Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Side 10
10 Útlönd FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 I>V Pútín brosir í kosningaferð um Moskvu Vladlmít Pútín, starfandi for- seti Rússlands, hafði æma ástæðu til að brosa og gera að gamni sínu þegar hann hitti kjósendur í höf- uðborginni Moskvu í gær, í fylgd með Júrí Lúzjkov borgarstjóra. Ekkert virðist geta komið í veg fyrir stórsigur hans í forsetakosn- ingunum á sunnudag og góðar fréttir af efnahagslífinu eru held- ur ekki til að spilla fyrir. Þegar ljósin slokknuðu óvænt inni í jarðlestarstöð sem Pútín skoðaði, sló gamli KGB-foringinn öllu upp í glens og grín. „Er þægilegt fyrir ykkur að starfa í myrkri?" spurði hann blaðamenn sem fylgdust með. „Það er ekkert mál fyrir okkur. Við erum vanir því að stunda okkar vinnu í myrkrinu.“ Gjaldeyrisforði Rússa hefur vaxið mjög síðustu vikur og gengi hlutabréfa hefur hækkað þar sem búist er við styrkri stjóm Pútíns. UPPBOÐ Framhald uppboös á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér seglr: Bleikargróf 15, Reykjavík, þingl. eig. Þorsteinn Sveinsson, gerðarbeiðendur Is- loft blikk- og stálsmiðja ehf., SAB-profiel B.V. og Sparisjóður Kópavogs, þriðjudag- inn 28. mars 2000 kl. 13.30. Espigerði 2, 7-8 herb. íbúð á 2. og 3. hæð merkt G og bflastæði nr. 14, Reykjavflc, þingl. eig. Hrund Hansdóttir og Öm Þór, gerðarbeiðendur Landsbanki Islands hf., lögfræðideild og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 28. mars 2000 kl. 14.00. Hamratún 4, Mosfellsbæ, þingl. eig. Sig- urjón Eyþór Einarsson, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður og Mosfellsbær, þriðju- daginn 28. mars 2000 kl. 11.00. Miðholt 5, 0102, l.h.f.m., Mosfellsbæ, þingl. eig. ÍAV hf., gerðarbeiðandi fbúða- lánasjóður, þriðjudaginn 28. mars 2000 kl. 11.30.____________________________ Miklabraut 70, 0301, 3 herb. og eldhús í AU-enda rishæðar, 1 herb. í NV-enda og 1 herb. í SV- enda rishæðar, Reykjavík, þingl. eig. Gistihúsasambandið í Reykja- vík ehf., gerðarbeiðandi Miklabraut 70, húsfélag, þriðjudaginn 28. mars 2000 kl. 15.00. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Jóhannes Páll harmar örlög gyðinga í helförinni: Páfinn baðst ekki afsökunar Bandaríski gyðingaleiðtoginn Marvin Hier gagnrýndi í gær Jó- hannes Pál páfa fyrir að biðjast ekki afsökunar á aðgerðaleysi Páfagarðs þegar helfór gyðinga stóð sem hæst í heimsstyrjöldinni síðari. Páfi lýsti í gær yfir hryggð róm- versk kaþólsku kirkjunnar yfir aldalöngu hatri kristinna manna í garð gyðinga þegar hann heim- sótti minnismerki um þá sex milljón gyðinga sem létust í út- rýmingarherferð nasista. Páfi gekk þó ekki svo langt að biðjast beint afsökunar á tómlæti kaþ- ólsku kirkjunnar gagnvart því- líkri mannvonsku, eins og margir gyðingar höfðu þó farið fram á. Margir viðstaddra, sumir hverj- ir æskuvinir páfa af gyðingaætt- um frá Póllandi, grétu við klukku- stundarlanga athöfnina við Yad Vashem-minnisvarðann um fóm- arlömb hinstu lausnar Hitler. „Sem biskup yfir Róm og eftir- maður Péturs postula get ég full- vissað gyðinga um að kaþólska kirkjan harmar mjög hatrið, Páfi við eldinn eilífa Jóhannes Páll páfi kastar spreki á eldinn eilífa viö minnismerki um fórnarlömb helfarar gyöinga. ofsóknirnar og kynþáttahatrið sem kristnir menn hafa auðsýnt gyðingum hvenær og hvar sem er. Við skulum reisa saman nýja framtíð þar sem kristnir hafa ekki lengur andúð á gyðingum og þar sem gyðingar hafa ekki leng- ur andúð á kristnum," sagði páfi. Sex gyðingar sem sluppu lif- andi frá helförinni, einn fyrir hverja milljón drepinna, og Jerzy Kluger, æskuvinur páfans, tóku á móti hans heilagleika. Páfi lagði hönd sína á axlir konu sem slapp lifandi úr hildarleiknum og tárin streymdu niður kinnar hennar. Jóhannes Páll mun í dag pré- dika yfir allt að eitt hundrað þús- und pílagrímum frá þeim stað þar sem talið er að Kristur hafi flutt fjallræðu sína og lýsti því yf- ir að sælir væru friðflytjendur. Messan í dag verður sú fiölmenn- asta sem páfi syngur í vikulangri pílagrimsferð sinni til Landsins helga. Frá ræðupallinum mun hann sjá yfir Galíleuvatn sem Kristur gekk á. 1!' t ■...» i(j^» . “4 ■pv jmM mmmi, . • . * 5; Í Í IbÆBm :ý;; Leifar fórnarlambs voöaverka rannsökuö Hópur indónesískra meinafræöinga rannsakar líkamsleifar manns sem taliö er aö skæruliöar aðskilnaöarsinna í hér- aöinu Aceh hafi myrt og fannst i fjöldagröf í þorpinu Puuk. Lögreglan segir aö tvö lík hafi þegar fundist en búist er viö aö fjörutíu lík til viöbótar sé aö finna þar. Aceh-héraö er á noröurodda Súmötru og íbúar þar eru múslímar. Neitar störfum fyrir MI6 Nelson Mandela, fyrrverandi forseti S-Afríku, vísar því harðlega á bug að hann hafi starfað fyrir bresku leyni- þjónustuna MI6. I bók bresks háskóla- kennara um MI6, sem brátt kemur út, er því haldið fram að Mandela hafi starfað fyrir leyniþjónustuna og heimsótt aðal- stöðvar hennar í London. Klámpólitíkus rekinn Sænski stjómmálamaðurinn Gör- an Eurenius var í gær rekinn úr Vinstriflokknum vegna leiks í klám- myndum. Sökk í Atlantshafi Kanadískar björgunarþyrlur höfðu snemma i morgun bjargað 12 manns af flutningaskipi sem sökk undan strönd Nova Scotia í gær. Skipið, sem er skráð í Panama, var á leið frá Spáni til New York með salt. Clinton skoðaði tígrisdýr Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, tók sér í gær hlé frá stjóm- málaumræðu á Indlandi og fór upp í sveit. Skoðaði forsetinn tígrisdýr og fræddist um átök til aðstoðar sveitakonum. Forsetann langaði á bak fils en var ráðlagt frá því. Landbúnaðarviðræður Viðræður Heimsviðskiptastofn- unarinnar um frjáls viðskipti með landbúnaðarafurðir hófust í gær. Stjómarerindrekar telja að viðræð- urnir geti varað í nokkur ár. í framboð gegn Trimbie Presturinn Martin Smyth, sem er andvígur friðarsamkomulagsins á N-frlandi og fyrrverandi formað- ur Óraníureglunnar, ákvað í gær að bjóða sig fram gegn David Trimble, formanni flokks sam- bandssinna, á miðstjómarfundi um helgina. Smyth segir Trimble láta of mikið undan i deilunni um af- vopnun IRA. Með heilaskaða ------------ Ómskoðun, sem framkvæmd var í þessari viku á heila m ... j Augustos Pin- ochets, fyrrverandi einræðisherra Chile, sýnir að hann er með heilaskaða. Er þetta haft eftir heimildarmanni nánum fiölskyldu Pinochets. Samkvæmt lögum í Chile slyppi Pinochet ekki við réttarhöld af heilsufarsástæðum. Hann kæmist þó hjá réttarhöldum væri hann úrskurðaður geðveikur eða elliær. Pakki af ryksugupokum 'í fylgir með í kaupbæti Vamperino SX 1.300 W Rmmfalt filterkerfi Tveir fylgihlutir Ð U R N I R B R Æ UMBOÐSMENN Lágmúla DVKSUGUR A TIILBOÐI Pakki af ryksugupokum 8 fylgir með í kaupbæti f Vamperino 920 • 1.300 W Lengjanlegt sogrör Fimmfalt filterkerfi Þrfr fylgihlutir Pakki af ryksugupokum fylgir með í kaupbæti Vampyr 5020 Ný, orkusparandi vél Sogkraftur 1.300 W Rmmfalt filterkerfi Tveir fylgihlutir Pakki af ryksugupokum . . fylgir með i kaupbæti éfjf CE-P0WER • Ný, kraftmikil ryksuga í sportlegri tösku Sogkraftur 1.600 W» Lengjanlegt sogrör Rmmfalt filterkerfi • Tveir fylgihlutir StíSw- • Sími 530 2800 www.ormsson.is Vesturland: Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgnmsson, Gmndarfirði. Ásubúð, Búðardal. Vestfirðin Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvlk. Straumur, ísafirði. Pokahornið, Tálknafirði. Norðurland: Radionaust, Akureyri. Kf. Steingrímsfjarðar; Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnafirðinga, Vopnafirði. Kf. Stöðfirðinga. Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn, KASK Djúpavogi. Suðuriand: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þoriákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Klakkur, Vik. Reykjanes: Ljósbogin Keflavik. Rafborg, Grindavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.