Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Síða 11
FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
11
Utlönd
DV
Þriggja milljarða króna sátt í Færeyjabankamálinu:
Banki keypti sér friö
Stærsti banki Danmerkur, Den
Danske Bank, keypti sér frið í Fær-
eyjabankamálinu svokallaða í gær
með því að fallast á að greiða
danska ríkinu sem svarar þremur
milijörðum íslenskra króna. Með
samkomulaginu var komið í veg
fyrir langvarandi réttarhöld.
Greiðslan er þó langt frá þeim
fimmtán milljörðum íslenskra
króna sem dönsk stjómvöld höfðu
farið fram á í skaðabætur. Mogens
Lykketoft, fjármálaráðherra Dan-
merkur, sagði í gær að stjórnvöld
hefðu í raun aldrei gert ráð fyrir að
ná fram svo háum skaðabótum.
„Við mátum það svo, að bæði
lagalega og pólitískt væri þetta nóg.
Þetta er það besta fyrir skattgreið-
endur,“ sagði Lykketoft.
Peter Straarup, yfirbankastjóri
Den Danske Bank, segir að með
samkomulaginu sé bankinn ekki
þar með að játa á sig einhverja
ábyrgð á því hvernig fór fyrir Fær-
eyjabanka. Straarup var helsti
samningamaður Den Danske Bank
þegar hann dró sig út úr dótturfyr-
irtækinu Færeyjabanka i marsmán-
uði 1993. Færeyska landstjórnin tók
við hlutabréfunum. Síðar kom í ljós
að staða bankans var mun verri en
talið hafði verið og þurfti færeyska
landstjómin að steypa sér í miklar
skuldir til að bjarga bankakerfi
landsins.
„Við viðurkennum að við erum
þreyttir. Ef málið ætti að fara fyrir
öll stig í dómskerfinu tæki það
fimm til sjö ár í viðbót. Fyrirtæki
eins og okkar hefur ekki gott af
því,“ sagði Straarup í gær.
Milljarðarnir þrír sem danski
bankinn féllst á að greiða kemur ná-
kvæmlega heim og saman við þá
upphæð sem sérstök rannsóknar-
nefnd komst að niðurstöðu um að
hann skuldaði færeysku landstjórn-
inni. í þeirri rannsókn var Den
Danske Bank gagnrýndur fyrir að
hafa verið einum of slyngur þegar
hann lét landstjómina fá hlutabréf
sín í Færeyjabanka.
Straarup vísar hins vegar á bug
að samkomulagið frá í gær tengist
rannsókninni á nokkurn hátt.
Fulltrúar bankans og stjómvalda
höfðu setið á leynilegum samninga-
fundum í nokkra mánuði áður en
sættir tókust.
Efnahagsnefnd danska þingsins
þarf að samþykkja samkomulagið
en Einingarlistinn ætlar að krefjast
umræðna um það.
Engin fjölskyldumynd
Margir leidtoga Evrópusambandsins neituöu aö vera meö á heföbundinni fjölskyldumynd vegna nærveru Wolfagns
Schussels, forsætisráöherra Austurríkis. Myndataka var þó samþykkt meö semingi meö því skilyröi
að myndin yrði kölluð hópmynd.
Neituðu aö láta
mynda sig meö
forsætisráöherra
Austurríkis
Leiötogafundur Evrópusam-
bandsins, sem haldinn er í Lissa-
bon í Portúgal, þótti verða hálf
hlægilegur í gær þegar margir
leiðtoganna neituðu að láta
mynda sig með Wolfgang Schús-
sel, forsætisráðherra Austurrík-
is. Bæði Jacques Chirac, forseti
Frakklands, og forsætisráðherra
Belgíu, Guy Verhofstadt, neituðu
að vera með á hinni hefðbundnu
„fjölskyldumynd" í tengslum við
fundinn vegna Schússels. Það var
þó að lokum tekin mynd af for-
sætisráðherrum, utanríkisráð-
herrum og forsetum Evrópusam-
bandslandanna 15. Nefna varð þó
myndina hópmynd. Það orð gátu
flestir sætt sig við.
Schússel reyndi á fundinum að
milda afstöðu ESB í garð Austur-
ríkis en án árangurs. ESB er hart
í afstöðu sinni vegna stjómar-
þátttöku Frelsisflokks Jörgs
Haiders.
Okkar landsfræga sprengivika hefst á morgun
Opið laugardag 10-18 og sunnudag 12-18.
Nike-skor
AIR TUNED MAX
st. 8-12.
Áður 15.690.
Nú 8.900
Gerry Micro
íþróttagalli
st. XS - XXL
Áður 5.990
Nú 3.990
Reebok
takkaskór
Laguna
st. 7-12
Áður 5.990
Nú 3.990
Reebok
hlaupaskór
Aztrek 99
st. 6,5-12,5.
Áður 7.990.
Nú 4.990
Speedo
sundfatnaður
50% afsláttur
Fila
nærföt
40% afsl
Mikið úrvai.
Nike-skor
AIR MAX herra
st. 10-12,5
Áður 15.690
Nú 8.900
íþróttatöskur
3 litir
Áður 2.490
Nú 995
Töfflur
st. 36-46
Áður 1.490
Nú 750
Nike-skor
AIR ONE EIGHTY
st. 8-11
Áður 9.490
Nú 5.990
SPAR L - SPORT
/TOPPMERKI /-. I ÁGMARKSVERÐI
Reebok-skór
Classic kven- og herra
Áður 3.990
Nú 990
▼
Nóatúni 17
Sími 511 4747
Reebok
körfuboltaskór
Cash DMX Lite
st. 6,5-11,5
Áður 9.990
Nú 5.990
Nike-skór
AIR MAX kvenn
st. 8.5-10,5
Áður 15.690
Nú 8.900
st. "38-42
Áður 2.490
NÚ500
uxur
Iþróttagalli
m/2 buxum
st. 4-14
Áður 4.990
Nú 3.490
Iþróttagalli
m/2 buxum
st. S-XXXL
Áður 5.990
Nú 3.990