Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2000, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2000, Page 22
34 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000 Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 80 ára___________________________ Kristín Vigfúsdóttir, Vatnsendabletti 88, Kópavogi. 75 ára___________________________ Margrét Jónasdóttir, Þorragötu 9, Reykjavík. Sveinn Sveinsson, Ægisgötu 10, Reykjavík. 70ára____________________________ Olgeir Gíslason, Hjarðartúni 3, Ólafsvík. Pátl Aðalsteinsson, Bjarkarholti 1, Mosfellsbæ. 60 ára___________________________ Jósefína Pétursdóttir, Þingási 9, Reykjavík. 50 ára___________________________ Erna Hjaltadóttir, Fellsenda 2, Búðardal. Guðrún Jónsdóttir, Bláskógum 8, Reykjavík. Jósteinn Kristjánsson, Ystaseli 28, Reykjavík. Stefanía Hákonardóttir, Heiðarbakka 7, Keflavík. 40 ára___________________________ Ámi Sveinn Sigurðsson, Ásvegi 13, Akureyri. Eggert Elfar Jónsson, Bakkaseli 28, Reykjavík. Erna Hauksdóttir, Hólatúni 7, Sauðárkróki. Guðmundur Guðbrandsson, Starengi 5, Selfossi. Guðmundur Smári Guðmundsson, Merkigerði 6, Akranesi. Hulda Björk Georgsdóttir, Kaplaskjólsvegi 7, Reykjavík. Inga Hrönn Þorvaldsdóttir, Álftamýri 55, Reykjavík. Jón Viðar Guðjónsson, Melbæ 18, Reykjavík. Jónas G. Einarsson, Grasarima 16, Reykjavík. Oddný Elínborg Bergsdóttir, Holtagötu 6, Súðavík. Snorri Ægisson, Guðrúnargötu 2, Reykjavík. Sverrir Valur Lýðsson, Vitabraut 9, Hólmavík. Lelktu þér á Krakkavef Vísis.is Ásbjörg Ásbjörnsdóttir, Hrafnistu, Hafnarfiröi, áður til heimilis á Reykjavíkurvegi 38, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu fimmtudaginn 16.3. Útförin auglýst síöar. Jón G. Arnórsson, Krókahrauni 12, Hafnarfirði, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 15.3. Sigurður Bachmann, lést á Hrafnistu 7 Reykjavík fimmtudaginn 16.3. Ásta Tómasdóttir, Hvassaleiti 56, Reykjavík, lést þriðjudaginn 7.3. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Vilborg Ása Vilmundardóttir, Blikahólum 4, áður Grundargeröi 18, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans aö morgni miðvikudagsins 15.3. DV reranffittifr Tryggvi Harðarson bæjarfulltrúi og formannsframbjóðandi Tryggvi Harðarson, bæjarfulltrúi í Hafnarfiröi og formannsframbjóðandi Hafnarfjörður og ísafjörður hafa löngum verið talin höfuðvígi krata. Tryggvi er af traustum hafnfirskum kratastofnum og þekktum vestfirskum ættum. Tryggvi Harðarson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, Vesturbraut 19, Hafn- arfirði, bauð sig fram til formanns- kjörs í Samfylkingunni á fimmtu- daginn var. Framboðsfrestur er nú útrunninn svo þeir Tryggvi og Öss- ur Skarphéðinsson eru einir i kjöri. Starfsferill Tryggvi fæddist á Akureyri 30.6. 1954 og ólst upp á Hjalteyri til fimm ára aldurs, átti síðan heima í Ólafs- vík í tvö ár en hefur síðan átt heima í Hafnarfirði. Tryggvi lauk landsprófi frá Flens- borgarskóla 1971, lauk stúdentsprófi þaðan 1975, stundaði nám við Mála- stofnun Pekingborgar 1975-76 og nám í sagnfræði og kínversku við Háskóla Pekingborgar 1976-79. Tryggvi var stundakennari og hvalverkamaður á árunum 1979-82, járnabindingamaður 1982-88 og og hefur síðan stundað blaðamennsku, við Alþýðublaðiö og víðar, auk þess sem hann hefur stundað jámabind- ingar af og til. Tryggvi hefur verið bæjarfulltrúi fyrir Alþýðuflokkinn í Hafnarfirði frá 1986 og lengst af setið í bæjar- ráði, þar af formaður þess 1993-94. Hann sat í framkvæmdastjóm Al- þýðuflokksins 1988-94. Tryggvi hefur setið í hafnarstjóm Hafnarfjarðar, sat í húsnæðisnefnd og hefur setið í ýmsum starfsnefnd- um á vegum Hafnarfjarðarbæjar. Tryggvi keppti í handbolta með meistaraflokki FH um skeið. Fjölskylda Kona Tryggva var Ásta Sigríður Kristjánsdóttir, f. 20.5. 1956, BA í ensku og leiðbeinandi. Böm Tryggva og Ástu Sigríðar eru Hörður Helgi, f. 19.4. 1980, verkamaður í Hafnarfirði; Kristján, f. 18.11. 1986, nemi; Ásthildur Krist- ín, f. 16.1. 1989, nemi. Systkini Tryggva: Ólafur, f. 12.12. 1951, stjómmálafræöingur og lektor viö HÍ; Sigrún Ágústa, f. 21.12. 1952, kennari í Reykjavík; Ragnhildur, f. 13.10. 1955, kaupkona, búsett i Hafn- arfirði; Elín Sofíia, f. 7.3. 1958, mat- sveinn og kaupkona í Hafnarfirði; Kristin Bessa, f. 23.7. 1963, húsmóð- ir í Hafnarfírði; Guðrún, f. 27.7. 1966, húsfreyja að Hvassafelli í Eyja- fjarðarsveit. Foreldrar Tryggva eru Hörður Zóphaníasson, f. 25.4. 1931, fyrrv. skólastjóri, og k.h., Ásthildur Ólafs- dóttir, f. 3.2. 1933, skólaritari. Ætt Hörður er sonur Zóphaníasar, skósmiðs í Reykjavík Benediktsson- ar, b. í Ytra-Tungukoti i Svartárdal í Helgasonar. Móðir Zóphaníasar var Guðrún, systir Elínborgar, móð- ur Helga Seljan. Guðrún var dóttir Þorláks, b. á Kárastöðum Oddsson- ar, og Ingigerðar Helgadóttur, b. á Svínavatni Benediktssonar, og Jó- hönnu, ljósmóður Steingrimsdóttur, b. á Brúsastöðum Pálssonar, pr. á Undirfelli Bjamasonar. Móðir Páls var Steinunn Pálsdóttir á Melstað, systir Bjarna landlæknis og formóð- ir Ólafs Ragnars Grímssonar forseta og Guðlaugs Tryggva Karlssonar. Móðir Harðar var Sigrún Jónína Trjámannsdóttir, b. í Fagranesi í Öxnadal Guðmundssonar. Móðir Sigrúnar Jónínu var Sigurrós Sig- urðardóttir. Bróöir Ásthildar er Kristján Bersi skólameistari. Ásthildur er dóttir Ólafs Þ. Kristjánssonar, skólastjóra í Hafnarfirði, bróður Halldórs rithöfundar og Guðmund- ar Inga skálds, frá Kirkjubóli. Ólaf- ur var sonur Kristjáns, b. á Kirkju- bóli, bróður Guðrúnar, ömmu Gests Ólafssonar skipulagsfræðings, og Kristínar Ólafsdóttur söngkonu, móður Hrannars Arnarssonar borg- arfulltrúa. Kristján var sonur Guð- mundar, b. á Kirkjubóli, Pálssonar, bróður Hákonar, langafa Sigurjóns Péturssonar, fyrrv. borgarfúlltrúa. Systir Guðmundar var Solveig, amma Gils Guðmundssonar rithöf- undar. Móðir Guðmundar var Krist- ín Hákonardóttir, b. á Grafargili Há- konarsonar, bróður Brynjólfs, langafa Guðnýjar, móður Guðmund- ar G. Hagalín. Móðir Ólafs skóla- stjóra var Bessabe, systir Friðrikku, ömmu Einars Odds Kristjánssonar alþm. Bessabe var dóttir Halldórs, b. á Hóli í Önundarfirði, bróður Ragnheiðar, langömmu Gunnars Ásgeirssonar forstjóra. Móðir Ásthildar er Ragnhildur Gisladóttir, b. á Króki í Selárdal Ámasonar, b. í Öskubrekku, Áma- sonar, hreppstjóra í Neöri-Bæ, Gíslasonar, pr. í Selárdal, Einars- sonar Skálholtsrektors, Jónssonar, langafa Guðnýjar, ömmu Halldórs Laxness. Móðir Áma hreppstjóra var Ragnheiður Brynjólfsdóttir, kaupmanns í Flatey, Bogasonar, fræðimanns og ættföður Staðar- fellsættarinnar, Benediktssonar. Móðir Ragnhildar var Ragnhildur Jensdóttir, b. í Feigsdal Þorvalds- sonar. Sextugur Sigurður Guðni Jónsson apótekari Sigurður Guðni Jónsson, apótek- ari í Lyf og heilsa við Háteigsveg, Flókagötu 33, Reykjavík, er sextug- ur í dag. Starfsferill Sigurður fæddist í Fögruhlíð i Jökulsárhlíð í Norður-Múlasýslu og ólst þar upp til sex ára aldurs er hann flutti til Keflavíkur með for- eldrum sínum. Hann lauk stúdents- prófi frá ML 1960, stundaði lyfja- fræðinám við HÍ og verknám í Lyfjaverslun ríkisins og Holts Apó- teki 1961-62, lauk miðprófi sama ár, stundaðin nám við Danmarks Far- maceutyske Hojskole og lauk cand.- pharm. prófi 1966. Sigurður starfaði á vegum land- læknisembættisins hjá Patreks- hreppi 1966-67, var stofnandi og fyrsti lyfsali Patreks Apóteks 1967-84, opnaði lyfjaútsölu á Bíldu- dal 1971 og á Þingeyri 1973. Sigurður tók við rekstri Apóteks Austurbæjar 1984 og hefur verið þar apótekari síðan. Sigurður var formaður Björgun- arsveitar Patreksfjarðar, formaður Norræna félagsins á Patreksfirði um skeið og starfaði i skólanefnd. Fjölskylda Sigurður kvæntist 15.11. 1969 Fjólu Guðleifs- dóttur, f. 21.9. 1944, hjúkr- unarfræðingi. Hún er dóttir Guðleifs Kristins Bjarnasonar símvirkja og Sigurborgar Eyjólfsdóttur frá Dröngum, húsmóður í Reykjavík. Böm Sigurðar og Fjólu eru Leifur, f. 18.8. 1970, trúboði í Afríku; Anna, f. 3.5. 1974, myndlist- arnemi í Litháen. Bróðir Sigurðar er Hilmar, f. 12.5. 1932, yfirbókavörður og rithöfundur í Keflavík, kvæntur Elísabetu Guð- rúnu Jensdóttur, f. 3.3. 1945, kenn- ara. Foreldrar Sigurðar voru Jón Guð- jónsson, f. 26.4. 1905, d. 28.2. 1975, bóndi og verkamaöur í Keflavík, og k.h., Jóna Guðrún Þorkelína Guð- laugsdóttir, f. 27.2. 1908, d. 15.10. 1968, verkakona. Ætt Jón var sonur Guðjóns, b. í Fögruhlíð Einarssonar, b. á Set- bergi i Fellum Sveinssonar, b. í Götu i Fellum, bróður Þórunnar, móður Páls Ólafssonar skálds. Sveinn var sonur Einars, b. i Götu Sigurðs- sonar. Móðir Einars í Götu var Bóthildur Magn- úsdóttir, systir Stefáns, ættföður Sandfellsættar- innar, langafa Áma, afa Helga Seljans og Árna Helgasonar í Stykkis- hólmi. Stefán var einnig langafi Bóelar, langömmu Geirs Hallgrímssonar. Þá var Stefán langafi Bóasar, langafa Harðar Ein- arssonar, lögfræðings og forstjóra, og Kjartans Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Móðir Jóns var Sigríður Jónsdótt- ir, b. í Fögruhlíð Þórðarsonar. Móð- ir Jóns í Fögruhlíð var Sigríður Sig- fúsdóttir, systir Kristínar, langömmu Guðrúnar, ömmu Sig- mundar Sigfússonar, læknis á Ak- ureyri. Jóna var dóttir Guðlaugs, báta- og húsasmiðs í Keflavík Eyjólfssonar, b. á Efri-Steinsmýri í Meðallandi, Eiríkssonar, bróður, samfeðra, Ár- nýjar, ömmu Sigurbjamar Einars- sonar biskups, fóður Karls biskups. Árný var einnig amma Aðalheiðar Merkir Islendingar Jón Vídalln biskup, fæddist 21. mars 1666, en lést 30.ágúst 1720. Hann var sonur Þorkels Amgrimssonar, prests í Görðum á Álftanesi, og k.h., Margrétar Þorsteins- dóttur, prests í Holti undir Eyjafjöllum Jónssonar. Jón lærði hjá Árna Þorvarðarsyni, á Þingvöllum, Páli Ámundasyni á Kol- freyjustað, var í Skálholtsskóla 1679-82, lauk heimspeki- og guðfræði- prófl við Kaupmannnnahafnarháskóla og lærði hebresku hjá frænda sinum, Páli Bjömssyni i Selárdal. Eftir háskólanám gekk Jón í danska sjóherinn í tvö ár en var keyptur út af Heidemann landfógeta. Við heimkomuna varö Jón m.a. aðstoðarmaður Þórðar Þorláks- Jón biskup Vídalín sonar Skáholtsbiskups. Jón var Skálholts- biskup frá 1698 og til dauðadags. Jón var skarpur námsmaður, i hópi lærðustu klerka, mikill kennimaður og afburðar ræðuskörungur. Þá var hann talinn besta latínuskáld síns tíma. Hús- lestrarbók Jóns, Vídalínspostilla, var feikilega mikið lesin á löngu tímabili en hún er nánast eina íslenska guð- fræðiritið í lausu máli sem öðlast hef- tm varanlegt bókmenntagildi. Jón var stjómsamur og ör i skapi en þótti mildur við smælingja. Hann átti í útistöðum viö aðra valhafa, s.s. Odd Sig- urðsson lögmann. Um hann hafa spunnist ýmsar þjóðsögur, einkum vegna her- mennsku hans og ofsafenginnar skapbræði. Bjamfreðsdóttur alþm. og Magnúsar Bjarnfreðssonar, fyrrv, fréttamanns. Móðir Eyjólfs var Guð- rún Ásgrimsdóttir, b. á Oddum í Meðallandi Árnasonar, b. í Botnum Eiríkssonar, bróður Sverris, langafa Jóhannesar Kjarvals. Móðir Jónu var Málhildur Þor- kelsdóttir, b. á Harðangri á Vatns- leysuströnd Jónssonar, b. á Strympu á Rangárvöllum Þorkels- sonar. Móðir Málhildar var Guðrún, systir Guðríðar, langömmu Oddnýj- ar, móður Jónatans Þórmundssonar prófessors. Guðrún var dóttir Egils, hreppstjóra á Þórustöðum á Vatns- leysuströnd, bróður Þorleifs Repp málfræðings. Egill var sonur Guð- mundar, pr. á Kálfatjöm, bróður Þorvalds, langafa Finnboga, fóður Vigdísar forseta. Guðmundur var sonur Böövars, pr. í Holtaþingum Högnasonar prestafóður og pr. á Breiðabólstað í Fljótshlíð Sigurðs- sonar, afa Tómasar Sæmundssonar Fjölnismanns. Móðir Guðmundar var Gyðríður Þorvaldsdóttir, að Múla í Álftafirði Ófeigssonar. Móðir Egils var Rósa Egilsdóttir, pr. að Út- skálum Eldjámssonar. Útför Lilju Gísladóttur, Kumbaravogi, áð- urtil heimilis á Bræðraborgarstíg 24a, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskapellu þriðjud. 21.3. kl. 10.30. Margrét Theodórsdóttir, Nestúni 4, Hvammstanga, veröurjarðsungin frá Hvammstangakirkju þriöjud. 21.3.kl. 14. Sigríður Kristín Kristjánsdóttir, Sigga í Bót, Lindasíðu 4, Akureyri, sem lést þriðjudaginn 14.3., verður jarösungin frá Glerárkirkju þriðjud. 21.3. kl. 14. Guöbjörg Sigríöur Petersen, Bauký, Sogavegi 72, verður jarðsungin frá Bú- staðakirkju þriðjud. 21.3. kl. 13.30. Margrét P. Einarsdóttir, Hrafnistu, áöur Kambsvegi 31, veröur jarðsungin frá Ás- kirkju þriðjud. 21.3. kl. 13.30. Sveinn Guömundsson, Hátúni lOb, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjud. 21.3. kl. 15.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.