Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Blaðsíða 22
26 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 I>V Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 90 ára___________________ A Ragnheiöur Hóseasdóttir, Skólavörðustíg 40, Reykjavík, verður níræð mánudaginn 27.3. Hún dvelur nú á hjúkrunarheimlinu Víðinesi, Kjalarnesi. Ragnheiður tekur á móti gestum aö Víðinesi, laugard. 25.3. milli kl. 15.00 og 18.00. Þórunn Sveinsdóttir, Efri-Rjótum 2, Kirkjubæjarklaustri. 85 ára_________________________________ Gísli Guölaugur Gíslason, Hrafnistu, Kleppsvegi, Reykjavík. Guörún Karlsdóttir, Helgamagrastræti 26, Akureyri. Ingólfur Lárusson, Víðilundi 14a, Akureyri. 80 ára_________________________________ Guðlaug Kristjánsdóttir, Uppsölum 2, Dalvík. Stefán S. Krístjánsson, Götu, Rúðum. 75 ára_________________________________ Georg Hermannsson, Ysta-Mói, Rjótum. Geröa Hammer, Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfirði. Hafsteinn Hansson, Hrísateigi 9, Reykjavík. Ingvi Victorsson, Hvammsgeröi 9, Reykjavík. 70 ára_________________________________ Guörún Margrét Jóhannsdóttir, Háaleitisbraut 47, Reykjavík, varð sjötug 22.3. Eiginmaður hennar er Birgir Kristinsson. Þau taka á móti gestum I Loftsalnum, Hólshrauni 3, Hafnarfiröi, sunnud. 26.3. kl. 16.00. Ásta Díana Stefánsdóttir, Vallartröð 2, Kópavogi. Hulda Hannesdóttir, Ljósheimum 20, Reykjavlk. Tryggvi Eyjólfsson, Vesturströnd 13, Seltjarnarnesi. Þórólfur B. Guöjónsson, Grundargötu 53, Grundarfiröi. 60 ára_________________________________ Anna Soffía Jónsdóttir, Hólavegi 29, Sauðárkróki. Sæunn Hulda Guömundsdóttir, Stafnesvegi 22, Sandgerði. 50 ára_________________________________ Eygló Sigríöur Gunnarsdóttir, Ljósheimum 16b, Reykjavík. Jóhanna Helgadóttir, Hávegi 8, Siglufirði. Sveinbjörg Helgadóttir, Torfum, Akureyri. Þórir Ólafsson, Bæ 1, Borg. 40 ára_________________________________ Halldóra Ólöf Ágústsdóttir, • Dalhúsum 84, Reykjavík. Hallgrímur Óli Helgason, Höföastíg 20, Bolungarvík. Jón Magnússon, Gaukshólum 2, Reykjavík. Óskar Björnsson, Lindarbergi 40, Hafnarfirði. Rúna Björk Siguröardóttir, Uppsalavegi 12, Húsavík. Sigurbjörn Rnnur Gunnarsson, Hjallalandi 13, Reykjavík. Andlát Magnús Ingimarsson hljómlistarmaður, Hjarðarhaga 21, lést á heimili sínu þriöjudaginn 21.3. Kristín Ósk Elentinusdóttir, Langholtsvegi 9, Reykjavík, andaöist á Landskotsspítala föstudaginn 10.3. ^ Útförin hefur farið fram I kyrrþey. Lovísa Sigurgeirsdóttir frá Hrísey, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri mánudaginn 20.3. Guðmunda Guðlaug Sveinsdóttir, Stigahlíö 43, Reykjavlk, andaðist þriöjudaginn 21.3. Jaröarförin auglýst síöar. Hjalti Pórarinsson fyrrv. læknaprófessor og forstöðumaður Hjalti Þórarinsson, fyrrv. prófess- or og forstöðumaður handlækninga- deildar Landspítalans, Laugarás- vegi 36, Reykjavík, varð áttræður í gær. Starfsferill Hjalti fæddist og ólst upp á Hjalta- bakka í Torfalækjarhreppi. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1941, embættisprófi í læknisfræði við HÍ 1948, stundaði sérfræðinám í skurð- lækningum á íslandi 1950-52 og lauk sérfræðinámi í almennum skurðlækningum og brjósthols- skurðlækningum við háskólasjúkra- húsið í Madison Wisconsin i Banda- ríkjunum 1954. Hjalti fór nær árlega til námsdvalar á háskólasjúkrahús- um í Evrópu eða Ameríku og sótti árlega eitt eða fleiri læknaþing er- lendis. Hjalti var skurðlæknir í Reykja- vik 1954-90, lausráðinn sérfræðing- ur í brjóstholsaðgerðum á Landspít- ala 1955-57, hóf þá lungnaaðgerðir á berklasjúklingum og aðrar aðgerðir í brjóstholi, var deildarlæknir á handlækningadeild Landspítalans 1957-59, aðstoðaryfirlæknir 1959-62, yfirlæknir á brjóstholsaðgerðadeild 1962-72 og forstöðulæknir hand- lækningadeilda 1972-90, er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Hjalti var kennari í almennum skurðlækningum og brjósthols- skurðl. við HÍ frá 1957, lektor frá 1959, dósent frá 1963 og prófessor í handlæknisfræðum 1972-90. Hjalti var formaður Skurðlækna- félags íslands 1964-65, sat í stjóm Nordisk Kirurgisk Förening og brjóstholsskurðlæknafélags Norður- landa, forseti 1967-68, formaður Al- þjóða krabbameinsnefndar i Amer- ican College of Chest Physicians 1968-70, forseti alþjóða skurðlækna- félagsins, Intemational Surgical Group 1987-88 og meðlimur í fleiri erlendum læknafélögum, sat í stjóm Læknafélags Reykjavíkur, í stjóm læknaráðs Landspítalans 1977-79, í Réttarmáladeild Læknaráðs íslands 1972-90, formaður Lionsklúbbsins Ægis 1965-66, í stjórn Sólheima í Grímsnesi 1975-76, í stjórn Ekkna- sjóðs íslands 1957-70. Hjalti hefur skrifað fjölda greina í innlend og erlend læknatímarit um almennar skurðlækningar og brjóst- holsaðgerðir. Hann er höfundur að Hraðskeytlum og fréttaljóðum, útg. 1997, og samdi bókarkaflann Yfirlit um sögu handlækningad. Landspít- alans í Landspítalabókinni, afmæl- isrit á 50 ára afmæli Landspítalans. Hjalti hefur tvívegis flutt fyrir- lestra í boði American Cancer Society, hlaut tvívegis vísindastyrk NATO, og tvívegis styrk frá British Counsil og Vísindasjóöi íslands. Honum var veitt viðurkenning fyrir afburða læknisstörf á Landspítala 1991 var sæmdur riddarakrossi ís- lensku fálkaorðunnar 1982, sæmdur æðstu orðu Alþjóða forseta Lions 1989, og er Melvin Jones Fellow frá 1992. Fjölskylda Hjalti kvæntist 22.10. 1946 Ölmu Önnu Þórarinsson, f. Thorarensen 12.8. 1922, sérfræðingi í geðlækning- um og fyrrv. yfirlækni Leitarstöðv- ar Krabbameinsfélags Islands. For- eldrar hennar voru Oddur Carl Thorarensen, f. 24.11. 1894, d. 10.5. 1964, lyfsali á Akureyri, og k.h., Gunnlaug Júlíusdóttir. f. 8.5. 1901, d. 28.12. 1987, húsmóðir. Börn Hjalta og Ölmu eru Þórar- inn Hjalti, f. 4.10. 1947, bæjarverk- Sverrir Tryggvason aðstoðarstöð varstj óri Sverrir Tryggvason að- stoðarstöðvarstjóri er sjö- tugur í dag. Starfsferill Sverrir fæddist á Þórshöfn á Langanesi og ólst þar upp. Hann lauk barnaskólaprófi, sttmdaði nám við Kvöldskóla KFUM, stundaði nám við Iðn- skólann í Reykjavík, lærði vélvirkjun hjá vélsmiðjunni Keili frá 1954, lauk sveinsprófi í þeirri grein og meistara- prófi frá Iðnskólanum i Reykjavík. Sverrir starfaði hjá vélsmiðjunni Keili frá 1954, hjá Olíufélaginu hf. frá 1958, tók við verkstjórn hjá Keili 1985 er fyrirtækið var komið í eigu Olíu- félagsins, sinnti því starfi í átján ár en hefur síðan verið aðstoðarstöðvar- stjóri Olíufélagsins í Örfirisey. Sverrir hefur starfað í Kiwanis- klúbbnum Eldey í Kópavogi frá 1974 og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörf- um fyrir klúbbinn, var formaður hús- stjórnar 1987-88 og forseti 1988-89. Hann var ritari svæðisstjómar Ægis- svæðis og hefur verið formaður bygg- ingarnefndar Kiwanishússins í Kópa- vogi frá upphafi. Fjölskylda Sverrir kvæntist 25.3. 1956 Sigríði G. Þor- steinsdóttur, f. 8.1. 1935, meðferðarfulltrúa. Hún er dóttir Þorsteins Björnssonar, fyrsta ábú- andans á Hellu á Rang- árvöllum, og Ólafar Kristjánsdóttur. Böm Sverris og Sigríðar eru Þor- steinn, f. 14.2.1957, búsettur í Svíþjóð, kvæntur Önnu Karin og eiga þau þrjú böm; Sóley, f. 18.9. 1962, búsett í Reykjavík, en maður hennar er Jón Kristinn Ólafsson og eiga þau þrjú börn; Stefán, f. 27.11. 1964, búsettur í Kópavogi, og á hann eitt barn. Systkini Sverris urðu þretttán tals- ins en átta þeirra komust til fullorð- insára. Þau em Alfreð, nú látinn; Guðrún; Sigfús, nú látinn; Helga; Jak- ob, nú látinn; Ólafur; Ingólfur, og Sig- urlaug. Foreldrar Sverris voru Tryggvi Sig- fússon, f. 2.11.1892, d. 4.12.1984, verka- maður á Þórshöfn á Langanesi og síð- ar í Kópavogi, og k.h., Stefanía Krist- jánsdóttir, f. 16.11. 1893, d. 11.11. 1987, húsmóðir. Sverrir verður að heiman. Hjalti Þórarinsson, læknaprófessor og forstööumaóur Þórarinn var af skagfirskum ættum, skyldur skáldunum Stephani G. Stephanssyni og Einari Benediktssyni. Sigríöur, móðir Hjalta, var dóttir séra Þorvalds Ásgeirssonar, bróöur Kristínar, langömmu Matthiasar Johannessens skálds. fræðingur Kópavogskaupstaðar, kvæntur Höllu Halldórsdóttur, hjúkrunarfræðingi, ljósmóður og bæjarráðsmanni í Kópavogi, og eiga þau tvö böm; Oddur Karl Gunn- laugur, f. 12.6. 1949, yfirtæknifræð- ingur Linuhönnunar í Reykjavík, kvæntur Ingibjörgu Hálldóru Jak- obsdóttir, hjúkrunarfræðingi og nema í heilbrigðisvísindum við HÍ, og eiga þau þrjú böm; Sigríður, f. 17.10. 1951, meinatæknir í Sioux City í Iowa í Bandaríkjunum, gift Þóri Sturlu Ragnarssyni, cand. med. frá HÍ og eiga þau þrjú böm; Hrólf- ur, f. 20.2. 1953, starfsmaður tölvu- deildar Ríkisspítala; Gunnlaug, f. 7.8.1954, í M.Sc.-námi í meinatækni, og á hún einn son. Systkini: Þorvaldur f. 16.11. 1899, d. 1981, skrifstofumaður í Reykja- vík; Ingibjörg, f. 17.10. 1903, d. 1994, húsmóðir í Reykjavík; Aðalheiður, f. 14.5. 1905, d. 1999, húsmóðir í Reykjavík; Brynhildur, f. 14.5. 1905, d. 1994, húsmóðir i Reykjavík; Skafti, f. 1.7.1908, d. 1936, skrifstofu- maður í Reykjavík; Sigriður, f. 10.5. 1910, d. 1957; Jón, f. 6.11. 1911, d. 1999, lengst af bóndi á Hjaltabakka; Hermann, f. 2.10. 1913, d. 1965, úti- bússtjóri Búnaðarbankans á Blönduósi; Magnús, f. 1.6. 1915, list- málari í Reykjavík; Þóra, f. 23.10. 1918, d. 1947, húsmóðir á Blönduósi. Foreldrar Hjalta voru Þórarinn Jónsson, f. 6.2. 1870, d. 5.9. 1944, bóndi og alþm. á Hjaltabakka, og k.h„ Sigríður Þorvaldsdóttir, f. 10.12. 1875, d. 17.5. 1944, húsfreyja. Hjalti er að heiman. Erla Pálmadóttir forstöðumaður Fossvogskirkju Erla Pálmadóttir, for- stöðumaður Fossvogs- kirkju, Hliðarvegi 30, Kópavogi, verður fimm- tug á morgun. Starfsferill Erla fæddist í Reykja- vík. Hún lauk verslunar- prófi 1967. Erla var einkaritari lögreglustjór- ans í Reykjavík, starfaði hjá Um- ferðarráði um skeið, og var lækna- ritari við Borgarspítalann. Erla hóf störf hjá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæmis fyrir níu árum, hefur starfað þar siðan, og er nú forstöðumaður Fossvogskirkju. Erla sat í stjóm Golfklúbbs Reykjavíkur um nokkurra ára skeið og er virk í Oddfellow-reglunni. Fjölskylda Erla giftist 17.5. 1969 Sigurði S. Gunnarssyni, f. 10.10. 1945, sölu- og markaðsstjóra. Hann er sonur Gunnars Þórðarsonar og Elísabetar Sveinsdóttur. Böm Erlu og Sigurðar eru Gunn- ar Snævar, viðskiptastjóri hjá FBA, kvæntur Jónínu Waagfjörð, lektor í sjúkraþjálfun við HÍ, og eru börn þeirra Friðrik Þór, f. 1992, og Jakob Þór, f. 1996; Ástráður Þorgils, golfkennari í Sviþjóð, en kona hans er Anna K. Sig- urðardóttir hárgreiðslu- meistari og sonur þeirra Alexander, f. 2000. Systkini Erlu eru Pálmi skrifstofustjóri, kvæntur Björgu Jónsdóttur og eiga þau fjög- ur böm; Greta Marín, skrifstofu- maður; Auður, skrifstofumaður, gift Óskari Tómassyni og eiga þau tvær dætur; Ómar Þorgils rannsóknar- lögreglumaður, kvæntur Huldu Elsu Björgvinsdóttur og eiga þau þrjú börn. Foreldrar Erlu eru Pálmi Frið- riksson, f. 1929, framkvæmdastjóri í Reykjavík, og Anný Ástráðsdóttir, f. 1932, húsmóðir. Ætt Pálmi er sonur Friðriks Gíslason- ar og Sigríðar Ásmundsdóttur. Anný er dóttir Ástráðs Guðmundssonar og Svövu Marínar Guðmundsdóttur. Gísll Ásmundsson, þýskukennari og þýð- andi, fæddist á Hálsi í Fnjóskadal 24, mars 1906, sonur Ásmundar Gíslasonar, prófasts þar, og k.h., Önnu Pétursdóttur. Gísli var bróðir Einars, hrl. í Reykja- vík og ritstjóra Morgunblaðsins. Föður- bróðir þeirra var Gisli, faðir Garðars stórkaupmanns, afa Garðars Gíslason- ar hæstaréttardómara og Garðars Halldórssonar arkitekts. Gísli stundaði nám í bókmennta- sögu, þýsku og mannkynssögu við há- skólana í Heidelberg, Leipzig og Vin á ámnum 1930-33. Hann var kennari við Verslunarskólann í fjörutíu ár, frá 1933-73, Það er útbreiddur misskilningur að alda- mótakynslóðin hafi látið sér nægja að leggja Gísli Ásmundsson rækt við eigin tungu og sögu. Hún var jafn- framt mjög alþjóðlega- og menningarlega sinnuð. Að þessu leyti var Gísli dæmi- gerður fulltrúi sinnar kynslóðar. Hann var hæglátur og hlédrægur en unni góð- um bókmenntum og þótti ómaksins vert að þýða þær yfir á eigin tungu. Gísli var afkastamikill og hreint frá- bær þýðandi, þótt þess sé sjaldan minnst. Meðal verka sem hann þýddi má nefna Austanvinda og vestan, eftir Pearl S. Buck; Magellan, könnuó Kyrra- hafsins, eftir Stefan Zweig; Tóníó Krög- er, eftir Thomas Mann, og Jörö í Afríku, eftir Karen Blixen. Þá þýddi hann fjölda bamabóka, s.s. um Pétur Most. Gísli lést 29. júní 1990. Jarðarfarir Ragnheiöur Jónsdóttir, Aðalgötu 17, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavik- urkirkju föstud. 24.3. kl. 16.00. Sigurður Bachmann, Hrafnistu, Reykja- vík, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstud. 24.3. kl. 13.30. Öm Ingólfsson prentsmiöjustjóri, Merk- urgötu 9a, Hafnarfiröi, verðurjarösung- inn frá Víðistaðakirkju föstud. 24.3. kl. 15.00. Áslaugur Bjarnason rafvirkjameistari, Laugarnesvegi 94, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Laugarneskirkju föstud. 24.3. kL 13.30. Sigrún Ásbjörg Fannland, Faxabraut 13, Keflavík, veröur jarðsungin frá Keflavík- urkirkju föstud. 24.3. kl. 14.00. Útför Elisabetar Sólveigar Haröardóttur, Stórholti 28, Reykjavík, fer fram frá Háteigskirkju föstud. 24.3. kl. 13.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.