Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2000, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000
Fréttir
I>V
Hugmyndir um aðskilnað Bíldudals frá Vesturbyggð:
Ráðherra krafinn
um útfærslu
- spurt er hvað verði um skuldir. Tálknfirðingar kurteisir
„Þessar hugmyndir ráðherrans
komu mjög óvænt. Ég spyr um til-
gang og hvert er lokamarkmiðið
með umræddri uppstokkun," segir
Haukur Már Sigurðarson, formaður
bæjarráðs Vesturbyggðar, um þá
hugmynd Páls Péturssonar félags-
málaráðherra að Bíldudalur verði
tekinn úr Vesturbyggð og sameinað-
ur Tálknafirði. Landfræðilega klýf-
ur Tálknafjarðarhreppur Vestur-
byggð þar sem Bíldudalur er að
norðanverðu en Patreksfjörður að
sunnanverðu. Af þeim sökum hafa
gárungar nefnt Tálknafjörð Smug-
una. Vesturbyggð er skuldugasta
sveitarfélag landsins ef litið er til
skulda á hvem einstakling. Skuldir
þar nema 380 þúsundum króna á
mann en hver Tálknfirðingur skuld-
ar aðeins um 120 þúsund krónur.
Haukur Már segir allt of mörgum
spurningum ósvarað um það með
hvaða hætti skilnaðurinn við Bíldu-
dal fari fram.
„Á hvað forsendum á að skipta
upp sveitarfélaginu? Er verið að
hugsa um landfræðilega legu eða er
markmiðið að þau verði betur rekstr-
arhæf. Ef ráðherrann er að velta fyr-
ir sér stórbættum hag sveitarfélags-
ins þá veltir maður fyrir sér hvaðan
peningarnir komi,“ segir hann.
Haukur Már segist vera einn
þeirra mörgu sem í upphafi höfðu
miklar efasemdir við sameiningu
sveitarfélaganna sem standa að
Vesturbyggð. Allar götur síðan sam-
eining varð hafi efasemdir verið
uppi um að hún hafi átt rétt á sér.
„Mínar efasemdir voru fyrst og
fremst vegna landfræðilegrar legu
sveitarfélaganna. Þetta er geysilega
víðfeðmt sveitarfélag og þess vegna
dýrt í rekstri. Vesturbyggð hefur
liðið fyrir samanburö við 1200 til
1800 manna sveitarfélög sem eru ein
eining," segir Haukur Már.
Hann segir að stjórnvöld hafi
Skuldabaggi skorinn frá
Frá Bíldudal sem er hluti Vesturbyggðar. Efasemdir eru um að staðurinn eigi samleið með Patreksfirði.
Páll Pétursson:
Bíldudalur veröi klofmn frá Vesturbyggð.
Björgvin Sigurjónsson:
Svöruðum kurteisiega.
Haukur Már Siguröarson:
Viljum nánari útfærsiu.
ekki staðið við þær væntingar
sem sem gefnar hafi verið þegar
sveitarfélögin gengu til samein-
ingarinnar.
„Patreksfjörður og Bíldudalur
voru mjög skuldug sveitarfélög
þegar sameiningin varð. Það var
skilningur sveitarstjómarmanna
að skuldajöfnunarframlag ríkis-
ins yrði 80 til 100 mUljónir króna
en reyndin varð sú aö 66 milljón-
ir varð framlag ríkisins. Ég kalla
eftir nánari útfærslu ráðherrans
varðandi þessar hugmyndir," seg-
ir Haukur Már.
Bróf tll Tálknafjarðar
Björgvin Sigurjónsson, oddviti
Tálknafjarðarhrepps, sagöi í sam-
tali við DV að möguleg sameining
við Bíldudal væri ekki einu sinni
komin á umræðustig.
„Við fengum bréf frá ráðuneyt-
inu þar sem spurt var hvort við
vildum taka þátt í viðræðum um
sameiningu við Bíldudal. Það er
kurteisi að svara bréfum og við lýst-
um því yfir að við værum tilbúin að
ræða málið. Það er hið eina sem
gerst hefur og ekki einu sinni búið
að skipa viöræðuhóp," segir Björg-
vin.
Hann segir að með því sé hvorki
verið að gefa undir fótinn með sam-
einingu né hafna henni. Það hafi
einfaldlega ekkert gerst.
„Málið er enn ekki á neinu stigi.
Það liggur þó fyrir að við Tálknfirð-
ingar höfum í tvígang kosið um
sameiningu við nágrannasveitarfé-
lögin og fellt í bæði skiptin. Eigi að
vera umræöugrundvöllur þá er ljóst
að það sveitarfélag sem sameinast
okkur verður að standa jafnfætis
með tilliti til skulda,“ segir Björg-
vin. -rt
Einn með öllu
bætist í flotann
DV, GRINDAVIK:______________________
Fyrir stuttu kom til Grindavíkur
nýr bátur, Árni i Teigi GK, i eigu
Reynis Jóhannssonar og er þetta ný-
smiði af gerðinni Cleopatra 38 um 13
tonn að stærð frá Trefjum hf. í Hafn-
arfirði.
Kemur hann í stað eldri báts sem
þegar hefur verið seldur til Ólafsvík-
ur.
Er hann knúinn tveim vélum af
gerðinni Yanmar og mun ganghrað-
inn verða á milli 20 og 30 sjómílur.
Einnig er báturinn búinn nýjustu
tækni af spilbúnaði frá Elektra og
Landvélum hf.
Ætlunin er að setja i bátinn sér-
staka telescopic-skrúfu sem gengur
niður úr kilinum og hægt er að snúa
i allar áttir og mun það auðvelda allt
andóf á veiðum og minnka hættuna á
að fá veiðarfæri í skrúfuna. Siglinga-
tæki eru þau nýjustu frá Simrad og
R. Sigmundssyni hf.
Báturinn er sem sagt „einn með
öllu“ eins og sagt er, firna vel útbú-
inn lítill fiskibátur, og verður gerður
út á net frá Grindavík. -ÞGK
DV-MYND ÞORSTEINN G. KRISTJÁNSSON
Hlaölnn bestu græjunum.
Jón Berg Reynisson er skipstjóri á Árna í Teigi, vel búnum netabáti, sem
fagnað var í Grindavík á dögunum.
_______Kí; Umsjón:
Haukur L, Hauksson
netfang: sandkorn@ff.is
Útúrsnúningur
Það vakti furðu
margra þegar
Hildur Helga
Gísladóttir, for-
maður nefndar
um aukinn hlut
kvenna í stjóm-
málum, mætti í
Kastljós og hellti
sér yfir Garðar
Sverrisson, for-
mann Öryrkjabandalagsins, og
krafði hann um afsökunarbeiðni
vegna niðrandi orða hans um kon-
ur í Vikunni og sagði hann hafa
haldið því fram að konur ættu að
halda kjafti og vera sætar. Þetta
kom sérlega flatt upp á þá sem les-
ið höfðu umrætt viðtal við Garðar
því þar segir hann mjög ákveðið að
konur eigi ekki að halda kjafti og
vera sætar heldur standa uppi í
hárinu á strákunum. í viðtalinu
gagnrýndi Garðar hins vegar kven-
ráðherra Framsóknarflokksins fyr-
ir metnaðarleysi og það eitt virðist
hafa nægt til að kveikja í Hildi
Helgu sem lét eins og sanntrúuð
framsóknarkona. Spumingin sem
vaknar er hins vegar sú hvort
Hildur Helga skuldi Garðari ekki
afsökunarbeiðni fyrir að leggja
honum í munn orð sem hann
aldrei sagði...
Ein gegn átta
Nú er Guð-
brandur Stígur I
Ágústsson
skólastjóri flutt-1
ur frá Pareks-
firði og um leið I
hættur sem eini
fulltrúi minni-
hlutans í níu
manna bæjar- [
stjóm Vestur-
byggðar. Sjálfstæðisflokkur og
Samstaða-Vesturbyggð hafa haft
með sér meirihlutasamstarf á kjör-
tímabilinu og hefur Guðbrandur
Stígur oftar en ekki átt erfitt upp-
dráttar sem eini fulltrúi Vestur-
byggðarlistans. Nú hefur Kolbrún
Pálsdóttir kaupmaður tekið sæti
hans í bæjarstjórninni og er
hvergi bangin. Heimildir Sand-
koms segja hana reyndar svo
kraftmikla að dæmið hafi snúist
við - átta bæjarfulltrúar meirihlut-
ans eigi fullt í fangi með að hafa á
henni hemil...
Vesturfari
Sagan segir að
Sigurður Gísli
| Pálmason, einn
Hagkaupserfingj-
anna, sé á forum
vestur um haf,
til Bandaríkj-
anna. Þar ætli
hann að dvelja
næstu tvö ár en
® með hléum þó
þar sem aö mörgu er að hyggja
heima á klaka. Hins vegar ber
heimildum ekki saman um hvort
haldið veröur til í Washington DC
eða sest að meðal stjamanna og
ríka fólksins í Malibu á Kyrrahafs-
ströndinni...
Vinsældir
Þó nokkur
leiðindi hafi
skapast í kring-
um sóknarprest-
inn í Holti í Ön-
undarfirði virð-
ist hann með
vinsælli mönn-
um því varla er
haldin árshátíð
eða skemmtun
vestur á fjörðum þessa dagana öðru-
vísi en að minnst sé á mál tengd sr.
Gunnari Bjömssyni í leikþáttum
eða söngvum. Þannig er Amisfólkið
fastagestir í söngtextum. Sagan seg-
ir að Sigurður J. Hafberg, góövin-
ur sr. Gunnars, komi að ófáum
þessara texta. Annars vekur nokkra
athygli þar vestra hve framúrskar-
andi kurteis og prúður sóknarprest-
urinn í Holti er þessa dagana sem
aftur er rakið til umvandana bisk-
ups í frægu bréfi...