvegi 32, Reykjavík. Árni Ingimundarson, Hlíðarhjalla 72, Kópavogi. Áslaug Jóhannesdóttir, Hlíðarbraut 2, Hafnarfírði. Bergþóra Annasdóttir, Melgerði 26, Kópavogi. Gunnlaugur Garðarsson, Steinahlíð 8a, Akureyri. Halldór B Kristjánsson, Breiðuvík 1, Reykjavík. Jarin Tanja Chimjaroen, Laugarnesvegi 110, Reykjavík. Kolbriin Stefánsdóttir, Jöklafold 43, Reykjavík. Magnús Þorsteinsson, Tunguheiði 12, Kópavogi. Margrét Á Bj amhéðinsdóttir, Hilmisgötu 5, Vestmannaeyjum. Sigrún B Friðfinnsdóttir, Lækjargötu 30, Hafnarfirði. 40 ára Alda Sigurðardóttir, Ártúni 3, Selfossi. Daniela Ilea Gunnarsson, Háaleitisbraut 45, Reykjavík. Elín Bjarnveig Sveinsdóttir, Egilsstaðakoti, Árnessýslu. Elín Jóhanna Másdóttir, Langholtsvegi 176, Reykjavík. Guðni Birgir Svavarsson, Krummahólum 2, Reykjavík. Hjálmfríður Lilja Nikulásdóttir, Melgerði 11, Kópavogi. Hörður Ingi Sigurgeirsson, Lyngheiði 13, Selfossi. Kári Amgrímsson, Óttuhæð 8, Garðabæ. Konný Guðmundsdóttir, Hæðagarði 1, Höfn. Rudy Cornelis van Doom, Hringbraut 98, Keflavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.