Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2000 Fréttir Stuttar fréttir ðv Krafa á hendur Einari Kárasyni rithöfundi: Heimtar hlutdeild í Djöflaeyjunni - segist eiga söguna og hafa skapaö persónurnar an hefði aldrei orðið til án mín,“ erindi varðandi kröfu Þórarins Ósk- aðra eins vitleysu. Þetta getur ekki sagði Þórarinn Óskar. ars þegar DV ræddi við hann í gær- verið satt,“ sagði Einar Kárason. Einar Kárason rithöfundur kann- kvöldi á heimili hans í Berlín í -EIR aðist ekki við að hafa fengið nokkuð Þýskalandi: „Ég hef aldrei heyrt Þórarinn Óskar Þórarinsson meö danska útgáfu af Djöflaeyjunni og mynd af Jósefínu langömmu sinni: - Jósefína sér um sina. DV-mynd Teitur VR semur um markaöslaun til fjögurra ára: Hefur ekki kynnt sér samninginn - segir Magnús L. um gagnrýni formanns VMSÍ Þórarinn Óskar Þórarinsson, þekktur sem Aggi, hefur farið þess á leit við Einar Kárason rithöfund að hann láti af hendi hljóðritanir sem hafa að geyma frásögn hans sem Einar síðan notaði við samningu Djöflaeyjunnar. „Þjóðin er búin að vera að velta sér upp úr þessari sögu og skemmta sér yfir henni í heil 15 ár án þess að ég hafl fengið krónu í minn hlut. Ég er upphaf þessarar sögu og skapaði þær persónur sem öU þjóðin þekkir í dag. Mér finnst ekki nema eðlUegt að ég fái segul- bandsspólumar með frásögn minni enda keypti ég þær sjálfur á sínum tíma,“ sagði Þórarinn Óskar í gær- kvöldi. „Ég er hins vegar ekki tU- búinn tU að tjá mig um það á hvem hátt ég krefst hlutdeUdar í þeim ágóða sem Djöflaeyjan hefur skUað,“ sagði Þórarinn Óskar en sem kunnugt er hefur bók Einars Kárasonar, um skyldmenni Agga í bröggunum í Reykjavík, verið kvikmynduð og bókin þýdd á fjöl- mörg tungumál. „Jóseflna sér um sína var langamma mín vön að segja og átti þar við að aUir fengju sitt á endanum. Ætli það eigi ekki einnig við í þessu dæmi. Djöflaeyj- Á tvöföldum hámarkshraða Ökumaður rauðs sportbíls stofnaði sjáifum sér og öðrum í mikla hættu, að sögn lögreglunn- ar í Hafnarfirði, er hann ók á 180 km hraða eftir Reykjanesbraut- inni um hálf eitt í gærdag. Há- markshraði þar er 90 km. Lög- reglan í Hafnarfirði var við hefð- bundið eftirlit við Reykjanes- brautina þegar bUlinn þaut fram hjá en hún náði ekki bílnum og því komst ökumaöurinn undan. íkveikja á ísafirði Eldur kom upp í geymsluskúr við Skutulsfjarðarbraut á Isa- firði um klukkan sjö í gærmorg- un. SlökkvUiðið var kaUað út og náði að slökkva eldinn, sem aðal- lega logaði í netadræsum, á skömmum tíma. Reykræsta þurfti skúrinn sem er í eigu Netagerðar Vestfjarða. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða því ummerki fundust við annan skúr í nágrenninu sem bentu tU þess að reynt hefði ver- ið að kveikja í honum líka. Lög- reglan á ísafirði er með málið til rannsóknar og óskar eftir hugs- anlegum vísbendingum um grunsamlegar mannaferðir á svæðinu milli klukkan fjögur og sjö aðfaranótt sunnudags. Árekstur á Hafnarfjarðar- vegi Harður árekstur varð á mót- um Lækjarfits og Hafnarfjarðar- vegar um kl. 13.50 í gærdag. Báð- ir bílamir skemmdust mikið og þurfti að flytja þá á brott með kranabíl. Betur fór þó en á horfðist því ökumenn og farþeg- ar voru fluttir á slysadeild með einungis minni háttar meiðsli. „Það er brotiö blað við gerð þessa samnings um markaðslaun sem er nýjung hér á landi,“ segir Magnús L. Sveinsson, formaður Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur sem á laugardag gekk frá kjarasamning- um fyrir félagsmenn sína fram til ársins 2004. „Lægstu launin hækka á einu ári úr 67 þúsund krónum upp i 90 þús- und, eða um 35%. Ég sá aö Björn Grétar (Sveinsson, fomaður VMSÍ) gerði stóra athugasemd í sjónvarp- inu við okkar samning, sem mér sýnist nú að hann hafi ekkert kynnt sér, því hann sagði að við værum að semja um kaupmáttarrýmun. Það fór ekki fram hjá neinum að Björn fór sjálfur með kröfu til vinnuveit- enda fyrir mánuði um að lægsti taxtinn hækkaði upp í 78 þúsund. Ef hann telur að við séum aö semja um kaupmáttarrýmun með því að hækka lægstu launin um 23 þúsimd krónur, hvaða orð ætlar hann þá að hafa yfir það að hækka þau um 11 þúsund eins og hann vildi skrifa undir?“ spyr Magnús. Hvati til sparnaðar VR samdi m.a. um 3,8% almenna launahækkun og um 50 mínútna styttingu vinnuviku afgreiðslufólks, sem svarar þriggja prósenta launa- hækkun að sögn Magnúsar og um 30 mínútna styttingu hjá skrifstofu- fólki. „Við sömdum um það að vinnuveit- endur greiði 2% í lífeyrissjóð á móti 2% greiðslu félagsmanna. Lifeyririnn fer þannig í 14% sem er mjög þýðing- armikið tryggingalega séð en er ekki sist hvati um spamað sem við þurfum á að halda þegar menn era að vand- ræðast við að ná tökum á veröbólg- unni,“ segir Magnús. Magnús segir að bil hæstu og lægstu launa og launabil milli kynja hafl aukist mikið á síðustu árum en að markaðslaunakerfinu sé ætlað að draga úr því. „Markaðslaunin eiga að taka mið af launaþróun á mark- aðnum samkvæmt launakönnunum sem verða gerðar. Vinnuveitendur eiga að taka mið af þeim og í sam- tali við launþega en ef það gerist ekki er gert ráð fyrir að launanefnd geti gripið þar inn í,“ segir hann. VR hefur samið sérstaklega við flugfélagið Atlanta um 100 þúsund króna lágmarkslaun. -GAR 20-25 flóttamenn Páll Pétursson félagsmálaráð- herra hefur lagt til að tekið verði á móti 20 til 25 erlendum flóttamönnum í sumar. Tillagan var samþykkt á fundi ríkis- stjómarinnar á fóstudag. Á næs auglýst eftir sveitarfélagi sem hef- ur áhuga á því að taka við flótta- mönnunum. Mbl. greindi frá. Hætta takmörkun Landsvirkjun hefur ákveðiö að hætta takmörkun á afhendingu afgangsorku til stóriðju. Verð- þrepshækkun á ótryggðu raf- magni til almenningsveitna verð- ur afnumin á sama tíma. Ástæða þessa er fyrst og fremst góð staða á vatnsbúskapnum, betri en verið hefur undanfarin misseri. Dagur greindi frá. Fagna kvenráðherrum Jafnréttisráð samþykkti á fyrsta fundi sínum á árinu að fagna þeirri breytingu sem oröið hefur á hlut kvenna í ríkisstjórn- inni, þar sem konur eru nú þriðj- ungur ráðherraliðsins en voru að- eins tiund í síðustu tveimur ríkis- stjómum. Dagur greindi frá. Skýr afstaða Sigurbjörn Sveinsson, fonnað- ur Læknafélags íslands, segir að ekkert í rekstrarleyfi íslenskrar erfðagreiningar vegna miðlægs gagnagrunns á heilbrigðissviði, reglugerð um gagnagiunninn eða í samkomulagi ráðuneytisins og íslenskrar erfðagreiningar gefi tOefni til að Læknafélagið endur- skoði afstöðu sína til málsins. RÚV greindi frá. Gagna leitað Dómsmálaráðuneytið hefur beðið fimm stofnanir um að leita gagna frá upphafsdögum Geirfinnsmáls- ins. Þessi beiðni ráðu- neytisins kem- ur í kjölfar þess að Magnús Leó- poldsson krafðist upplýsinga um það hvemig hann dróst inn í Geirfinnsmálið árið 1974. Aðeins lítill hluti skjala er tengja Magnús við málið var notaður fyrir dómi en rúmlega 300 síðna er saknað. Ríkissaksóknari hafði áður hafn- að því að leita gagna varðandi hlut Magnúsar í málinu og telur Magnús því hlut dómsmálaráðu- neytis afar mikilvægan. RÚV greindi frá. Ráðinn forstjóri Haukur Ingibergsson, skrif- stofustjóri i fjármálaráðuneytinu og fyrrum formaður 2000-nefndar- innar, hefur verið ráðinn forstjóri Fasteignamats ríkisins frá og með 1. febrúar og Magnús Ólafsson, núverandi forstjóri, mun taka við starfi framkvæmdastjóra Fast- eignamats ríkisins. Samræmd stúdentspróf Samræmd stúdentspróf verða haldin í fyrsta skipti skólaárið 2003-4 og unnið verður að stefnu- mótun og gerð framkvæmdaáætl- unar um að stytta nám á bók- námsbrautum til stúdentsprófs úr fjórum árum i þrjú að því er fram kemur í nýrri verkefnaáætlun menntamálaráðuneytisins vegna áranna 1999-2003. Mbl. sagði frá. Nýjar verklagsreglur Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, segir að verið sé að vinna að hug- myndum um nýjar verklags- reglur sem m.a. varða kaup starfsmanna fjármálastofnana á óskráðum hlutabréfum. Mbl. sagði frá. -hdm Magnús L. Sveinsson og fulltrúar viðsemjenda Verzlunarmannafélags Reykjavíkur gengu frá nýjum kjarasamningi á laugardag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.