Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Blaðsíða 17
íkar(£)una 10. mars 2000 Sjallinn Klassískur teppalagBur sta&ur sem keyrir á alvöruböllum um helg- ar. Auðvelt er að villast á staðnum þar sem hann er á svo mörgum hæðum og hægt er að ganga hringinn. Aldur og gerð gesta fer eftir því hvaða hljómsveit er að spila. Efsta hæðin er opin undir nafninu Dátinn þegar ekki er ball og í kjallaranum er rekin nektar- búlla. Aðgangseyrir: Yfirleitt 1000 kr. á böllin. Stór bjór: 550 kr. Tvöfaldur vodki í kók: 850 kr. við Pollinn Hlýlegur staður með arni og þægilegum leðursóf- Bf um. Sveitaballastemning á dansgólfinu um helg- si ar undir lifandi tónlist. Gestir staðarins eru aðal- lega 35 ára og eldri en þó slæðist yngra fólk inn. ÍS Aðgangseyrir: 500 krónur eftir miðnætti um BÍ helgar. pl Stór bjór: 500 kr. Tvöfaldur vodki í kók: 850 kr. Oddvitinn Staðurinn gengur undir nafninu „Flugstöðin" vegna stæröar sinnar og lofthæðar. Það er dálítill hlöðu- filingur á staðnum sem býður upp á lifandi tónlist um helgar. Gestir staðarins eru alþýðufólk á öllum aldri, mikið af austurlenskum kon- um og fólki af frystihúsinu. Aðgangseyrír: Frítt á föstudögum en 500-1000 kr. eftir miðnætti á laugardögum. Stór bjór: 600. Tvöfaldur vodki í kók: 850. Café Karólína Þetta er staðurinn tyrir þá sem vilja spjalla og hafa það rólegt. Huggulegur staður sem er mikið sóttur af listamönnum og menntaskólanemum. Smá- réttaseðill. Aðgangseyrir: Enginn. Stór bjór: 500 kr. Tvöfaidur vodki í kók: 840 kr. Madhouse Underground club Staðurinn stendur fuilkomlega undir nafni. Bæði er hann niðurgrafinn og kolóð stemning þar inni. Staðurinn er málaður í hvítu og gráu, lágt til lofts og þröngt. Aldurshópur: ungur. Tónlist: techno, break beat, drum’n bass o.fl. Reykur og það nóg af honum. Stór bjór: 500 krónur. Tvöfaldur vodki í kók: 800 krónur. Club 13 Þessi staður minnir mest á Astró í útliti: grár og tóm- ur, með bar, sófahorni, dansgólfi og horni með borð- um og stólum. Þetta er kúlasti klúbbur Akureyrar sem er sóttur af ungum krökkum sem fíla snjóbretti og technotónlist. Eftir klukkan þijú, þegaröðrum stöðum á Akureyri er lokað, þætist við alls konar fólk sem er tilþúið að djamma lengur en það. Aðgangseyrir: Þegareinhverjar sérstakar uppákomur eru, ann- ars fritt. Stór bjór: 500 kr. Tvöfaldur vodki í kók: 850 kr. Kaffi Akureyri Þetta er sá staður sem er svona mitt á milli allra staðanna á Akureyri - hlýlegur staður með þokkalegu dansgólfi og iðar af fjöri. Dúndrandi diskótek er um helgar þar sem spiF uð eru ný lög i bland við gamla smelli. Gestir staðarins eru blandaður hópur fólks á öllum aldri sem er úti til þess að skemmta sér. Aðgangseyrir: 500 kr. e. mið- nætti um helgar. Stór bjór: 500 kr. Tvöfaldur vodki í kók: 870 kr. Venus Einn af þremur nektardans- stöðum Akureyrar. Frekar búllulegur og stemningslaus, enda virðist lítið lagt upp úr út- liti staðarins og eru auglýsingaspjöld ogjólabjöll- ur aðalskrautið á svartmáluðum veggjunum. Staðurinn er með tvö svið fyrir súludans, spila- kassa og flottar stúlkur. Skemmtilega skringileg sjón að sjá gesti sitja á kollum við sviðið. Aðgangseyrir: 1000 kr. Stór bjór: 600 kr. Tvöfaldur vodki f kók: 900 kr. Sumar cíljlju BUXUR PEYSUR BOLiR H.BOLIR frá 3.500 frá 3.500 frá 1.500 frá 990 gallerisauTján Laugarvegi, s. 511-1720, Kringlunni, s. 568-9017

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.