Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 17 DV Kukl og stríðsmálning Það var danska bíómyndin Fimmti vetur dá- valdsins (Magnetiserens femte vinter) eftir Morten Henriksen sem varð hlutskörpust og fékk verðlaun dómnefndarinnar á norrænu kvikmyndahátíðinni i Rúðuborg sem lauk á sunnudaginn var. En dansk-færeyska myndin Bye Bye Blue Bird eftir Katrínu Óttarsdóttur fylgdi á hæla henni því hún hlaut bæði verðlaun áhorfenda og einnig hin svokölluðu verðlaun „ungra áhorfenda" sem menntaskólanemar borgarinnar veita. Tvær myndir sem vöktu at- hygli á hátíðinni og virtust sigurstranglegar fengu ekki verðlaun: Ungfrúin góða og Húsið eft- ir Guðnýju Halldórsdóttur, sem var fulltrúi ís- lands, og sænska myndin Fucking Ámál eftir Lukas Moodyson. Bye Bye Blue Bird gerist hins vegar á vorum tímum. Tvær ungar stúlkur sem hafa yflrgefið Færeyjar nokkrum árum áður og gerst Jjós- myndafyrirsætur í Babýlon við Eyrarsund koma aftur til heimabyggðar sinnar, undarlegar í hátt- um, stríðsmálaðar og skræpóttar í klæðaburði, talandi til skiptis dönsku, ensku, frönsku og fær- eysku. Þær ferðast um með atvinnulausum sjó- manni og í Ijós kemur smám saman að þær þurfa að gera upp sakimar við sitthvað í fortíð- inni. En sú spenna helst gegnum alla myndina meðan ekið er um fjöll og flóa og staldrað við meðal sértrúarfólks, manna sem eru valtir á fót- um í „bindindisbrúðkaupi" og annarra af svip- uðu tagi í smáþorpum Færeyja. Vel að verðlaunum kominn Verðlaunaveitingin var reyndar að þessu sinni hálfgert happdrætti því óvenjumargar mjög góöar kvikmyndir voru í samkeppninni og erfitt að gera upp á milli þeirra, eins og glögg- lega kom fram við lokaathöfn hátíðarinnar. En að öflum hinum myndunum ólöstuðum var Fimmti vetur dávaldsins vel að verðlaununum kominn. Hún er gerð eftir samnefndri skáldsögu sænska rithöfundarins Per Olov Enquist og ger- ist í Norður-Svíþjóð snemma á 19. öld. Segir þar frá því að þýskur kuklari kemur í smábæ og læknar menn með dáleiðslu, handayfirlagningu og „segulmagni", eins og hann segir sjáflúr. Hann nær furðulega góðum árangri og fær stuðning helsta læknis þorpsins enda læknar hann blinda dóttur hans en lendir upp á kant við annan lækni í bænum. Að lokum er hann „af- hjúpaður" og ber þá svo við að konu sem hann hafði læknað slær illilega niður aftur en hann er sjálfur hrakinn í burtu. Hér er fjaflað á athyglisverðan hátt um af- stöðu læknisfræði og kukls, og kemur skýrt fram að hún er ekki eins einföld og ýmsir kynnu að telja. Dávaldurinn læknar í raun og veru menn sem eru haldnir einhverri sálarlegri kröm og aðferðir hans virðast góðar og gfldar - á sinn hátt. Jafnvel mætti segja að sök hans sé fyrst og fremst sú að vera á undan sínum tíma. Atburð- ir eru svo rammaðir inn af fáflegu vetrarlands- lagi á norðurslóðum Svíþjóðar. Þær eru undarlegar í háttum, stríösmálaöar og skræpóttar í klæðaburöi, þær eru færeyskar og þær fengu tvenn verölaun í Rúöuborg. Dansao i Kaupmannahofn Ungfrúin góöa og Húsiö var lengi sigurstrangleg í Rúöuborg. Fýrlrbærið „forkönun" Finnsk kvikmynd eftir Olli Saarela sem nefn- ist Vegurinn til Rukajárve á frummálinu en er kölluð Launsátrið á erlendum tungum var einnig athyglisverð og fékk verðlaun fyrir besta leik í karlhlutverki. Hún gerist í flnnsk-rúss- neska stríðinu 1941 en þó að styijöld sé þar lýst með hrikalegum tilþrifum og gauragangi, eins og gerist og gengur í finnskum myndum, er einkum vikið á fínlegan hátt að því hvemig þeim sem hafa upplifað þessar ógnir muni ganga að laga sig aftur að lífinu þegar styrjöldinni er lokið. Tflgangur hátiðar af þessu tagi er fyrst og fremst sá að kynna mönnum framandi kvik- myndagerð og eftir þeirri aðsókn og þeim viðtök- um sem myndirnar fengu i Rúðuborg virðist það hafa tekist mjög vel, að minnsta kosti í Norm- andí. En hvað snertir dreifingu mynda í almenn- um kvikmyndahúsum í Frakklandi viröist róð- urinn þyngri. Kom OUi Saarela með skýringu á því í athyglisverðum umræðum eftir sýningu á Launsátrinu. Hann sagði að á kynningu myndar- innar í Bandaríkjunum hefðu innfæddir gagn- rýnendur sagt að framvindan í henni væri með aUt öðrum hætti en tíðkaðist þar í landi; hún væri aUt of „hæg“. Myndu engir Bandarikja- menn endast tU að horfa á slíkan samsetning. Þessi dómur virðist stafa af því að i myndinni er lengi vel verið að byggja upp spennu og fleira gefið í skyn en sýnt er. En slíkt viðhorf dreifist nú víðar. Eftir því sem forkönunin (eða amerík- aníseringin) eykst minnkar nefnUega skilning- urinn á þeim myndum sem fylgja ekki forskrift- um Kaliforníu, og svo virðist nú sem gagn- rýnendur á Signubökkum séu komnir langt á þessari braut. Því miður ráða þeir meiru um ferðina í Frakklandi en Rúðujarlar. Einar Már Jónsson, París Tónlist Bólfarir í Iðnó Tilraimaeldhúsið og Menningarborgin stóðu fyrir sérstæðmn tónleikum í Iðnó á þriðjudags- kvöldið. Tónleikamir voru hluti af röð sem nefnist Óvæntir bólfélagar, en TU- raunaeldhúsið er listahópur sem sérhæfir sig í því að koma saman í eina sæng listafólki úr ólíkum áttiun menningarlífsins. Á tónleikunum komu saman þeir Úlfur Ingi Haralds- son, tónskáld og kontrabassaleikari, Hilmar Jensson gítarleikari, Jóhann Jóhannsson raftónlistarmaður og Caput-hópurinn. Auk þess var tónskáldiö Hilmar Öm HUmars- son í hlutverki plötusnúðs og hitaði upp í upphafi með því að leika tónlist úr ýms- um áttum. Þar bar hæst þýsku költ- hljómsveitina Can sem skapar ávaUt súr- realíska, magíska stemningu og á sér dygga aðdáendur. Var Hilmar Öm hinn fag- mannlegasti í dj-hlutverkinu, því lagaval hans var aUtaf óvænt, en samt rökrétt á einhveiju óræðu plani. Sjálfir tónleikamir hófust á raftónverkinu Telefóníu, gagnvirkri tónsmíð þar sem áheyr- endur vom beönir um að hringja í GSM-núm- er og leggja inn skUaboð sem síðan yrði unnið úr í tónlistinni. Um nokkurskon- ar spuna var að ræða sem heppnaðist að mörgu leyti ágætlega, hann var aðaUega samfeUdur kliður þar sem hin fjölbreytilegustu hljóð skutu upp koUinum. En skUaboðin frá áheyrendum virtust ekki skUa sér neitt sérlega vel, a.m.k. heyrðust ekki dónalegar stunur í verkinu sem áheyrandi nokkur nálægt undirrituðum leyfði sér hringja inn. Kannski var mekanísk áferö tónsmíðarinnar bara of yfirgnæfandi tU að símtölin skUdust. Caput-hópurinn kom tU sögunnar eftir hlé og þá var flutt blanda raftUrauna og kammer- tónlistar sem bar nafnið „Veltipunktur" og var eftir Hilmar Jensson og Úlfar Inga Haraldsson. Caput-hópurinn sá um strengjaleikinn en einnig kom fram Jóhann J[óhannsson og báðir höfundamir. Tónverkið vár í þremur þáttum, spuni sem þó var rammaður inn því Caput- meðlimir vora með nótur fyrir framan sig. Fyrsti kaflinn var reyndar ekki alveg eins og hann átti að vera því drukkinn áheyrandi á fremsta bekk reif kjaft og vUdi stjóma hljóm- sveitinni. Það byijaði með framíköUum og hafa sumir áheyrendur sjálfsagt haldið að þetta væri hluti af gjömingnum. En þegar háreystin var komin yfir strikið og „stjómandinn" ijar- lægður með valdi, var auðvitað ljóst hvers kyns var. Þetta var samt ágæt skemmtun og kannski besti hluti verksins þvi hinir tveir þættimir voru óbærUega leiðinlegir. Legið var á sama tóninum meira og minna aUan tímann og þó kryddað væri með urgi og lágværam brestum var útkoman eins og hvert annað glamur. Voru þetta mikU vonbrigði þvi stemn- ingin fyrir hlé lofaði góðu. Má því segja að bólfarir Caput-hópsins og hinna hafi ekki ver- ið fuUnægjandi. Jónas Sen ___________Menning Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir Íl Eggert Þorleifsson í Fíaskó Fíaskó sýnir vel hvaö íslenskar bíó- myndir eru evrópskar í eöli sínu. Norrænar kvikmyndir Nú hafa franskir kvikmyndaáhuga- menn fengið að sjá ýmsar af þeim vönduðu og spennandi norrænu bíó- myndum sem gerðar voru í fyrra og hittifyrra en við höfum ekki fengið að sjá ennþá. Mætti verðlaunaveitingin í Rúðuborg sem sagt er frá hér á síð- unni verða tU þess að minna kvik- myndahúsaeigendur á þá frábæru bió- mynd Fimmti vetur dávaldsins. Aðai- hlutverkið, dávaldinn sjáflan, leikur Daninn Ole Lemmeke og er hættulega heUlandi í hlutverkinu - dáleiðir mann (konur?) upp úr sætinu sínu. Myndin gekk i marga mánuði í Kaup- mannahöfn i fyrra og var lengi á lista yfir mest sóttu kvikmyndir í borginni. Kvikmynd Susanne Biers, Den eneste ene, sem stundum hefur verið talað um á þessari síðu, hljóp með flest BodUverðlaunin dönsku fyrr í þessum mánuði og kom fáum á óvart. Myndin er einstaklega sjarmerandi og Danir hafa verðlaunað hana á besta veg með því að flykkjast á hana. Tæp miUjón hafði séð hana þegar hún fékk verðlaunin. FuU ástæða er tU að spyrja hvenær íslendingar fái tæki- færi tU að flykkjast á þessar tvær kvikmyndir - og jafnvel fleiri. Ekki á „norrænni kvikmyndahátíð" þar sem þær eru sýndar tvisvar eða þrisvar heldur bara á almennum sýningum. Við þurfum að halda við getu okkar tU að horfa á kvikmyndir annars staðar að en frá Bandaríkjunum því ennþá erum við sjálf í evrópsku fari í kvik- myndagerð, ekki þarf annað en benda á nýjustu íslensku myndina, Fíaskó, tU að sanna það. Svo er spuming hvort nýjustu ósk- arsverðlaunin sýni ekki að Banda- rikjamenn séu að haUast á þessa sveif- ina. Amerísk fegurð er ekki áberandi „forkönuð" mynd (svo notað sé nýyrði EMJ úr greininni hér á síðunni); eig- inlega minnir hún mest á ýmsar kvik- myndir Woody AUen sem aUtaf hefur verið heldur evrópskur fyrir þjóð sína. Sinfó til Færeyja Næstu tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands verða í Norðurlanda- húsinu í Þórshöfn í Færeyjum annað kvöld kl. 20. Stjórnandi í ferðinni er Bemharður Wilkinson, aðstoðar- hljómsveitarstjóri SÍ, en hann á sjálf- ur ættir sínar að rekja tU Færeyja. Á efnisskrá verða verkin: Forleikur að Galdra-Lofti eftir Jón Leifs, klarínettu- konsert eftir Mozart, þar sem heima- maðurinn Anna Klett leikur einleik, og Sinfónía no. 1, Oceanic Days eftir Sunleif Rasmunsen. Þetta er frum- flutningur á fyrstu sinfóníu sem Fær- eyingur semur. Tónleikamir verða endurteknir á laugardaginn 1. apríl kl. 16. Landsstjóm Færeyja, Noröurlanda- húsið og M-2000 styrkja ferðina. Þetta er fyrri tónleikaferð hljóm- sveitarinnar í ár. í október fer hún í sína stærstu ferð tU þessa um Banda- ríkin og Kanada. 30. mars Menningardagskrá á vegum Sam- taka herstöðvaandstæðinga verður haldin að HaUveigarstöðum, Túngötu 14, í kvöld og hefst kl. 20. Húsið verð- ur opnað kl. 19.30. Ólafur Þ. Jónsson og Stefán Pálsson, formaður miðnefndar SHA, flytja stutt ávörp og auk þeirra koma fram Jó- hanna ÞórhaUsdóttir (söngur), Aðal- heiður Þorsteinsdóttir (píanó) og Tómas R. Einarsson (bassi) úr Six- pack latino sem taka nokkur lög, Bald- vin HaUdórsson les ljóð úr baráttunni, Eyvindur P. Eiríksson les úr eigin verkum og Þorvaldur Öm Ámason stendur fyrir fjöldasöng.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.