Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2000, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 Fréttir DV Menningarveisla hefst á laugardag á Akranesi List tengd sjó og útvegi DV, AKRANESI:_____________________ Menning og listir á Akranesi árið 2000 tengjast fyrsta vísi að sjávar- þorpi á íslandi og skipulögðum nytj- um sjávar. Á Akranesi hófst skipu- lögð útgerð á sautjándu öld. Veiðar, vinnsla og sala á sjávarafurðum hef- ur verið meginuppistaðan í afkomu íbúa á Akranesi um aldir. Því ligg- ur beint við að tengja listviðburði á Akranesi við náttúruna, sjóinn og sjávarútveg. Myndlist, tónlist, leiklist, ritlist og útivist munu skipa sess á dag- skrá sem er m.a. unnin í tengslum við Reykjavík - menningarborg Evrópu árið 2000. Opnunarhátíð Sjávarlistar verður í Bíóhöllinni á laugardaginn kl. 20. Þar munu ýms- ir lífslistamenn draga upp mynd af sjávarplássinu Akranesi í formi söngs, ljóða og leiklistar. Sjávar- listadagskráin ris hvað hæst 28. maí þegar 7 umhverfislistaverk verða af- hjúpuö við strendur Akraness, en þau vísa til útgeröar og útræðis á Akranesi fyrr og nú. Verkin eru eft- ir brottflutta og búandi Akurnes- inga, þau Auði Vésteinsdóttur, Bjarna Þór Jónsson, Guttorm Jóns- son, Helenu Guttormsdóttur, Jón- ínu L. Guðnadóttur, Marlies Wechner og Phillipe Ricart. Göngu- stígar verða á milli verkanna við Langasand og á Elínarhöfða. Aðrir helstu liðir dagskrárinnar eru að Skagaleikflokkurinn frum- sýnir nýtt leikrit, Liföu, í Bjama- laug þann 1. apríl. Höfundur þess er Kristján Kristjánsson og tónlistina samdi Orri Harðarson. Sossa og Gyða L. Jónsdóttir sýna málverk og höggmyndir i Listasetrinu Kirkju- hvoli frá 1. aprU og fjölmargar sýn- ingar taka þar við út árið. Fjöl- breytt dagskrá írskra daga verður 24.-28. maí, útitónleikar á sjó- mannadaginn, bæjarbókasafnið sýn- ir Sögubrot úr sjávarþorpi. Þema- vikur eru haldnar í grunnskólunum og heUsudagar fiölskyldunnar. -DVÓ Slgft í 38 tíma Ómar Sigurösson skipstjóri í brúarglugganum þegar ioksins var komiö aö löndun eftir langt stím. Sigla í 38 tíma til löndunar: Loðnan gefur gull í mund DV, SIGLUFIRDI:________________________ „Við fyUtum skipið á fimm tímum á miðunum austan við Vestmanna- eyjar en siglingin hingað tU Siglu- fiarðar tók 38 klukkustundir. Svo tek- ur nokkra tíma að landa þannig að túrinn norður tekur hátt í fióra sólar- hringa,“ sagði Ómar Sigurðsson, skipstjóri á Seley SU 210, þegar frétta- maður tók hann tali meðan Seley beið löndunar á Siglufirði í síðustu viku. Þeir voru hressir, skipveijarnir á Seleynni, enda veiöin góð. Farmur- inn sem þeir komu með tU Siglu- fiarðar var 1.260 tonn og þeir sögðu að það gerði liðlega 50 þúsund krón- ur í laun tU hvers háseta. Það kom fram hjá þeim að þegar veiði er góð og löndunarbið i höfnum næst mið- unum mætti reikna með langri sigl- ingu tU löndunar í þriðja hverjum túr. -ÖÞ Hressir meö launln Nokkrir skipverjar úr áhöfn Seleyjar eftir langa og stranga siglingu meö aflann. DV-MYND GUÐFINNUR RNNBOGASON. Oþrifaleg störf en vel launuö Unniö aö beitningu fyrir Hólmavíkurbátinn Ásdísi - unga kynslóöin sækir ekki í siík störf enda þótt launakjörin séu óvíöa betri. Ragnheiöur Ingimundardóttir, eina konan i beitningarhópnúm, er duglegust allra. Hún er til hægri á myndinni og fer létt með balann. Beitningarfólk á Ströndum finnur lausn á öllum vandamálum þjóðfélagsins: Konan í hópnum skákar þeim öllum DV, HÖLMAVÍK: Meiri fiskgengd á grunnslóð og lokun Húnaflóans fyrir rækjuveið- um á þessum vetri hafa fylgt aukin umsvif í linuveiðum og hafa nokkr- ir þeirra báta sem jafnan hafa sinnt rækjuveiðum stundað línuveiðar allt frá því í október. Stærri hópur fólks hefur því komið að landbeit- ingu á þessum vetri en mörg undan- farin ár, sem vitnar vel um marg- feldisáhrif línuveiða sem síður gæt- ir þegar beitningarvélar eru hafðar um borð í bátunum. Því fólki virðist nú fækka nokkuð ört sem gefur sig í beitningu enda ekki að ungu kynslóðinni haldið störfum sem þykja óþrifaleg þó óviða séu launakjör betri. í vetur hefur vaskur hópur fólks beitt fyrir línuveiöiskipið Ásdísi ST 37 á Hólmavík. Eina konan í hópnum, Ragnheið- ur Ingimundardóttir, hefur marga dagana skákað karlpeningnum í af- köstum við beitninguna. Alþekkt er, sem þó þarf jafnan að árétta, að á slíkum vinnustöðum eru vart finn- anleg þau viðfangsefni svo og vandamál þjóðfélagsins sem ekki hefur verið fundin farsæl lausn á. Því má segja að uppeldisgildi slíkra vinnustaða sé stórlega vanmetið af þeim sem valist hafa til að vísa á vegi mannbóta í þjóðfélagi nútim- ans. -GF Ræðuklúbbur Sauðárkróks stofnaður fyrir rúmri öld og lætur enn framfaramál til sín taka: Danir mótuðu Krókinn Sauðkrækingar stofnuðu ræðu- klúbb í lok siðustu aldar og var markmið félagsins að stuðla að ýms- um framfaramálum fyrir byggðar- lagið. Á afmælisári Sauðárkróks var klúbburinn endurvakinn og hef- ur starfað með miklum blóma. Líkt og fyrr hefur Ræðuklúbburinn látið ýmis framfaramál til sín taka og staöið fyrir ýmsum viöburöum. Starf klúbbsins er metnaðarfullt og hefur vakið athygli á Sauðárkróki og Skagafirði og þeim möguleikum sem héraðið býður upp á. Á síðasta ári var til dæmis efnt til tveggja stórra ráðstefna, í lok mars var það spástefna um Alþjóöaþróun - Byggðaþróun og á liðnu hausti var haldin ráðstefna þar sem fiallaö var um jarðvarmann í Skagafirði og möguleika á nýtingu hans. Danskur blær á bænum Forustusveit Ræðuklúbbs Sauðár- króks hefur lagt rækt við söguna og rætur Gamla Króksins. Þar koma sterkt inn í myndina Danimir á Króknum, sem mótuðu bæinn á fyrstu áratugum byggðarinnar. Góð samvinna hefur verið við danska sendiráðið og því engin tilviljun að hingað hafa meö milligöngu for- kólfa ræðuklúbbsins komið danskir listamenn. Margir minnast komu dönsku hljómsveitarinnar Bazars á Sæluviku afmælisársins, danskrar konunglegrar blásarasveitar sem kom hingað skömmu síðar, danska rithöfundarins Jóhannesar Mollehave sem kom hingað sumarið 1998 og fiallaði um danskan húmor Ræöuskörungar Hér getur aö líta fyrrverandi og núverandi forkólfa ræöuklúbbsins. Frá vinstri: Herdís Sæmundardóttir, Jón Ormar Ormsson, Hulda Egilsdóttir og Árni Ragnarsson. og síðan Litla óperukórsins sem söng í Sauðárkrókskirkju á liðnu sumri við gífurlega hrifningu gesta sem fylltu kirkjuna. Þetta og margt fleira bar á góma á aðalfundi Ræðuklúbbs Sauðár- króks sem haldinn var á Kaffi Krók sl. sunnudag. Þar urðu breytingar á stómamefnd félagsins. Þau Jón Ormar Ormsson og Herdís Sæ- mundardóttir ákváðu að láta af störfum vegna anna. Ámi Ragnars- son ætlar að halda áfram og til liðs við hann ætla að ganga þau Hulda Egilsdóttir, íslenskukennari við FNV, og Unnar Ingvarsson skjala- vörður. Á fundinum voru ekki gerðar margar samþykktir, að því er pistil- ritari man best. Reyndar einungis ein og er hún á þann veg að Ræðu- klúbbur Sauðárkróks óski eftir frjáls- um framlögum frá félögum, sem í dag eru eitthvað á áttunda tuginn. Þetta er gert til að styrkja starf klúbbsins, þó ekki væri á nema móralskan hátt, en þess má geta að hingað til hefur yfirleitt ekki verið selt inn á þá við- burði sem félagið hefur staðið fyrir. -ÞÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.