Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Síða 20
24 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 Tilvera DV Cameron með græna fingur Cameron Diaz og kærastinn hennar, Jared Leto, eru bæði með græna fingur og keyptu á dögun- um garðverkfæri, áburð og plönt- ur. Cameron hefur verið með Jared í rúmt ár og er hæstánægð með hann. Hún segir hann ekki vera í neinum vandræðum með líf- ið og sjálfan sig eða hvemig fólki þyki hann vera. Hún þurfi ekki að hafa áhyggjur af því hvort hann sé dapur eða í slæmu skapi. Ekki búin að ákveða daginn Michael Douglas sagði í vikunni að hann og unnusta hans, Catherine Zeta-Jones, væru enn ekki búin að ákveða brúðkaups- daginn. Þau væru heldur ekki bú- in að ákveða hvar hjónavígslan verður. Douglas kvaðst þó viss um að þau myndu ganga í það heijaga á þessu ári. Catherine, sem er 25 árum yngri en Michael, er komin fimm mánuði á leið. Eastwood tekur völdin Clint Eastwood veit hvemig hann vill hafa hlutina. Hann var ♦ óánægður með markaössetningu á nýju myndinni sinni, Space Cowboys, og ákvað því að sjá um starfið sjálfur. Clint sakar Wam- ers-kvikmyndafyrirtækið um að hafa klúðrað markaðssetningu á myndinni True Crime. Það hafi verið mistök að láta fyrirtækið ráða öllu. Clint ætlar ekki að láta v endurtaka mistökin. Snjóvarnargarður fyrir 250 milljónir ofan við miðbæ Neskaupstaðar: Snjóléttur vetur flýtir framkvæmd DV. NESKAUPSTAÐ:____________________ Gríðarlegt mannvirki er að rísa ofan við miðbæ Neskaupstaðar - þver- garður til varnar snjóflóðum. Guð- mundur Sigfússon, bæjarverkfræðing- ur í Neskaupstað, segir að garðurinn muni veita mikið öryggi enda hafa vamargarðar þegar sannað gildi sitt, á Fiateyri i tvígang og á Siglufirði. Vamargarðurinn í Neskaupstað er sérstakur að því leyti að hann liggur þvert á flóðstefhu, hann er vamar- garður en ekki leiðigarður sem leiöir snjóflóðið á aðrar slóðir. Kostnaður verður um 250 milljónir króna og verkinu á að ljúka í lok september. Vinna við þvergarðinn sem rís 12-14 metra upp úr landslaginu hófst Fegurð í fjallinu Villa Dan - Vilborg Daníelsdóttir er falleg, skynsöm og vingiarnleg ung stúlka frá Akureyri. Hún stjórnar einni gröfunni sem umbyltir jarðveginum ofan við kaupstaöinn. Dínamítmaðurinn Halldór Óskarsson frá Ólafsfirði er sprengimeistari í fjallinu. Hann handfjatlar sprengiefnið af miktu öryggi og kunnáttu. Hér er hann meö sprengihnallinn, tilbúinn að sprengja. á síðasta sumri og hafa starfsmenn Arnarfells á Akureyri unnið sleitu- laust við verkið. Snjólétt hefur verið í Neskaupstaö í vetur - allt þar til síð- ustu dagana að snjó kyngir niður. Auk varnargarðsins verður komið fyrir snjósöfnunargirðingum eins og þekktar em í Ölpunum. Þær eru fram- leiddar í Frakklandi og hafa reynst vel víða um lönd, meðal annars hér á landi. Þorvaldur Konráðsson hefur stjóm- að verkinu fyrir Arnarfell. Hann seg- ir að verkið hafi gengið prýðilega og veturinn eystra verið hagstæður. „Ég get ekki sagt að þetta hafl verið erfitt, við höfum unnið upp á hvem einasta dag, það er helst undanfarið sem tíð hefur verið nokkuð rysjótt. Verkið potast áfram og við skilum á réttum tíma næsta haust,“ sagði Þorvaidur. Snjóeftirlitsmaður fylgist með snjó- söfnun í fjallinu en hún hefur verið lítil þennan veturinn. -RN DV-MYNDIR REYNIR NEIL. Búa til öryggi Fimm eða sex gröfur af þessu tagi hafa verið að vinna í hlíðinni fyrir ofan Neskaupstað síðan í fyrrasum- ar auk fjölmargra annarra stórvirkra tækja sem umbylta fjallinu í þágu ör- yggis þæjarþúa í Neskaupstað. Jagger getur ekki vænst fyrirgefningar Jerry: Sjö mánaða sam- band við Luciönu Mick Jagger á ekki von á góðu frá Jerry Hall. Vonir hans um fyrirgefn- ingu syndanna frá fyrrum eiginkonu sinni kunna að vera að engu orðnar eftir nýjustu uppljóstranir brasilísku fyrirsætunnar Luciönu Morad, bams- móður Jaggers. Þau gömnuðu sér ekki bara eina næturstund, heldur gott betur. „Ég þoli ekki þegar allir segja að þetta hafi bara verið einnar nætur gaman. Það er ekki satt. Ég átti í löngu ástarsambandi við hann,“ segir Luciana í viðtali við breska blaðið Ex- press. „Ég hitti hann í mars 1998 og ég átti barnið í maí 1999. Það þýðir að ég átti í ástarsambandi við hann í að minnsta kosti sjö mánuði." Ekki er meira en ein vika liðin síö- an dómstóll í New York úrskuröaði að Jagger skyldi greiða Luciönu sjö hundmð þúsund króna meðlag á mán- uði til að hún geti séö syninum sóma- Luclana Morad kjaftar frá Brasilísk barnsmóðir Micks Jaggers kemur kauða í meira klandur. samlega farborða. Annars játaði Jag- ger á sig krógann á síðasta ári, eftir að DNA-próf sýndu að hann væri fað- irinn. Hjónaband Jaggers og Jerry Hall var ógilt í fyrra. Fyrirsætan Jerry hafði þá sótt um skilnað frá bónda sínum vegna ástarævintýrsins með Luciönu. Mun það hafa verið komið sem fyllti mælinn. Rokkarinn aldni, Jagger, er jú orðinn 56 ára og hefur ekki verið við eina fjölina felldur i kvennamál- um í gegn um tíðina. Hann átti sex böm áður en Luciönusonur fæddist, þar af fjögur með Jerry. Svo er hann orðinn tvöfaldur afi. Heimildir herma að Jagger hringi allt að fjórum sinnum á dag í eiginkonuna fyrrverandi og sé langt kominn í að drekkja henni í blómum og alis lags gjöfum. Já, enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Leo gegn jarð- efnaeldsneyti Hjartaknúsarinn Leonardo DiCaprio hefur óbeint slegist í lið með okkur íslendingum og draum- um okkar um að verða framleiðend- ur hreinnar og náttúruvænnar orku á kaggana okkar. Leikarinn er nefnilega farinn að mæla gegn notk- un jarðefnaeldsneytis eins og olíu en með umhverfisvænni efnum. Kannski eins gott því Leo hefur mátt þola mikla gagnrýni umhverf- isvemdarsinna fyrir meint spjöll sem unnin voru á náttúru í Taílandi við tökur kvikmyndarjnnar Strand- arinnar sem nú er verið að sýna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.