Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Side 6
6
MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2000
Fréttir
DV heimsækir Þorkel Steinar Ellertsson á Ármótum i Rangárvallahreppi:
Ég man tímana tvenna
- segir hann og íhugar aö selja jöröina eftir síðustu atburði
Það var mikið umleikis þegar DV
heimsótti Þorkel Steinar Ellertsson
að Ármótum í Rangárvallahreppi
síðdegis sl. fostudag. Undanfarna
daga hafði verið unnið að því að
flokka stóðið sem telur um 200
hross. Hryssur og unghross var
búið að setja í tvo stóra hópa, hluti
tamningahrossa var kominn á hús,
svo og trippi og folöld. Hrossin
stóðu í heyrúllum, ýmist á afmörk-
uðum svæðum í nágrenni útihús-
anna, í gerði og inni í hlöðu. Þeim
eru nú gefnar út 25 rúllur annan
hvem dag. Eftirlitsmaður kemur
reglulega að Ármótum til að fylgjast
með að fóðmn sé í lagi.
Þegar DV-menn bar að garði var
nýlokið við að moka út úr stíum í
hesthúsinu. Þar hafði vatn lekið inn
um nóttina, að sögn Þorkels Stein-
ars, og því þurfti að hreinsa út.
Sandur hafði verið settur í stíumar
og síðan spænir sem Þorkell kom
með úr Reykjavík þá um daginn.
Tamningamaðm, Steinn Skúlason,
sér um að hirða og temja á Ármót-
um i vetur.
Hópar í einangrun
Það fyrsta sem bar fyrir augu
þegar komið var að Ármótum var
hópur hrossa sem stóð I heyrúllu í
gerði við útihúsin. Þetta voru
graðfolar og trippi, að sögn leið-
sögumanns, sem haldið er í ein-
angrun frá öðrum hrossum. Þau
eru hluti stærri hóps sem haldið
er í einangrun vegna gruns um
salmonellusmit. Sá hópur hafði
verið í hagagöngu í hólfl í Linda-
bæ í haust.
Næst lá leiðin inn í stóra hlöðu.
Þar var vænn hrossahópur, eldri
hross og eitthvað af folöldum.
1 fjósinu, sem er engin smá-
smíði, 80 básar, gaf að líta fjölda
nautgripa á öllum aldri. í öðrum
helmingi fjóssins voru þeir bundn-
ir á bás en í lausagöngu í hinum
hlutanum. Deila má um hversu
heppilegt það fyrirkomulag er, þar
sem steyptur gangur er milli flór-
rimlanna, þannig að skítur og
bleyta ganga ekki niður. Nautgrip-
imir í þeim helmingnum báru líka
með sér að hafa skellt sér niður á
ganginn til að hvíla lúin bein.
Salmonelluvofan hangir nú yfir
þessum nautgripum, eins og DV
greindi frá um helgina. Fyrstu
rannsóknir úr sýnum úr þeim
benda til þess að sýking sé í þeim.
Endanleg staðfesting á að liggja
fyrir nú eftir helgina.
Litskrúðugt stóð
Enn fleiri nautgripir reyndust
vera undir þaki á Ármótum heldur
en sá fjöldi sem var í fjósinu. í öðru
gripahúsi var slatti af eldri gripum
og kálfum í stíum. Næst bar fyrir
augu graðhesta og trippi í trippahúsi
og loks lá leiðin í hesthúsið. Þorkell
Steinar bóndi renndi í hlað í þann
mund með sagpokana áðurnefndu.
„Nú eru þeir líka farnir að kenna
mér um að salmonellan komi héðan
frá mér,“ sagði hann þegar hann
hafði heilsað DV-mönnum. „Menn
virðast vera búnir að gleyma því að
hér fylltust allir skurðir af snjó í
harðindakaflanum fyrir jól. Þá komu
hingað hross frá nágrönnum sem við
mðum að reka af okkur hvað eftir
annað.“
Tveir stórir hópar hrossa voru í af-
Einangrunarhópur í gerðinu við útihúsin. Grunur leikur á að þessi hross geti verið sýkt af saimonellu.
DV-myndir GVA
Egill Vilhjálmsson ehf.
Smiðjuvegi 1
sími 564-5000
4x4, ssk.,
5-6 manna,
8 feta pallur.
Verð kr. 2.300.000
Dodge Grand Caravan, árg. 1994,
Dodge Ram 2500 SLT Laramie Plus, árg. 2000,
4x4, vél 3,8,
ek. 77 þús. km,
ssk., grænn.
rafdr. sæti og
rúður.
Verð kr. 1.650.000
Dodge Ram 2500 dísil, árg. 1996
4x4, dísil,
rafdr. sæti,
4 dyra,
CD, ssk.,
leðurklæddur.
Einn með öllu.
Verð kr. 4.150.000
Dodge Ram 2500 SLT Laramie, árg. 1998,
4 dyra.ssk., ek. 78 þús. km, rafdr. rúður.
Verð kr. 3.150.000.
Það er huggun í harminum að geta litið á þessa skildi og peninga, sagði
bóndinn á Armótum þegar hann sýndi verðlaunin sem hann fékk fyrir kýr á
sínum tíma.
Mokað hafði verið út úr hesthúsinu, sem rúmar 34 hross, fyrr um daginn og
sandur og spænir settir f stíurnar. Hér ræður Steinn Skúlason ríkjum í vetur.
Hluti tamningahrossa var kominn á
hús, svo og trippi og folöld.
mörkuðum hólfum á árbakkanum út
frá útihúsunum, hryssur og gelding-
ar. Þorkell Steinar sagðist hafa lagt
áherslu á að rækta fágæta liti, ásamt
góðum hæflleikum. Þarna gaf að líta
jarpvindótt, móvindótt, svartblesótt,
jarpblesótt, húfótt og skjótt, svo eitt-
hvað sé nefnt. Óneitanlega litskrúð-
ugt stóð.
Þorkell Steinar sagðist hafa í koll-
inum hvernig flest hrossa hans væru
ættuð. Svo héldi hann nákvæma skrá
yflr ættirnar. Aðspurður um hvort
Ármótahrossin væru ekki i íslands-
feng kvað hann svo ekki vera. „Ég
kæri mig ekkert um að láta Pétur og
Pál vita um það sem ég er að gera. Ég
vil hafa það út af fyrir mig.“
Hann var hins vegar ekki tilbúinn
að svara spumingu um það hvort
ekki væri „tóm vitleysa" að vera með
200 hross en sagði: „Ég var aldrei
spurður hvort það væri tóm vitleysa
að vera með þúsundir kjúklinga eða
200 nautgripi meðan allt gekk vel. En
ráðamenn hvöttu á sínum tíma til
öflugrar hrossaræktar. Þegar svo
harðnar á dalnum fer allt út í veður
og vind.“
Hann sagði að sér hefði gengið vel
að selja hross í gegnum tíðina. Selst
hefðu öll hross sem hefðu verið tam-
in. Nokkuð hefði hann selt á innlend-
um markaði en langmest til Svíþjóð-
ar.
Gamalt fær gildi
Eftir að hafa skoðað hross og naut-
gripi var gengið til bæjar. Þá barst
talið að því sem var og þeirri stöðu
sem komin er upp á Ármótum eftir
að 45 hrossum var lógað og búið sett
undir eftirlit, sem þekkt er orðið.
Fyrir fáeinum árum rak Þorkell
Steinar stórt kúabú með 150-200 grip-