Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
Fréttir I>V
Yfirlæknar funda um framtíð Bergiðjunnar við Klepp:
Starfsmenn fengu
áfallahjálp
- forstöðumaður bíður eftir peningum
„Yfirlæknamir á Kleppi fund-
uðu um málið eftir frétt DV um
ástandið hér og ég vonast eftir
lausn fyrir helgi,“ sagði Jóhannes
Sigurðsson, forstöðumaður Berg-
iðjunnar, sem er vemdaður vinnu-
staður geðfatlaðra við Klepp. Þar
hafa tugir starfsmanna verið send-
ir heim vegna skorts á stjórnend-
um og verkstjórum sem fást ekki
til starfa vegna lélegra launa sem I
boði em. „Vinnan er þessu fólki
mikils virði og hafa sumir starfs-
mannanna fengið áfallahjálp hjá
félagsráðgjafa vegna vanlíðunar
yfir atvinnumissinum. Vinnustað-
ur þessa fólks er oft eini staðurinn
sem það fer á og hittir aðra þannig
að áfallið er mikið,“ sagði Jóhann-
es sem auglýst hefur eftir verk-
stjórum og fengið nokkrar um-
sóknir. Umsóknimar eru hins veg-
ar skilyrtar því að launin hækki
um 20 þúsund krónur eða svo.
„Ég get fengið fólk ef ég býð við-
unandi laun. Þau þurfa að hækka
úr 120 þúsund krónum í tæp 140
þúsund til þess að dæmið gangi
upp. Á meðan þjást starfsmennim-
ir heima,“ sagði Jóhannes Sigurðs-
son for-
stöðu-
maður
sem
kennir
niður-
Fréttin sem hreyfði við
yfirlæknunum
Vinnan er geðfötluöum mikils virði.
skurði
í heil-
brigðis-
kerflnu
hvernig
komið er í
atvinnu-
málum geð-
fatlaðra i
Bergiðjunni.
-EIR
Enginn SMÁauglýsingaleikur aö hefjast:
Vikuferð til
Hollands
- og fjöldi annarra vinninga í boöi
DV og Bylgjan
hafa nú farið af
stað með nýjan
leik sem kallast
„Enginn SMÁ-
auglýsingaleikur
DV og Bylgjunn-
ar“. Leikurinn
er einfaldur og
skemmtilegur,
ætlaður öllum
sem hafa gaman
af skemmtileg-
um sögum úr
daglega lífinu.
Lesin er saga í __
morgunþætti Ivars Guðmunds-
sonar á Bylgjunni, um skemmti-
legan mann, Davíð Vilberg, vin-
konu hans Bylgju, og ýmsar upp-
ákomur í lífi þeirra. Á eftir lestri
sögunnar er borin upp spurning
dagsins. Svar hennar er að finna
í smáauglýsingum DV. Smáaug-
lýsinguna er auðvelt að finna þar
sem hún er sér-
staklega merkt
merkjum beggja
miðlanna. Allt
sem þarf til að
eiga möguleika á
glæsilegum ferða-
vinning í boði
Samvinnuferða-
Landsýnar, er að
hlusta á Bylgj-
una, leita að smá-
auglýsingunni, og
safna a.m.k. 7
réttum svörum af
10 mögulegum.
Svör sendist til DV, Þverholti 11,
105 Reykjavík, merkt „Enginn
SMÁauglýsingaleikur DV og
Bylgjunnar". Dregið verður úr
innsendum svörum þann 12. apríl
nk. Einnig fá 10 heppnir hlustend-
ur Bylgjunnar góða vinninga á
degi hverjum, svo sem geisla-
diska, bíómiða og málsverði. -HG
Þóra Birgisdóttir,
yfirmaöur smáauglýsinga DV
Hún er glaðbeitt við vinnu
sína, enda er skemmtilegt
samstarf við Bylgjuna
fram undan.
Leitað að
forsetaritara
„Þetta er síðasta samtal okkar á
meðan ég gegni þessu embætti því
ég er að hverfa til nýrra starfa,“
sagði Róbert Trausti Ámason for-
setaritari í gær þegar hann var
inntur eftir framtíðarhlutverki
Dorrit Moussaieff hjá embættinu.
Samkvæmt heimildum DV eru
áætlanir á teikniborði starfsmanna
forsetans um hvernig Dorrit
Moussaieff geti fylgt Ólafi Ragnari
Grímssyni í opinberum heimsókn-
um þannig að vel fari.
„Um það tjáir forsetaritari sig
ekki.“
- Eru þá engar áætlanir á teikni-
borðinu í þá veruna?
„Um það tjáir forsetaritari sig
ekíd.“
- Við hvaða starfi er forsetarit-
ari að taka?
„Um það tjáir forsetaritari sig
ekki,“ sagði Róbert Trausti Árna-
son en hann mun að öllum líkind-
um verða forstjóri Keflavíkurverk-
taka þegar hann yfirgefur embætti
forsetans. Vegna þessa er hafin leit
að nýjum forsetaritara sem oftar
Róbert Trausti Árnason
Hverfur til nýrra starfa.
en ekki hefur verið sóttur inn á
skrifstofur utanríkisráðuneytisins.
-EIR
Campylobactersýkingar:
Svipuð tíðni
og í fyrra
Fimm
campylobacter-
sýkingar
greindust í fólki í
janúarmánuði
síðastliðnum og
ellefu í febrúar,
að sögn Hjördísar
Harðardóttur á
sýkladeild Land-
spítalans. Þá hafa
um tíu tilfelli greinst það sem af er
þessum mánuði. Hjördís sagði að
tíðni campylobactersýkinga virtist
svipuð nú og í fyrra.
í janúar á síðasta ári greindi
sýkladeildin fimm campylobacter-
sýkingar. í febrúar sama ári
greindust óvenjumörg tilfelli eða
tuttugu. Skýringin á þeim fjölda var
sú að þar inni í var sjö manna hóp-
ur sem hafði sýkst á veitingastað. í
mars sl. ár greindust fimmtán til-
felli.
„Þetta er mjög svipað og í fyrra,
að hópsýkingunni undanskilinni,"
sagði Hjördís við DV. -JSS
Uppreisn
í Vegas
- mistókst
Tilraun var gerð til uppreisnar á
nektarstaðnum Vegas í kjölfar brott-
rekstrar dyravarðar og barþjóns en
uppreisnin mistókst:
„Mennimir lágu í símanum og
reyndu að fá allt starfsfólkið til að
hætta en það gekk ekki upp. Við erum
að losa okkur við diskóteksgemlingana
og ætlum að fá til okkar fúllorðið fólk.
Ætli meðalaldur starfsfólks eftir breyt-
ingar hér sé ekki 38 ár og þannig vilj-
um við hafa það,“ sagði Þór Ostensen,
nýr eigandi nektarstaðarins Vegas,
sem hann keypti fyrir skemmstu af
dánarbúi Haralds Böðvarssonar
Bragasonar, lögreglustjóra í Reykja-
vík.
„Það era engar berrassaðar stelpur
á flótta hér á gangstéttinni fyrir utan
en diskótekarinn hefur ekki látið sjá
sig. Það er líka allt i lagi því ég er bú-
inn að fá annan og betri,“ sagði Þór
Ostensen i Vegas. -EIR
VoíirSa í kvnld
Rigning
A 15-20 m/s og rigning eöa slydda sunnan-
lands en dregur úr veðri síðdegis. í nótt og á
morgun verður A 10-15 m/s og rigning eöa
súld austanlands en þurrt að mestu vestan-
lands og léttir víða til um vestanvert landiö.
Hiti 1 til 6 stig sunnan- og vestanlands en í
kringum frostmark norðaustan til.
Sólnrgnnffur og njnvnrföH
■■bhmh REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 19.36 19.19
Sólarupprás á morgun 07.34 07.20
Síódegisflóö 16.57 21,30
Árdeglsflóö á morgun 05.13 09.46
§h|f«iiaf á veáuftáhnyni
I- 1ftO. ----
/‘^'ViNBÁTT
-10°
VINDSTYRKUR N HHIÐSKÝRT
metrum a eekúndu rKUSI
*> : €> o
LHTTSKÝJAO HÁLF SKÝJAÐ SKÝJAO ALSKÝJAÐ
'w* ' W ©
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF RENNINGUR Þ0KA
Mikil hálka
Mikil hálka er víða á vegum landsins.
Greiöfaert er syðst á landinu. Þungfært
í Vopnafiröi og sums staðar á
noröausturhorni landsins. Þá er ófærö
á Steingrímsfjaröarheiöi og að hluta
um Djúp.
Hlýjast suðvestanlands
Búist er viö austlægri átt meö 10 m/s suðvestanlands en 8-13
víöast annars staðar. Rigning eða slydda austanlands en víöa bjartviöri
vestan til. Hiti veröur á bilinu 0-5 stig, hlýjast suðvestanlands.
Sunntid Múnudn^nr Þriöjiid.Tfíiir
Vindur: / 8—13 m/é-' Hitíl’tilS- ÁV Hæg suðlæg átt og þokusúld við suövestur- ströndina. Rigning eða súld með köfium suð- austanlands en bjart fyrir norðan. Hitl 1 til 5 stig. Víndur: \ 'O” O 10-15 m/V. J V J Hití2’til«’ Hægt vaxandi sunnanátt með hlýindum og rigningu eða súld vestanlands. Þurrt og bjart veður verður fyrir austan. Hiti 2 til 6 stig. Vindur. \ !<p" O 10-18 m/s J VO Hiti2’tii«’ W Vaxandl sunnanátt meö hlýindum og rlgnlngu eöa súld vestanlands. Þurrt og bjart veöur veröur fyrir austan. Hitl 2 tll 6 stlg.
AKUREYRI skýjaö 2
BERGSTAÐIR skýjaö 4
BOLUNGARVÍK rigning 3
EGILSSTAÐIR 2
KIRKJUBÆJARKL. rigning 2
KEFLAVÍK rigning 2
RAUFARHÖFN alskýjaö 0
REYKJAVÍK rigning 5
STÓRHÖFÐI rigning 5
BERGEN léttskýjaö -3
HELSINKI léttskýjaö 0
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 1
ÓSLÓ léttskýjaö -4
STOKKHÓLMUR -1
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 4
ÞRÁNDHEIMUR snjóél 2
ALGARVE
AMSTERDAM rigning 7
BARCELONA þokumóöa 8
BERLÍN skýjaö 1
CHICAGO þokumóöa 8
DUBLIN léttskýjaö 4
HALIFAX heiðskírt -2
FRANKFURT skýjaö 9
HAMBORG skýjaö 3
JAN MAYEN skýjaö -9
LONDON rigning 8
LÚXEMBORG skýjaö 7
MALLORCA þokuruöningur 8
MONTREAL léttskýjaö 6
NARSSARSSUAQ skafrenningur -3
NEWYORK heiöskírt 8
ORLANDO alskýjað 16
PARÍS alskýjað 10
VÍN alskýjaö 6
WASHINGTON þokumóöa 4
WINNIPEG þoka 9
■ iwwmi ■: iHY.-wrflirvia;
-*
í
i
I