Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
33
Myndasögur
Fréttir
m
w
3
3
tn
w
•i-H
o
:0
in
v<D
'O
3
tj)
tj)
• H
m
u
+-»
M-h
'i?
(B
C
Ég get ekki
úrekið hana. Siggi.
j Bara aí ég vissi
"Jhvaft ég S aft
(gera I mélinuí
J Máiift
(' étrættl )
S r1
J t
Þú Iftur betur út en
þú hefur gert lengi.
Gætirðu ekki lánað mér
v.tvöhundruðkall,
\T7
/Það er eins með smjaður eins og'
í ilmvatn, Venní vinur, það
má aðeins lykta af þvi.__
Æ>y-,
©PIB
Þú hraust svo hátt i nótt
að það gat enginn sofið.
Þú hefur engan sem
styður þetta.
Veglegar timburbrennur á Akranesi:
Loga dögum
saman
- bannað að urða timbrið
Sorpmóttökustöðin Gáma á Akra-
nesi reyndist betri en engin þegar
Skagamenn söfnuðu eldiviöi í ára-
mótabrennur sínar. Var miklu magni
af uppsöfnuðu timbri hjá stöðinni
ekið á brennur, sem gagnrýnisraddir
töldu að skilyrðislaust hefði átt að
kurla og nýta á annan hátt en að
valda með því ómældri loftmengun.
Valdimar Björnsson hjá Gámaþjón-
ustu Akraness segir aö Akreanesbær
hafi ekki viljað nýta þeirra þjónustu
til að koma timbrinu til kurlunar í
Sorpu. Hann segir að magnið sé mik-
iö, enda logi eldur í brennunum í tvo
til þrjá daga. „Ég hló nú mikið að því
um áramótin í fyrra að það þurfti að
slökkva í áramótabrennunni með
haugsugum til að hægt væri aö
kveikja að nýju á þrettándanum.“
Taldi hann að Akranesbær væri að
firra sig urðunarkostnaði með þess-
um aðgerðum.
Málblendiverksmiðjan á Grundar-
tanga hefur nýtt allt tilfallandi kurlað
timbur frá Sorpu og því vakna spurn-
ingar um hvers vegna timburúrkast á
Akranesi hafi ekki verið nýtt á sama
hátt.
Valdimar Þórðarson, forstöðumað-
ur sorpmóttökustöðvarinnar Gámu,
sem er í eigu Akranesbæjar, viður-
kenndi að miklu magni af timbri hafi
verið ekið á tvær brennur á Akranesi
og eina við Innri-Hólm að þessu sinni.
Sagði hann að menn hafi viljað halda
„sæmilega" upp á aldamótin með veg-
legum brennum og því hafi þær verið
hafðar stærri en í fyrra. Magnið hafi
verið töluvert en þó ekkert í líkingu
við það sem sett er í brennur á höfuð-
borgarsvæðinu.
Eru menn ekki bara að komast hjá
urðunarkostnaði?
„Málið er að það var því miður
ófært að senda timbrið í Sorpu í
Reykjavík til að kurla það niður. Það
var of mikið grjót saman við timbrið
og Sorpumenn töldu ófært að kurla
það. Frá og með deginum í dag er hins
vegar ætlunin að ganga betur frá
timbrinu sem til fellur svo hægt sé að
kurla það. Sumarið 1998 létum við
kurla hér á staðnum mörg hundruð
tonn af timbri og var það m.a. selt al-
menningi í garða en kurlið reyndist of
fíngert til að hægt væri að nota það í
Málmblendiverksmiðjunni á Grund-
artanga. Þá má heldur ekki urða timb-
ur - það er bara ekkert öðruvísi.
Ástæðan er sú að frá rotnandi timbri
streymir mikið metangas, sem er eit-
ur fyrir ósonlagið og því er talin
minni mengun af því að brenna það.“
Ekki reyndist imnt að kveikja í
nema annarri brennunni á Akranesi á
gamlárskvöld vegna óhagstæðrar
vindáttar en bera átti eld að brenn-
unni við iþróttavöllinn í gærkvöldi.
-HKr.
Janúarutsölurnar eru aö hefjast eins og myndin ber með sér. Jólin eru liöin
og allt á að seljast um leið og rýmt er fyrir vörum hins nýja árs.
DV-mynd Hilmar Þór
f
i
Ir
l
1
/
i
i
!
I
w
Nýr umboðsmaður
í Neskaupstað
Klara Sveinsdóttir
Sími 477 1489
«