Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2000, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2000, Side 4
4 MIÐVKUDAGUR 15. MARS 2000 Fréttir DV Grand Rokk enn á tveggja ára skilorði: Borgarráð stað- festi áminningu - á grundvelli hávaðamælinga heilbrigðiseftirlits Borgarráð staðfesti í gær áminn- ingu sem veitt hafði verið eigendum veitingastaðarins Grand Rokk vegna hávaða og afskipta lögreglu af staðn- um. Borgaryfirvöld höfðu ákveðið að endurskoða áminninguna sem þau veittu veitingastaðnum þar sem skýrsla aðstoðaryfirlögregluþjóns um afskipti lögreglu af staðnum þótti gefa aðra mynd en dagbókarfærslur lög- reglunnar vegna sömu atburða. Einnig höfðu eigendur Grand Rokk gert at- hugasemdir við hávaðamælingar Heil- brigðiseftirlits Reykjavíkur á staðnum. Þær sýndu hávaða yfír leyfilegum Aminning á Grand Rokk staðfest í borgarráði Áminningin er á grundvelli hávaöamæiinga á staönum. mörkum. Fóru eig- endumir fram á að áminningin, sem veitt var til tveggja ára, yrði endur- skoðuð með tilliti til þessara tveggja atriða. Að sögn Krist- bjargar Stephen- sen, fulltrúa borg- arstjómar, reynd- ist það rétt, að lög- reglan hefði ekki staðfest kvartanir. Útskýringar á því hefði verið þær að vegna forgangsröðunar lögreglu lentu slík mál um helgar það aftarlega að oft væra ólæti hugsanlega yfirstaðin þeg- ar hún kæmi á staðinn. „Það er skilj- anleg afstaða, þeir hljóta að sinna al- varlegri málum fyrst,“ sagði Krist- björg. „En áminningin stendur vegna þess að hávaðamælingamar standast. Þær era nægt tilefni til áminningar. Það var mat mitt eftir að hafa farið yfir þetta, sem borgarrráð féllst á, að kvart- anir til lögreglu, styrktu bara ákvörð- un borgarráðs um að veita áminningu, þótt óstaðfestar væra.“ -JSS Sjálfsbjörg: Mótmælir ummælum Davíðs Sjálfsbjörg, landssamband fatl- aðra, hefur sent frá sér fréttatil- kynningu þar sem félagið mótmælir þeim ummælum Daviðs Oddssonar forsætisráðherra í síðustu viku að peningar samtaka öryrkja hafi ver- ið notaðir til aö birta áróðursaug- lýsingar, augljóslega tengdar Sam- fylkingunni. Umræddar auglýsingar hafi verið samþykktar af lýðræðis- lega kosinni framkvæmdastjórn ÖBÍ og birtar til að skapa umræðu um kjör öryrkja. Auglýsingarnar hafi enda haft þau áhrif að nokkuð góð umræða var um kjör öryrkja fyrir kosningamar. í fréttatilkynn- ingunni segir að Sjálfsbjörg geti ekki tekið undir þá skoðun að einn stjórnmálaflokkur hafi meiri ítök en aðrir innan ÖBÍ og óhætt sé að fullyröa að flestir, ef ekki allir ís- lenskir stjómmálaflokkar, eigi sína fulltrúa innan aðildarfélaga ÖBÍ og í stjóm þess. Sjálfsbjörg telur það ekki hlut- verk forsætisráðherra né annarra stjómmálamanna að hlutast til um hvernig samtök öryrkja og fatlaöra eyöa sínum fjármunum nema það varði við lög, tengist ekki hagsmun- um öryrkja eða misbjóði á annan hátt siðferðiskennd almennings. Fé- lagið óskar þess að umræðan um Er von á Davíð? Garöar Sverrisson, framkvæmdastjóri ÖBÍ, kíkir eftir mannaferöum á fundi Sjálfsbjargar í gær. kjör öryrkja verði tekin af því per- sónulega plani sem hún hafi verið á og alþingismenn og hagsmunasam- tök öryrkja snúi sér að því aö ræða í fullri alvöru hvemig bæta megi kjör öryrkja. -hdm Sjálfstætt fyrirtæki um raforkuflutn- inga Nefnd á vegum iðnaðarráðherra hefur lagt til að stofhað verði sjálf- stætt fyrirtæki sem sjái um flutn- ing raforku og verði í eigu orku- veitnanna. Þær leggi til eignir hins nýja fyrir- tækis en hvað stjórnun varðar verður það aðskilið. Fyrirhugað er að hið nýja fyrirtæki verði stofnað á næsta ári en hefji starfsemi í byrjun árs 2002. Þessi nið- urstaða nefndarinnar var kynnt á blaðamannafundi í gær. Á kynning- unni i gær var lagt til að fyrirtækið myndi heita íslandsnet en það var leiðrétt síðar um daginn eftir að í ljós kom að nú þegar er til fyrirtæki sem ber það nafn. Til að byija með er lagt til að fyrir- tækið taki alla vega til flutningskerf- is Landsvirkjunar og lína er tengja Nesjavelli og Svartsengi við það. Með því yrðu helstu virkjanirnar tengdar netinu og myndi það tryggja jafnræði þessara vinnsluaðila á markaði, en í framtíðinni verður aðveitukerfið skoðað. I tillögum nefndarinnar er gert ráð fyrir breytingum á skipulagi Landsvirkjunar, stjómun flutnings, vinnslu og annarra þátta verði aðskil- in. Segir að á undanfórnum árum hafi skipulagi raforkumála verið um- bylt í flestum nágrannalöndunum til að auka samkeppni. „Meginmarkmið slíkra breytinga er að stuðla að hag- kvæmri nýtingu orkulindanna til hagsbóta fyrir alla landsmenn.“-hdm Björgunar- og öryggismál gagnrýnd Áhafnir allra þeirra skipa sem skoðuð voru í úttekt á björgunar- og öryggismálum um borð í skipum með leyfi til fólksflutninga þurfa á meiri þjálfun að halda hvað varðar öryggisstjómun og meðferð og varð- veislu björgunartækja. Úttektina gerðu Siglingastofnun og Slysa- varnaskóli sjómanna að beiðni sam- gönguráðherra og voru niðurstöður hennar kynntar á blaðamannafundi í gær. Ráöherra hefur þegar falið Vegagerðinni og Siglingastofnun að bregðast við þessu og skila af sér til- lögum um aðgerðir fyrir 15. apríl nk. -hdm Veörið í kvöld Sólargangur og sjávarföll iimp REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 19.30 19.13 Sólarupprás á morgun 07.41 07.27 Síódegisflóð 14.37 19.10 Árdeglsflóö á morgun 03.16 07.49 Skýringar á va&tBtákniun ,ÍTT 10°4—HITI VINDSTYRKUR i nxrtrinn á uektindu -10 N FROST HEKJSKÝRT c> o LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ SKÝJAÐ Búist er viö súld eöa rigningu um mestallt land síödegis, einkum þó vestan til. Hlýnandi veöur, hiti 4 til 9 stig, seint T dag. Sunnan 13- 18 m/s vestan til á landinu en lítið eitt hægari austan til í kvöld og nótt. í fyrramálið veröur SV-átt, 13-18 m/s norðan og vestan til en hægari suöaustanlands. Rigning vestan til en skýjað austan. til--------------------------- Færö Greiðfært en víða hálka Góð færö er um Suöurnes. Á Hellis- heiöi og í Þrengslum er snjóföl en vel fært. Hálkublettir eru á vegum frá Reykjavík í Borgarnes og áfram þaöan noröur í land. Hálka er á Holta- vöröuheiði og víða um land má búast viö mikilli hálku þegar blotnar í snjónum og slæmum bremsuskilyrðum. BYGCT A UPPLYSINCUM FRA VEGAGERÐ RIKISINS Ö SKÚRIR 9 PRUMU- VEÐUR SIYDDA SKAF- RENNINGUR l?í SNJÓKOMA ÞOKA (ZZlSNJÓR ■IÞUNGFÆRT ■EÓFÆRT Súld eða rigning Búist er viö sunnan- og suövestanátt og víöa dálítilli súld eöa rigningu um vestanvert landið. Þurrt verður að mestu austanlands. Föstudagur Vindur: 3 / 8-13 m)r Hiti 0° til 2' Laugarda m Vindur: O, 13-18 ,vs > ) Hiti 1° til 5° 4 A A Vestan og suðvestan 8-13 m/s. Dálítll slydduél vestanlands en úrkomulaust og viða bjart veður eystra. Hltl um eöa rétt yfir frostmarki. S- og SA-átt, 13-18 m/s með slyddu eða rigningu sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið á Norð- austurlandl og Austflórð- um. Hlti víðast 1-5 stlg. Sunnudaj Vindun / 10*15m^ w Hiti 0° ti! 4° Sunnan- og suðvestanátt og skúrir eða slydduél um vestanvert landlð, en norðvestan og slydduél austanlands. Hiti 0 tll 4 stlg. sim. AKUREYRI BERGSTAÐIR BOLUNGARVÍK EGILSSTAÐIR KIRKJUBÆJARKL. KEFLAVÍK RAUFARHÖFN REYKJAVÍK STÓRHÖFÐI léttskýjaö 0 alskýjaö 0 alskýjaö 0 -2 skýjaö 0 skýjaö 0 alskýjaö -2 rigning 1 rigning og súld 4 BERGEN skýjaö -3 HELSINKI skýjaö -2 KAUPMANNAHÖFN skúr á síö. kls. 2 OSLÖ heiöskírt 0 STOKKHÓLMUR snjókristallar -1 ÞÓRSHÖFN skýjaö 4 ÞRÁNDHEIMUR snjóél á síö. kls. 0 ALGARVE þokumóöa 14 AMSTERDAM léttskýjaö 4 BARCELONA skýjaö 11 BERLÍN skýjað 2 CHICAG0 alskýjaö 7 DUBLIN skýjaö 2 HALIFAX skýjaö 0 FRANKFURT skúr á síö. kls. 3 HAMBORG léttskýjað 2 JAN MAYEN skafrenningur -7 L0ND0N heiöskírt 3 LÚXEMB0RG skúr á síö. kls. 1 MALLORCA þokumóöa 5 MONTREAL léttskýjaö 3 NARSSARSSUAQ snjókoma -1 NEWYORK léttskýjaö 7 ORLANDO PARÍS léttskýjaö 4 VÍN skýjaö 5 WASHINGTON skýjaö 7 WINNIPEG léttskýjaö -16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.