Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Blaðsíða 25
í' r FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 É I>V _______29 Tilvera ! ! Skautaö af krafti Flestir sem sóttu skautasvelliö í gærkvöldi létu sér nægja aö fara hring eftir hring og reyndu þá léttar æfingar í leiöinni eins og sjá má ungan pilt gera á myndinni. Vínarkvöld á skautasvelli Vetraríþróttaviku íþróttabanda- lags Reykjavíkur lauk I gær. Dag- skráin, sem er hluti af Reykjavík menningarborg, hefur verið íjöl- breytt og skemmtileg og hefur margt verið gert sem hefur vakið mikla athygli og er skemmst að minnast snjóbrettamótsins sem haldið var á Arnarhóli á þriðju- dagskvöld, en talið var að um fimmtán hundruð áhorfendur hafl fylgst með því. Þá hefur almenn- ingur á hverjum degi fengið að kynnast leyndardómum skiðaí- þróttanna með því að fá kennslu í skíðagöngu og fleiri greinum vetr- aríþrótta. í gærkvöldi var svo efht til skemmtilegrar uppákomu á skauta- svelli Reykjavíkurborgar í Laugar- dal. Þar var almenningi boðið frítt á skauta undir Vínartónum, en þema kvöldsins var hin bráðskemmtilega Vínartónlist Strauss-feðga sem hljómaði, auk þess sem óperusöngv- arar komu i heimsókn og tóku lag- ið. Myndaðst góð og þægileg stemn- ing eins og sjá má af myndunum sem birtast hér á síðunni. Þrautir reyndar Þessi unga stúlka kann ýmislegt fyrir sér í skautaíþróttinni. Hún reynir hér við snúning sem margir ættu aö kannast viö úr sjónvarpinu. Operettusöngur á skautasvelli Signý Sæmundsdóttir söng Vínartónlist á skautasveiiinu í Laugardal í gærkvöldi. Dansaö á skautum Þaö þarf lagni og samvinnu þegar tveir skauta saman. Þessar ungu stúlkur voru í hópi margra krakka sem ekki létu sig vanta á skauta- svelliö í gærkvöldi. DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON. Enski boltinn á fullu Guðmundur Davíösson, eigandi All- ans á Siglufiröi, en hjá honum hefur myndast ekta enskur fótboltafílingur og aödáendur félaga mynda knatt- sþyrnuiiö. V Gamla ballhúsið í nýjum búningi DV, SIGLUFIRÐI: Það muna eflaust margir lands- menn eftir Alþýðuhúsinu á Siglu- firði og hafa jafnvel sótt þar dans- r leik á síldarárunum í den. Eins og allir vita hvarf síldin og Alþýðuhús- ið hætti líka að vera fjölsóttur skemmtistaður og lét brátt verulega á sjá í útliti, jafnt utan sem innan. Nú hefur hins vegar orðið skemmti- leg breyting á. Árið 1995 komst húsið í einka- eign, þegar Guðmundur Davíðsson veitingamaður keypti það. Réðist hann í verulegar endurbætur á hús- næðinu jafnframt því sem tæki og innanstokksmunir voru nær alveg endurnýjaðir. Var húsið opnað eftir þessar breytingar 1. júlí á síðasta ári undir nafninu Allinn Sportbar. f vetur hefur verið opið flest kvöld og ýmis afþreying í boði. Þannig er t.d. félagsvist eitt kvöld í viku. Þá kem- ur talsverður hópur á fostudags- kvöldum og tippar á úrslit helgar- innar. Þá er mjög vinsælt meöal bæjarbúa að koma og fylgjast með leikjunum á Sýn sem sýndir eru á 56 tommu skjá. Auk þessa má nefna aðstöðu fyrir skák, bridge, billjard og pílukast. Á föstudags- og laugar- dagskvöldum er svo diskótek og er þá gjarnan fenginn skemmtikraftur með 1-2 atriði. í sambandi við áhorf á ensku knattspyrnuna hefur skapast skemmtileg stemmning. Þannig var í fyrra haldið mót þar sem aðdáend- ur ensku liðanna mynduðu lið. Þama var um 6 manna lið að ræða og leiktíminn mun styttri en í hefð- bundnum kappleikjum enda aðdá- endurnir í misgóðri þjálfun. Nú hef- ur verið ákveðið að endurtaka þetta mót fyrir vorið með þeirri breyt- ingu að leikið verður innanhúss og hafa utanbæjarmenn sýnt því áhuga að senda lið til mótsins. -ÖÞ Victoria kryddpía Adams og Beckham gat ekki fetað í fótspor drengjanna sinna, eiginmannsins Davids Beckhams og sonarins Brooklyns, og látið krúnuraka sig. Þess í stað litaði hún dökka lokkana ljósa. „Victoriu hefur lengi langað til þess arna og fannst að nú væri rétti tíminn til þess,“ segir talskona kryddpíunnar. Beckham opinberaði ný klipping- una í leik um helgina og skoraði meira að segja mark krúnurakaður. Victoria er yfir sig hrifin af bónda sinum. „Hann er kynþokkafyllri en hann hefur nokkru sinni verið,“ segir söngkonan í viðtali við breskt æsi- blað. En spurningin er bara hvort hann fær leyfi til að vera svona lengi. Beckham er jú á samningi hjá fyrirtæki sem framleiðir hárkrem. hárið Victoria krydd Oröin ijóshærö og bóndinn hárlaus. Taktu þátt í skemmtilegum leik! Hlustaðu á Bylgjuna og lestu smáauglýsingar DV Taktu þátt I skemmtilegum leik með Bylgjunni og DV og þú gætir verið á leið I vikufrí með fjölskylduna í boði Samvinnuferða-Landsýnar. Hlustaðu á framhaldssmásöguna um DavíðVilberg I morgunþætti Ivars Guðmundssonar á Bylgjunni á hverjum morgni. Svarið við spurningunni finnur þú I smáauglýsingum DV. \mvinnuferOir Landsýn Leikurinn er léttur og skemmtilegur. Þú safnar a.m.k. 7 réttum svörum og sendir til DV fyrir 12. apríl og kemst í pott þar sem möguleiki er á að vinna glæsilega vikuferð í sumarhús í Hollandi í boði Samvinnuferða-Landsýnar. Einnig eru í boði 10 skemmtilegir vinningar á dag til þeirra sem hringja með rétt svar til Bylgjunnar kl. 14.30. Útsendingasími Bylgjunnar er íboði Samvinnufeiða-I * 4 t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.