Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Blaðsíða 24
28
__________________________________FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
Tilvera I>V
Skrímslin eru um allt
Þorvaldur Friðriksson: „Þá er eitt skrímsii sem er tvífætt og kallast hafmaður en þaö er mjög algengt á Norðausturlandi og er mannýgt og mannæta.
Þorvaldur Friðriksson skrímslafræðingur heldur fyrirlestur á morgun:
Skrímslin eru í djúpinu
lí f iö
SNJÓBRETTAKVÖLD Bretta-
kvöld Sprite í Skálafelli verða á
hverju fostudagskvöldi fram að
páskum. Á brettakvöldum er
svæðið opnað sérstaklega klukk-
an átta og opið til miðnættis,
sem er mun lengri tími en venju-
lega. Dj Kári sér um að halda
uppi fjörinu í fjallinu og starfs-
menn Skálafells útbúa stökk-
palla í tilefni dagsins. Sérstakt
verð á lyftukortum á bretta-
kvöldum er 500 kr. en Teitur
Jónasson sér um sætaferðir frá
Reykjavik, Hafnarfirði, Garða-
bæ, Kópavogi og Mosfellsbæ.
Rútufargjaldið fram og til baka
er 700 kr.
POPP__________________________
■ StÐPEGISTONLEIKAR Hljóm
sveitin Snafu hitar upp fýrir helgina
á síödegistónleikum Hins hússins
sem byrja kl.17.
■ TÓLF TÓNAR Finnska hljómsveit-
in Aavikko heldur tónleika í geisla-
diskamekkunni 12 Tónum klukkan
17. Hljómsveitna skipa einn slag-
verksleikari og einn raforgelsleikari
og þeir leika raftónlist í gleðistíl.
■ TÓNLIST j GULA HÚSINU í Gula
húsinu á horni Lindargötu og Frakka-
stígs verður Turntable art kynnt kl.
21. Þaö eru myndlistarnemarnir
Bibbi, Darri Lorenzen og Ozy sem
sjá um kynninguna sem er á mörk-
um tónlistar og hljóðverks.
Klassík
■ KARLAKORINN HÉIIVHR Karla-
kórinnn Heimir í Skagafiröi er á tón-
leikaferðarlagi um Suðvesturland.
Kórinn er með tónleika í kvöld kl. 21
aö Laugalandi í Holtum. Söngskrá
kórsins er mjög fjölbreytt og má þar
nefna íslensk lög, rússnesk þjóðlög
og vínarvalsa.
■ SÖNGNEMAR Á AKUREYRI Kl.
20.30 heldur Söngdeild Tónlistar-
skólans á Akureyri tónleika í sal
Tónlistarskólans. Á þeim koma fram
nemendur á neðri stigum. Aðgangur
ókeypis.
Opnanir
■ BARNALIST A AKUREYRI Llsta-
safn Akureyrar opnar tvær nýjar sýn-
ingar í kvöld kl. 20. Sú fyrri heitir
Sjónauki II: Barnæska í íslenskri
myndlist. í Vestursal Listasafnsins
getur að líta afrakstur aflistrænni
vinnu barna sem fengu það verk-
efni, undir handleiðslu Rósu K. Júlí-
usdóttur við Myndlistarskólann á Ak-
ureyri að lýsa sjálfum sér í starfi og
leik.
■ HLÁTURGAS TIL ÍSAFJARÐAR
Farandsýningin Hláturgas verður
sett upp á tíu sjúkrahúsum víös veg-
ar um landið á árinu 2000 og verður
þriðji áfangi,sýningarinnar opnaður á
Sjúkrahúsi ísafjaröar kl. 15. Sýning-
in stendur til 22. apríl.
Fundir
■ BÁLPESSARI í LÍSTAHÁSKÓL-
ANUM John Baldessari heldur fýrir-
lestur í stofu 024 í Listaháskólan-
um, Laugarnesvegi, kiukkan 12.30.
Baldessari er bandariskur Ijósmynd-
ari og listamaður sem hefur veriö
einn fremsti fulltrúi hugmyndalistar-
innar í heiminum undanfarna þrjá
áratugi. Hann hóf feril sinn sem list-
málari en vinnur nú mikið með Ijós-
myndir og orðmyndanir af ýmsu tagi
í verkum sínum.
■ VÍSINPI. SKÁLDSKAPUR OG
SIPFERPI Georg Klein og Þorsteinn
Gylfason ræða vísindi, skáldskap og
siöferöi í stofu 101 í Odda. Sam-
ræðan hefst kl. 16 og fer hún fram
á ensku.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
„Ég boða enga trú en þau gögn sem
liggja fyrir benda til þess að þarna sé
um óþekktar skepnur að ræða frekar
en ímyndun," segir Þorvaldur Frið-
riksson fréttamaður sem flytur fyrir-
lestur á morgun í Fræðasetrinu í
Sandgerði um sjávar- og vatna-
skrímsli á íslandi.
Friðrik segir vísbendingar um til-
vist skrímsla hérlendis fjölmargar og
að ástæðulaust sé að vefengja frásagn-
ir fjölda sjónarvotta.
„Skrímslin hafa sést frá örófi alda
og sjást enn þá á íslandi og víðar um
heim,“ segir Þorvaldur. Hann hefur
tekið saman aOar tiltækar heimildir
um skrímsli og rætt við sjónarvotta
og skráð lýsingar þeirra og er með
bók í smíðum um þessa leyndu fánu
landsins.
Líf og fjör í Kleifarvatni
„Skrímslafrásagnir skipta mörgum
hundruðum en í upphafi 20. aldarinn-
ar voru þær afgreiddar af náttúruvís-
indunum sem hjátrú. Við nánari skoð-
un er miklu fleira sem bendir til þess
að fólk sjái raunverulega einhverjar
skepnur; skepnur sem skilja eftir sig
spor og skít en tengjast ekki hinu yf-
irskilvitlega," útskýrir Þorvaldur.
Þorvaldur mun fjalla sérstaklega
um skrímsli á Reykjanesi í fyrirlestri
sínum en hann segir mörg nýleg
dæmi um að menn hafi séð skrimsli
þar og nefnir dæmi: „I Kleifarvatni
eru skrímsli og um það eru gamlar
frásögur, meðal annars í Ferðabók
Skrímslin gengu á land
Dagblaðið sagði frá rjúpnaskyttunum
sem sögðust hafa séð skrímsli
ganga á land við Kleifarvatn fyrir
rúmum fimmtán árum. Dagbiaðið 2.
nóvember 1984.
Eggerts Ólafssonar og sjálfur hef ég
talað við marga sjónavotta að skrímsl-
um þar,“ segir hann.
Hlegið að rjúpnaskyttum
Einn harðan frostdag í lok október
1984 skýrðu tveir rjúpnaveiðimenn
frá þvf að þeir hefðu séð tvö óþekkt
dýr í Kleifarvatni.
„Fyrst héldu mennirnir að þetta
væru selir eða froskmenn af því að
það sást aðeins hausinn á dýrunum
en síðan brokkuðu þau á land. Þetta
reyndust vera ferfættar skepnur eins
og litlir hestar en lappastyttri, gætu
hafa verið einhvers konar nykrar.
Þeir skoðuðu dýrin nákvæmlega og
brunuðu síðan til Hafnarfjarðar að
sækja myndavél en dýrin voru horfm
þegar þeir sneru til baka. Hins vegar
skildu þau eftir spor og rjúpnaskytt-
urnar sögðu frá þessum viðburði,
meðal annars í Dagblaðinu. Þeir hafa
sagt mér að hefðu þeir vitað í hverju
þeir lentu þá hefðu þeir aldrei sagt frá
því sem þeir sáu því það var gert svo
mikið grín að þeim,“ segir Þorvald-
ur.
Mannætur ganga á land
Lagarfljótsorminn hafa allir heyrt
um en dýrin hafast víðar við og að
sögn Þorvaldar eru margir þekktir
skrímslastaðir á íslandi. „I Geirþjófs-
firði inn af Amarfirði, þar sem fjörö-
urinn er dýpstur, sjást skrímslin mjög
mikið og ganga reglulega á land í stór-
streymi í ágúst. Breiðafjörðurinn er
einnig mjög mikið skrímslasvæði og
þaðan eru sögur um skrímsli frá
hverri einustu eyju sem verið hefur í
byggð. Sjálfur hef ég heyrt sjónar-
vottalýsingar frá fólki sem er uppalið
þar,“ segir hann.
Skrímslafræðingurinn segir að til
séu að minnsta kosti þrjár meginteg-
undir sjávarskrímsla sem gangi á
land: „Algengasta skepnan er á stærð
við sauð en aðeins lengri og kallast
fjörulalli og sést bæði austan- og vest-
anlands. Önnur skepna, sem er miklu
stærri, eins og risaeðla, kallast skelja-
skrímsli. Þá er eitt sem er tvífætt og
kallast hafmaður en það er mjög al-
gengt á Norðausturlandi og er
mannýgt og mannæta. Til eru sagnir
af beitarhúsamönnum sem gættu
kinda við sjó og voru étnir en fundust
síðan aðeins af þeim beinin."
Skrímslaveiðar
í vötnum eru sömuleiðis þrjár
megintegundir. „1 fyrsta lagi eru
ormar, eins og Lagarfljótsormur-
inn, og þeir eru víða, til dæmis í
Skorradalsvatni. Sfðan er nykrar,
ferfættar skepnur sem líta út eins
og hestar, og í þriðja lagi eru
skepnur eins og eðlur,“ segir Þor-
valdur.
Þorvaldur segir engar ljósmynd-
ir vera til af fslenskum skrímslum
en segir að í tengslum við heimild-
armynd um skrímsli, sem unnið
hefur verið að á undanfömum
árum, hafi verið komið upp
myndavélum við Geirfuglafjörð í
Arnarfirði. Árangurinn hafi hins
vegar látið á sér standa en til dæm-
is hafi náðst bæði lifandi myndir
og ljósmyndir af skrímslum í vötn-
um Noregs.
„Ríkjandi skoðun I landinu er að
skrímsli séu ekki til og að það sé
dæmi um heimsku manna að telja
sig hafa séð skrímsli en að dæma
af því sem ég hef talað við fólk er
ekkert sem bendir til annars en að
fólk hafi séð þau. Og þar sem svo
mörgum ber saman og frásagnir
eru svo margar er út í hött fyrir þá
sem ekki hafa séð skrímslin að
rengja slíkt,“ segir Þorvaldur Frið-
riksson. -GAR
Litla-Hraun:
Klefarnir málaðir
- og fótboltamót á mánudaginn
Fangamir á Litla-Hrauni eru á
fleygiferð á milli klefa þessa dagana
og nætur vegna máiningarvinnu
sem þar fer fram. Verið er að mála
klefana sem eru 55,11 klefar á 5
göngum.
„Við fáum ekki að mála þetta
sjálflr þó við gjarnan vildum. Hér
eru tveir málarar, sem komu að
utan eins og við segjum, við vinnu
og hafa verið í viku eða svo,“ sagði
einn fanganna sem kann því ágæt-
lega að fá að sofa í nýjum klefa á
hverri nóttu. „Af öðrum tíðindum
héma má geta þess að á mánudag-
inn hefst Fangamótið í fótbolta inn-
anhúss en þar keppa gangar á móti
göngum, alls fimm lið, þrír í hverju
liði og tveir til vara. Hér eru hörku-
góðir knattspyrnumenn, þar af einn
landsliðsmaður - reyndar í hand-
bolta en það skiptir ekki öllu,“ sagði
fanginn sem hlakkar mikið til.
-EIR
mmmmmsm
Litla Hraun
Hörkugóðir knattspyrnumenn og einn landsliðsmaður.