Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2000 13 Fréttir Karlakórnum Heimi boðið á Expo 2000: Boð sem ekki var hægt að hafna - segir formaður hins vinsæla karlakórs Karlakórinn Heimir. „Þetta boð er afar mikill heiður fyr- ir okkur og jafnframt viðurkenning á þvi sem við höfum verið að gera. Við ræddum þetta kórfélagamir og kom saman um að þetta væri boð sem ekki væri hægt að hafna,“ sagði Þorvaldur Óskarsson, formaður Karlakórsins Heimis, i spjalli við DV í gær. Kórn- um hefur verið boðið að koma fram fyrir íslands hönd á heimssýningunni Expo 2000 í Hannover í Þýskalandi í sumar. Það er menntamálaráðuneytið sem býður kómum og mun hann koma fram 30. ágúst. Á sýningunni mun hver þátttökuþjóð hafa einn dag til að kynna margvíslega menningu og listastarfsemi í sínu landi og verða Heimismenn meðal fulltrúa íslands í þeirri kynningu. Þorvaldur sagði að starfsemi kórs- ins væri með hefðbundnu sniði að öðra leyti. Þrettándakvöld kórsins heppnaðist vel. Það var haldið fyrir fullu húsi og var Geir Haarde fjár- málaráðherra gestur kvöldsins. Kór- inn fer í árlega söngferð suður 23. til 25. mars, byijar sönginn í Reykholti, heldur síðan að Laugalandi í Holtum og syngur loks í Langholtskirkju og á Hótel íslandi. -ÖÞ Borgarbyggð vill fá ADSL-þjónustu sem fyrst: Góð fjarskipti eins mikilvæg og vegabætur DV, Borgarbyggð: Bæjarráð Borgarbyggðar sam- þykkti nýlega að óska eftir því við Landssímann að hann byði upp á ADSL-þjónustu sem iyrst. „Borgarbyggð fagnar aliri viðbót í þjónustu í fjarskipta- og gagnasam- skiptum og vill að atvinnulíf hér og ibúar geti haft aðgang að öllu því helsta sem býðst. Litið er svo á að góð fjarskipti séu ekki síður mikil- væg en vegabætur til þess að áhuga- vert verði íyrir fyrirtæki og fólk að búa og starfa í sveitarfélaginu," seg- ir Stefán Kalmansson, bæjarstjóri í Borgarbyggð. ADSL-þjónusta getur verið góður kostur fyrir minni fyrir- tæki í Borgamesi þar sem boðið er upp á fastlínusamband. -DVÓ 1 MB Framleiðum brettakanta, sólskyggni og boddíhluti vörubíla og van-bíla. Sérsmíði og viðgerðir. m cd ALLT PLAST Kænuvogi 17 • Sími 588 6740 HYUNDAI ATOS ER EINN SÁ ALLRA SPARNEYTNASTI BEINSKIPTUR Grjótháls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1280 Hyundai Atos er nettur og skemmtileyur bíll, einn sá allra sparneytnasti á markaðnum. Hann er hinn fullkomni bæjarbíll, þægilegur í akstri og snar í snúningum. Hann er með stórum hurðum og háum sætum svo útsýnið er óvenjugott. Komdu og prófaðu sparneytinn og þægilegan Hyundai Atos! HYunoni meira aföllu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.