Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Blaðsíða 14
f Ó k U S 10. mars 2000 Edda Björg Eyjólfsdóttir útskrifaðist úr leiklistarskólanum fyrir tveimur árum og vakti strax athygli. Hún þykir húmorísk leikkona og sterk á sviðinu. Þessa dagana má sjá hana leika í Stjörnum á morgunhimni í Iðnó og auk þess æfir hún hlutverk fyrir kvikmyndina Ikingut og söngleikinn Kysstu mig Kata í Borgarleikhúsinu. Auður Jónsdóttir snæddi morgunmat með Eddu á Prikinu og fræddist nánar um líf hennar og starf. Óvissan skemmtileg „Ég er bara frekar nýút- skrifuð," segir Edda Björg þegar hún hefur fengið sér sæti yfir morgunmat á Prik- inu. Síðan sýpur hún af café au lait og bætir við að hún hafi útskrifast 1998. Eftir að Edda útskrifaðist hefur bor- ið mikið á henni og hún hef- ur sérstaklega vakið athygli sem upprennandi gaman- leikkona enda sýnir mann- eskjan húmorísk tilþrif í öðru hverju orði og hlær dátt meðan hún segir frá. Edda hefur heldur ekki ver- ið í vandræðum með verk- efni og hefur leikið i nokkrum stykkjum i Borg- arleikhúsinu, Ára- mótaskaupinu, Stjömum á Morgunhimni í Iðnó auk þess sem hún skemmti landanum með Skara skrlpó. Hún hefur einnig komið nálægt kvikmyndum og þessa dagana er hún í undirbúningsvinnu fyrir kvikmyndina Ikingut „Já, ég er að æfa fyrir þessa mynd og hef hitt alla leikar- ana, þar á meðal litla græn- lenska strákinn sem leikur aðalhlutverkið. Þetta er fal- leg og skemmtileg saga og ég er mjög spennt að leika í myndinni," segir Edda brosandi meðan hún smyr ristaða brauðsneið. Franskur kærasti og soðin egg Edda fær vitanlega hina klassísku leikaraspumingu: Hvers vegna fór hún í leik- list?. Að spumingunni lok- inni rennur upp fyrir mér að Vala Matt spurði Ant- hony Hopkins nákvæmlega sömu spurningar í sjón- varpsþætti og hann gaf vægast sagt lítið fyrir hana. Það er eins með Eddu sem svarar spuringunni hratt og áhugalaust: „Ja, mig lang- aði bara að verða leikkona. Ég lék í MH og þar byijaði ég að öðlast pínu sjálfs- traust. Mér fannst þetta spennandi og skemmtilegt, sá fram á að mig langaði að vinna við þetta í framtíð- inni og ákvað að fara i inn- tökupróf." Hvaö tók svo viö? „Ég fór til Lyon strax eft- ir útskriftina úr MH og hugsaði um þrjú böm hjá fólki sem var rosa ríkt. Þau voru með sundlaug í garð- inum... eitthvað annað en maður þekkti,“ segir Edda og hlær áður en hún heldur áfram: „Þau voru í skart- gripabransanum og þama var ég að sjóða egg og reyna að tala frönsku." Tókst þér að læra frönsku? „Ég lærði ekki frönsku al- mennilega fyrr en ég eign- aðist franskan kærasta. Þá flutti ég inn til ijölskyld- unnar sem hann var hjá, það var svona millistéttar- fólk - og þá lærði ég að tala frönsku," klykkir Edda út með áherslu. Blikkandi rafmagns- hjarta Að Frakklandsfrásögn- inni lokinni er Edda spurð út í bamæskuna og hvort hún sé sveita- eða borgar- bam. Að hennar sögn er hún hvort tveggja. „Ég bjó nefnilega í aust- urbænum I Kópavogi og lék mér hjá skítalæknum. Þá var miklu meira af ósnertu landi þama í kring. Hestar á beit við íþróttavöllinn og sum staðar vom bara vegir með gamaldags götuljósum, svona gulum tréstaumm. Á öðrum stöðum var kannski malbikað en engar gang- stéttir," útskýrir Edda og kimir við minninguna. En hvenœr varðstu fyrst skotin í strák? „Ég varð fyrst skotin í strák sem hét Viðar og við vorum bæði i sjö ára bekk. Á þeim tima gekk ég með lítinn plasthring sem ég hafði fengið að gjöf. Stelp- umar sögðu að hringurinn væri frá Viðari en það var ragl. Börkur tannlæknir gaf mér hann því ég var svo dugleg." En áttu kærasta í dag? Leikkonan brosir íbyggin og viðurkennir fúslega að hún sé ástfangin. „Já, hann heitir Stefán Már Magnús- son og hann er snillingur." Og það er enginn plast- hringur í þetta skiptiö...! „Jú, reyndar,“ hlær Edda: „Ég var með plast- hring úr dótabúðinni Liver- pool, svona hring með blikkandi rafmagnshjarta." Að vita hvað maður vill Atvinnuöryggi er ekki mikið i leikarastéttinni á ís- landi. Hins vegar hefur bor- ið mikið á Eddu síðan hún útskrifaðist úr Leiklistar- skólanum og svo virðist sem hún vaði hreinlega í verkefnum. Er þaö rétt? „Já og nei. Ég kvarta ekki. Ég hef fengið tækifæri til að spreyta mig á mörg- um spennandi hlutverkum en það hafa líka komið tím- ar þar sem maður hafði ekki hugmynd um hvað kæmi næst. Þá er bara um að gera að draga andann djúpt og vera smá kæru- laus. Þetta er allt undir manni sjálfum komið og kannski einhverjum örlög- um. Ég held að vandinn liggi ekki í að maður fái ekkert að gera heldur frek- ar hvað maður vildi vera að gera,“ segir Edda áður en hún bætir við að óvissan sé að vissu leyti skemmtileg. „Hún heldur manni létt á tánum og fyrir vikið fer maður sjálfur að búa til hluti. Við vorum nokkur sem settum upp barnaleik- ritið Ævintýrið um Gleym mér ei og Ljóna kóngsson í sumar. Þá sömdum við leik- gerðina sjálf og allt sem við- kemur uppsetningunni." Margir leikarar spreyta sig við skriftir, langar þig aldrei til aó semja verk sjálf? Edda neitar þvi og segir: „Það era til svo mörg góð leikrit að ég hef hreinlega ekki fundið þörflna fyrir það. Reyndar má skrifa fleiri íslensk leikrit en ég læt aðra um það. Minn draumur er hins vegar sá að vera í leikhóp þar sem allir vinna að einni góðri sögu sem allir ætla að segja. Það er eitthvað heillandi við svoleiðis samvinnu og ég held að það verði góð leiksýning úr samstíga leik- hópi þar sem fólk flnnur lausnimar í sameiningu." Fyrst vil ég læra ao leika betur „Það er skemmtilegast þegar leikararnir ná vel saman, stilla sér upp, teikna upp myndir og brjóta niður stofuveggina. Ég þoli nefnilega ekki þegar raun- veruleikinn er tekinn og settur á svið. Það er hægt að taka allt úr umhverfinu og setja það á svið. Leikarar geta leikið hvaða sitúasjón sem er,“ fullyrðir leikkonan skörulega og tekur fram að sniðugustu lausnimar felist yfirleitt í einfaldleikanum og það er greinilegt að hún vill sjá meira af hugmynda- ríkum uppsetningum á Fróni. Hvað með leikstjórn, gœt- uröu hugsað þér að vera leikstjóri? „Einhvern tímann gæti ég hugsað mér það en fyrst vil ég læra að leika betur," svarar Edda sem er orðin of sein á dansæfingu fyrir söngleikinn Kysstu mig Kata og hefur einungis tima til að svara lokaspuming- unni: Hvert er uppáhalds- leikskáldið þitt? „Tsjekhov hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér og ástæðan er líklega sú að mér finnst gaman að grátbroslegum verkum. Þegar húmorinn felst í al- gjörri tragík," útskýrif hún og þýtur í Borgarleikhúsið að orðunum slepptum. „Eg lærði ekki frönsku almennilega fyrr en ég eignaðisf franskan kærasta.“ FÓKUSMYND: Teitur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.