Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Qupperneq 18
26
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
VILT
MANNLEG
SAMSKIPTl?
KYNNINGARFUNDUR FIMMTUDAGSKVOLD
l<L.20:30
STJORNUNAR
SOGAVEGI 69
Köttur uti i mýri...
...uti er ævintýri.
Átak til að fækka
flækingsköttum í
Vesturbæ
í samræmi viö samþykkt um
kattahald í Reykjavík
tilkynnist hér með að eftir
sjö daga frá birtingu
auglýsingar þessarar mun
sérstakt átak gert til að fanga
flækingsketti í Vesturbæ.
Kattaeigendur í hverfinu eru
hvattir til að halda köttum
sínum inni á meðan á
átakinu stendur.
Jafnframt eru kattaeigendur
minntir á að merkja ketti
sína með húðflúri
(tattóveringu) á eyrum og
skrá uppýsingar um eiganda,
heimilisfang og símanúmer.
Jafngild er örmerking skv.
stöðlum Alþjóða staðlaráðsins
(ISO 11784 eða 11785).
Ves
Hreinsunardeild Reykjavíkurborgar
þu velurþer
ókeypis netfang!
uisir.is
Notaðu vísifingurinn!
Fréttir
DV
Fjórtán reyklausir
dagar á Stóð 2
Þremenningunum frá íslenska út-
varpsfélaginu, Páli Magnússyni, Mar-
gréti Blöndal og Þorgeiri Ástvalds-
syni, sem hættu aö reykja í beinni út-
sendingu fyrir um tveimur vikum,
gengur allt aö óskum. í samtali viö
Þorgeir sagði hann þetta ganga en þó
ekki alltof vel. Hann á sínar döpru
stundir og er ekkert að leyna því enda
átak aö hætta eftir margra ára eða
áratuga ávana. „Hvenær maður losn-
ar er sú stund þegar maður er búinn
að gleyma því. Því læt ég hverjum
degi nægja sína reyklausu þjáningu
sem brátt verður að sælutilfmningu,"
segir Þorgeir um reykleysið.
Þorgeir sagðist hafa undirbúið sig í
langan tima. Hann var hættur að
reykja heima fyrir og í bílnum þannig
aö breytingin er minni fyrir vikið.
Erfiðast væri að vera án sígarettunn-
ar þegar farið er á kaffihús og eftir
góða máltíð. Þorgeir sagðist þó hafa
ýmis ráð í bakhöndinni og hjálpar-
meðölin væru vel geymd í skrifborðs-
skúffunni. Auk þess væri fjöldinn all-
ur af fólki sem tilbúið er til aðstoðar
Reykjalundur, aöstaða reykingafólks í íslenska útvarpsfélaginu, var tekinn í
notkun í síöustu viku. Þar sem reykingafólki fækkar óðum á vinnustaðnum
er Reykjalundur nánast mannlaus.
ef misbrestur verður á.
íslenska útvarpsfélagið tók nýlega í
notkun Reykjalund sem er glerhýsi
fyrir reykingafólkið. Þorgeir segist
aldrei hafa orðið eins mikið var viö
hve margir reykingamenn séu sér
meðvitandi um skaðann sem þeir gera
sjálfum sér og öðrum, enda sé Reykja-
lundur nánast mannlaus.
Páll Magnússon, sem var einn
helsti hvatamaður þess að Reykja-
lundur var byggður, sagði reykingar
vera á miklu undanhaldi á vinnu-
staðnum en einungis væru einir 3-4
eftir sem reyktu á fréttastofunni.
Helsta breytingin á daglegum venjum
sínum væri kaffidrykkjan en hún
hefði farið úr 20-30 bolium á dag nið-
ur í tvo. Páll sagði reykleysið ganga
vel og notaði hann nikótínplástur og
tyggði nikótíntyggjó til að komast yfir
versta hjallann. -hól
Fjallasport og Ingvar Helgason kynntu nýjan, breyttan Terrano-fjallajeppa um helgina. Fjallasport er líka með Helly
Hansen-íþróttavörurnar um mun styðja íslenska skíöalandsliöið og Kristinn Björnsson á næstunni. Hér eru þeir
iþróttaunnendur, frá hægri, Helgi Ingvarsson forstjóri, Andrés Guömundsson lyftingamaður og Eggert Guðmunds-
son fþróttaunnandi, sigurvissir meö skíðalandsliðið. DV-mynd GTK
Bandarískur tölvuþrjótur gerði íslendingum lífið leitt:
Kortinu lokað án
vitundar korthafa
- reynt að hringja í alla en kortunum strax lokað
Eins og komið hefur fram í frétt-
um komst bandarískur tölvuþrjótur
yfir númer á 50 íslenskum
Eurocard-greiðslukortum í gegnum
geisladiskasölu á Netinu á dögun-
um. Maðurinn krafðist 100 þúsund
dala fyrir aö birta ekki þessi númer,
ásamt tæplega 300 þúsund öðrum
númerum sem hann komst yfir á
Netinu. Því var hafnað og því birt-
ust greiðslukortanúmer íslending-
anna á Netinu fyrir skömmu.
Europay á íslandi greip strax til að-
gerða og lokaði umræddum kortum.
Kristján Baldursson, korthafi hjá
Europay, var einn þeirra sem áttu
kort á Netinu og lenti hann í tals-
verðum hremmingum vegna þess.
„Ég var ekki látinn vita um hvenær
kortinu var lokað eða yflrleitt af
þessum vandræðum og ég notaði
kortið alla síðastliðna viku þrátt
fyrir að kortunum hafi veriö lokaö á
laugardag fyrir rúmri viku. Ég
reyndi síðan nokkrum sinnum að
fara í sjálfsala á fostudagskvöld og
þegar kortinu hafði verið hafnað
þrisvar sinnum hringdi ég í
Europay þar sem mér var þá fyrst
tilkynnt að kortinu hefði verið lok-
að laugardaginn 11/12. Þessi reynsla
sýnir mér að svona kortaviðskipti
eru alls ekki 100% örugg og ég hef
meira að segja áður lent i svona
smávægilegum vandræðum.
Kortunum lokaö strax
Að sögn Ragnars Önundarsonar,
framkvæmdastjóra Europay, er
regla að loka kortmn strax er svona
lagað kemur upp á og láta korthafa
síðan vita eins fljótt og auðið er.
„Það var strax farið í að hringja í
korthafa, láta þá vita um málið og
afhenda þeim ný kort. Sennilega
hefur ekki náðst í þennan korthafa
á laugardaginn. Það er auðvitað
ekki gott ef hann hefur orðið fyrir
óþægindum en verra hefði verið ef
kortinu hefði ekki verið lokað.“ Að
sögn Ragnars bera íslensku korthaf-
amir engan skaöa af verkum tölvu-
þrjótsins því ef þeir fá færslur sem
þeir kannast ekki við og hafa ekki
skrifað undir er málið rakið til selj-
andans sem ber ábyrgð á viðskipt-
unum. -GLM