Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2000, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000
4
Fréttir
DV
157 milljónir hafa fariö í „Áform“ landbúnaðarráðuneytisins:
Ekki mælanlegur ár-
angur í atvinnusköpun
- en áfram renna 25 milljónir króna á ári úr ríkissjóði
Sama staöa
Fundi Samtaka
atvinnulifsins og
fulltrúa VMSÍ hjá
ríkissáttasemjara
lauk á 5. tímanum í
gær en fulltrúarnir
hittust aftur klukk-
an níu í morgun.
Að sögn Björns
Grétars Sveinssonar, formanns
VMSÍ, er staðan enn sú sama og
þegar slitnaði upp úr viðræðunum
siðast, en verið er að reyna að koma
viðræðunum af stað aftur.
i
Þann 3. mars 1995 voru sett sérstök
lög á vegum landbúnaðarráðuneytis-
ins um átaksverkeíhi um framleiðslu
og markaðssetningu vistvænna og líf-
rænna afurða. Verkefnið sem gengur
undir nafhinu Áform fékk árlega frá
1995 25 milljónir króna úr ríkissjóði.
Samkvæmt nýrri skýrslu um verkefn-
ið er enn ekki mælanlegur árangur í
atvinnusköpun en haldið verður áfram
að veita peningum í það til ársins 2002.
Auk áðumefndra upphæða hefur
verið gengið út frá jafh háu framlagi
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
þannig að heildarfjármagn tii verkefn-
isins átti að ná 250 milljónum króna.
Tillag Framleiðnisjóðs fram til þessa
hefur hins vegar ekki orðið nema tæp-
ar 27 milljónir króna og heildartalan
því um 157 milljónir kr.
Átaksverkefnið snýst um vöruþróun
og sölu íslenskra afurða undir merkj-
um hollustu, hreinieika og sjálfbærrar
þróunar á innlendum og erlendum
mörkuðum.
Landbúnaðarráðherra skipar fjóra
menn í stjóm átaksverkefnisins og
skal einn tilnefndur af landbúnaðar-
ráöuneyti, einn af umhverflsráðu-
neyti, einn af bændasamtökunum og
einn samkvæmt tilnefningu VOR,
landssamtaka bænda í lífrænum bú-
skap. Landbúnaðarráðherra skipaði
Hauk Halldórsson í Sveinbjamargerði
formann nefndarinnar en ráðherra
hefur yfirumsjón með framkvæmd lag-
íbúðabyggð í Grafarholti:
Klóakið undir
golfvöllinn
Golfvöllur Golfklúbbs Reykjavík-
ur í Grafarholti er sundurgrafmn
vegna framkvæmda við nýja íbúða-
byggð í holtinu fyrir ofan völlinn.
Grafið hefur verið þvert yfir braut
númer 3 á golfvellinum og er ætlun-
in að veita klóaki nýju íbúðabyggð-
arinnar þar undir.
„Verktakamir segjast ætla að
ljúka verkinu og öllum frágangi í
byijun maí og við vonum bara að
það standist," sagði Vilborg Auðuns-
dóttir, starfsstúlka á skrifstofu Golf-
klúbbs Reykjavíkur. „Einhvers stað-
ar verður klóakið að vera og golf-
vöUurinn verður jafn góður eftir
sem áður.“
Vegna framkvæmdanna i Grafar-
holti hefur skrifstofustjóri borgar-
verkfræðings staðið í samningavið-
ræðum við landeigendur á svæðinu
um kaup á landi vegna fyrirhugaðr-
ar byggðar. í framhaidi af því hefur
hann lagt fyrir borgarráð tU sam-
þykkis samning við Sigríði VU-
hjálmsdóttur um kaup á 2 hektara
landspUdu í landi Reynisvatns í
norðurhlíð Grafarholts. Samkvæmt
samningnum fær Sigríður eUefu og
hálfa miUjón fyrir spUdu sína. Þá
hefur verið geröur annar kaupsamn-
ingur við Hólmar Braga Pálsson á
Minni-Borg í Grímsnesi um að hann
selji Reykjavíkurborg hálfan hekt-
ara úr landi Reynisvatns fyrir tæpar
þrjár miUjónir króna. -EIR
Grafið í golfvöll
Völlurinn veröur sem nýr
í byrjun maí.
Lífræn ræktun
Landbúnaöarfrömuöir telja lífræna ræktun einn helsta vaxtarbroddinn í
landbúnaöi hérlendis.
anna. Þá tilnefndi ráðherra einnig
Gísla S. Einarsson alþingismann í
nefndina en af hálfú Bændasamtak-
anna var tilnefhdur Jón Helgason,
fyrrv. ráðherra. Af samtökunum VOR
var síðan tUnefndur Guðmundur Elí-
asson bóndi en verkefnisstjóri er Bald-
vin Jónsson.
Hákon Sigurgrímsson, deUdarstjóri
í landbúnaðarráðuneytinu, segir að
áframhaldandi 25 mUljón króna fram-
lag hafi fengist í Áform á fjárlögum
þessa árs. Þá liggur fyrir Alþingi frum-
varp landbúnaöarráðherra um að
einnig verði veitt fé tU verkefnisins
árin 2001 og 2002.
í nýútkominni ársskýrslu um verk-
efnið segir m.a. að 79 miUjónum kr.
hafi verið varið tU verkefna og styrkja
og þar af 55,8% í markaðsathuganir og
annað markaðsstarf. 27,3% hafa farið
tU rannsókna og 16,9% tU stuðnings
annarra verkefna. Þá hafa 37,3% eða
tæpar 29,5 miUjónir kr. af heUdarfram-
lögum sem varið hefur verið tU verk-
eftia og styrkja fariö í beinan stuðning
við verkefni á sviði lífrænnar ræktun-
ar.
Fyrst og fremst viðhorfsbreyt-
ing
Þá kemur fram í skýrslunni að
helsti árangurinn af verkefninu sé rót-
tæk breyting á viðhorfum manna tU
gæðastýringar í landbúnaði. Ekki sé
hins vegar hægt að mæla árangurinn í
tölulegum upplýsingum um atvinnu-
sköpun, magni seldra afurða og verð-
mætum. Hins vegar séu nú forsendur
tU að hefja sókn í framleiðslu og mark-
aðssetningu vistvænna og lífrænna af-
urða. -HKr.
Ráðherrar og langveik börn
Ráðherrar heilbrigðis- og félagsmála kynntu í gær stefnumótun ríkisstjórnarinnar í mátefnum langveikra barna. Kennir
þar nýmæla svo sem aö umönnunargreiöslur veröi heimilaöar til 20 ára aldurs iangveikra barna og til aöstandenda í
6 mánuöi eftir andlát.
Eftirlitsmyndavél á Reykjanesbraut:
Erum ekki að njósna
- segir rekstrarstjóri Vegagerðarinnar
Kúagerði
Staurinn kominn
- myndavélin á leiöinni.
Vegagerðin er að setja upp eftirlits-
myndavél rétt vestan við Kúagerði á
Reykjanesbraut og er henni ætlað að
fylgjast með ástandi vegarins og veð-
urbreytingum:
„Við ætlum aUs ekki að fara að
njósna um ökumenn og aksturslag
þeirra heldur fylgjast með yfirborði
vegarins og hugsanlegum veðrabreyt-
ingum þannig að við getum brugðist
skjótar við ef eitthvað gerist. Við
verðum þá með lifandi mynd af þess-
um hluta Reykjanesbrautarinnar í
stjómstöð okkar,“ sagði Bjarni Stef-
ánsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinn-
ar í Reykjanesumdæmi. Þegar er búið
að setja upp staur fyrir myndavélina
sem sjálf veröur komin í gagnið inn-
an fárra daga.
Eftirlitsmyndavélin er tengd við
ljósleiöara sem liggur í jörðu við veg-
arkantinn og í framhaldinu verður
önnur vél sett upp á HeUisheiði í
sama tUgangi.
„Þessar myndavélar mæla ekki
hraða bifreiða sem leið eiga um. Því
get ég lofað,“ sagði Bjarni Stefánsson.
-EIR
Aukinn innflutningur
1 Bændablaðinu er greint frá því
að í janúar í ár vom fluttar inn til
landsins mjólkurafurðir sem sam-
svara um 108 þúsund lítra fram-
leiðslu mjólkur. Þetta er aukning
frá árinu 1999 um 42%.
Stórframkvæmdir
Eignarhaldsfélagið Kringlan
hyggur á stórframkvæmdir, eða
byggingu mannvirkja sem ná
-_JSP
myndu aUt frá Listabraut að
Kringlumýrarbraut og yfir á svæði
knattspymufélagsins Fram, norðan
Miklubrautar. Sjónvarpið greindi
frá.
Þrefalt fleiri
Hlutfallslega eru starfsmenn fjár-
málafyrirtækja 50% fleiri á íslandi
en í Danmörku og þeir sem starfa
við eftirlit með íslenskum fjármála-
mönnum þrefalt fleiri, sem þýðir að
hver íslenskur eftirlitsmaður, þ.e.
Fjármálaeftirlitið, lítur eftir helm-
ingi færri en hver danskur. Þó mun
á döfinni að fjölga enn frekar í ís-
lenska Fjármálaeftirlitinu. Dagur
greindi frá.
8 líkleg sjúkdómsgen
ÍE hefur tekist að
staðsetja á litningi
líkleg mengi um
átta sjúkdóma.
Þetta kemur fram í
skráningargögnum
fyrir bandaríska
verðbréfamarkað-
inn. Líkleg sjúk-
dómsgen hafa verið staðsett á litn-
ingum fyrir psoriasis, heilablóðfall,
altzheimer, MS, svefnsýki, parkin-
sonveiki, geðklofa og slitgigt. Stöð 2
greindi frá.
Upplýsts samþykkis krafist
íslensk erfðagreining hefur sent
frá sér yfirlýsingu þar sem segir að
rangt sé að ekki verði krafist upp-
lýsts samþykkis þátttakenda í erfða-
fræðirannsóknum heldur opins
samþykkis þegar kemur aö sam-
keyrslu erfðafræðiupplýsinga við
heilsufarsupplýsingar í gagna-
grunni. RÚV greindi frá.
Kio snýr aftur
Kio Briggs hefur
hugsað sér að koma
aftur til íslands, en
hann afplánar nú
dóm vegna e-töflu-
smygls í Dan-
mörku. Hann sagði
í samtali við frétta-
stofu Stöðvar 2 að
hann hygðist áfrýja þeirri niður-
stöðu héraðsdóms að hann ætti ekki
rétt á bótum vegna gæsluvarðhalds
hér á landi.
Launasprengja á spítölum
Nær 78 prósent af auknum
útgjöldum sjúkrahúsanna í
Reykjavík frá 1998 skýrist af
hækkun launakostnaðar. Að
frádregnum stofnkostnaði og
viðhaldi er launahlutinn að fara úr
70 í 73 prósent. Hækkun
launakostnaðar skýrir aöallega 4,2
milljarða hækkun. Dagur sagði frá.
-hdm