Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Blaðsíða 28
32 FTMMTUDAGUR 30. MARS 2000 Tilvera Geimkúrekar Eastwoods Á vordögum verður nýjasta kvik- mynd Clint Eastwoods Space Cow- boys frumsýnd í Bandaríkjunum. Geimkúrekar Eastwoods eru fyrr- um orrustuflugmenn í fremstu röð sem eru fengnir aftur til starfa hjá NASA þegar upp kemur mikil krísa í sambandi við gervitunglin sem ganga umhverfís jörðina. Þetta eru allt kappar sem fengu ekki náð hjá NASA á tímum geimferða vegna skoðana en voru og eru sérfræðing- ar i leiðum gervitungla. Nú fá þeir annað tækifæri, það er að segja ef þeir standast sama próf og ungir verðandi geimfarar þurfa að fara í gegnum. Eastwood leikur sjálfur einn hinna öldnu kappa, aðrir eru Tommy Lee Jones, Donald Suther- land og James Gamer. Þá leika einnig i myndinni James Cromwell, William Devane, Marcia Gay Harden og Loren Dean. Enn eitt eftir- sótt hlutverk til Julianne Moore Stutt er síðan ljóst var að Juli- anne Moore myndi hreppa hið eftir- sótta hlutverk sem Jodie Foster af- þakkaði í Hannibal, framhaldi Si- lence of The Lambs. Nú er Moore, sem er að verða ein eftirsóttasta leikkonan í Hollywood, búin að hreppa enn eitt hlutverk sem margar leikkonur gerðu sér vonir um að fá. Það er að leika flugkonuna frægu, Ameliu Earhart, sem á sínum tíma hvarf yfir Kyrrahafl á heimsflugi sínu. Myndin er byggð á ævisögu Earhart eftir Jane Mendelsohn sem skrifar hana í skáldsöguformi. Leik- stjóri verður Fred Schepisi sem einnig mun skrifa handritið. Áætlað er að tökur hefjist um leið og tökum á Hannibal lýkur. Útlagarnir Ein þeirra leikkvenna sem talin var líkleg til að fá hlutverk Jodie Foster í Hannibal og einnig hlut- verk Amaliu Earhart var Cate Blanchett. Hún verður að bíta í það súra en þarf samt ekki að kvarta yfír at- vinnuleysi; hún hefur þegar verið ráðinn til að leika á móti Bruce Willis og Billy Bob Thomton í Outlaws sem Barry Levinson mun leikstýra. Myndin er að sögn í líkingu við Butch Cassidy and the Sundance Kid, segir frá bankaræningjum sem berjast um hylli konu sem þeir hafa rænt í einu ráninu. Þá var Tony Scott búin að ráða Blanchett til að leika í Taking Lives en nú mim henni hafa verið frestað um óákveðinn tíma vegna fjárskorts. Áður en við sjáum Blanchett í Outlaws munum við sjá The Gift þar sem mótleikkona hennar er nýkrýndur óskarsverð- launahafi, HiÚary Swank. Þá leikur Blanchett í trílógíunni The Lords of the Rings, er i öllum hlutunum þremur. fm- David Mamet: Maður margra hæfileika Sagt hefur verið að David Mamet, leik- stjóri The Winslow Boy sem er leikskáld, kvikmyndaleikstjóri, skáldsagnahöfundur, ljóðskáld og greinahöfundur, sé einn áhrifamesti listamaður Bandaríkjanna. Mamet fæddist í Chicago 30. nóvember 1957. Faðir has var lögfræðingur fyrir verkalýðsfélög og móðir hans kennari. Hann nam við Goddard-háskólann í Vermont og kenndi síðar þar í leiklistar- deiid. Mamet flutti til Chicago og dvaldi þar í nokkur ár og þar fór hann fyrst að vekja athygli fyrir skrif sín og leikrit. Fyrstu leikrit hans voru Sexual Perversity In Chicago (kvikmyndað sem About Last Night) og American Buffalo. Bæði voru frumsýnd í New York árið 1976 og var ljóst að nýtt stórskáld á sviði leikritunar var komið fram og voru bæði leikritin verð- launuð i bak og fyrir. Næst lá fyrir honum að skrifa kvikmyndahandrit með fram öðr- um skrifum. Það var svo 1987 sem hann leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd, House of Games. Hér á eftir fer listi yfir þær kvik- myndir sem hann hefur leikstýrt og þær kvikmyndir sem hann hefur eingöngu skrifað handrit fyrir: Leikstjóri: House of Games (1987) Things Change (1988) Homicide (1991) Oleanna (1994) The Spanish Prisoner (1998) The Winslow Boy (1999) Handrit: The Postman Always Rings Twice (1981) The Verdict (1982) The Untouchables (1987) We're No Angels 11989) Hoffa (1992) The Edge (1997) Wag The Dog (1997) Winslow-strákurinn: Faðir til varnar syni kynnt er um tökur á Stab 3 fær ekk- ert stöðvaö hana í að vera á staðn- um og koma sjálfri sér í sviðsljósið. Dewey Riley (David Arquette). Dewey hefur eins og Sidney yftrgef- ið Woodsboro og vinnur nú sem tæknilegur ráðgjafi við Stab 3. Hann er einnig kominn í ástarsamband við leikkonuna Jennifer Jolie. Jennifer Jolie (Parker Posey). Þekkt leikkona sem leikur Gale Weathers í Stab 3. Hún tekur hlut- verkið full alvarlega þegar hroðaleg- ir atburöir fara að gerast. Roman Bridger (Scott Foley). Ekki hefur mikið farið fyrir nýj- ustu kvikmynd leikskáldsins og kvikmyndaleikstjórans Davids Mamets, The Winslow Boy. Hún var þó ein af betri myndum á Kvik- myndahátíðinni í Reykjavík í fyrra. Stjömubíó hefur nú ákveðið að taka hana til sýningar á almennum sýn- ingum og er fyrsta sýningin á morg- un. David Mamet leikstýrir og skrifar handritið eftir þekktu leikriti Ter- ence Rattigans. Leikritið var fyrst sett á svið 1946 og var gerð kvik- mynd eftir leikritinu fjórum árum síðar. Þegar leikritið var fyrst frum- sýnt í Bandaríkjunum var það kos- ið besta erlenda leikritið það árið. Leikritið hefur lifað góðu lífi frá því það var frumsýnt fyrir 42 árum og er eitt af þessum vinsælu klassísku stykkjum sem alltaf er hægt að treysta á. The Winslow Boy gerist árið 1912 og eru aðalsöguhetjur myndarinnar meðlimir Winslow-fjölskyldunnar sem þurfa að berjast fyrir rétti sín- um og gegn ágangi fjölmiöla þegar yngsti sonurinn er rekinn úr skóla þar sem grunur leikur á að hann hafi stolið peningum. David Mamet er bandarískur en hann hefur valið breska leikara í aðalhlutverkin í The Winslow Boy. Þar má meðal annars finna Rebeccu David Mamet Einn fjölhæfasti listamaöur sem Bandaríkjamenn eiga. Þriöja myndin í Scream-trílógíunni gerist í Hollywood meöan á tökum á Stab 3 standa yfir. David Arquette og Parker Posey Tæknilegur ráögjafi viö tökur á Stab 3 gerir sér dælt viö eina aöalleikkonuna í myndinni. Nigel Hawthorne og Guy Edwards Faöirinn er ekki ánægöur þegar sonur hans er rekinn úr skóla. Pidgeon, eiginkonu Mamets, sem leikur yfirleitt í öllum hans mynd- um og er skemmst að minnast leiks hennar í þeirri ágætu kvikmynd The Spanish Prisoner sem var sýnd í Háskólabíói síðastliðinn vetur. Hún er söngkona og tónskáld sem Mamet kynntist þegar hann var á ferð um England. í öðrum hlutverk- um eru Nigel Hawthome, Jeremy Northam, Gemma Jones, Matthew Pidgeon og Guy Edwards, sem leik- ur titilhlutverkið. Edwards var fjórtán ára þegar hann lék í Winslow Boys og hafði þá töluverða reynslu i leiklistinni. Meðal annars hafði hann leikið í nokkrum upp- færslum á leikritum Shakespeare í Þjóðleikhúsi Breta og kvikmyndun- um A Pride of Lions og Jackie. Þrið j a Öskrið úr felum. Gale Weathers (Courtney Cox Arquette). Gale er alltaf að verða þekkt- ari og þekktari sjón- varpskona og er með þeim hörðustu í bransanum og afsakar aldrei gerðir sínar. Þegar til- Þrítugur leikstjóri Stab 3, sem er að gera sína fyrstu kvikmynd, hafði áður unni við gerð tónlistarmynd- banda. Hann er sannfærður um að einhver keppinautur hans sé að reyna að eyðileggja fyrir honum. Mark Kincaide (Patrick Dempsey). Lögregluforingi sem fenginn er til að rannsaka at- burðina í kvikmyndaverinu. Honum kemur fátt á óvart þegar Hollywood á í hlut enda telur hann að í Hollywood búi eingöngu draugar. Tyson Fox (Deon Richmond). Einn aðalleik- ara í Stab 3 sem gerir sér engar ranghugmyndir um Hollywood en á sína drauma. Meðfram leikara- starfinu vinnur hann á myndbandaleigu. -HK Oskrað af miklum krafti Þá er lokakaflinn í Scream-trílóg- íunni kominn á hvita tjaldið og er frumsýning hér á landi á Scream 3 á morgun í Regnboganum, Laugar- ásbíói, Nýja bíói, Keflavik, og Borg- arbíói, Akureyri. Kevin Williamson, handritshöfundurinn sem skapaði persónumar og skrifaði handritið að fyrri myndunum tveimur, er fjarri góðu gamni í þetta skiptið og er handritið skrifað af Erhren Kru- ger, sem meðal annars skrifaði hið frábæra handrit af Arlington Road. Sem fyrr er hryllingsmeistarinn Wes Craven leikstjórinn. Scream 3 gerist í Hollywood þar sem saman eru komnir þeir fáu sem eftirlifandi eru úr fyrstu myndinni. Verið er að kvikmynda atburðina í Woodsboro og heitir myndin Stab 3: Retum to Woodsboro. Aðalpersón- urnar era: Sidney Prescott (Neve Camp- bell). Sidney hefur sest að í róleg- heita bæ í Norður Kaliforníu en þegar hroðalegir atburðir fara að gerast við tökur á Stab 3 kemur hún

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.