Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2000, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2000, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 13. MARS 2000 MÁNUDAGUR 13. MARS 2000 31 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Svelnn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Krlstjánsson og Óli Björn Kárason Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: Þverholti 11, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Rltstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyrl: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiöiun hf. Filmu- og plötugerð: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverö á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viömælendum fýrir viötöl viö þá eöa fýrir myndbirtingar af þeim. Skynsemi rœður ferðinni Skynsemi réö feröinni í kjaraviðræðum Flóabanda- lagsins svokallaöa og Samtaka atvinnulífsins. Einmitt þess vegna náðust samningar til lengri tíma en áöur hefur þekkst en þó ekki fyrr en loforð frá rík- isstjórninni um aögeröir í skattamálum lágu fyrir. Með samningum Flóabandalagsins og atvinnurek- enda hefur tónninn fyrir aðra hópa launamanna ver- iö gefinn. Augljóst er aö forráðamenn atvinnulífsins veröa aö halda vel á spööunum til aö standa undir þeim kjarabótum sem samið hefur veriö um, án þess aö annað láti undan. Til lengri tíma litið mun íslenskt atvinnulíf ekki þola kauphækkanir umfram þaö sem gerist í samkeppnislöndum nema því aðeins aö fram- leiðni vinnuafls og fjármagns aukist verulega. Staö- reyndin er sú aö framleiöni atvinnulífsins hér á landi er langt frá því aö vera viðunandi og á meöan svo er verður erfitt fyrir íslenskt atvinnulíf að vera sam- keppnishæft um kaup og kjör. Lág framleiðni er fyrst og fremst vegna þess aö atvinnurekendur hafa ekki staðið sig í samanburöi viö erlenda starfsbræður sína, þó auðvitað komi þar einnig aörar ástæður til. Veröbólga hefur á undanförnum mánuöum veriö langt frá því sem ásættanlegt getur talist og eins og DV hefur margítrekað í ritstjórnargreinum veita fjár- mál hins opinbera ekki þaö aðhald sem nauðsynlegt er. Þetta á jafnt við um fjármál ríkisins og sveitar- félaganna í heild, þar sem lausungar hefur gætt. Einmitt þess vegna var og er mikilvægt aö aöilar vinnumarkaðarins láti skynsemi ráða í samningum um kaup og kjör næstu árin. Auðvitað er þaö svo aö miðstýrðir kjarasamningar eins og hér um ræöir ættu fyrir löngu að heyra sög- unni til - vinnustaðasamningar og markaðslauna- samningar eins og Verslunarmannafélag Reykjavík- ur gerði fyrir nokkru eru miklu heilbrigðari leið. Um leið og vert er að fagna að samningar Flóabandalags- ins og atvinnurekenda séu í höfn veldur það áhyggj- um að ekki skuli vera hægt að ganga frá kjarasamn- ingum hér á landi, öðruvísi en að ríkissjóður komi þar við sögu. Það er ekki merki um heilbrigt þjóðfélag þegar launamenn og atvinnurekendur geta ekki samið um sín mál án þess að gera kröfur á hendur ríkissjóðs. Slíkt bendir til að hlutur ríkisins í daglegu lífi al- mennings sé alltof mikill og að völd og áhrif stjórn- málamanna séu langt frá því sem ásættanlegt getur talist í frjálsu lýðræðis- og markaðsríki. Á hinn bóginn er gleðilegt að ríkisstjórnin skuli ætla að draga úr beinum álögum á almenn laun, bæði með því að hækka skattleysismörk og draga úr tekju- tengingu bamabóta. Með því er ríkissjóður að gefa til baka það sem oftekið hefur verið á síðustu árum og lagst þyngst á þá sem síst skyldi. Eftir sem áður er vandinn sá að stefnan í skattamálum verður í raun engin, heldur einhvers konar hringlandaháttur eftir því hvernig launamönnum og atvinnurekendum gengur að ná saman hverju sinni og hvaða kröfur þeir gera til ríkissjóðs. Um leið er ábyrgðin á kjara- samningum færð frá aðilum vinnumarkaðarins til ríkisstjórnar á hverjum tíma - stjórnmálamönnum eru því færð völd og áhrif sem þeir eiga og mega aldrei hafa. Óli Björn Kárason DV Skoðun * Lest til lausnar í Vatnsmýrinni? „Með jámbrautinni vaknar því ný von um að almenn sátt geti orðið um brotthvarf flugvallarins úr Vatns- mýrinni og að hœgt verði að nýta það dýrmœta land- svæði undir blómlega byggð í hjarta borgarinnar. “ Iðnrekstrarfræðingurinn Steingrímur Ólafsson kynnti í síðustu viku niðurstöður á útreikningum sínum á arð- semi járnbrautarsamgangna milli Reykjavíkur og Kefla- víkurflugvallar. Þar kemur fram að uppbygging og rekst- ur á rafmagnsknúinni jám- braut myndi skila ágætum arði og gæti þessi 6 milljarða króna fjárfesting greitt sig upp á allt að 25 árum. Samkvæmt úttektinni er jámbrautin raunverulegur valkostur í samgöngumálum, þvert á það sem áður hefur verið haldið fram. Niðurstöður Steingrims era því afar at- hyglisverðar og gætu markað þáttaskil í þróun þeirrar umræðu sem nú fer fram um framtíðarskipan samgöngu- mála á suðvesturhominu. Minni mengun - færri slys Rekstur á þessari rafmagnsknúnu járnbraut hefur ýmsa góða kosti um- fram það að vera hagkvæmur. Þar má fyrst telja að með tilkomu hennar yrði stórt skref stigið í þá átt að draga úr notkun innflutts mengandi eldsneytis og nýta í staðinn innlenda umhverfis- væna orkugjafa. Miðað við hógværar áætlanir skýrslu- höfundar um markaðshlut- deild járnbrautarinnar má ætla að þannig mætti spara hátt í 1600 tonn af innfluttu eldsneyti árlega með tilheyr- andi minnkandi mengun. Á hverju ári myndi sparn- aðurinn nema tugum millj- óna króna fyrir þjóðarbúið og allt að 5000 tonna minnkun yrði í mengandi útblæstri ökutækja. Þá myndi tilkoma járnbrautarinnar draga stór- lega úr því mikla álagi sem fyrirsjáan- legt er á umferðarmannvirki svæðisins og þannig færa mikinn ávinning í formi færri slysa, minna eignatjóns, sparnaðar í uppbyggingu og viðhalds umferðarmannvirkja og greiðari um- ferðar. Hagkvæmni járnbrautarinnar mælist því ekki eingöngu í bókhaldi rekstraraðilans heldur viða í þjóðarbú- inu, ekki síst ef litið er til hagsmuna umhverfisins. Völlurinn úr Vatnsmýrinni? Síðast en ekki síst breytast með til- komu járnbrautarinnar mikilvægap forsendur í umræðunni um mögulegan flutning Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýrinni. Hingað til hafa helstu rök þeirra sem andmælt hafa flutningi vallarins verið þau að bygging nýs flugvallar væri of dýr og að flutningur innanlandsflugsins til Keflavíkur væri ekki mögulegur vegna fjarlægðar frá höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt skýrslunni tæki það járnbrautarlestina innan við 30 mínút- ur að ferðast frá Reykjavík til Keflavík- ur og þyrfti fargjaldið ekki að verða hærra en 650 krónur. Slíkt ferðalag ef- ast ég um að stoppi nokkurn mann og því þyrftu forsendur fyrir rekstri inn- anlandsflugs lítið að breytast við flutn- ing þess til Keflavíkur ef járnbrautin yrði að veruleika. Með járnbrautinni vaknar því ný von um að almenn sátt geti orðið um brotthvarf flugvallarins úr Vatnsmýrinni og að hægt verði að nýta það dýrmæta landsvæði undir blómlega byggð í hjarta borgarinnar. Frekari rannsóknir í ljósi þeirra fjölmörgu kosta sem tilurð þessarar rafknúnu járnbraut- ar hefði í för með sér sýnist mér einsýnt að ráðast þurfi í frekari skoðun á verkefninu. Arðsemismat Steingríms bendir eindregið til þess að hér sé um raunhæfan samgöngu- kost að ræða. Sé það raunin opnast algerlega nýir möguleikar í sam- göngubótum á suðvesturhomi landsins. Ráðherra samgöngumála hlýtur þvi að fylgja málinu fast eftir þannig að tryggt verði að hugmynd- in fái fullnægjandi skoðun á kom- andi misserum. Reykvíkingar munu fylgjast vel með framvindu málsins. Fagfélög, tveir, tveir og þrír Orkunýtni er meiri hér á landi en hjá þeim sem koma næst, Bandaríkjamenn. Við íslendingar erum að nota eitthvað um áttatíu- þúsund kílówattstundir á mann. Það þýðir að við erum að beita afli til að þjóna okkur miklu meira en nokkrir aðrir. Hiutverkaskipti Það fylgir slíkri aflnotkun, að mikill fjöldi manna notar afl og ákveður að beita því. Sumt er til neyslu og annað til framlegðar og framleiðslu. Því fylgir þá aftur full nauðsyn á frelsi til þess að fólk geti tekið ákvarðanir um framlegð og neyslu, sem er notkun á ann- arra framlegð. Við þetta koma hlutverkaskipti milli þess að leggja fram og taka við. Þegar þessi hlutverkaskipti verða víð- tækari eftir því hversu mörgum aflúttökum hver ræður, þá er tímasetning og skipulag hlut- verkaskiptanna að verða aðalat- riði. Til að átta sig á þessu, þá ættu menn að telja aflúttök heima hjá sér og af aflnotandi tækjum. Bæta síðan því við sem er á vinnustaðnum. Ef forrit og visthöld (plötur, bönd diskar, forrit og annað sem notar afl við notkun) er talið með, þá komast menn í hreint ótrúlegar tölur. Það er því komið að því að huga alvarlega að skiptingu tíma okkar' vegna þessa. Frí og vakt Ef við lengjum dagleg- an vinnutíma, en vinnum Þorsteinn Hákonarson framkvæmdastjóri tvo daga, eigum frí í tvo daga og vinnum þrjá daga aðra vikuna, en bara tvo daga hina vikuna, þá náum við sömu framlegð og við höfum í dag. En við höfum lengri samfelldan tíma í annað, neyslu, íþróttir, menntun eða hvaðeina. Við það nýtast fjárfestingar í atvinnulífi, í opinberri eigu og einng í almannaeigu miklu betur. Krakkarnir væru þá til dæmis tíu tíma á dag í skólanum, en ættu svo frí þá daga sem foreldrarnir eiga frí. Það eru mjög mörg tilbrigði sem koma upp i þessu máli og þyrfti að reyna þetta í einhverju sveitarfé- lagi til að skoða það nákvæmlega. „ Við aðra tímaskiptingu fyrirfólk breytist eftirspum þess bœði að eðli og magni með meiri frítíma. Kerfið verður að þjóna og vera þjónað. Við það verður markaður- inn mál launafólks frekar en lúxusþjónusta fyrir hina efnuðu. “ Hagvaxtaratriöi Við aðra tímaskiptingu fyrir fólk breytist eftirspurn þess bæði að eðli og magni með meiri frí- tíma. Kerfið verður að þjóna og vera þjónað. Við það verður mark- aðurinn mál launafólks frekar en lúxusþjónusta fyrir hina efnuðu. Þaö færir í sjálfu sér launafólki betri kjör efnahagslega. Hins vegar er vaktakerfið leiði- gjarnt, a.m.k. til að byrja með. Það er þaö vegna þess að búið er að sætta sig við annað í áratugi. En agnúarnir sléttast smám saman af, fólk finnur að þetta er skárra, þótt það sé ekki gott. En þetta þarf að hugsa í fjölda til- brigða og er það gott ráð, að stétt- arfélög veiti félögum sínum um- ræðufarveg fyrir tímaskiptingar- málið og skoði það vandlega. Með og á móti 16 ára með uniboðsmann? Leikmenn þurfa aðstoð Verða að sanna sig J „Ef leikmaður JÉ hefur möguleika !£' á því að komast «■88®^ að hjá erlendu liði til þess að æfa og leika knattspyrnu þá þarf hann á aðstoð að halda, hvort sem hann er 16 eða 30 ára. Menn verða að athuga það að þegar sest er niður til samninga við erlend stórlið sitja gjarnan hinum megin borðs lögfræðingur félags- ins ásamt 2-3 starfsmönnum og/eða stjórnarmönnum liðsins. Olafur Garðarsson FIFA-umboósmaöur Sextán ára strákur, e.t.v. ásamt foreldrum sínum, má sín oft lítils þegar svo er komið. Þá þurfa leikmenn aðstoð frá einhverjum sem þekkir til. Hitt hlutverk umboðs- manna er síðan kynning á leikmönnum. 16 ára leik- maður, sem hefur getu og áhuga á því að komast að erlendis, leitar gjarnan til umboðsmanns til þess að notfæra sér þau sambönd sem um- boðsmaðurinn hefur.“ . m „Ég er algjörlega I á móti því að 16 ára knattspyrnu- r menn séu með umboðsmenn. Þegar leik- menn eru á þessum aldri eiga þeir eingöngu að hugsa um að komast í meistara- flokk og standa sig þar. Menn verða að vera búnir að sanna sig hjá félaginu áður en þeir fara að hugsa um atvinnumannaferil og milljónirnar sem þar gætu handan hornsins. Ég tel að Pétur Pétursson þjálfari KR í knattspyrnu leynst það sé ekki- hollt fyrir unga stráka að vera með umboðsmenn því að þá er allt eins víst að þeir fái ranghugmyndir um peninga og annað slíkt sem er til staðar erlendis og nái ekki að halda sér á jörð- inni. Ungir knattspymu- menn eiga fyrst og fremst að reyna að bæta sig sem knattspyrnumenn en láta alla drauma um stórar fjár- hæðir og draumalíf at- vinnuknattspyrnumannsins bíða betri tíma.“ Erlend knattspyrnulið eru farin að líta hýru auga til íslenskra knattspyrnumanna. Helst þurfa þeir að vera ungir og ódýrir og kjölfar þessa áhuga hefur umboðsmönnum innan knattspyrnugeirans fjölgað. Þessir umboðsmenn hafa gert samninga við 16 ára gamla stráka og spurningin er hvort það sé rétt. Tal um gjafa- kvóta er rugl „Ég segi að allt tal um gjafakvóta sé ragl, það var engum gefið neitt, sem betur fer. Að tala um „sameign þjóðarinnar" er merkingarlaust í eignarréttarlegum skilningi og í þessu máli kemur þaö þvi ekkert við hvort þjóðin á ein- hverja nytjastofna - það sem skiptir máli er það að ef hagnaður hefur orðið óeðlilegur og ef pólitísk eða fjármálaleg rök eru til þess, þá er hægt að skattleggja hagnaöinn." Siguröur Líndal lagaprófessor í Degi 10. mars Selur ekki KEA „Því miður sneri vindurinn nú ekki þannig hjá mér að ég léði máls á því að selja KEA eða framleiðendum á svæðinu kvótann ... Þetta umhverfi allt saman og ósætti milli mín og kaupfélagsins hefur mikið að segja varðandi þessa ákvörðun mína ... Ég sé ekki að það fyrirtæki gangi og heldur ekki að við bændur náum að eignast það alveg, enda er það ekki áætlun kaupfélagsins að svo verði.“ Benedikt Hjaltason, bóndi á Hrafnagili, í Mbl. 10. mars Smáklíkuræði al- þýðulýðræðisins „Það er kald- hæðnislegt að „Evrópulýðræðið" er i meginatriðum hliðstætt smáklík- uræði Kremlverja, sem Austur-Evr- ópa hefur í óða- önn verið að losa sig undan síðan 1989 ... Mér þykir ekki líklegt að íslendingar vÚji búa við öfugmælalýðræði, hvorki smáklíku-ræði „alþýðulýðræðisins" né heldur „Evrópulýðræðisins". Við verðum bara að vona að engum tak- ist að blekka okkur til þess að ánetj- ast því með aðildarglansmynd um óraunhæfan gróðapakka frá Brus- sel.“ Hannes Jónsson, fyrrv. sendiherra, í Mbl. 10. mars Tvöföldun Reyk j anesbrautar Undanfarið hefur oft orðið u.þ.b. eitt banaslys á viku. Þetta er of mikið og ekki tilviljun. Vegakerfið þolir ekki lengur alla bíl- ana sem keyptir eru fyrir erlendu lánin. Því eru tak- mörk sett hvað fjölga má bílum á götunum ef það er gert á sama tíma og ríkis- stjómin frestar vegafram- kvæmdum. Afleiðingamar eru fleiri og fleiri bílslys sem enginn ræður lengur við og kalla má afleiðingu af hreinu stjórnleysi. Svona gerir maður ekki. Bílatryggingar í dæminu Besta dæmið og skýrasta er tvö- foldun á Reykjanesbraut með mis- lægum gatnamótum frá Hafnarfirði til Keflavíkurflugvallar. Talið er að slysum á þessari leið myndi fækka um 75% með þessari framkvæmd. Þarna er hægt að bjarga mörgum mannslífum og forða öðru fólki frá örorku og hjólastólum. Jafnvel bílatryggingarnar myndu fljótt hagnast um hundruð milljóna vegna færri bílslysa. í dag greiða bíla- tryggingar meira en hund- rað milljónir árlega í bæt- ur vegna slysa á Reykja- nesbrautinni einni. Ekki blanda tilflnningum í þetta. - Tölum bara um peninga. Kvótamenn leggi Reykjanesbraut Nú hefur ríkisstjórnin ekki peninga til nauðsyn- legra vegaframkvæmda. Samt verðum við að tvöfalda Reykjanes- brautina. Kvótamenn geta tvöfald- að hana á næstu 1-2 árum og sett mislæg gatnamót. Þá fækkar slys- unum um 75%. Svo hafa kvóta- menn peningana þótt ríkisstjórnin hafi þá ekki. Enda kostar þessi framkvæmd öll minna en þessi 3,1 milljarður sem brot af Samherja var selt fyrir. Síðan væri greitt veggjald til kvótamanna á Reykja- nesbraut. Þetta er ekki svo frá- leitt. Ekki siðlausara en leigukvóti Sagt hefur verið frá því nýlega í fréttum að ýmsir vinir ríkisstjórn- arinnar í Indónesíu hafi fengið leyfi þar i landi til að setja veghlið á ýmsar götur. Svo komast menn ekki heiman frá sér og heim aftur nema greiða „réttum" mönnum toll eða gjald. Þetta er ekki sið- lausara en leigukvótinn. Þar greiðir venjulegur sjómaður leigu til kvótamanna fyrir það eitt að veiða fisk sem landsmenn veiddu áður frjálst í 1000 ár þar á undan. Það er hægt að friða fiskistofna án þess að einn féfletti annan. Hvað sem öllu þessu líður þá myndi margur glaður borga kvótamönnum vegtoll á Reykja- nesbraut ef það gæti orðið til þess að slysum þar myndi fækka um 75%. Menn kæmust þá sæmilega ör- uggir úr og í vinnu á tvöfaldri brautinni með mislægum gatna- mótum. Fyrst ríkisstjórnin hefur ekki peninga til að gera þetta verðum við að nota kvótamenn. Og hvað er eðlilegra en það? Lúðvík Gizurarson hæstaréttarlögmaóur ■e * „Samt verðum við að tvöfalda Reykjanesbrautina. Kvótamenn geta tvöfaldað hana á nœstu 1-2 ámm og sett mislœg gatnamót. Þá fœkkar slysunum um 75%.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.