Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Side 13
h v a ö f
10. mars 2000 f Ó 1< U S
★★★★,
Hljómsveitin: Ymsir flytjendur
Platan: Doob DOOD
O'Rama
Útgefandi: Normal/12 tónar
Lengd: 58:23 mín
Safnplata meö 16 lögum úr ind-
verskum bíómyndum frá seinni
hluta síðustu aldar. Mest af vinsælli
popptónlist á Indlandi kemur úr bíó-
myndum. Tónlistin er oftast skrýtin
blanda af vestrænum tónlistarstíl-
um og indverskri tónlist og hér eru
bæði ballöður og kraftmikil lög.
Ég verð að viðurkenna að indverski
tónskalinn og helium-raddir söng-
kvennana fara yfirleitt í taugarnar á
mér, en hér eru skringilegheitin það
mikil að erfitt er aö hrifast ekki
með. Diskurinn er fyrir framsækna
tónspekinga jafnt og þá sem flnnst
skrýtin og fyndin tónlist skemmtileg.
Indverjar framleiða fiestar kvikmynd-
ir allra þjóða. Þær fara þó sjaldan
út fyrir landsteinana. Indverjar eru
bíóóðir og jafnvel fátækustu þorp
eru með einhvers konar bíó. Restar
myndirnar eru íburöarmiklar og
sjaldnast undir 150 mfnútum. Bíó-
stjörnur verða oft stjórnmálamenn.
Þó lögin séu vissulega misskemmti-
leg er meirihlutinn frábær sólskins-
tónlist sem ætti aö fá þunglamaleg-
asta durt til að brosa og tina
hausnum í takt. Þetta er frábær
kynning á framandi tónlist. Fáðu þér
eintak og komdu brosandi út úr
skammdeginu.
dr. gunni
★★★
Hljómsveitin: AÍf
piatan: The Virgin
Suicide
Útgefandi: Virgin/Skffan
Lengd: 40:33 mín.
Þetta er fyrsta nýja efnið með
frönsku súpergrúppunni Air sfðan
hún gaf út „Moon Safari" fyrir þrem-
ur árum. Sú þótti ein af þetri þlöt-
um ársins 1997. Þetta ertónlist úr
kvikmynd Sofiu Coppola „The Virgin
Suicides" sem frumsýnd verður f
vor.
Strákarnir f Air búa til sniðugt og
þægilegt rafpoþp. Smelli eins og
„Sexy Boy“ og „Kelly Watch the
Stars" þekkja flestir, en nýja platan
er svolítið dimmari og instrúmental
ef frá er talið flauelsmjúkt opnunar-
lagið „Playground Love".
Þeir Nicolas Godin og Jean-Benott
Dunckel-meðlimir Air blása á þá
sem segja að „Virgin Suicides" sé
ekki alvöru Air þlata af því aö þetta
er kvikmyndatónlist. „Sumar af okk-
ar uppáhaldsplötum eru með tónlist
úr kvikmyndum," segja þeir.
Fyrstu viðbrögðin þegar maður heyr-
ir plötuna eru mikil vonbrigði, en
hún vinnur á viö frekari hlustun.
Þeir sækja sem fyrr mikið f popp frá
sjöunda og áttunda áratugnum og
gera margt ágætlega á plötunni þó
að hún sé engin Moon Safari.
trausti Júlíusson
★★★★
Hijómsveitin: Laurent Garnier
piatan: Unreasonable
Behaviour
Útgefandi: F Communications/Japis
Lengd: 69:09 mín.
Þetta er þriðja platan með franska
plötusnúönum Laurent Garnier. Þó
aö fyrri tvær plöturnar hans hafi ver-
ib ágætar má segja að með þessari
plötu sé tónlistarmaðurinn Garnier
búinn að ná yfirhöndinni yfir plötu-
snúðnum Garnier.
Þó að þetta sé teknóplata þá má
finna á henni mjög ólíka hluti. Þetta
er allt frá hægu tempói og djassf
stemmningu upp f hart teknó með
viökomu f elektró, breakbeat og
house. Þetta er því plata sem ætti
að höfða til flestra áhugamanna um
raftónlist.
Unreasonable Behaviour er í raun
tvö ólík verk. Geisladiskurinn er
sniðinn að heimahlustun, en vfnil-
platan meira stiluð inn á dansgólfið.
Á vinýlplötunni hafa sum af hægari
lögunum verið tekin út og
dansvænna efni sett í staðinn.
Síðustu vikurnar hefur Slipknot verið vinsælasta þungarokksbandið á íslandi.
Þetta er níu manna band þar sem aliir eru með grímur og
klæðast göllum. Þeir eru ógnvekjandi og margar kerlingar hafa fengið
hland fyrir hjartað og talað um „vond áhrif á æskuna". Dr. Gunni skoðaði Slipknot.
Unreasonable Behaviour er mjög vel
lukkuð plata. Hún er fjölbreytt og
full af tónlistarlegum skfrskotunum f
fortíðina og samtfmann. Þetta er
Ifka ein af þessum plötum sem
luma á einhverju nýju við hverja
hlustun.
trausti júliusson
Gallar, Qf*! níiLJr"
og gallhart
Borgin Des Moines í Iowaríki er
ekki fræg fyrir rokk og ról. Og
kannski ekki að furða því Iowaríki er
helst þekkt fyrir komrækt og svína-
eldi. í Des Moines skemmta menn sér
helst með því að fara á strípiklúbba,
en gaukamir níu sem mynda Slip-
knot kusu að eyða tíma sínum inn í
skúr við að slípa saman djöfullegt
þungarokk. Fyrsta platan hét þeim
uppbyggilega titli „Mate. Feed. Kill.
Repeat." og bandið gaf hana sjálft út
árið 1996. í fyrra gaf þungamerkið
Roadrunner út plötuna „Slipknot" og
hjólin hafa rúllað með sívaxandi
hraða síðan.
Töfrandi smáatriði
Þeir kalla sig 0, 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7 og
8 en heita í réttri röð: Sid Wilson
(plötusnúður), Joey Jordison
(trommari), Paul Gray (bassi), Chris
Fehn (ásláttur), James Root (gítar),
Craig Jones (samplari), Shawn Cra-
han (ásláttur), Mick Thompson (gít-
ar) og Corey Taylor (söngur). Þetta
virðast vera hinir vænstu piltar þó
tónlist og textar gætu gefið í skin að
hér væru bandbrjálaðir drullusokkar
á ferðinni. Þeir búa ekki saman í slát-
urhúsi heldur eiga konur, börn og
lifa indælu lífi í Des Moines. Það er
ekki nema í tónlistinni sem þeir fá út-
rás fyrir geðveikinni. Slipknot segjast
ekki vera í sömu deild og nýþung-
arokksbönd eins og Limp Bizkit,
heldur leiti þeir til fortíðar, í
dauðarokk og pönkbönd eins og
Black Flag og Dead Kennedys.
Níu manna þungarokksbönd eru
sjaldséð, en bassaleikarinn 2 útskýrir
það svona: „Við byggðum einfaldlega
upp það band sem við hefðum sjálfir
viljað heyra og sjá á sviði. Við bætt-
um við meðlimum þar til tónlistin
hljómaði rétt í eyrum okkar. Ef við
hefðum þurft að vera tuttugu manna
band væru 20 í bandinu núna. Við
gerðum engin plön heldur bættum
bara við þar til tónlist hljómaði rétt.“
Stjörnukerfi Ifókus
★ ★•*** Gargandi snilld! ★ Notist í neyð.
★ ★★ ★ Ekki missa af þessu. 0 Tímasóun.
* * * Góð afþreying. v'skaðlegt.
★ ★Nothæft gegn leiöindum.^®"
p 1 ötudómar
Allir meðlimirnir þekktust áður en
Slipknot varð til og sumir höfðu spil-
að saman í öðrum böndum. Það er at-
hyglisverð samheldni í gangi innan
bandsins: „Síðustu þrjú árin höfum
við farið eftir stífu æfingarplani,"
segir 7. „Allir mæta stundvíslega og
við æfum ekki nema að allir séu
mættir. Tónlistin okkar er svo háð
heildinni að þótt bara einn vantaði,
kannski plötusnúðinn, væri útkoman
ekki okkar tónlist lengur. Allir verða
að vera á staðnum. Jafnvel minnstu
smáatriði gera lögin töfrum líkust."
And-ímynd verður ímynd
Það eru engin sérstök tíðindi að
hljómsveitir spili með grímur. Bönd
eins og tilraunagrúppan The Res-
idents, Kiss og Stuðmenn hafa leik-
ið grímuleikinn áður. Slipknot segja
lika að tónlistin skipti öllu, ekki
grímumar.
„Við erum ekki svona til að reyna
að fá fólk til að flla okkur,“ segir 1.
„Eftir að hafa lítillækkað okkur
árum saman í Des Moines fyrir
fólki sem gæti ekki verið meira
sama um okkur, fórum við í gallana
og settum upp grimurnar til að
leggja áherslu á að persónur okkar
skiptu engu máli. Öllum hafði verið
drullusama en grímumar kveiktu
áhuga fólks og nú sitjum við uppi
með þær.“
2 tekur við: „Þetta var hugsað
sem and-ímynd. Við nenntum ekki
að pæla í því hvaða svölu fotum við
ættum að ganga í eða hvaða svölu
klippingu við ættum að hafa. Tón-
listin gekk fyrir. Með göllunum og
grímunum minnkaöi áherslan á það
að vera „svalar og töff rokkstjöm-
ur“.
En er ekki bara and-ímyndin orð-
in ímynd sveitarinnar?
„Jú, það má segja það. En það er
bara hægt að glápa á grímu í ákveð-
ið langan tíma. Eftir nokkrar mín-
útur verða áheyrendur að byrja að
pæla í tónlistinni en ekki i því í
hverju við erum.“
Grímumar eru í stöðugri þróun,
enda segir 7 að þær séu framlenging
á persónuleika meðlimanna; „Það
verða alltaf breytingar hjá Slipknot.
Allir eldast með hverju árinu og
þegar þú eldist þá breytistu," segir
hann spekingslega og bætir við:
„Eftir að hafa lítillækkað okkur árum saman í Des Moines fyrir fóiki sem gæti
ekki verið meira sama um okkur, fórum við í gallana og settum upp grímurnar
til að leggja áherslu á að persónur okkar skiptu engu máli. Öilum hafði verið
drullusama en grímurnar kveiktu áhuga fólks og nú sitjum við uppi með þær.“
„Það getur alveg eins endað á því að
við tökum grímumar niður, en það
verður ekki nærri því strax.“
Æstar kerlingar
Meðlimir geta þakkað Ross Robin-
son velgengnina. Ross er vinsæll
hljóðkarl, vann t.d. fyrstu plötur
Korn og Soulfly, og þegar hann fékk
fyrstu Slipknot-plötuna senda ákvað
hann að vinna með þessum gaurum,
sama hver myndi gera samning við
þá. Hann fékk menn frá Roadrunner
til að fjölmenna til Des Moines og eft-
ir magnaða Slipknot-tónleika í
heimabænum var skrifað undir á
strípiklúbbi.
Bandið hefur spilað um allan heim
í kjölfar plötunnar og meðlimirnir
eru hæstánægðir með lífið og tilver-
una. „Að ferðast og spila okkar tón-
list fyrir nýtt og nýtt fólk er alveg
geggjað," segir 2. „Ég vil þakka hverj-
um einasta krakka sem mætir til að
horfa á okkur, án aðdáendanna vær-
um við ekkert."
Nú er Slipknot í Bretlandi og þar
hefur túrinn ekki gengið áfallalaust
fyrir sig. í Wolverhampton þurfti að
fara með tónleikagest á spítala eftir
að hann fékk einn meðlim Slipknot í
hausinn, en hann hafði hent sér aftur
á bak ofan af 9 metra háum svölum í
góðu stuði. Þessi atburður er vitan-
lega vatn á myllu argra kerlinga. Öll
ímynd Slipknot er ógnvekjandi og
með texta eins og þennan úr
„Surfacing", er von nema kerlingar
verði æstar?: „Fuck it all. Fuck this
world. Fuck everything that you
stand for. Don’t belong. Don’t exist.
Don’t give a shit. Don’t ever judge
me“.
Leifum 2 að útskýra: „Við tileink-
um krökkunum þennan texta, hann
er eins konar nýr þjóðsöngur þeirra.
Þetta er okkar leið til að segja; ekki
hugsa um hvað öðrum finnst. Hafðu
bara áhyggjur af sjálfum þér. Ekki
taka það inn á þig þótt aðrir dæmi
þig eða angri þig. Vertu bara trúr
sjálfum þér.“
í september sl. hélt hljómsveitin Blur
sýninguna X í tilefni af tíu ára afmæli
sveitarinnar. Nú er sýning-
in komin á Netið og er
hvalreki fyrir alla aðdá-
enduma. Slóðin er:
www.blurx.co.uk.
Blur taka upp nýja plötu
á árinu en Damon hefur
verið að gera sándtrakkið fyrir
101 Reykjavík með Einari Emi eins og
komiö hefur fram. Damon tjáði sig nýlega
um rifrildi Oasis-bræðra við Robbie
Williams, en Blur og Oasis rifust mikið í
fjölmiðlunum á árum áður. „Gallagher-
bræðumir eru að endurtaka sama leik-
inn, en nú með Robbie en ekki okkur,“
sagði Damon og bætti við: „Þeir hafa
greinilega ekki þroskast neitt.“
Oasis beint
á toppinn
Nýja Oasis-platan fór beint í fyrsta
sæti á breska listanum og seldust 200
þúsund eintök fyrstu vikuna.
Aðstandendur em ánægðir
með söluna þó hún sé ekk-
ert í líkingu við það þeg-
ar Be Here Now seldi 250
þúsund eintök á einum
degi árið 1997. Það er nú
heldur ekkert sérstakt því
„Hard Day’s Night" með Bítlunum
seldist í 1.5 miiijón eintökum á viku árið
1964. Oasis-platan hefur fengið frekar
volgar viðtökur gagnrýnenda í Bretlandi
en þess heitari í Bandaríkjunum. Hljóm-
sveitin er þessa dagana að spila í Japan
og þurfti Liam að yfirgefa sviðið nýlega
þegar hann missti röddina. Þá tók Noel
við og kláraði prógrammiö.
Radiohead
vakna til
lífsins
Thom Yorke og hressir félagar hans í
Radiohead hafa legið í hýði síðustu tvö
árin og unnið að gerð nýrrar plötu. Síð-
asta plata, „OK Computer", kom út 1997
og nýrrar plötu hefur verið beðið með
miklum spenningi. Nú er bandið að
vakna til lifsins á ný og hefur bókað sig á
tónleika í London þann 1. júli nk. Það
verða fyrstu tónleikar Radi-
ohead í Englandi í meira
en tvö ár. Strákamir
lofuðu því í útvarps-
viðtali nýlega að klára
nýju plötuna fyrir 1.
apríl. Um 30 lög hafa
verið tekin upp, m.a. lögin
„How To Disappear Completely And
Never Be Found" og „Motion Picture
Soundtrack", sem bandið lék á tónleikum
áður en hún lagðist í hljóðvershýðið. Út-
gáfudagur nýju plötunnar hefur ekki ver-
ið ákveðinn.
Blur sýnir
á Netinu
13