Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Side 8
8 MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2000 Útlönd Poul Nyrup boð- ar nýja hugsun hiá krötunum Poul Nyrup Rasmussen, forsæt- isráöherra Danmerkur, ætlar sér að breyta stjómmálunum og leggja sig meira eftir hversdags- vandamálum danskra kjósenda, sem hann viðurkennir aö jafnað- armannaflokkur hans hafi van- rækt. „Viö ætlum að venja okkur við að hugsa eftir nýjum brautum. Þetta snýst ekki lengur um að segja að nú gerum við eitthvað fyrir ykkur og að þið eigið bara að vera þakklát, heldur um að gera eitthvað með fólkinu. Ann- ars virkar það jú ekki,“ segir for- sætisráðherrann í viðtali við Jyllands-Posten í gær. Sjálfsagt veitir krötum ekki af, því fylgiskannanir í tveimur blöð- um í gær, Berlingske Tidende og Politiken, sýna að fylgi forsætis- ráðherrans og flokks hans heldur áfram að minnka. Norskur blaða- maður sver af sér allar njósnir Norski blaðamaöurinn Stein Viksveen vísar á bug að hann hafi verið njósnari fyrir austur-þýsku leyniþjónustuna Stasi, eins og hann hefur verið ákærður fyrir. Hann útilokar þó ekki að hann kunni að hafa flækst í eitthvaö sem hann hafði enga stjórn á. „Að sjálfsögðu get ég ekki úti- lokað að ég hafi Qækst í eitthvað. En hversu vitlaus getur maður verið?“ sagði Viksveen í samtali við norska blaðið VG í gær. Aftenposten sagöi í gær að norska leyniþjónustan leitaði að nýjum og haldbetri sönnunum gegn Viksveen. VG hefur heimildir fyrir því að grundvöllurinn undir ákærunni á hendur Viksveen sé afhending leyniskjals frá NATO sem var stimplaö inn í Berlín 1978. Þar mun vera fjallaö um herstyrk NATO í Evrópu og vopnabúnað. Weizman neitar að segja af sér Ezer Weizman, forseti ísraels, sagði í gær að hann heföi alls ekki í hyggju að segja af sér emb- ætti vegna fjármálahneykslis sem hann er Qæktur í. Lögreglan rannsakar málið sem snýst um fé sem góðvinur Weizmans gaf hon- um þegar hann gegndi embættum þingmanns og ráðherra. „Ég hef aldrei hörfað í átökum og ég ætla ekki að gera það núna,“ sagði hinn 75 ára gamli forseti og fyrrum orrustuQugmað- ur í sjónvarpsávarpi til ísraelsku þjóðarinnar. Lík herforingja fannst í Grozní Lík rússnesks hershöfðingja, MikhaUs Malofejevs, fannst í tsjetsjensku höfuðborginni Grozní i gær. Hershöfðingjans hafði verið saknað frá í síðustu viku. Ljóst þykir að hann haQ fallið í átökum. Rússar lögðu allt kapp á að finna hershöfðingjann, enda höfðu uppreisnarmenn sagst hafa handtekið hann og yfirheyrt. Fjármálahneyksli kristilegra demókrata vindur upp á sig: Mitterrand kost- aði baráttu Kohls Frangois heitinn Mitterrand, fyrr- um Frakklandsforseti, rétti vini sín- um Helmut Kohl, fyrrum Þýska- landskanslara, hjálparhönd þegar hann lét franska rikisolíufélagið Elf-Aquitaine fjármagna kosninga- baráttu Kohls árið 1994. Þetta kem- ur fram í sameiginlegri rannsókn sem þýska sjónvarpsstöðin ARD og franska sjónvarpsstöðin France 2 stóðu fyrir. Talsmaður Kohls vísaði ásökun- um sjónvarpsstöðvanna þegar í stað á bug og kaUaði þær „hvatningu til pólitísks morðs“. í yQrlýsingu sem Kohl sendi frá sér ítrekaði hann að þeir Mitterrand hefðu aldrei rætt um peninga í tengslum við kaup franska olíufélagsins á olíuhreinsi- stöðinni Leuna i fyrrum Austur- Þýskalandi árið 1992. Þá ítrekaði Kohl að hann hefði aldrei þegið fé eða heyrt talað um mútugreiðslur. Að sögn sjónvarpsstöðvanna tveggja greiddi Elf-olíufélagið 43,6 milljónir evra í umboðslaun í tengslum við kaupin á oliuhreinsi- stöðinni. Þar af voru 15,4 evrur látn- Helmut Kohl þráast enn viö aö segja hverjir hafi stutt flokk hans meö ólöglegum peningagjöfum aö and- viröi hundraöa milljóna króna. ar renna beint í kosningasjóöi Kohls samkvæmt beinum fyrirmæl- um Mitterrands. Ein evra jafngildir um 73 krónum. Að sögn heimildarmanns sem starfaði með Mitterrand var féð reitt af hendi „fyrir Evrópu", eins og það var orðað. Forystumenn Qokks kristilegra demókrata, Qokks Kohls, hittust á neyðarfundi í gær til að hlýða á skýrslu endurskoðenda um leyni- reikningana sem Kohl stjórnaði og lagði inn á ólöglegar peningagjafir til Qokksins. Kohl vísaði á bug í gær sem hreinum skáldskap fregnum margra fjölmiöla um að hann væri reiðubúinn að greina frá því hverjir hefðu gefið gjafirnar ólöglegu. Angela Merkel, aðalritari Qokks kristilegra, sagði í gær að Qokkur- inn myndi svipta hulunni af leyni- reikningunum, með eða án Kohls. „Ég er bjartsýn á að við munum komast að hinu sanna í málinu," sagði Merkel i viðtali við sjónvarps- stöðina ZDF. Þusundír Búlgara komu saman i þorpinu Pernik suöur af höfuðborginni Sofíu í gær til aö dansa í þágu góðrar heilsu og frjósemi. Fólkiö bar grfmur fyrir andlitinu og klæddist skrautlegum búningum úr dýraskinnum. íbúar Madríd sýndu reiði sína í verki: Milljón manns í göngu gegn hryðjuverkum ETA Rúmlega ein milljón manna gekk um miðborg Madrídar, höfuðborgar Spánar, í gær til að mótmæla nýjum hryðjuverkum aðskilnaðarsamtaka Baska, ETA. José Maria Aznar forsætisráð- herra, leiðtogar stjórnarandstöð- unnar og fyrrum oddvitar ríkis- stjómarinnar fóru fyrir göngunni í gær. Tvær bílsprengjur urðu einum manni að bana í Madríd á Qmmtu- dag og eru skæruliðar ETA grunað- ir um verknaðinn. Árásin á fimmtudag var hin fyrsta sem ETA hefur staðið fyrir frá því samtökin aQýstu fjórtán mánaöa gömlu vopnahléi í desem- ber síðastliðnum. Þar með voru að engu orðnar vonir manna um að endi yrði bundinn á hryðjuverk að- Mótmælendur hrópa slagorö gegn ETA, aöskilnaöarhreyfingu Baska á Spáni, í mjög fjölmennri mótmæla- göngu sem farin var í Madríd í gær. skilnaöarsinna. „Þetta er löng og erfið barátta fyr- ir okkur öll,“ sagði Aznar forsætis- ráðherra við fréttamenn. „Við mun- um líða þjáningar en fara með sigur af hólmi áður en yfir lýkur.“ Jóhannes Páll páQ tók undir for- dæmingu á sprengjutilræðunum þegar hann ræddi við pílagríma á Péturstorginu í Róm og sagði þau stein í götu þeirra sem leita að frið- samlegri lausn. Mótmælagangan í gær, þar sem þátttakendur kölluðu liðsmenn ETA morðingja, var hin stærsta sem far- in hefur verið gegn aðskilnaðarsam- tökunum frá árinu 1997. Þá tóku sex milljónir manna þátt í mótmælum gegn morði á bæjarfulltrúa í sjálfu Baskalandi. Stuttar fréttir i>v Boðiö afturkallað Framkvæmdastjóm Evrópu- sambandsins hefur afturkallað boð til Muammars KaddaQs Lí- býuleiðtoga um að heimsækja höfuðstöðvamar í Brussel. Mjög skiptar skoðanir voru um heim- boöið innan ESB. Gore eykur forskotið A1 Gore, varaforseti Bandaríkj- anna, jók forskot sitt í gær fyrir forkosningam- ar sem verða í New Hamp- shire eftir að- eins átta daga. Gore fékk stuðning 50 pró- senta þeirra sem ætla að kjósa DemókrataQokkinn en helsti keppinautur hans, Bill Bradley, fékk 38 prósent. Hjá repúblikönum hafði John McCain naumt forskot á George W. Bush. Tuglr drepnir í Alsír Þrjátíu og tveir harðlínu- múslímar og 25 hermenn týndu líQ í sex daga bardögum í vestur- hluta Alsírs, að því er dagblaðið E1 Watan greindi frá í gær. Þyrla hrapaði Fjórar manneskjur voru Quttar á sjúkrahús eftir að þyrla hrapaði við Gjovik í Noregi skömmu eftir hádegi í gær. Enginn er alvarlega slasaður, að sögn lögreglunnar. Bók um flugslys Bók um það þegar vél Flugfé- lags íslands fórst á Mýkinesi í Færeyjum árið 1970 kemur út á 30 ára afinæli slyssins, að sögn fær- eyska blaðsins Sosialurin. Höf- undur er Færeyingurinn Grækar- is Magnussen og hefur hann rannsakað atburðinn undanfarna sex mánuði. Nýr forseti til vinnu Gustavo Noboa, nýr forseti Ekvadors, mætti til vinnu í for- setahöllinni í gær, daginn eft- ir að hann komst til valda. Herinn, sem rændi völdum á laugardag vegna megnrar óánægju al- mennings með efnahagsástandið, afsalaði völdunum til Noboa sem var varaforseti í stjórn fyrrum forseta. Klárir í slaginn Breska landvamaráðuneytið gerði í gær lítið úr fréttum fjöl- miðla um að her landsins væri nánast lamaður vegna íjárskorts. Ráöuneytismenn sögðu herinn kláran i slaginn með skömmum fyrirvara. Skæruliða minnst Þúsundir norður-írskra lýð- veldissinna gengu fylktu liði um Belfast í gær til að minnast skæruliða IRA sem var hengdur fyrri nærri sextíu árum fyrir að drepa lögregluþjón. Batnandi samskipti Vladímír Pútín, starfandi for- seti Rússlands, sagði í sjónvarps- viðtali í gær að ’nann liti á fyr- irhugaða heim- sókn Georges Robertsons, framkvæmda- stjóra NATO, til Moskvu sem teikn um aö samskiptin við bandalagið færu batnandi. Mjög stirt hefur verið milli Rússa og NATO frá því NATO gerði loftárásir á Júgóslavíu síðastliðið vor. Ro- bertson er væntanlegur til Moskvu um miðjan næsta mánuð. SÞ fundar um Kongó Forsetar nokkurra Afríkuríkja sitja fund Öryggisráðs SÞ um Kongólýðveldið sem haldinn er í dag, að undirlagi Bandaríkja- manna, sem þrýsta á frið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.