Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Síða 30
42
MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2000
Afmæli
Jósefína Gísladóttir
Jósefina Guörún Glsladóttir
kaupmaður, Sunnuholti 2, Isafirði
er sextug í dag.
Starfsferill
Hún er fædd á ísafirði og hefur
búið þar alla tíð. Hún gekk í barna-
og unglingaskóla á ísafirði og lauk
landsprófi 1956. Jafnframt stundaði
hún nám við Tónlistarskóla ísa-
fjarðar 1951-56.
Að skólanámi loknu dvaldist hún
um eins árs skeið við enskunám í
Brighton í Englandi.
Að námi loknu hóf hún störf sem
talsímavörður hjá Pósti og síma og
starfaði þar, lengst af sem varðstjóri
til ársins 1977, aö hún hóf störf við
verslunarfyrirtæki sitt og eigin-
manns sins, Hamraborg.
Jósefína hefur tekið virkan átt í
félagsmálum ísfirðinga, í Sjálfstæð-
isflokknum frá tvitugsaldri, verið
þar formaður Sjálfstæðiskvennafé-
lags Ísaíjarðar og átt sæti í stjóm
Landssambands sjálfstæðiskvenna,
í kjördæmisráði um árabil og á
framboðslista flokksins í bæjar-
stjóm, auk þess hefur hún starfaði í
kvenfélaginu Hlíf, i ITC-deildinni
Sunnu og stóð að stofnun og var
fyrsti formaður Zonta-
klúbbsins Fjörgynjar svo
og var hún félagi í Styrkt-
arsjóði um byggingu tón-
listarhúss á ísafirði og
formaður þess um skeið.
Þá var hún um nokkura
ára skeið í stjóm Neyt-
endafélags ísafjarðar og
nágrennis og i undirbún-
ingshópi um könnun á at-
vinnumálum kvenna á
ísafirði, sem leiddi m.a.
af sér stofnun Atvinnu-
þróunarfélags Vestijarða.
Fjölskylda
Jósefína giftist Úlfari S. Ágústs-
syni í ísafjarðarkirkju 13.2. 1960 og
eiga þau því ijörutíu ára hjúskap-
arafmæli nú í febrúar. Foreldrar
Úlfars eru Guðmundína Bjamadótt-
ir frá Gautshamri í Steingrímsfirði
og Guðmundur Guðni Guðmunds-
son rithöfundur, fæddur á ísafirði
en nú búsettur í Kópavogi.
Kjörfaðir Úlfars var Ágúst Jör-
undsson sjómaður, fæddur á Flat-
eyri en búsettur á ísafirði lengstan
hluta ævinnar.
Böm þeirra Jósefinu og Úlfars
em Gautur Ágúst, f. 2.11.
1961, d. 10.12. 1978; Gísli
Elís, f. 4.3. 1969, fram-
kvæmdastjóri en kona
hans er Ingibjörg S. Guð-
mundsdóttir; Úlfur Þór, f.
3.10. 1974, verslunar-
stjóri; Axel Guðni, f. 16.3.
1978, háskólanemi en
sambýliskona hans er
Thelma Hinriksdóttir.
Systkini Jósefínu eru
Jóna Gréta, f. 19.5. 1945,
smurbrauðsdama, gift
William C. Kinsley fast-
eignasala og em böm þeirra Mar-
grét veitingahúsaeigandi, gift James
Baggetta, Melissa, húsmóðir og
tryggingasölumaður, gift Dennis
Gravelle en þau eiga fjögur böm,
Marco tölvunarfræðingur, giftur
Jolanda og Melody nemi í foreldra-
húsum en þau eru öll búsett í Al-
bany í New York i Bandaríkjunum;
Þórarinn Þorbergur, f. 9.5. 1947, pí-
anóleikari í Reykjavík, en dóttir
hans og Bám Arinbjamardóttur er
Margrét Palestini, húsmóðir í Kali-
fomíu, og böm Þórarins og Magneu
Óskarsdóttur húsmóður eru Ingi-
björg Rós húsmóðir og Gísli Þór
iðnverkamaður en þau búa öll í
Keflavík.
Foreldrar Jósefinu voru Gísli Elís
Einarsson, f. á ísafirði 22.7. 1911, d
26.9. 1967, verslunarmaður hjá
Kaupfélagi ísfirðinga, og k.h., Mar-
grét Þórarinsdóttir, f. í Þernuvík i
Ögursveit 25.6. 1915, d. 29.4. 1988,
húsmóðir.
Ætt
Gísli var sonur Einars Guð-
mundssonar, skósmiðs á ísafirði, og
k.h., Svanhildar Jónsdóttur. Svan-
hildur átti eina dóttur fyrir hjóna-
band, en saman áttu þau Einar ell-
efu böm. Eitt þeirra er enn lifandi,
Þórður Helgi Einarsson f. 11.7. 1908,
verslunarmaður, nú búsettur á Hlíf
á Isafirði
Margrét var dóttir Þórarins Guð-
mundssonar, útvegsb. í Ögumesi,
og k.h., Sigrúnar Sigurðardóttur, en
þau áttu tíu böm og er eitt þeirra á
lífi, Hermannía Kristín, f. 24.11.
1926, í Ögumesi.
Jósefina býður til afmælishófs á
komandi sumri þegar hún og eigin-
maður hennar halda sameiginlega
upp á sextíu ára afmælið og fjörutíu
ára brúðkaupsafmæli.
Jósefína Guðrún
Gísladóttir.
Fréttir
Halló Akm’eyri með öðrum formerkjum:
Unglingabrennivminu verður hellt niður
- hátíöin haldin á okkar forsendum, segir formaöur verkefnisnefndar bæjarins
DV, Akureyri:
„Tildrög þess að verkefnisnefndin
var skipuð voru m.a. þau að margar
kvartanir bárust vegna hátíðarinn-
ar, aðallega frá íbúum í nágrenni
við fjölmennustu tjaldsvæðin. í
leikjum, tjaldsvæði verða áfengis-
laus og lágmarksaldur inn á þau 16
ár nema í fylgd fullorðinna, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Greinilegt er að höfða á til ann-
arra aldurshópa að mestu en gert
hefur verið en hátíðin Halló Akur-
eyri fékk í upphafi það orð á sig að
vera drykkjuhátíð barna og ung-
linga. Ástandið fór þó batnandi en
ekki nóg eins og sjá má af tillögum
verkefnanefndarinnar.
Þórarinn B. Jónsson segir að
skiljanlega sé ekki hægt að meina
unglingum að koma til bæjarins um
verslunarmannahelgina. „Það verð-
ur hins vegar að gerast á okkar for-
sendum. Þá hefur það verið rætt að
flytja tjaldsvæðin úr bænum og t.d.
upp á golfvöll en það hefur ekki ver-
ið ákveðið,“ segir Þórarinn. Verk-
efnanefndin telur að gjaldtaka á
tjaldsvæðum bæjarins verði að vera
í samræmi viö nauðsynleg útgjöld
við heilbrigðisþjónustu, löggæslu,
hreinlætisaöstöðu og hreinsun. Þá
leggur nefndin til að Akureyrarbær
leggi fram allt að einni milljón
króna umfram framlög fyrri ára
gegn sambærilegu framlagi frá
„hagsmunaaðilum" til þess að
greiða fyrir frekari menningarlegri
þátttöku í hátíðinni. -gk
Eldsvoði í togara
þessum kvörtunum voru m.a. áskor-
anir um að leggja hátíðina niður en
það er samdóma álit allra sem tóku
þátt í starfi verkefnanefndar að
halda þessu áfram en hátíðin verð-
ur haldin á okkar forsendum.
Þannig verður t.d. ekki liðin
drykkja bama og unglinga og þeim
gerð grein fyrir því áður en þau
koma til bæjarins að öllu áfengi
þeirra verði undantekningarlaust
hellt niður,“ segir Þórarinn B. Jóns-
son, formaður verkefnanefndar, um
útihátíðina Halló Akureyri sem ný-
lega hefur skilað af sér.
Breyta á algjörlega ímynd Halló
Akureyri og leggur nefndin m.a. til
9 atriði í því sambandi. Mikið verð-
ur lagt upp úr fjölskyldusamveru,
áhersla verður lögð á hljómsveita-
val, gæsla verður margfölduð gagn-
vart umferð, tjaldsvæðum og dans-
Frá útihátíðinni Halló Akureyri. Nú verða áherslurnar aðrar og spornað gegn
unglingadrykkju.
Góðar. J'
gjafir
Barnabili Rafdrifnir 12 V
bilar og fjórhjólf yrir 3-10
ára
Vatnsbyssa
Háþrýstivatnsbyss
m/sápuhólfi tll að
húsið, bílinn, gang-
stéttina. Verð 2.800 í
gjafapakkningu.
liðna nótt. Skemmdir á skipinu er eru ókunn og er málið í rannsókn
ekki taldar mjög miklar. Eldsupptök hjá lögreglu. -GLM
Eldur kom upp í togaranum Örvari í gærkveldi og varð skipið að sigla til
hafnar og leita aðstoðar slökkviliðs. DV-mynd S
Plöstunarvél. Þú getur
plastað allt sem þú vilt
geyma. Ótrúlegt verð, frá
4.800-12.800.
3
Dalbrekku 22, simi 544 5770.
Landhelgisgæslan fékk tilkynn-
ingu um kvöldmatarleytið í gær um
að eldur hefði komið upp í togaran-
um Örvari sem staddur var út af
Vestfjörðum en var á leið á veiðar í
Flæmska hattinum. Landhelgis-
gæslan sendi skip á móti Örvari en
togarinn náði inn í Reykjavíkur-
höfn áður.
Eldurinn kom upp í vélarrúmi
aftan við ljósavél. Áhöfnin reyndi
fyrst sjálf að slökkva eldinn en þeg-
ar það gekk ekki sem skyldi var
rýminu þar sem eldurinn kom upp
lokað og skipinu siglt til Reykjavík-
ur. Þar var slökkvilið til taks og
tókst því að slökkva eldinn, sem var
töluverður en bundinn við rými
bakborðsmegin, um kl. 2.30 síðast-
Til hamingju með afmælið 24. janúar
90 ára
Laufey Einarsdóttir, Bjarmalandi, Bakkafirði.
85 ára
Daníel Eysteinssbn, Borgarbraut 65, Borgamesi.
80 ára
Kristinn Guðmundsson, Þvottá, Djúpavogi.
75 ára
Guðmundur Sigurjón Finnsson, Þórunnargötu 2, Borgamesi. Jón E. Aspar, Ásvegi 31, Akureyri. Jónatan Ólafsson, Lindasíðu 2, Akureyri. Magnea Hulda Kristjánsdóttir, Kirkjuvegi lb, Keflavík.
70 ára
Eiríkur Brynjólfsson, Hólabergi 38, Reykjavík. Guðrún Stefánsdóttir, Vallarbraut 6, Njarðvík. Gyða Gestsdóttir, Njálsgötu 72, Reykjavík.
60 ára
Ester Finnsdóttir, Reynimel 72, Reykjavík. Tómas P. Eyþórsson, Kríuhóli, Akureyri.
50 ára
Binh Thanh Hoang, Skipholti 30, Reykjavík. Jóhann Ólafsson, Egilsbraut 26, Þorlákshöfn. Jóna G. Bjarnadóttir, Bjarmalandi 9, Sandgerði.
40 ára
Bjöm Hermann Jónsson, Fagrahvammi 2a, Hafnarfirði. Elín Guðrún Gunnarsdóttir, Klöpp, Akureyri. Elisa Ólöf Guðmundsdóttir, Leirutanga 4, Mosfellsbæ. Hrafnhildur Hartmannsdóttir, Öldugötu 42, Hafnarfirði. Jóna Gunnarsdóttir, Seiðakvísl 35, Reykjavík. Kristjana Mjöll Sigurðardóttir, Grænumýri 14, Seltjamarnesi. Matthildur Emudóttir, Hraunbæ 144, Reykjavík. Ólöf Svandís Árnadóttir, Lerkihlíð 3, Sauðárkróki. Róbert Melax, Hlíðarhjalla 27, Kópavogi. Sigurbjörg H. Pétursdóttir, Bakkahlíð 37, Akureyri. Sóley Herborg Skúladóttir, Dalalandi 7, Reykjavík.