Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Page 7
Robbi Rapp hafði horft lengi á Maríu Grétu á Thomsen áður en hann lét til skarar skríða.
mantfk á Kaffi
Thomsen
„Ég hafði lengi vitað af henni án
þess þó að vita nokkur deili á
henni. Ég hafði séð hana á Kaffi
Thomsen og fannst hún ógeðslega
sæt. Einn daginn er ég staddur með
félaga mínum á Thomsen og hún
berst í tal en hann vissi víst eitt-
hvað meira um hana en ég þannig
að þá fékk ég helstu upplýsingar
um hana. Helgina eftir hitti ég vin-
konu hennar sem ég kannaðist við
og segi henni að mér fmnist hún
eiga afskaplega sæta vinkonu.
Stuttu seinna hitti ég þær báðar á
Thomsen og þá býð ég Mæju í glas.
Hún fór svo eitthvað en ég kasta
nafnspaldinu mínu í vinkonuna og
bið þær að hringja ef þær vilji
koma í parti á eftir. Þær mættu í
partíið en þar bar ekki mikið til
tíðinda. Þetta var í kringum pásk-
ana 1998 og það var mikið af frídög-
um þama í miðri viku þannig að
maður mætti á Kaffi Thomsen
nokkur kvöld í röð og hitti hana
þar og þetta small bara saman hjá
okkur á nokkrum dögum. Hún var
nýhætt með kærastanum á þessum
tíma þannig að það var bara aö
gripa gæsina meðan maður gat.“
Róbert Aron Magnússon
plötusnúður
Óvissuferð
Korfú
„Það eru átta ár síðan ég sá
hana fyrst. Hún v£ir að vinna á
Enn einum bar þegar ég kom þar
inn á þriðjudagskvöldi. Það var
enginn gestur á bamum og við fór-
um að spjalla saman og við töluð-
’im saman langt fram yfir lokun.
Ég hreifst strax af henni og sér-
staklega þessum kattliðugu augum
hennar. Eftir þennan fund sáumst
við ekki í viku því ég fór út á land
að spila. Síðan fór ég til útlanda í
þrjár vikur þar sem ég var að taka
upp plötu í Wales. Ég hafði ákveð-
ið að taka mér frí að upptökunum
loknum og hringdi i hana til ís-
lands og bauð henni með í óvissu-
ferð. Við hittumst á Heatrow og
keyptum flugmiða með næstu vél
og enduðum á Korfú.“
Kormákur Geirharösson
verslunareigandi
Kormákur féll fyrir augunum í Dýrieifu Ýr Örlygsdóttur.
VORUR
PEYSUR frá 3.900
BUXUR frá 4.900
JAKKAR frá 4.900
sauTján
Kringlunni, s. U68-9G1 7
NÝJAR
gallerl
Laugarvegi, s. 511-1720,
10. mars 2000 f ÓkUS
7