Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Blaðsíða 8
ÞRIÐJUDAGUR. 4 JANÚAR 2000
Stuttar fréttir i>v
Utlönd
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Stillholtl 16-18,
Akranesi sem hér segir á eftir-
farandi eignum:
Einigrund 3, hluti 0101, þingl. eig. Ernir
Freyr Sigurðsson og Eydís Auðunsdóttir,
gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, fbstu-
daginn 7. janúar 2000 kl. 11.
Heiðargerði 24, efri hæð, Akranesi, þingl.
eig. Brynjar Þorlákur Erailsson, gerðar-
beiðendur Búnaðarbanki íslands hf.,
Akranesi, og Rafmagnsveitur ríkisins,
Reykjavík, fóstudaginn 7. janúar2000 kl.
11.
Kirkjubraut 6a, Akranesi, þingl. eig. Ul-
rika Margareta Iwarsson og Valdimar
Bjarni Guðmundsson, gerðarbeiðendur
Akraneskaupstaður og Olíuverslun ís-
lands hf., fóstudaginn 7. janúar 2000 kl.
11.
Reynigrund 13, Akranesi, þingl. eig.
Guðmundur Rúnar Davíðsson, gerðar-
beiðandi Búnaðarbanki íslands hf., Akra-
nesi, fóstudaginn 7. janúar 2000 kl. 11.
Reynigrund 24, 75,34% eignarhluti,
Akranesi, þingl. eig. Helga Atladóttir,
Agnar Guðmundsson og Sigríður Kristín
Óladóttir, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki
íslands hf., Akranesi, föstudaginn 7. jan-
úar 2000 kl. 11.
SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI
Starfsmenn kauphallarinnar í Osaka í Japan voru prúöbúnir viö upphaf viöskipta í morgun, á fyrsta vinnudegi ný-
byrjaös árs. í lok dagsins haföi Nikkei veröbréfavísitalan hækkaö mikiö.
Clinton mis-
tókst að fá leið-
togana saman
Bill Clinton Bandaríkjaforseta
mistókst í gær að fá leiðtoga ísra-
els og Sýrlands á sameiginlegan
fund með sér, eins og búist hafði
verið við. Þeir Ehud Barak, for-
sætisráðherra ísraels, og Farouq
al-Shara, utanríkisráðherra Sýr-
lands, eru komnir til Vestur-Virg-
iníu að ræða friðarsamninga
milli landanna.
Háttsettir heimildarmenn inn-
an israelsku sendinefndarinnar
sögöu aö strandaö hefði á því
hvaða mál samningamennirnir
tækju fyrst til meðferðar. ísraelar
leggja mikla áherslu á að ræða ör-
yggismál og eðlileg samskipti
ríkjanna en Sýrlendingar vilja
fyrst ræða um brotthvarf ísra-
elska hersins frá Gólanhæðum.
Clinton hélt aftur til Was-
hington eftir níu klukkustunda
fundasetur með leiðtogunum sitt í
hvoru lagi. James Rubin, talsmað-
ur bandariska utanríkisráðuneyt-
isins, sagði að þríhliða fundur
yrði ekki haldinn þann daginn.
Kohl undir smá-
sjá saksóknara
Opinber rannsókn á meintu
saknæmu athæfi Helmuts Kohls,
fyrrum Þýskalandskanslara, hófst
í gær. Kanna á hvort Kohl braut
lög með því aö taka við leynileg-
um greiðslum til stjómarflokks
kristilegra demókrata á sextán
ára valdaferli hans.
Hneykslismálið braust upp á
yfirborðið fyrir mánuði þegar
Kohl viðurkenndi að hafa ekki
greint frá um sjötíu milljóna
króna framlagi til flokksins. Kohl
hefur þráfaldlega neitað að skýra
frá nöfnum gefendanna.
Mál þetta hefur bæði skaðað
Kohl og flokk hans, sem nú er í
stjómarandstöðu, mikið.
Vladímír Pútín hreinsar til í Kreml:
Forseti ísraels tók við
greiðslum frá auðkýfingi
Forseti ísraels, Ezer Weizman, er
flæktur í fjármálahneyksli og kreíj-
ast ísraelskir fjölmiðlar þess að
hann segi af sér. Ríkissaksóknarinn
i ísrael, Elyakim Rubinstein, hefur
tilkynnt að hann ætli að láta rann-
saka mánaðarlegar greiðslur til
Weizmans frá gyðingi og auðkýfingi
í Mónakó, Edward Sarusi, á fimm
ára timabili áður en Weizman varð
forseti 1993. Samanlagt á Weizman
aö hafa tekiö við hálfri milljón doll-
ara.
Talsmaður israelska dómsmála-
ráðuneytisins segir að ekki sé um
réttarfarslega rannsókn að ræða.
Forsetinn hafi bara verið beðinn
um að gera grein fyrir í hvað fénu
hafi verið varið.
Weizman hefur ekki neitað að
hafa tekið við greiðslunum. Hann
fullyrðir hins vegar að ekki hafi
verið um ólöglegt athæfi að ræöa.
Samkvæmt talsmönnum forsetans
fór meirihluti fjárins til að greiða
lækniskostnað fyrir son forsetans.
Sonurinn, Shaul, skaddaðist á höfði
er egypskur hermaður skaut á hann
við Súezskurð.
ísraelskir fjölmiðlar eru á þeirri
skoðun að forsetinn hafi gert stór
mistök. ísraelsk sjónvarpsstöð full-
yrti I síðustu viku aö Weizman
hefði notað peningana í eigin þágu
og þar meö brotið lög sem banna op-
inberum starfsmönnum að halda
gjöfum sem þeir taka við í embætti
sínu. Weizman var leiðtogi Yahad-
flokksins er hann tók við fénu.
Hann var auk þess þingmaður og
sat í ríkisstjórninni. Weizman lét í
gær tilkynna að hann fagnaði rann-
sókninni og að hann hefði ekkert aö
fela.
Weizman kveöst ekkert hafa aö fela.
Símamynd Reuter
fyrst
Vladímír Pútín, nýskipaður for-
seti Rússlands, lét það verða eitt sitt
fyrsta verk í embætti að reka
Tatjönu Djatsjenkó, dóttur Bórísar
Jeltsíns, fráfarandi forseta, úr emb-
ætti ímyndarsmiös forsetaembættis-
ins. Pútín tók við embættinu á
gamlársdag eftir óvænta afsögn
Jeltsíns.
Pútín hefur gert ýmsar manna-
breytingar í Kreml, meðal annars
vikið Dmítrí Jakúsjkín, persónuleg-
um blaðafulltrúa Jeltsíns, úr emb-
ætti og gert hann að aðstoðarmanni
starfsmannastjórans.
Búist hafði verið við að Pútín
myndi stokka upp í starfsliði Kreml-
ar. Ekki síst var þess vænst að hin
umdeilda Djatsjenkó yrði látin taka
pokann sinn.
Hin 39 ára gamla Djatsjenkó kom
fram á sjónarsviðið í febrúar 1996
þegar hún gerðist ímyndarfræðing-
ur föður sins í baráttunni um end-
urkjör til forsetaembættisins þá um
sumarið. Þegar svo Jeltsín gerði
dóttur sína að opinberum ráðgjafa
til að fara
Vladímír Pútín, nýskipaður forseti
Rússlands, hefur ekki setiö aögeröa-
laus frá því hann tók viö embættinu af
Bórís Jeltsín á gamlársdag.
sínum i júní 1997 mótmæltu rúss-
neskir fjölmiðlar. Jeltsín benti þá á
að Chirac Frakklandsforseti hefði
gert dóttur sína að ráðgjafa.
Þótt Jeltsín haíl látið af embætti
forseta mun hann áfram gegna hlut-
verki i rússneskum stjómmálum, til
dæmis taka á sig mikilvæg ferðalög
innan lands og utan. Hann mun því
áfram hafa hirð í kring um sig.
Jeltsín fer reyndar í fyrsta ferðalag
sitt á morgun þegar hann heldur til
israels og Palestínu þar sem hann
mun hitta að máli Ezer Weizman,
forseta ísraels, og Yasser Arafat,
forseta Palestínumanna.
Pútín ræddi meðal annarra í gær
við sendifulltrúa Rússa í Tsjetsjeníu
þar sem bardagar héldu áfram af
fullum krafti. Interfax-fréttastofan
hafði eftir heimildarmönnum í her-
stöð rétt utan landamæra Tsjetsjen-
íu að á íjórða tug uppreisnarmanna
hefði falliö í átökum nærri héraðs-
höfuðborginni Grozní. Herinn
greindi einnig frá landvinningum í
suðurfjöllunum.
Nýtt óveður í Evrópu
Óveður herjaði á ný í Búlgaríu,
Rúmeníu, Skotlandi og öðrum
Evrópulöndum í gær. Að minnsta
kosti tveir létust í óveðrinu í
Búlgaríu. 12 þúsund heimili urðu
rafmagnslaus í gær í Skotlandi.
Uppstokkunar að vænta
Búist er við að Abdurrahman
Wahid, forseti Indónesíu, stokki
upp í tveggja mánaða gamalli
stjóm sinni þeg-
ar föstunni lýk-
ur á föstudag-
inn. Er helst
gert ráð fyrir að
ráðherra örygg-
ismála, Wiranto
hershöfðingi, fo*
verði látinn
fara vegna hollustu við fyrrver-
andi stjórn landsins.
Mannræningjar drepnir
Að minnsta kosti 11 múslímsk-
ir uppreisnarmenn og tveir gísla
þeirra létu lífið í gær í árás her-
manna á þorp í Líbanon í gær.
Clinton íhugar þingsetu
Biil Clinton Bandaríkjaforseti
sagði í gær að hann væri enn að
íhuga að sækjast eftir þingsæti
fyrir' Arkansasríki þegar hann
lætur af forsetaembættinu á
næsta ári.
Misheppnuð ástarvika
Tilraunir bæjaryfirvalda í Otta
í Noregi með ástarviku í mars
misheppnuðust. Þrátt fyrir ástar-
mat á veitingastöðum, kampavín
á hótelherbergjum á meðan dag-
heimili buðu upp á næturgæslu
fyrir bömin fæddist ekker bam í
Otta á nýársnótt.
Gore ræðst á Bradley
A1 Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna, sem keppir við Bill Bradley
um að veröa forsetaefni
demókrata, sagði
á kosningafúndi í
Iowa í gær að
Bradley væri
góöur og ærlegur
maður. Hann
hefði hins vegar
engar áætlanir í
efnahagsmálum,
heilbrigðismál-
um og enga heildaráætlun í
menntamálum. Samkvæmt skoð-
anakönnunum er Gore með for-
ystu í Iowa en Bradley í New
Hampshire.
Mannskæð átök
Yfir 20 létu lífið og yfir 30 særð-
ust í átökum milli múslíma og
kristinna sunnan við Kaíró í Eg-
yptalandi á sunnudaginn.
Breskt kjöt til Noregs
Norðmenn hafa ákveðið að
flytja aftur inn nautakjöt frá Bret-
landi. Frakkar og Bandaríkja-
menn neita enn að flytja inn kjöt-
iö af ótta við Creutzfeldt-Jacobs
sjúkdóminn.
Fundað um Elian
Háttsettir kirkjuleiðtogar frá
Bandaríkjunum hittu í gær á
Kúbu fjölskyldu kúbska drengs-
ins Elians Gonzalez til að reyna
að leysa milliríkjadeiluna um
framtíðardvalarstað drengsins.
Hættið í pólítík
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, segir í viötali í dag að
verkalýðsfélög eigi að hætta að
skipta sér af
stjómmálum
og einbeita sér
í staðinn að
þörfum félaga
sinna. Kveðst
Blair sjá fyrir
sér nýtt blóma-
skeið verka-
lýðsfélaganna
stefnu.
Árás á sendiráð
Líbanskir hermenn skutu í gæi
til bana byssumann sem ger
hafði árás á sendiráð Rússa
Beirút í mótmælaskyni við striðii
í Tsjetsjeníu.
Wíf \
skipti
um
Dóttir Jeltsíns