Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2000, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2000, Qupperneq 8
Eins og margir vita fara fram kosningar í Háskólanum næstkomandi miðvikudag. Þar mætast hinar gamalgrónu fylkingar Vaka og Röskva en sú síðarnefnda hefur haft sigur úr býtum undanfarin 9 ár. Fókus smalaði saman toppunum á listunum hjá stúdentunum til að leyfa þeim að fá útrás fyrir hvort öðru í öðruvísi slag en hinni hefðbundnu kosningabaráttu, snjókasti. malefnalegt 1 M I ^0 Það er vika í kosningar í Há- skólanum þegar átta manna hóp- ur stendur fyrir framan skólann. í skjótu bragði virðist ekki vera mikill munur á þessum krökkum en þegar nær dregur sést að það sem skiptir þeim í tvo hópa eru mismunandi barmmerki, grænt fyrir Röskvu og hvítt fyrir Vöku. „Höfum þetta málefnalegt snjó- kast, ekki skítkast," segir Bene- dikt Ingi Vökumaður og dregur hanskana upp yfir hnúana. Liðin eru kappklædd og reiðubúin að taka útrás á kosningabaráttunni á alíslenskan máta. Gerum áhlaup Áður en haldið er af stað út á vígvöll stinga liðin saman nefjum og ákveða hemaðaráætlun. „Þið verðið að halda höfði framan af. Síðan sækjum við fram undir lok- in, gerum áhlaup og tökum þau með trompi,“ segir Hulda Bima og liðsmenn hennar í Vöku hlusta vandlega á. Þau treysta henni fullkomlega enda er hér vön knattspyrnukona af Skaganum á ferð. í Röskvubúðunum er annað á döfinni: „Tæknin felst í þvi að vera óhræddur við að fleygja sér þegar þið sjáið boltana fljúga í átt- ina að ykkur,“ les Hlynur Páll yflr sínu liði. „Treystið mér, ég hef mikla reynslu úr þessum bransa af leikvellinum hjá Mela- skóla.“ Svo er haldið af stað. Hlynur Páll og Baldvln kepptu um Háskólaráðið í hefðbundnum glímubrögðum og hinlr stilltu sig ekkl um að taka þátt í slaginum. tví farar Albert Ágústsson er dagskrárgerðarmaður á Bylgjunni. Hann mætir í stúdíóið kl. 12.15 alla virka daga og kynnir lög fram til kl. 13. Þá er eins og maðurinn gufi bara upp og ekk- ert bólar á honum fyrr en kl. 14.03 á Rás tvö en þar kemur hann og kynnir lög undir nafninu Ólafur Páll Gunnarsson þar til kl. 16.10. Já, Albert og Óli Palli eru ekki bara tvífarar vikunnar heldur virðist allt benda til að þeir séu einn og sami maðurinn. Eða geti í það minnsta verið einn og sami maðurinn. En séu þeir það ekki þá væri ráð fyrir stöðvamar að samnýta piltana og spara sér pening. Albert Agústsson. Hlynur Páll Pálsson, skipar 2. sæti listans I Háskólaráö. Einkunn: 10. Reynslan af Melaskólavell- inum kom sér vel. Hulda Birna Baldursdóttir, 2. sæti Vöku í Stúdentaráð. Einkunn: 8. Kappsmikil og gaf strákunum ekkert eftir. Margrét Vilborg Bjarnadóttir, skipar 5. sæti listans I Stúd- entaráö. Einkunn: 4. Lét sig hverfa þegar hitnaði í kolunum. Baldvin Þór Bergsson. 1. sæti Vöku í Háskólaráð. Einkunn: 10. Glimukóngur þegar i jörðina var komið. Sara Hlín Hálfdanardóttir, skipar 2. sæti listans i Stúdentaráö. Einkunn: 8. Lét ekki deigan síga. Benedikt Ingi Tómasson, 6. sæti Vöku I Stúdenta- ráð. Elnkunn: 10. Þrumar eins og Þór. Þorvarður Tjörvi Ólafsson, skipar 1. sæti listans í Stúdentaráð. Einkunn: 8. Byrjaði af kappi en lognaðist fljótt út af. Inga Lind Karlsdöttir, 1. sæti Vöku í Stúdentaráð. Einkunn: 6. Hugurinn var til staðar en tæknin ekki. ■■ ' ... . -.4 Vaka heldur í hernaöaráætlun sína og ryóst yfir skaflinn með herópi. Reiðin tekur vöidin Liðin stilla sér upp beggja vegna við skafl fyrir framan Há- skólann. Mjög kalt er í veðri og erfitt að hnoða snjóbolta, hér eru það kögglamir sem ráða ríkjum. Við blasir blóðug barátta er leik- urinn er flautaður á. Hviss, hvoss, smakk. Það er augljóst að drengseðlið ríkir hjá strákunum í báðum liðum þar sem það fyrsta sem þeir gera er að þruma i rass- inn á stelpunum. Þeim bregður fyrir vikið og eru vægast sagt hneykslaðar á þeim. Áður en var- ir tekur reiðin völdin og leikur- inn æsist. Boltarnir fljúga er Vaka heldur í hernaðaráætlun sina og ryðst yfír skaflinn með herópi. Fljótlega eru kögglamir búnir og lítið eftir nema kaffær- ingar. Hlynur Páll og Baldvin byltast um á jörðinni og berjast um Háskólaráðið og hinir krakk- amir henda sér ofan á þá í von um sigur. Fljótlega era þó allir komnir með leið á þessarri vit- leysu og standa upp. Vaka marði sigur Bæði liðin hrósa sigri eftir kappleikinn en þar sem eftir átti að reikna frammistöðu liðanna voru úrslitin ekki orðin kunn. Samhugurinn hjá háskólanemun- um kemur glöggt í ljós er þeir em spurðir um muninn á fylkingun- um. í ljós kemur að þau eru öll ágætisvinir og bera eingöngu hagsmuni stúdentanna fyrir brjósti. Enda var það eina sem þau vildu koma á framfæri að hvetja alla stúdenta til að nýta sér kosningaréttinn sinn næstkom- andi miðvikudag. Þannig mætti segja að snjóboltastriðið fyrir framan Háskólann hafi verið mjög táknrænt. Tvö lið mætast og þó að annað merji naumlega sig- ur, eins og Vaka gerði eftir ein- kunnagjöf, ganga allir af vellinum sem jafningjar með það eitt í huga að gera betur næst. Drengseðlið leyndi sér ekki þegar strákarnir byrjuðu á því að þruma í rassinn á stelpunum. f Ó k U S 18. febrúar 2000 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.