Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Síða 15
Helgi Þór Harðarson er drengur sem ekki
er vanur að láta sér leiðast, Hans nýjasta
uppátæki er Fáránlega línan, fáránlegasta
símalína landsins. í tengslum við hana er
hann að stofna klúbb fyrir fólk sem er til
í að gera eitthvað fáránlegt í frítíma sínum.
ká n I cinsá Œf'Sfe
símalína landins
„Fólk er alltaf að tala um að gera
eitthvað sniðugt en svo verður ekki
neitt úr neinu. Fólk situr bara heima
og horfir á vídeó, eða fer í mesta lagi í
bíó eða á kaffihús," segir Helgi Þór
Harðarson, hugmyndarikur 24 ára
drengur sem vill rífa íslendinga upp
úr viðjum vanans og fá þá til þess að
gera eitthvað skemmtilegt. Til þess að
ná markmiði sínu hefúr hann stofnað
„fáránlegu línuna“ sem er í hæsta
máta óvenjuleg símalina. Þar er t.d.
boðið upp á veðurfréttir á kínversku
og einnig vekjaraklukku. „Það eru svo
margir sem vakna á morgnana en
vantar svona peppingu til að drífa sig
á lappir. Það er kalt úti og maður er í
skammdegisfýlu og þá getur verið gott
að geta hringt í einhvem sem peppar
þig upp og segir þér hversu yndisleg
manneskja þú ert og af hverju þú ætt-
ir að drífa þig á lappir. Nú þegar er
hægt að velja um 11 hólf á símalínunni
en þegar fram liða stundir verða þau
99 og þá verða t.d. sögur fyrir aldraða
i boði og fleira skemmtilegt," segir
Helgi sem er bjartsýnn á að þetta upp-
átæki eigi eftir að falla í kramið hjá ís-
lendingum.
I tengslum við símalínuna verður
fljótlega opnuð heimasíðan www.far-
anlegt.is en þar verður hægt að fylgj-
ast með því sem er í boði á símalín-
unni og einnig verður hægt að skrá sig
í fáránlega klúbbinn. „Fáránlegi
klúbburinn á að vera klúbbur fyrir
fólk sem er til í að gera eitthvað. Plan-
ið er að gera eitthvað öðruvísi og hafa
gaman af því, t.d. fara á bingó í Vina-
bæ, á samkomu hjá Krossinum, stepp-
námskeið eða bara yfirhöfuð að gera
eitthvað en ekki bara tala um það,“
segir Helgi sem líkir klúbbnum að
nokkra leyti við gömlu ungmennafé-
lögin. Sjálfur vinnur Helgi á bananala-
ger svona dagsdaglega og það er þar
sem hann fær allar þessar fáránlegu
hugmyndir sínar. Það er óhætt að
segia að hann fari sjálfur svo sannar-
lega eftir því markmiði sínu að fá Is-
lendinga til þess að gera eitthvað öðru-
visi i frítíma sínum því það að dunda
við þessa fáránlegu símalínu á kvöldin
er jú í hæsta máta óvenjulegt hobbí.
Helgi Þór stendur á bak við símalínuna 9085363 sem er fáránlegasta símalína
landsins. Það kostar einungis 66 aura á sekúnduna að hringja inn og hlusta á
fáránleikann.
Láttu sérfræðinginn aðstoð
Ólafur Þórisson, verslunarstjóri ADONIS hefur um árabil starfað
meó íþróttafólki, næringarfræóingum og vaxtaræktarfólki með
góóum árangri. Hann hefur haldið fyrirlestra og skrifað greinar um
næringafræði og hreyfingu. Nýttu þér sérfræðiþekkingu Ólafs
og láttu hann ráðleggja þér vió val á fæðubótarefnum kringlunni • sími 588 2988
ADOnic*
VGRSLUN HCÐ
Ff€ÐUBÓTRRCPNI
4
■v
#•
V
<D*
e-pillan er skaðvaldur. Fyrsta
taflan rífur þig upp í tryllings-
legar hæðir, gerviveröld gleði og
stundarbrjálæðis. Þegar áhrifin
dvína, nokkrum klukkustundum
síðar er fallið hátt niður í
tilgangsleysi og svartsýni.
Með tímanum finnur þú fyrir
framtaksleysi, vanmáttarkennd,
svartsýni og sektarkennd.
Geðsveiflurnar sem e-taflan
veldur draga þig sífellt neðar,
langt niður fyrir það sem eðlilegt
er. Þar bíður þín þunglyndi og
örvinglan!
e-taflan er hættuleg!
Landlæknir, Ríkislögreglustjórinn, Jafningjafræðslan, ísland án
erturlyfja, Áfengis- og vímuvamaráð, Fólag framhaldsskólanema
Viðvarandi
*
v
10. mars 2000
f ó k u s
15