Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Blaðsíða 26
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
«2°
Ættfræði i>V
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
95-áta_________________________
Stefanía Jóhannsdóttir,
Ægisgötu 12, Akureyri.
^SOira____________________________
Jón Bjarnason,
Kleppsvegi, Hrafnistu, Reykjavík.
99 áta_________________________
Kjartan Tómasson,
Skúlagötu 54, Reykjavík.
80 ára_________________________
Einar Guölaugsson,
Húnabraut 30, Blönduósi.
75 ára_________________________
Guðrún Ólafía Halldórsdóttir,
Munkaþverárstræti 24, Akureyri.
60 ára_________________________
- Hrönn Kjartansdóttir,
^ Síöumúla 21, Reykjavík.
Ómar Axelsson,
Furugrund 74, Kópavogi.
50 ára_________________________
Anna Guörún Hafsteinsdóttir,
Óöinsgötu 15, Reykjavík.
Áslaug Sigríöur Alfreösdóttir,
Miötúni 25, ísafiröi.
Haraldur Halldórsson,
Brávallagötu 18, Reykjavík.
Hiimar Ólafsson,
Hátúni lOa, Reykjavík.
Jón Axelsson,
Álftarima 1, Selfossi.
Ólafía Soffía Jóhannsdóttir,
Hraunbæ 162, Reykjavík.
Sverrir Friöriksson,
Faxatúni 10, Garðabæ.
^40ára____________________________
Doris Anita Adamsdóttir,
Kambi, Akureyri.
Elena Trufan,
Skeljatanga 15, Mosfellsbæ.
Guölaugur Adolfsson,
Móbergi 10, Hafnarfirði.
Gunnar Guömundsson,
Efstasundi 17, Reykjavlk.
Gunnlaugur Pálmason,
Bjarkargrund 17, Akranesi.
Magnús Rúnar Hafsteinsson,
Karlsrauðatorgi 20, Dalvík.
Mikael Hreiöarsson,
iklaugavegi 46, Reykjavík.
Frípóstur
veitir
þér aukið
frelsi!
Smáauglýsingar
DV
550 5000
Andlát
Ingibjörg Kristín Hjartardóttir Gröndal,
Rósarima 3, Reykjavík, lést á
Landspítalanum laugard. 18.3.
Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk
hinnar látnu.
Sigurjóna Slater (Jóna), Aberdeen,
Skotlandi, er látin.
Útförin hefur farið fram.
.-.Katrin Þorláksdóttlr talsímavöröur, Birki-
Jhlíö 6, Hafnarfiröi, lést á gjögæsludeild
Landspítalans, Fossvogi, sunnud. 26.3.
Guömundur Pétursson, Fálkakletti 14,
Borgarnesi, lést sunnud. 12.3. Jaröar-
förin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk
hins látna.
immmm
Ari Edwald
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Arl Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvlnnulífsins
Ari stendur nú í ströngu enda er yfirstandandi samningahrina frumraun hans
viö samningaboröiö fyrir hönd hinna nýju Samtaka atvinnulífsins.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, Funafold
40, Reykjavík, hefur mikið verið í
fréttum að undanfömu vegna samn-
ingsumleitana Samtaka atvinnulífs-
ins og VMSÍ.
Starfsferlll
Ari fæddist í Reykjavík. Hann
lauk stúdentsprófi frá MS 1983, emb-
ættisprófi í lögfræði frá HÍ 1988 og
MBA-prófi í rekstrarhagfræði frá
University of San Francisco, Mc-
Laren School of Business 1991.
Ari var fulltrúi á tekju- og laga-
skrifstofu fjármálaráðuneytisins
1988-89, aöstoðarmaður dóms- og
kirkjumálaráðherra 1991-95, aðstoð-
armaður sjávarútvegsráðherra
1995-99, ritstjóri Viðskiptablaðsins
á árinu 1999 en var ráðinn fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins frá sto&iun 1.10. 1999.
Ari sat í stjóm Tennis- og bad-
mintonfélgs Reykjavíkur 1983-90, í
stúdentaráði HÍ 1985-87 og varafor-
maður þess 1985-86, var ritstjóri
Stúdentablaðsins 1986-87, í stjóm
Heimdallar 1988-89, í stjóm SUS
1991-95, í miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins frá 1993, formaður Félags
sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holta-
hverfi og í stjórn fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík frá
1995, situr í auðlindanefnd frá 1998
og hefur átt sæti í ýmsum stjóm-
skipuðum nefndum, m.a. á vegum
dóms- og kirkjumálaráöuneytisins
og sjávarútvegsráðuneytisins.
Fjölskylda
Ari kvæntist 22.7. 1989 Þórunni
Pálsdóttur, f. 6.10. 1965, bygginga-
verkfræðingi og MBA í rekstarhag-
fræði, fjármálastjóra hjá ístaki hf.
Hún er dóttir Páls Sigurjónssonar, f.
5.8. 1931, verkfræðings og fram-
kvæmdastjóra ístaks hf., og k.h.,
Sigríðar Gísladóttur, f. 28.7. 1934,
húsmóður.
Böm Ara og Þórunnar eru Jó-
hanna, f. 23.9.1991; Páll, f. 21.1.1997.
Systkini Ara eru Tryggvi Edwald,
f. 29.3. 1959, stærðfræðingm- við
kjarnorkustofnun S.Þ. í Vfnarborg;
Sigrún Edwald, f. 8.6. 1962, lyfja-
fræðingur í Reykjavík; Þórdís, f. 6.5.
1966, nemi við KHÍ.
Foreldrar Ara eru Erling Edwald,
f. 16.1. 1921, lyfjafræðingur og lyf-
sölustjóri ríkisins, og Jóhanna
Hjálmfríður Jónsdóttir Edwald, f.
29.8. 1935, ritari.
Ætt
Erling er bróðir Jóns O. Edwald,
lyfjafræðings og þýðanda. Hálfsystir
þeirra er Matthildur, móðir Jóns E.
Ragnarssonar lögmanns og Kristins
arkitekts. Erling er sonur Jóns,
kaupmanns á Ísafírði, Samúelsson-
ar, b. í Miðdalsgröf, Guðmundsson-
ar, b. á Brekku í Gilsfirði, Guð-
mundssonar, b. þar, Jónssonar.
Móðir Guðmundar Guðmundssonar
var Guðleif Hallsdóttir, systir
Drauga-Halls. Móðir Samúels var
Þuríður Jónsdóttir, hreppstjóra á
Kleifum, bróður Ingibjargar, ömmu
Halldóm, langömmu Eyjólfs Sveins-
sonar, framkvæmdastjóra Frjálsrar
fjölmiðlunar, og Þórðar Friðjóns-
sonar, forstöðumanns Þjóðhags-
stofnunar. Jón var sonur Orms, ætt-
föður Ormsættar, Sigurðssonar.
Móðir Jóns kaupmanns var Þuríður
Ormsdóttir, b. í Miðdalsgröf, Odds-
sonar. Móðir Þuriðar var Elín Jóns-
dóttir, pr. í Tröllatungu, bróður Sæ-
mundar, langalangafa Magnúsar
borgarlögmanns, föður Óskars,
fyrrv. stjómarformanns Baugs. Jón
var sonur Bjöms, pr. í Tröllatungu,
bróður Jóns, langafa Jóns á Grund,
langafa Gunnlaugs Sævars, fram-
kvæmdastjóra Urðar Verðandi
Skuldar. Björn var sonur Hjáhnars,
ættföður Tröllatunguættar, Þor-
steinssonar.
Jóhanna er systir Guðjóns
flugstjóra og Pálínu, móður Viðars
Ágústssonar í Vara. Jóhanna er
dóttir Jóns Stefáns, lofskeytamanns
og verslunarmanns i Reykjavík,
Guðjónssonar, útvegsb. á Hesteyri,
Kristjánssonar. Móðir Jóns Stefáns
var Pálína Guðrún Pétursdóttir.
Móðir Jóhönnu var Helga,
hálfsystir Steindórs Sigurðssonar
rithöfundar. Helga var dóttir
Sigurðar, b. á Þverá og verkamanns
á Dalvík, Jónssonar, b. á Kamphóli,
Sigurðssonar. Móðir Sigurðar var
Sigríöur Jónsdóttir. Móðir Helgu
var Guðrún Rósa Amgrímsdóttir, b.
í Klaufabrekknakoti í Svarfaðardal,
Jónssonar, b. á Bakka, Jónssonar.
Móðir Arngríms var Helga
Brynjólfsdóttir. Móðir Guðrúnar
Rósu var Helga María Jónsdóttir,
læknis í Klaufabrekknakoti,
Halldórssonar.
Guðbjörg Einarsdóttir
dagmóðir og bókhaldari
Guðbjörg Einarsdóttir, dagmóðir
og bókhcddari, Engimýri 5, Garða-
bæ, verður fimmtug á morgun.
Starfsferill
Guðbjörg fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp við Skólavörðustíginn.
Hún var í Miðbæjarskólanum, i
Gagnfræðaskóla Austurbæjar og út-
skrifaðist frá VÍ 1969.
Á námsárunum vann Guðbjörg í
Verslun Jes Ziemsen. Hún starfaði
hjá Hagtryggingu hf. 1969-76 og aft-
ur 1983-85, starfaði hjá Heildverslun
Einars Ágústssonar 1977-81, var
dagmóðir 1982-83 og hefur verið
dagmóðir í Garðabæ frá 1993 auk
þess sem hún sinnir bókhaldsstörf-
rnn.
Guðbjörg starfar í Kvenfélaginu
Hrönn, sat í stjóm þess í átta ár, þar
af ritari í sex ár.
Fjölskylda
Guðbjörg giftist 12.8. 1972 Valdi-
mar G. Valdimarssyni, f. 12.8. 1944,
heildsala. Hann er sonur Valdimars
Guðjónssonar, f. 21.8. 1897, d. 11.1.
1944, sjómanns og Rósu K. Guð-
mundsdóttur, f. 20.5. 1902, d. 9.6.
1994, húsmóður.
Börn Guð-
bjargar og
Valdimars
eru Sigríður ____________________
(Sirrý), f. 23.2. 1975, sölu- og mark-
aðsfulltrúi; Hrönn Giiliam, f. 2.11.
1976, aðstoðarframkvæmdastjóri í
Virginíu í Bandaríkjunum, en mað-
ur hennar er Marty Lyn Gilliam
tölvufræðingur; Eva Rós, f. 28.8.
1981, nemi við Fjölbrautaskólann i
Garðabæ; Grétar María, f. 13.10.
1985, nemi; Valdimar Einar, f. 8.11.
1986, nemi.
Systkini Guðbjargar eru María Á.
Einardóttir, f. 16.3. 1942, bókari en
maður hennar er Trausti Ólafsson,
fyrrv. framkvæmdastjóri; Einar S.
Einarsson, f. 11.8. 1944;Ágúst Ein-
arsson, f. 26.5. 1959, prestur i Selja-
sókn, en kona hans er Þórdís Guð-
mundsdóttir læknir.
Foreldrar Guðbjargar voru Einar
Ágústsson, f. 3.5. 1917, d. 24.12. 1983,
heildsali í Reykjavík, og Sigríður
Einarsdóttir, f. 3.10.1921, d. 6.8.1990,
húsmóðir.
Guðbjörg tekur á móti gestum í
sal Húnvetningafélagsins, Skeifunni
11, Reykjavík, á afmælisdaginn 31.3.
kl. 20.00.
Sverrir Andrésson
fyrrv. bílasali á Selfossi
Sverrir Andrésson bílasali,
Bakkatjöm 3, Selfossi, er sjötugur í
dag.
Starfsferill
Sverrir ólst upp í Þrándarholti í
Gnúpverjahreppi. Hann lærði hús-
gagnasmíði á Laugarvatni og húsa-
smíði hjá trésmiðju KÁ á Selfossi.
Sverrir starfaði við trésmiðar hjá
KÁ til 1989, stofnaði Bílasölu Selfoss
1964 og starfrækti hana ásamt tré-
smiðinni til 1989. Þá sneri hann sér
alfarið að fyrirtækinu og starfrækti
það síðan ásamt Braga syni sínum.
Sverri seldi fyrirtækið sl. haust.
Sverrir er félagi í Karlakór Sel-
foss og hefur leikið með Lúðrasveit
Selfoss frá 1959. Hann á þrjá fom-
bíla og hefur gert upp tvo þeirra.
Fjölskylda
Sverrir kvæntist 25.2.1956 Lillian
Kristínu Söberg, f. 25.9. 1933, hús-
móður.
Uppeldissonur Sverris er Sigurð-
ur Reynir Óttarsson, f. 24.7. 1951,
býr á Selfossi, og á hann fimm böm.
Böm Liilian og Sverris: Þórir, f.
29.1. 1956, býr á Selfossi; Bragi, f.
1.11. 1958, bílasali á Selfossi, en
kona hans er
Svava Dav-
iðsdóttir og á
hann þrjú
böm; Linda, f. 4.8. 1960, húsfreyja í
Miðengi í Grímsnesi, gift Sigurjóni
Reynissyni og eiga þau þrjá syni;
Sævar, f. 10.6. 1963, trésmiður á Sel-
fossi, kvæntur Auði Svölu Heiðars-
dóttur og eiga þau eina dóttur; Inga
Dóra, f. 30.11. 1964, húsmóöir á Sel-
fossi, gift Guðmundi K. Óskarssyni
og eiga þau fjórar dætur.
Hálfsystkini: Steinþór, f. 23.7.
1932, látinn; Guðlaug, f. 20.10. 1933,
d. 2.4. 1947; Steinunn, f. 13.10. 1934,
sjúkraliði á Selfossi; Ester, f. 31.10.
1935, d. 23.1. 1986; Rannveig, f. 26.3.
1937, d. 23.3. 1975; Þrándur, f. 16.2.
1943, b. í Þrándarholti; Guðlaug, f.
19.12.1946, búsett í Hafnarfirði.
Foreldrar Sverris: Andrés Sig-
urðsson, f. 20.8. 1900, d. 19.12. 1952,
og Halldóra Hansdóttir, f. 14.8. 1905,
d. 22.7. 1997, húsfreyja í Þrándar-
holti. Fósturfaðir var Ingvar Jóns-
son, f. 8.9. 1898, d. 25.8. 1980, bóndi í
Þrándarholti.
Sverrir og Lillian taka á móti
gestum í Félagsheimilinu Þingborg,
austan Selfoss, þann 1.4. kl. 20.00.
Merkir Islendingar
Hrefna Tynes hét fullu nafni Þuríður
Hrefna Samúelsdóttir Tynes. Hún var
fædd 30. mars 1912, dóttir Samúels Jóns
Samúelssonar, vélstjóra að Tröð við
Súðavík, og k.h., Amalíu Rögnvaldsdótt-
ur húsfreyju. Hún lauk prófum frá
Unglingaskóla ísafjarðar 1928.
Hrefna fór ung til Siglufjarðar þar
sem hún kynntist manni sínum,
norskum byggingatæknifræðingi,
Sverre H. Tynes. Þau fluttu til Noregs
og voru þar búsett öll stríðsárin. í
stríðslok komu þau aftur til íslands en
Hrefna missti mann sinn 1962.
Hrefna er líklega þekktust íslenskra
kvenskáta. Hennar verður lengi minnst fyr-
ir mikið og óeigingjamt starf í þágu skáta-
Hrefna Tynes
hreyfingarinnar og íslenskrar æsku. Hún var
skátaforingi á Siglufirði 1929-39, í Noregi
til 1945 og í Reykjavík til 1956. Þá var hún
varaskátahöfðingi 1948-68, var forstöðu-
kona Kvenskátaskólans á Úlfljótsvatni
1947-56, starfaði með St. Georgsgildun-
um á íslandi, alþjóðlegum félagsskap
eldri skáta og var formaður landssam-
bandsins í sex ár. Hún var heiðursfé-
lagi skátafélaga á Siglufirði og í
Reykjavík og var sæmd æðstu heiðurs-
merkjum hreyfingarinnar.
Hrefna samdi og gaf út söngbók fyrir
ljósálfa. Á áttræðisafmæli hennar kom út
ritið Tendraöu Ijós sem hefur að geyma
ljóð og greinar eftir Hrefnu.
Hrefna Tynes lést 10.5.1994.
Jarðarfarir
Guðbrandur Jón Frimannsson, fyrrv.
slökkviliðsstjóri, Grenihlíð 28, Sauðár-
króki, veröurjarösunginn frá Sauðár-
krókskirkju laugard. 1.4. kl. 15.00.
Ámi Kristjánsson aðalræðismaöur,
Tjarnargötu lOb, Reykjavík, lést á
Landakotsspítala laugard. 25.3.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í
Reykjavík þriöjud. 4.4. kl. 13.30.
Laufey Jónsdóttir, Teigagerði 14,
Reykjavík, verður jarðsungin frá Bú-
staðakirkju föstud. 31.3. kl. 13.30.
Steinar Vilhjálmur Jóhannsson lést
mánud. 27.3. Hann veröur jarösunginn
frá Dómkirkjunni I Reykjavík föstud.
31.3. kl. 10.30.
Áslaug Sveinsdóttir, hjúkrunarheimilinu
Eir, áður í Stórageröi 34, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni
fimmtud. 30.3. kl. 13.30.