Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 5 Fréttir Samherji stærsti eigandinn í Hraðfrystistöð Þórshafnar: Frystihúspeningarnir í íþróttamiðstöðina DV, Akureyri: Gengið hefur verið frá kaupum Samherja hf. á Akureyri á um 30% hlut i Hraðfrystistöð Þórs- hafnar. Samherji kaupir um 15% hlut af Landsbanka íslands og annan eins hlut af Þórshafnar- hreppi sem eftir sölima á ekki nema um 5% í fyrirtækinu. Hreppurinn seldi fyrir nokkrum árum 10% hlut í fyrirtækinu til að fjármagna byggingu íþrótta- miðstöðvar. Með kaupunum á bréfunum nú er Samherji hf. orð- inn stærsti einstaki hluthafinn í HÞ og með ráðandi hlut þótt ekki Jóhann A. Jónsson er ánægður. sé um meirihluta að ræða. Miðað við gengi bréfa í HÞ fær Þórshafnarhreppur um 200 millj- ónir fyrir þann hluta sem hrepp- urinn selur nú. Henrý Ásgríms- son oddviti segir að hluti þess fjár fari í umrædda byggingu íþrótta- miðstöðvaðar. „Við getum bætt fjárhag sveitarfélagsins og von- andi verður eitthvað eftir til að styrkja atvinnulífið hér í bæn- um,“ segir Henrý. Hann segir að aðeins hafi kom- ið upp á borðið sú hugmynd að kaupa súkkulaðiverksmiðju frá Danmörku. „Þetta er sama verk- smiðjan og aðilar i Hrísey voru að hugsa um að kaupa en upp úr þeim þreifingum slitnaði. Við héldum að okkur höndum meðan verið var að ræða við Hríseyinga um þetta mál en það verður nú skoðað hvort eitthvað getur orðið Skilorð fyrir árás á sveitarstjóra DV, Akureyri: Nítján ára maður úr Kelduhverfi hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur fyrir líkams- árás á sveitarstjórann í Öxarfirði og fyrir ölvun og óspektir á almanna- færi á Húsavík. Maðurinn réðst á sveitarstjórann í október þegar svokölluðum „slát- urhúsdansleik" á Kópaskeri var að ljúka þar. Ungi maðurinn réðst á sveitarstjórann að tilefnislausu og sló hann með krepptum hnefa í and- litið þannig að hann féll. Síðan fylgdi hann árásinni eftir með högg- um þegar sveitarstjórinn reyndi að rísa á fætur með þeim afleiðingum að sveitarstjórinn nefbrotnaði og hlaut mörg sár í andliti og á höfuð, kúlu á enni, glóðaraugu beggja vegna og tognaði á ökkla. Árásarmaðurinn viðurkenndi verknaðinn skýlaust og var fyrir árásina dæmdur í 40 daga fangelsi, skilyrt til tveggja ára, og tO greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá var hann um leið dæmdur í 10 þúsund króna sektargreiðslu vegna ölvunar og óláta á Húsavík i desember. -gk úr þessu,“ segir Henrý. Jóhann A. Jónsson, forstjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafnar, seg- ir það leggjast vel í sig að fá Sam- herja inn í fyrirtækið sem stóran eiganda. „Þeir eru með sterkt bak- land í.veiðum og vinnslu á upp- sjávarfiski með Grindavík sem móðurstöð og Þórshöfn sem er á hinu homi landsins gæti verið góður kostur til að skapa ákveðið jafhvægi. Ég held að það sé gott fyrir HÞ að fá svona sterkan aðila inn og verða um leið hluti í sterkri keðju,“ segir Jóhann. -gk Samherji hefur nú haslaö sér vöil á Þórshöfn. Kattaeigendur athugið átak til að fækka flækingsköttum Senn hefst átak til að fækka flækingsköttum í borginni með það að markmiði að draga úr ónæði sem þeir valda borgarbúum. Sjö dögum áður en aðgerðir hefjast í hverju hverfi verður auglýsing um þær birt í dagblöðum. Kattaeigendur eru hvattir til að fylgjast með stöðluðum auglýsingum Hreinsunardeildar sem hér sést til hliðar og halda köttum sínum inni meðan aðgerðir í viðkomandi hverfum standa yfir. Jafnframt eru þeir hvattir til að hafa ketti sína vel merkta. Flækingskettir verða fangaðir á skipulegan hátt eftir hverfum sem hér segir: 1. VESTURBÆR vestan Aðalstætis - Suðurgötu 2. ME)BÆR frá Aðalsræti-Suðurgötu að Snorrabraut 3. MIÐBÆR firá Snorrabraut að Kringlumýrarbraut 4. FOSSVOGUR frá Kringlumýrarbraut að Reykjanesbraut sunnan Miklubrautar 5. AUSTURBÆR ffá Krmglumýrarbraut að Elliðavogi norðan Miklubrautar 6. ÁRTÚNSHOLT, ÁRTÚNSHÖFÐI ÁRBÆRog SELÁS 7. GRAFARVOGUR 8. BREIÐHOLT 9. KJALARNES Nánari uppýsingar eru veittar í síma 567 9600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.