Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Blaðsíða 15
Fimleikafólk framtíðar Þeir voru ekki háir í loftinu, þátttakendurnir í námskeiði Fim- leikaráðs Akureyrar, þegar Tilveran leit inn á æfingu hjá þeim í Glerárskóla um helgina. Reyndar ætti ég að tala um fimleikastúlk- u, því aðeins reyndist vera einn drengur í hópi 4 og 5 ára fim- leikastjama framtíðarinnar sem þarna voru mættar. En áhuginn var greinilega fyrir hendi, og hver veit nema þama leynist ein- hverjar „Olgur Korbúdur" eða Nadíur framtíðarinnar íþessari skemmtilegu íþróttagrein. Á æfingunni fylgdu foreldrar mörgum bamanna og fylgdust með enda ekki allir orðnir svo veraldarvanir að þora einir á íþróttaæfingu enn þá... Smáauglýsingar Pórir aðstoðar Elínu Margréti, dótt- ur sfna, við æfingu í hringjum. DV-mynd gk Við höfum bæði gaman af þessu - segir Þórir Óttarsson Það er gott fyrir börn á þessum aldri að fá hreyfingu i staðinn fyrir að sitja alltaf fyrir fram- an sjónvarpstækin," sagði Þórir Óttarsson sem var að aðstoða og fylgjast með Elínu Margréti, fjög- urra ára dóttur sinni. „Þórir segir að mamma stelpunnar hafi farið með henni fyrst á æfingar. „Sjálfur er ég oftast á sjónum en ég reyni að komast með henni þegar ég er í landi og við höfum bæði mjög gaman af þessu. Elín litla var áður í tvo vetur i íþróttaskóla barna þar sem mikil áhersla er lögð á leiki og ég held aö þetta hafi ekki gert henni neitt annað en gott“. Fleiri í fjölskyldu Þóris viröast áhugasamir um íþróttir. „Drengur- inn minn, sem er 6 ára, er alveg á bólakafi í þessu, æfir bæði knatt- spymu og körfubolta, þannig að það er nóg að gera,“ sagði Þórir. -gk Askrifendur fá aukaafslátt af smáauglýsingum DV r///AA//////#///// Arnar Björn Pálsson sveiflar sér á slánni. DV-mynd gk Ætla í fótboltann Eini drengurinn sem var á æf- ingunni fyrir fimm ára böm- in reiknar ekki með að verða lengi viðloðandi fimleikana. „Freydís vinkona min var í fim- leikum og þess vegna langaði mig bara til að prófa. Þetta er nokkuö skemmtilegt, en mér finnst mest gaman að fara í leiki og eltingar- leikurinn „Björn frændi" er skemmtilegastur," segir Arnar Bjöm. En hvers vegna ætlar hann að hætta í fimleikunum? „Ég er 5 ára. Þegar ég verð 6 ára ætla ég að fara að æfa fótbolta og ég held aö þá hætti ég í fimleikunum," sagði þessi hressi strákur í Liver- pool-peysunni sinni sem ætlar að snúa sér að knattspymunni í nán- ustu framtíð. -gk Hulda Guómundsdóttir fimleikaþjálfari ræöir viö nokkra af nemendum sínum. DV-mynd gk 5505000 - segir Kara Guðný Knutsen Litið á þetta sem stelpuíþrótt - segir Hulda Guðmundsdóttir þjálfari ulda Guðmimdsdóttir fimleikaþjálfari stjómaði æfingu unga fimleikafólksins af röggsemi en Fimleikaráð Akureyrar hefur gengist fyrir námskeið- um fyrir 4-5 ára böm nokkur undanfarin ár. „Það hefur alltaf verið mjög góð aðsókn en við erum með haustnámskeið og síðan annað eftir áramót og æft er einu sinni í viku í fjóra mán- uði í hverju námskeiði," seg- ir Hulda. En hvers vegna er ekki nema einn strákur hér á æf- ingu fimm ára bamanna? „Strákarnir hafa alltaf sótt þessi námskeið mun minna en stelpumar. Það er frekar litið á fimleika sem stelpuí- þrótt, við verðum bara aö viðurkenna það,“ sagði Hulda. -gk Jóna Birna Óskarsdóttir meö dóttur sína, Köru Guöný Knut- sen. DV-mynd gk Mér fmnst skemmtilegast á slánni en þetta er allt skemmtilegt og ég ætla að verða fimleikakona þegar ég verð stór,“ sagði hin fjögurra ára fimleikadrottning, Kara Guðný Knutsen, þegar hún var spurð hvað henni fyndist skemmtilegast að gera í fimleika- tímunum. „Hún bað sjálf um að fá að fara í þessa tíma en hún er rétt að byrja núna. Hún er mikið fyrir hreyfmgu og dans, enda kraftmikil stelpa," sagði Jóna Birna Óskarsdóttir, móðir Köru Guðnýjar, sem fylgdist vel með dóttur sinni á æf- ingunni. Jóna Birna segir að systkini Köru Guðnýj- ar stundi íþróttir. „Þau eru mikið fyrir hreyfingu og íþrótt- ir. Ég sé ekki fyrir mér neina breytingu á því næstu árin því þetta er það sem hentar þeim best,“ sagði Jóna Bima. -gk Mest gaman á slánni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.