Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2000, Qupperneq 15
Lítið hefur borið á því að tyrkneskur almúgi ætti sér fulltrúa sem
ekki er af einni eða annarri ástæðu litinn hornauga hér á iandi og
eru Tyrkir helst þekktir á þessum slóðum fyrir að slátra Kúrdum, stela
íslenskum börnum og að hafa átt landsliðsmarkvörð í knattspyrnu
sem hét Enginn. Mahir Cagir er undantekningin á þessari reglu.
Barði Jóhannsson er fjölmiðlarýnir Fókuss.
Honum er ekkert heilagt og hann flakkar
fimlega á milli stöðva, flettir blöðum án
þess að sleikja fingurna og heyrir minnsta
hik frá knáu útvarpsfólki. Barði veit hvað
hann heyrir og sér.
bauðst með frægðarför sinni til
Bandaríkjanna til að útbreiða boð-
skap sinn um heimsfrið og góðvilja
gagnvart mönnum og hafa verið uppi
raddir um að Mahir verði gerður frið-
arsendiboði Sameinuðu þjóðanna. En
það eru nú margar raddir uppi. Jafn-
vel hugmyndir um að Nicholas Cage
leiki Mahir í Hollywood-mynd. Engu
að síður er Mahir kominn aftur til
Tyrklands og byrjaður að vinna hjá
ferðaskrifstofu. Þar laðar hann ferða-
menn til landsins og spókar sig um á
stækkaðri heimasíðu. Bandarikja-
mennimir sjá um að segja ítarlega
frá ferðalögum Mahirs. Kauði er því
aðeins farinn að mengast og búinn að
tapa einlægninni. Þetta veldur því að
fólk er farið að fá leið á honum en
hann má eiga það að hann fékk fólk
tO að brosa.
vildi nýta sér sögu Mahirs í sína þágu.
Á þeirra vegum heimsótti hann allar
helstu borgir landsins, hundeltur af
aðdáendum, sem Mahir annaðhvort
kyssti á munninn eða kinnina eftir
því af hvoru kyninu viðtakandinn var
og auðvitað bauð Mahir þeim öllum í
heimsókn á meðan hann skrifaði eig-
inhandaráritanir. Vakti hann mikla
athygli fjölmiðla hvert sem hann fór
og vildu allir ná af honum tali. Kom
hann m.a. fram í spjallþáttum Ros-
eanne Barr og Jon Stewart. Mahir
bauð Stewart auðvitað í heimsókn til
Tyrklands og bauð Stewart honum þá
um hæl aö koma að heimsækja sig til
New Jersey.
Boðar frið
Mahir notaði þetta ein-
staka tækifæri sem honum
son
Einfaldi almúgamaðurinn Mahir
Cagir er 37 ára gamall. Hann hefur
áhuga á borðtennis, ljósmyndun og
ferðalögum. Mahir sló í gegn fyrir
nokkrum misserum þegar heimasíðan
hans, „This is my page“, sló í gegn hjá
vöfrurum heimsins og það meik náði
alla leið inn á síður DV á íslandi. Nú
hafa hins vegar borist tíðindi af þess-
um venjulega manni sem kenndi í tón-
listarskóla, skrifaði tímaritsgreinar og
deildi áhugamálum sínum með öðru
fólki á heimasíðu sinni, http://mem-
bers.xoom.com/primali/mahir.
Fór til Bandaríkjanna
Barnslega einlæga heimasíðan hans
Mahirs hitti svo rækilega í gegn að
hann fór að fá skilaboð og símtöl frá
fólki um gjörvallan heim sem annað-
hvort vildi óska honum til hamingju
með heimasíöuna eða þiggja heimboð
hans en á síðunni bauð hann hverjum
sem vildi í heimsókn. Og áður en Ma-
hir hafði tíma til að ná áttum var búið
að bjóða honum til Bandaríkjanna á
vegum stórs Internetsfyrirtækis sem
Sextugar
kerlingar
í körfubolta
Alla sunnudaga skvettir Stöð 2
vikuskammtinum af „Neighbours“
eða Nágrönnum í einni gusu fram-
an í áhorfendur. Fyrstu mínútur
þess háttar framhaldsþátta hafa yf-
irleitt borið mig ofurliði en ég
ákvað að reyna að þrauka í gegn-
um þennan dagskrárlið enda mun
umburðarlyndi vera i tisku nú á
dögum. Kannski hafði ég heldur
aldrei horft nógu lengi til að kom-
ast almennilega inn í söguþráðinn
og ekki vil ég vera bendlaður við
fordóma. í garð eins vinsælasta
þáttar veraldar.
Þátturinn stóð í tæpa tvo
klukkutima og ég sat sem fastast
allan þann tíma og horfði í veikri
von um að einhver skemmtun hlyt-
ist af. Tveimur tímum af ævi
minni eyddi ég í þessa tilraun.
Stillimyndin hefði án efa vakið
meiri ánægju hjá mér heldur en
þetta kjánalega fólk við Ramsey-
götu. Það er ótrúlegt að fjöldi fólks
kjósi að verja ævi sinni í að fylgj-
ast með framhaldsþáttum á borð
við þennan. En maður hefur
einmitt heyrt í aðdáendum þáttar-
ins í gegnum tíðina. Þeir hafa litið
á Nágranna sem eins konar uppeld-
isstöð fyrir sexí píur og benda á
veru Kylie Minogue í þáttunum
hér á árum áður. En nú virðist sem
„prósakið" sé farið að virka á upp-
dópaðan almenning. Það var ekki
eitt einasta beib í
þessu tveggja
tíma úrvalssjói
Nágranna. Þama
var ein megin-
regla kvik-
myndagerðar
brotin, sem segir: „Því lélegra
handrit, því fleiri beibs.“
Hvílík djöflasýra
Já, það er eitt sem víst er að ein
af aðalpersónunum, hún Madge, var
ekki mikið fyrir augað. Sextug og
sjúskuð, með vel rifna viskírödd.
Bryndís Schram er gleggsta dæmið
um konu sem getur auðveldlega
verið mjög hugguleg fram eftir
aldri. En leikstjórinn þurfti endi-
lega að veija sjúskaða belju, sem lít-
ur út fyrir að vera útjaskaður
heróínfíkill, í hlutverkið. Ekki
skánaði það þegar plottið gekk út á
hana að keppa í körfubolta með
„sextugum vinkonum sínum“. Og
þetta átti að vera spennandi. Hvílík
djöflasýra! Hver hefur áhuga á að
sjá einhverjar gamlar og útjaskaðar
kerlingar skakklappast í körfu-
bolta? Það kæmi mér ekki á óvart ef
við fengjum að fylgjast með henni á
æfmgu með harmónikusveitinni í
næsta þætti.
Unga fólkið
Ekki er imga fólkið í þættinum
áhugaverðara. Við fylgjumst með
hremmingum 15 ára spilafíkils,
stelpu sem heldur upp á afmælið sitt
og strák sem fær ekki að hlusta á
rokktónlist í friði fyrir föður sínum.
Og að sjálfsögðu þurfa þau að vera í
fötum sem eru einhver ósmekkleg-
asti samtíningur af öllu því ljótasta
úr síð-80’s tískunni. Því kom ekki
mjög á óvart þegar einn ungu leikar-
anna birtist á skjánum með sítt að
aftan og permanent í skottinu sem
er einhver bjánalegasta hárgreiðsla
sem ég hef séð. Það eina sem ég gat
gert var að vorkenna þessu unga
fólki fyrir að þurfa að byija leikfer-
ilinn á jafn metnaðar- og tilgangs-
lausu verkefni og Nágrönnum.
Það er mér mikil ráðgáta hvað
fær menn tU að framleiða svona
þætti og enn frekar hvað fær fólk tU
að horfa á þvæluna. Þátturinn hefur
ekki neitt. Hann er eins og hvert
annað drasl. Söguþráðurinn er öm-
urlegur, metnaðarlausir leikaramir
mismunandi lélegir og búningamir
með því ljótara sem fyrirfinnst á
jarðkringlunni.
Barði Jóhannsson