Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Síða 8
haf
Meira pláss
fýrir Akur-
eyringa
Skemmtistaöurinn
Við Pollinn á Akur-
eyri ætlar heldur
betur að færa út
kviarnar. í næstu
viku mun staður-
inn stækka um
hvorki meira né
minna en helming og
er hann þó ekki lítill tyrir.
Við bætist koníakstofa og salur þar sem hægt
verður að taka á móti hópum í mat. Þar með
eykst enn það rými sem heimamenn hafa til
þess að sletta úr klaufunum en skemmtistað-
ir og barir hafa sprottið upp eins og gorkúlur
síðustu árin i bænum.
Eiki Hauks
á landinu
Rauðhærði rokkarinn Eiríkur Hauksson er
kominn til landsins og ætlar að skemmta
landanum um helgina á Álafoss föt bezt i Mos-
fellsbæ. Síðustu árin hefur
Eiki búið í Noregi og ekki
mikið farið fyrir hon-
um. Eirikur hefur þó
sýnt og sannað að
hann er ekta rokkari
og hver man ekki eft-
ir lögunum Sekur,
Gaggó Vest eða Gull?
Eiríkur ætti því auðvita að
troða upp á stærri stað en Álafoss föt bezt
þegar hann loksins heimsækir klakann þar
sem aðdáendur hans hér á landi eru fjölmarg-
ir en ekki er víst að þeir nenni allir að bitast
um þessi fáu sæti upp í Mosó. Fáum Eika
næst i Þjóðleikhússkjallarann!
„Mikisuaraaqana inequnaviilunga anaanap aanna
ataatap piginnaqaannga...." hljómar yffir Domino’s
og rennur saman við tal frá bandarískri sjónvarpsmynd.
Það eru aðeíns nokkur ár síðan íslendingar hættu að fara „út að borða“ á Ask og Tomma-
borgara og komust upp á lagið með ameríska skyndibitastaði. í Grænlandi eru bara tveir
slíkir staðir og þeir eru báðir í Nuuk. Auður Jónsdóttir heimsótti fjóra ameríska skyndibita-
Top Shop
opnar inter-
netcafé
Breska verslunarkeðjan Top Shop opnar versl-
un I Reykjavík á miövikudaginn kemur. Versl-
unin er í Lækjargötunni þar sem skemmtistað-
inn Tunglið var áður að finna. Fyrir utan ódýran
tískufatnað verður internetkaffihús f verslun-
inni. Þetta ætti að gleðja marga en þannig
þjónustu hefur sárlega vantað í
borgina. Áður hafa verið gerð-
ar tilraunir til þess að
halda úti rekstri internet-
kaffihúsa en ekki gengið
nógu vel. Viö vonum að
höfuðborgarbúar taki
þessari þjónustu fagnandi
en aðgangurinn verður
ökeypis á Netiö út marsmánuð.
Tölvuglaðir geta því mætt galvaskir í verslun-
ina strax á fimmtudagsmorgun því opnunin á
miðvikudag er bara fýrir fína og fræga fólkið
(boðsgesti).
Rccbök
staði í Reykjavík ásamt Grænlendingunum Orto og Hans og ræddu.um staðina og kvik-
myndina Ikingut en Hans er staddur hérlendis í undirbúningsvinnu fyrir aðalhlutverkið.
minnir á Nuuk
Ég hitti Orto Ignativssen og
Hans - Tittus Nakíngs á Hótel
Baróni klukkan sjö. Þeir brosa
báðir til mín og litli strákurinn,
Hans - Tittus, gæti brætt hjartað í
hvaða hryðjuverkamanni sem er.
Ég reyni að útskýra fyrir þeim á
afar bjagaðri dönsku að við ætl-
um að borða á fjórum skyndibita-
stöðum og það virtist leggjast vel
í þá þótt Orto sé mun hrifnari af
sterkum asískum mat. Meðan við
bíðum eftir leigubílnum segir
Orto að hann sé leiðbeinandi
Hans sem á að leika stærsta hlut-
verkið í kvikmyndinni Ikingut
(Vinur á grænlensku) sem ís-
lenska kvikmyndasamsteypan
framleiðir. Orto er sérstaklega
heppilegur leiðbeinandi því hann
Hildur Helga Sigurðardóttir.
Sveinn M. Eiösson.
Það kom mörgum á óvart þegar Þetta helst fór í loftið hjá okurbúll-
unni RÚV að skattgreiðendur væru nú farnir að framleiða sjónvarps-
þátt imdir stjórn Sveins M. Eiðssonar. En eins og landsmenn vita er
Sveinn í uppáhaldi hjá Hrafni Gunnlaugssyni en það er maður sem
Rúv-arar elska að hata. Svo kom það loks í ljós að stjórnandinn er
ekki Sveinn M. Eiðsson heldur gullfalleg kona að nafni Hildur Helga
Sigurðardóttir. Auðvitað eru margir sem vita þetta ekki en nú hefur
Fókus leiðrétt þennan leiðinlega misskilning. Stjómandi Þetta helst
er ekki Sveinn M. Eiðsson heldur Hildur Helga Sigurðardóttir.
er bæði skóla- og leiklistarkenn-
ari í Grænlandi og getur því bæði
kennt og leikstýrt Hans. Hann
lærði leiklist í Danmörku, ferðað-
ist í fjögur ár um alla Evrópu og
gegnir nú þessum sérkennilega
starfa fyrir íslensku kvikmynda-
samsteypuna.
Taka Subway
heim í flugvel
Loks kemur leigubíllinn og við
setjumst inn og höldum á Subway
í Austurstræti. Þar er nokkur bið
eftir afgreiðslu sökum anna en
Hans litli bíður sallarólegur með-
an Orto segir frá skyndibitastaða-
menningunni á Grænlandi: „Það
er ekki Subwaystaður á Græn-
landi en hins vegar em McDon-
aldsstaðir í stóru bæjunum. I okk-
ar heimabæ, Tasiilaq, er enginn
keðjuskyndibitastaður, enda búa
aðeins um 1000 manns þar. Hins
vegar eru þar grænlenskir ham-
borgarastaðir og hamborgararnir
em gerðir eftir smekk kokkanna."
Þegar röðin kemur að okkur
kannast starfsstúlkan við okkur
Eg segi þeim
að kokkteil-
sósan sé
séríslenskt
fyrirbæri sem
hafi haslað sér
völl á spænsk-
um sólar-
ströndum og
þeir smakka
forvitnir á henni
og láta vel af.
Þar er svakaörtröð á McDonald’s en við bíöum þolinmóð og innan skamms fá
félagarnir að velja sér stjörnumáltíð í boði hússins.
og býður þeim að velja sér álegg á
12 tommu Subwaybáta, gosdrykk
og köku í eftirmat. Orto og Hans
velja báðir kalkúnabát í flnu
brauði með osti, grænmeti og
majonesi. Síðan setjumst við og
Hans er greinilega hrifinn af
matnum því hann segist vilja taka
Subway heim með sér í flugvél. Á
meðan við borðum segir Orto að
Kvikmyndasamsteypan hafi beðið
um prufur með sjö drengjum.
Orto var með 25 leiklistarnemend-
ur en valdi Hans af handahófi því
hann tilheyrði ekki nemenda-
hópnum. Þegar þeir kyngja síð-
asta bitanum lítur Hans út um
gluggann, bendir á Kabarett og
spyr hvort við förum næst þang-
að. Orto fræðir hann á að leiðin
liggi næst á McDonald’s og þá
skælbrosir barnið og segir: „Ég
get borðað meira.“
Hlýrra á Grænlandi
en Islandi
Við röltum yfir á McDonald’s og
á leiðinni gefur Orto frá sér kulda-
hljóð og stynur: „Það er kaldara
hér en á Grænlandi. Loftið er svo
rakt.“ Þeir verða lika fegnir þegar
við forum inn á Mc’Donalds. Þar
er svakaleg örtröð en viö bíðum
þolinmóð og innan skamms fá fé-
lagarnir að velja sér stjörnumáltíð
í boði hússins. Orto velur sér mál-
tíð númer 2 og fær stóran ham-
borgara, franskar og gos. Hans vel-
ur óvart kjúklingamáltíð og horfir
vonsviknum augum á hana þar til
þvi er reddað og hann fær alveg
eins máltíð og leiðbeinandi hans
og vinur. Þeir láta vel af matnum.
Orto kann þó betur við Subway en
Hans er hrifnari af McDonald’s.
Við tölum um íslenska skyndibita-
menningu og Orto á bágt með að
trúa að það séu aðeins örfá ár síð-
an amerískir skyndibitastaðir
hösluðu sér völl hérlendis. En
kannski spretta amerískir skyndi-
bitastaðir upp á Grænlandi fyrr en
þá grunar og Hans losnar við að
ferja Subway heim í flugvél.
f Ó k U S 10. mars 2000
8