Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Page 18
í f ó k u s
Pétur og Páll á Skjá einum eru meðal ferskustu sjónvarpsþáttanna sem okkur býðst að glápa
Leigubílar sem eru jeppar eru í fókus þessa
vikuna. Jú, þv! svoleiðis þílar eru til. Myndin
hér fyrir ofan er af leiguþílstjóranum Þorþergi
Hinrikssyni sem keyrir um á þessum giæsi-
lega jeppa á Akureyri. Aðrir leigubílstjórar ættu
að taka drenginn til fyrirmyndar enda eru
menn orðnir hundleiðir á leigubílum sem eru
alltaf að festa sig og komast ekki úr sporun-
um þegar eitthvað er að veðri. Leigubílastöðv-
ar eru því hvattar til að leggja Mercedes
Benzinum og takið fram jeppana.
Gísli Marteinn Baldursson er úr fókus. Hann
er bara ekki alveg að gera sig þessar vikurnar,
strákgreyið. í fyrsta lagi er hann annar stjórn-
andinn, sá reynslumeiri, í hörmulegum sjón-
varpsþætti sem kallast Kastljós. Þar hjakkast
hann í að koma sér í góðar álnir með þv! að
sleikja sig upp viö máttarstólpa þjóðfélagsins.
[ öðru lagi voru að heyrast þær fréttir að hann
fengi að lýsa Evróþsku söngvakeppninni aftur
(örugglega vegna þess hversu klár hann er að
koma sér í mjúkinn hjá fólki). Og það verður að
viðurkennast að hann var ekki skemmtilegur í
fýrra. Allavega ekki I samanburði við snilling-
inn Pál Óskar Hjálmtýsson sem er sá allra
besti kynnir sem við höfum haft á meðan Gísli
Marteinn minnir heist á slæma útgáfu af Jak-
obi Frímanni Magnússyni sem tókst nærri þvi
að eyðileggja fyrir okkur Eurovision með því að
segja ,16. sætið" aðeins of oft. Fókus segir
því: Niður meö Gísla og inn með Palla.
á um þessar mundir. Peir Sindri Kristjánsson og Haraldur Jónsson eru búnir að flakka um
víðan völl síðan í haust og nýlega bættist fyrrum Kolkrabbinn Árni Sveinsson við hópinn.
Fókus hitti þá félaga þar sem þeir sátu að snæðingi í höfuðstöðvum Péturs og Páls, Vitabar.
„Við Halli vorum orðnir helvíti
þreyttir hvor á öðrum áður en
Ámi kom að hjálpa okkur," segir
Sindri og hryllir greiniiega við til-
hugsuninni. „Það er ekki skrýtið
þar sem við vorum búnir að vera
saman alla daga vikunnar í hálft
ár. Táfýlan, svitalyktin, eintóm
geðveiki. Við vorum orðnir eins og
tveir vitaverðir sem loka sig af yfir
veturinn og hölva brauðristinni
sem þeir keyptu í staðinn fyrir
sjónvarpið. En eftir að Árni kom
inn hefur vinskapurinn snarbatn-
að aftur, sem betur fer.“
Það sem gerir þátt góðan er annaðhvort skemmtilegt fóik eöa snargeðveikt," segja Pétur og Páll.
Pillur á sjó
Vitabar er höfuðstöðvar Péturs
og Páls og er greinilegt að strák-
arnir eru staðnum vel kunnugir.
„Hérna nærum við okkur og leyf-
um hugmyndunum að flæða. Ef
fólk vill getur það komið hingað og
fylgst með listamönnum að störf-
um, jafnvel komið með uppástung-
ur,“ segir Sindri. Og þeir fylgja
uppástungunum. Nú um siðustu
helgi fóru Sindri og Ámi í dagstúr
meö nokkrum Grindvíkingum sem
hringdu í þá og buðu sig fram í
þáttinn. „Við héldum að við mynd-
um vera sjóveikir allan tímann en
vorum það ekki,“ segir Sindri
hreykinn. „Já, með því að bryðja
piliur allan tímann," bætir Árni
við og hlær. „Sindri sannaði sig
sem ufsabani, greinilega fæddur til
sjós. Strákamir vom mjög ánægðir
með hann og sögðu honum að
koma aftur eftir eina loðnuvertíð.“
Þátturinn með grindvísku sjóurun-
um er Pétur og Páll númer átján.
Það hefur kennt ýmissa grasa, Kor-
máks- og Skjaldargengið var kort-
lagt, sömu-
grúppa.
leiðis stelpumar í Bríeti, Botnleðju
var fylgt til Amsterdam en
Gyllinæð var fylgt á Hlemm, hjóla-
brettamenningin var könnuð, dr.
Bjami sóttur heim á bari borgar-
innar, Gjömingaklúbburinn sprell-
aði og eitt sinn urðu Pétur og Páll
veðurtepptir á fjöllum.
Kvenhyllin rosaleg
Miðað við það hversu viðkvæmt
fólk á það til að
vera hljóta
strákamir ein-
hvem tímann
að hafa lent í
vandræðum.
Ekkert vesen,
limlestingar
eöa moröhót-
anir?
„ P í n u , “
segir Sindri.
„Skjá einum
var hótuð
lögsókn út
af þættinum
um hljóm-
sveitina Gyllinæð. Það munaði
litlu að hann fengi ekki að fara í
loftið á sínum tíma. Það var hringt
niður á stöð tveimur tímum fyrir
þáttinn og bannað að sýna hann.
Nágranni strákanna var nefnilega
ekki ánægður með það að þeir
skyldu banka upp á hjá honum í
þættinum til að biðja hann um að
vera rólegan út af látunum í þeim.
Það atriði Qaug ásamt Qeiru og við
sýndum þáttinn vel klipptan í vik-
unni á eftir. Hann var einn af
þeim bestu, hvert einasta orð sem
vall upp úr þeim félögum var gull-
moli.“
Hver er þá sá lélegasti?
„Það er ekki hægt að svara því,“
segir Ámi. „Þá erum við jafnframt
að lýsa því yfir að fólkið sem var í
þættinum haQ verið leiðinlegt.
Það sem gerir góðan þátt er annað-
hvort skemmtilegt fólk eða snar-
geðveikt. Við erum alltaf góðir við
viðfangsefnin. Fólk er undantekn-
ingarlaust ánægt.“
„Já, og svo er kvenhyllin rosa-
leg,“ segir Sindri og dæsir. „Ég þarf
jafnan að Qýja skemmtistaði borgar-
innar til að halda fótunum."
Vaxtarrækt og Krossinn
„Við erum með margt í handrað-
anum,“ segir Halli. „Nú um helg-
ina æQum við vestur á ísafjörð
með Geirfuglunum, síðan er á döf-
inni að gera þátt um vaxtarrækt-
artöffara. Annars fara Pétur og Páll
í frí í byrjun maí.“ „Draumaþáttur-
inn er um vinahóp í Krossinum
eða Veginum. Við þurfum að fara
aö vinna í því áður en það er um
seinan," segir Ámi. „Annars erum
við ekki klárir á þvi hvort við kom-
um aftur á skjáinn í haust. Það
verður bara að ráðast."
Þiö getiö allavega vonast eftir því
aö mœta á skjáinn eftir tuttugu ár
sem heimild um líftö um aldamótin.
„Það skiptir engu máli. Ef það er
eitthvert takmark þá er alveg eins
gott að hætta þessu núna,“ segir
Ámi. Ágætishugmynd það. Annað
kvöld kl. 20.30 má sjá þá félaga
bryðja sjóveikipillur með grind-
vísku sjójöxlunum á Skjá einum.
Kvenhyllin er rOSdi6
hverjir voru
meira á. T
www.visir.is
Á Kaffibarnum á föstudagskvöldié var lýðurinn
heiöraöur meö nærveru
Steins Ármanns og frú-
ar. Einnig stakk Maggi
Lego inn nefinu. Hrönn
Sveins kisukills-
dokkjúmenter og brööir
hennar Árni Svelns
þeyttu sk!fur fyrir gesti.
Kormákur, vélakall og
tiskufrömuður, var þar
einnig ásamt mynda-
tökumanni sínum úr Vélinni, sem og Sindri
Kjartans, sjónvarpskall af Skjá einum.
Elfar Aöalsteins Stoke-eigandi, Jakob Frímann
eöa bara JackMagnet, Siggi Kaldal X-18 skór
og ívan Burkni frá Fróöa litu yfir markaöinn.
Á Sportkaffi var m.a. þessa
að finna: sjónvarpsgoöið
Viila Goöa og bakarameistar-
ann Rúnar Fel, Elínu, fram-
kvæmdastjóra HG, og Fríöu
Rut danskennara. Fyrrver-
andi Gus gusarinn Hafdís
Huld var einnig á svæðinu
sem og Villi, verslunarstjóri
Svars.
A Skuggabarnum var um helgina mikiö um að
vera. Ágúst Ármann hf. var meö flotta tískusýn-
ingu í Gyllta salnum fýrir erlenda og innlenda og
voru þaö vaxtarræktardrottingarnar Anna Sig-
urðar og Jazmine sem fóru fyrir tískusýning-
argellunum og voru frekar flottar í undirfötum.
Einar Örn Birgis, sóknarmaöur úr KR, og Byddi,
stóri bróöir, sáust T Gyllta salnum, Anna og Erla
Skuggadrottningar voru frekar kátar og flottir
piltar úr Kaupþingi ásamt mökum
kíktu viö, Maggý á BMWinum sínum
mætti voða voða hress og einnig
Dóri, Ijósmyndari úr Hausverknum.
Simbl og Svavar Örn létu sig ekki
vanta um helgina. Jón Gunnar Geir-
dal Monomaður kom sá og sigraði,
Freysi, sem sér um breytt útlit i
Hausverknum, og frú kíktu inn, F]öln-
ir Þorgeirs er alltaf þar sem allir eru,
Skjáeins-konur voru meö stelpukvöld á Kaffi
List um helgina og þar voru allar flottustu píur
sjónvarpstöövarinnar mættar og kiktu reyndar
einnig á fleiri staði á eftir. Á Listinni var einnig
Eggert Þorleifsson aö finna sem og miklu fleira
bæöi flott og frægt fólk sem ekki verður nafn-
greint hér.
Það var nóg að gerast á Akureyri um helgina. Á
föstudagskvöldið var árshátíö Háskól-
ans haldin i KA-heimilinu þar sem
Milljónamæringarnir héldu uppi stuö-
inu. Logi Bergmann sá um aö kynna
herlegheitin en á svæöinu mátti m.a.
sjá Davíð Bergmann og austfirska
tónlistarmanninn, BJörgvin Hara . Sá
sem átti gólfið þetta kvöld var Kópa-
vogsbúinn og félagsmálafræðingur-
inn, Hafsteinn Hafsteinsson. Hann
sýndi ótrúlega
takta enda er
hann aö kenna
dans á Ólafs-
firöi. Eigandi
Kaffi Kversins á
Akureyri Val-
gerður skálaði
við myndlistar-
konuna Ami á.laugardaginn á Kaffi Akureyri.
Valgerður hafði ærið tilefni til þess aö skála þar
sem hún varö 30 ára það kvöldið. Þarna mátti
einnig sjá myndlistarkonuna Laufeyju Páls una
sér viö það aö spila svartapétur. Nú svo var
grinistinn Sveinn Waage í Sjallánum.
Þeir félagar Kiddi Big foot og Jón Páll tóku
formlega viö Klaustrinu á föstudag og héldu aö
því tilefni heijarinnar veislu þar sem m.a. mátti
sjá til tískulöggunnar Svavars Arnar og vinkon-
ur, ívan Burkna frá Fróöa og Sverrir xRós. Sig-
urjón Ragnar Ijósmyndari var ánægöur á kantin-
um og Jón Kári var í salsasveiflu á efri hæðinni
með vinkonunum Siggu Höllu, Sunnuog Sóleyju
frá versluninni Diva á meðan Siggi Zoom og frú
tóku þaö rólega. Á hinni hæðinni var Svali í búr-
inu og á dansgólfinu sást m.a. til módelpíunnar
Elínar Reynis meö sinn heittelskaöa Mása sem
einnig er! módelbransanum. Einnig sást! Hanz
„mafíuna" og Ijósmyndarann Baldur Braga.
FM957 mennirnir Rúnar Róberts, Þór Bæring,
Jói Jó og Heiðar Austmann voru hressir aö
vanda. Ljósmyndarinn Haildór Kolbeins var
einnig mættu sem og Valli „Sport", Mon-
odrengurinn Gummi „Gonzales", plötsnúöurinn
Áki “Pain" og Jón Gelr Pizzahúss-sjeffi. Staö-
urinn var einnig flottur á laugardagskvðldið, þá
mátti m.a. sjá til Hard Rock-skvísanna I góöum
fíling. Simbl yfircutter var mættur sem og Kolla
dansari og Kristján I Humarhúsinu sem sýndu
frábæra takta á dansgólf- ___________________
inu. Athafnamaðurinn Árni
Gunnar var á kantinum
sem og Bang gang Barði
og Jón Axel útvarpssjeffi.
%
Listneminn Bibbi Curver
opnaði sýningu á nýjustu
verkum sínum ! húsnæði
Gallerís Nema hvaö á
föstunni. Meðal þeirra
sem mættir voru til að
drekka í sig hinn Nýja stll, sem ættaöur er frá
Hollandi, voru þeir Erik Hirt .framkvæmdastjóri
Vegamóta, og Rui Pedro Andersen, tískufröm-
uöur í One 0 One. Og eru þá aðeins fáeinir
nefndir af ónafngreinanlegum listþyrstum ein-
staklingum.
Á föstudagskvöldiö geröu dj Margeir og Jay
bongótrommari allt viltlaust á Prikinu, þar sást
til Samma úr Jagúar, staffiö af Skjá
einum var á sínum stað að venju og skemmti
sér vel. Bjarni hellisbúi kíkti viö og það sást líka
i Agga, nýkrýndan skemmtanakóng, ásamt dj
Sigga. Silvía og Begga, bardömur íslands,
sáust í villtri syeiflu.
f Ó k U S 10. mars 2000
18