Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Blaðsíða 32
36 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 Tilvera DV lífift Djassað á Akureyri Jazzklúbbur Akureyrar stendur fyrir heitum fimmtudegi í Deigl- unni. Tríóið Guitar Islanico, skipað þeim Bimi Thoroddsen gítarleik- ara, Gunnari Þórðarsyni gítarleik- ara og Jóni Rafnssyni kontrabassa- leikara, mun spila. Tónleikarnir hefjast kl. 21.15. Fundir ■ Kristln truarstef í kvikmvndum Neskirkja heldur tvö fræðslukvöld um kristin trúarstef í kvikmyndum fimmtudagskvöldin 30. mars og 13. april kl. 20.30.1 fyrirlestrum veröur dregið fram hvernig kristin stef og vísanir í Biblíuna koma iöulega fram I kvikmyndum. Fjallað verður um nokkrar valdar kvikmyndir og gerð grein fyrir trúarstefjum sem f þeim birtast. í kvöld veröur athyglinni einkum beint að ýmsum kristnum stefjum, svo sem kærleikanum, fyrir- gefningunni og guðsrikinu en einnig aö tilvitnunum og vísunum I Biblíu- texta.Fræðsluna annast Gunnar J. Gunna/sson, lektor við Kennarahá- skóla íslands, og Bjarni Randver Sigurvinsson guðfræöingur. Krár ■ GEIR ÓLAFS ER ALLTAF AÐ Vin ur allra, sprellarinn Geir Olafs, mæt- ir með hljómsveit sinni, Furstunum, á Café Amsterdam f kvöld. Þar veröa þeir í léttri djasssveiflu og ætl- ast til þess aö áhorfendur fylgi með. Klassík ■ TONLEIKAR I ÞORLAKSKIRKJU Ásgerður Júníusdóttir mezzósópran heldur tónleika í Þorlákskirkju kl. 20.30. Undirleikari er Jónas Ingi- mundarson píanóleikari. Á efnis- skránni verða m.a. spænsk lög og mun léttleiki vera í fyrirrúmi. Að- göngumiðar við innganginn. Kabarett ■ SYNING FRA LAS VEGAS Hin vinsæla sýning Las Vegas Legends er komin til íslands. Hér syngja heimsins bestu eftirhermum lög frægra poppara svo vel að þér finnst að upprunalegi listamaðurinn sé á sviöinu. Sýnt kl. 20 í Bíóborg- inni. Miðaverð kr. 2500. ■ SJÁLFSTYRKUR OG BÆTT SAM- SKIPTI Umsjónarfélag einhverfra stendur fyrir fyrirlestri í húsi Þroska- hjálpar, Suðurtandsbraut 22, kl. 20.15. Fyrirlesari er Anna Valdi- marsdóttlr sálfræöingur og er yfir- skrift kvöldsins: Að sýna sjálfstyrk- Bætt samskipti. ■ FRÖNSK SKIPASM'IÐI Alliance Franpalse, Austurstræti 6, stendur fyrir fyrirlestri um áhrif víkinga á skipasmíði í Frakklandi. Fyrirlesari er Jean Renaud, prófessor við há- skólann í Caén og sérfræðingur í norrænum fræðum. Fyrirlesturinn hefst kl. 20. ■ KVEÐSKAPUR FYRIR KVÖLD- MAT Kl. 17 verður upplestur á veg- um Ritlistarhóps Kópavogs f Gerð- arsafni. Skáldkonan Dldda les úr verkum sínum. Aögangur er ókeypis og allir velkomnir. ■ LÍNUDANS Línudansáhugafólk, athugið! Það verður dansæfing í Uonssalnum, Kópavogi, og hefst klukkan 21. Elsa velur réttu tónlist- ina. ■ MENNINGARDAGSKRÁ HER- STOÐVARANDSTÆÐINGA Samtök herstöðvarandstæölnga stendur fyrir menningardagskrá aö Hallveigar- stöðum, Túngötu 14. Dagskrain hefst kl. 20 en húsið verður opnað kl. 19.30. M.a munu verða flutt Ijóð, ávörp og tónlistaratriði. Einnig veröur Qöldasöngur og léttar veiting- ar á vægu verði. Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is Árni ísleifs með dixielandhljómsveit sína á Hótel Borg: Byrja og enda í dixielandinu í kvöld verða tónleikar á Hótel Borg þar sem fram kemur níu manna dixielandhljómsveit Áma ísleifs. Ámi, sem er með þekktari tónlistarmönnum landsins, fór í pílagrímsfor til New Orleans, höf- uðborg dixielandsins fyrir tveimur árum og upplifði þar ekki aðeins að hlusta á þá bestu heldur taka einnig þátt í flutningi. í kjöl- farið stofnaði hann dix- ielandhljómsveit hér heima sem hefur víða kom- ið fram og vakið athygli og ánægju þeirra sem á hana hafa hlustað. 560 ára snillingar í stuttu spjalli sagði Árni hljómsveit sína flytja þekkta dixielands- lagara sem margir hverj- ir ættu Arni Isleifs í New Orleans Rölt um meö trompetinn ásamt ferðafélögum á heitri sumarnótti í höfuðborg diexielandsins. Hundgamall og skemmtir sér Þótt Árni hafi endurvakið dix- ielandstemninguna eftir að hann kom frá New Orleans þá er hann enginn nýliði í þessari tónlist: „Ég spilaði fyrst dixieland árið 1945 í Hljómsveit Bjöms R. Einarssonar og var það upphafíð að mínum spilaferli. Það er gott að byrja á dixielandinu og enda í því einnig. Tónlist þessi er klassísk og ávallt mikið spiluð og ekki síst á Norður- löndum," segir hann. Dixielandið er ekki eina tónlist- in sem Ámi fæst við þessa dagana: „Ég er að leika dinnermúsík á kvöldin en það er dixielandið sem er skemmtunin hjá mér í dag og það er gott og hollt að geta fengist við það sem mér flnnst skemmti- legast þegar maður er orðinn hundgamall og hættur að kenna og fá jafnvel kaup fyrir það.“ -HK Á traustum fótum „Þetta eru hin gömlu góðu iög sem allir kannast viö, “ segir Árni ísleifs um lagaval hljómsveitar sinnar. uppruna sinn að rekja til New Orleans: „Þetta eru hin gömlu góðu lög sem allir kannast við, When The Saints Come Marching In, Up a Lazy River og fleiri góð, lög sem við allir í hljóm- sveitinni þekkjum enda búnir að vera lengi í bransanum. Einhver taldi að við værum til saman rúmlega 560 ára. Þama er hver snillingurinn á fætur öðrum, Friðrik Theódórsson, sem syngur og blæs á básúnu, Guðmund- ur Nordal, Þórarinn Óskarsson, Sverrir Sveinsson og fleiri góðir, menn sem hafa spilaö lengi meðal annars í lúðrasveitum og danshljómsveitum. Veítingahús Hver stíllinn á fætur öörum Café Bleu felur í sér hvert rýmið á fætur öðm í U utan um nokkra skyndibitastaði á veitingasvæði Kringlunnar. Inngangurinn er um annan endann á u-inu, þar sem er kaffiborða- og tágastólasvæði með útsýni yfir neðri hæðina. í hinum endanum á u-inu er stórt og dimmt glerbúr, eins konar reyksalur með mörgum litlum borðum. MUli end- anna er reyklaust svæði, vinkillaga rangali með fostum básum. Hver stíllinn tekur við af öðrum, ef stíl skyldi kaila. Þjónusta er vakandi og jákvæð og bætir upp losarabrag hönnunarinnar. Vel er séð fyrir nógu vatni og meiru af góöu kryddbrauði, án þess að beð- ið sé um það. Með brauðinu fylgir ágætis kryddolía í stað smjörs, til heilsusamlegrar fyrirmyndar. Lúxus er lítiii, engir dúkar á borðum og Matreiðslan á Café Bleu var aldrei vond og stundum nokkuð góð. Þar er hver stillinn á fætur öðr- um eins og í innréttingunni. munnþurrkur úr pappír. Staðurinn er oft fullsetinn í hádeginu. Café Bleu er ódýrastur af hefð- bundnum matstöðum fuilrar þjón- ustu á þessu svæði. Þríréttað með kaffi á kvöldin kostar þar 3.200 krónur, 3.600 í Hard Rock og 4.100 í Eldhúsinu. í hádeginu er tilboð dagsins 790 krónur án súpu í Café Bleu, en 950 krónur með súpu í Hard Rock og Eldhúsinu. Matseðillinn er tilraun til að geðj- ast sem flestum, blendingur þekktra rétta úr ýmsum áttum, sitt lítið frá Indlandi og Kína, Thailandi og Jap- an, Rússlandi og Norður-Afriku, en mest frá Italíu og Frakklandi, svo og franskar og bökuð frá Ameríku og kremsúpa frá íslandi. Espresso-kaffi er ekta og danskt kaffi gott, en vond- ur er langi saltbrauðsstauturinn, er fylgir nánast öllum réttum sem ein- kennistákn staðarins. Tærar súpur dagsins voru ágæt- ar, mild gulrótarsúpa og hæfilega sterk tómat- og blaðlaukssúpa. Kremsúpa dagsins var blessunar- lega þunn sem slík, mild og notaleg tómatflskisúpa án sterka humar- skeljabragösins, sem víða er keyrt upp í veitingahúsum hér á landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.