Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Qupperneq 9
Kokkteilsósan
haslar sér völl
Eftir máltlðina á McDonald’s
tilkynnir Hans aftur að hann
geti borðað meira og það er eins
gott því næst liggur leiðin á
Kentucky Fried Chicken í Skeif-
unni. Þangað er langt að fara svo
við hringjum á leigubíl sem stað-
næmist fyrir framan Kaffi París
og síðan er lagt í hann. Á leið-
inni spyr ég félagana hvort þeir
hafi séð eitthvað af Reykjavík.
Þeir jánka þvi og Orto segir að
þeir hafi farið tvisvar um mið-
bæinn og séð talsvert svo þeir
séu farnir að rata. Að sögn Ortos
minnir Reykjavík mikið á Nuuk
á Grænlandi og hann kann vel
við borgina sem hann álítur ró-
lega. Hann minnist á drykkju-
vandamál i bæjum á Grænlandi
en ég segi honum að íslendingar
kljáist líka við það i ríkum mæli
og bendi honum á að fara niður í
bæ á laugardagsnótt.
Það er tekið vel á móti okkur á
KFC og fullorðnir fá kaffi meðan
við bíðum eftir matnum en Hans
fær fjóra dótapakka. Maturinn er
íslendingar í snjóhúsum
Síðasti áfangastaður er Dom-
ino’s-pizza á Grensásvegi og á leið-
inni spyr ég Hans hvort hann geti
borðað meira. „Bara smá meira,“
segir hann og brosir, þreyttur eft-
ir langan dag og langt kvöld. Á
Domino’s flöggum við tveimum
gjafabréfum og hvort þeirra hljóð-
ar upp á tveggja lítra kók, brauð-
stangir og fimmtán tommu pitsu
með tvenns konar áleggi að eigin
vali. Við leysum aðeins annað
bréfið út því þeir eru svo saddir
en ég segi þeim að eiga hitt tO
góða og Orto þakkar kærlega fyr-
ir. Því næst bendir hann á að
Domino’s á Grensásvegi sé ekta
„Take away“-staður og sýnir leik-
ræna takta þegar hann gengur að
afgreiðsluborðinu og aftur að dyr-
unum með ímyndaða vöru. Það er
smábið eftir pitsunni og á meðan
setjast þeir niður með litla vísna-
bók og synga grænlensk bamalög:
„Mikisuaraaqana inequnavill-
unga anaanap aanna ataatap pig-
innaqaannga...“ hljómar yfir stað-
inn og rennur saman við tal í
bandarískri sjónvarpsmynd.
Á Subway velja Hans og Orto báðir kalkúnbát í fínu brauöi með osti, grænmeti
og majonesi.
vel útilátinn. Hans fær barnabox
en Orto fullorðinsskammt og auk
þess fá þeir maísstöngla, salat og
kokkteilsósu. Ég segi þeim að
kokkteilsósan sé séríslenskt fyr-
irbæri sem hafi haslað sér vöil á
spænskum sólarströndum og
þeir smakka forvitnir á henni og
láta vel af. „Þetta er mjög heimil-
islegur staður og greinilega gott
fyrir fjölskyldufólk að koma
hingað,“ segir Orto sem er hrifn-
astur af KFC. Síðan bætir hann
brosandi við: „Það er notalegt og
gott að sitja héma og maturinn
er góður. Þetta kvöld er ævintýri
fyrir Hans.“
Þegar pitsan er tilbúin hætta
þeir að syngja og fá sér bita. Þeim
þykir pitsan einnig góð en matar-
lystin er farin að minnka svo þeir
fara með megnið af henni heim í
kassa ásamt kókflöskunni og
brauðstöngunum. Við göngum út
í síðasta leigubílinn og keyrum af-
velta niður í bæ. Á leiðinni segir
Orto: „Ég fór einu sinni alla leið
til Póllands til að leika í sautján
sekúndna langri auglýsingu. Pól-
verjamir héldu gjaman að Græn-
lendingar byggju í snjóhúsum..."
Þá grípur leigubílstjórinn fram
í fyrir honum og segir: „Það halda
nú margir og um okkur Islend-
inga líka, skal ég segja þér...“
„Þetta er mjög heimilislegur staður og greinilega gott fyrir fjölskyldufólk að
koma hingað," segir Orto sem er hrifnastur af KFC.
Vilt þú starfa við
eitthvað skemmtilegt
í sumar?
Fjölbreytt störf í boði - létt og lifandi ÍTR
Hver dagur hefur ný og skemmtileg ævintýri upp á að bjóða.
Með frábærum samstarfsmönnum lærir þú að takast á við
spennandi og stundum erfiðar aðstæður en ert samt
hlæjandi allantímann.
útilegur - siglingar - íþróttir - klettaklifur - sund - hjólreiðar - sig - kvöldvökur - hellaferðir - ratleikir - gönguferðir
Við leiturn að kraftmiklum og jákvæðum starfsmönnum.
Áhugasamir hafi samband við íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur
í síma 551-5799 á skrifstofutíma til að fá nánari upplýsingar.
Einnig er hægt að kynna sér ýmis störf hjá ÍTR á http://storf.hitthusid.is.
Hjá okkur finnur þú starf við þitt hæfi.
hress eins og hross.
Ert þú í góðu jafnvægi?
10. mars 2000 f ÓkUS
9