Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 11 DV Útlönd HJÓLflBORÐ Tony Blair Breski forsætisráðherrann verður að ráða sjálfur fram úr því hvort hann tekur sér fæðingarorlof í vor. Enga aðstoð að fá hjá Bill Clinton BiU Clinton Bandaríkjaforseti kom sér hjá þvi að gefa vini sínum, Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, ráð um hvort hann eigi að taka fæðingarorlof þegar tjórða bam hans kemur í heiminn í maí- lok. Cherie Blair vili endilega að bóndi hennar taki sér frí frá erlin- um í ráðuneytinu. „Ég vil ekki blanda mér i það,“ sagði Clinton. Pabbi Elians reiðu- Þjáningin sameinir Gríski drengurinn Andreas Vassiliou, sem er 6 ára, tekur í hönd tyrkneskra barna í Nicosiu á Kýpur. Andreas er með hvítblæði og vegna sjúkdóms hans hafa óvenjuleg tengsl myndast milli Grikkja og Tyrkja á Kýpur þar sem þjóðirnar hafa búið aðskildar áratugum saman. Þúsundir Grikkja og Tyrkja hafa látið taka úr sér blóðsýni vegna leitar að heppilegum merggafa. Áformum um að einkavæða Sellafield slegið á frest: Forstjórarnir látnir svara fyrir vandræðaástandið Forstjórar British Nuclear Fuels Limited, fyrirtækisins sem rekur kjamorkuendurvinnslustöðina í Sellafield, eiga von á ágengum spumingum þegar þeir sitja fyrir svörum hjá viðskipta- og iðnaðar- nefnd breska þingsins. Nefndin hefur verið að skoða áform ríkisstjórnarinnar um að selja nærri helming BNFL en öllu slíku hefur nú verið slegið á frest í kjölfar harðorðrar skýrslu um brot á öryggisreglum í endurvinnslu- stöðinni. Ekki bætti svo úr skák að um daginn var greint frá því að skemmdarverk hefðu verið framin í stöðinni. Talið er að ekkert verði af einka- væðingaráformunum fyrr en í fyrsta lagi á árinu 2002. Sellafield Forstjórarnir verða teknir á beinið 1 breska þinginu í dag. Ráðamenn BNFL viðurkenndu í febrúar að öryggisskýrslur um kjamorkueldsneyti sem átti að fara til Japans hefðu verið falsaðar. í kjölfarið hættu Japanir viðskiptum við Sellafield, svo og Þjóðveijar, Svíar og síðast Svisslendingar. Bresk stjómvöld hafa gefið stjóm- endum Sellafield tvo mánuði til að koma öllu í lag, ella verði stöðinni lokað. Danir og írar hafa verið í farar- broddi þjóða sem berjast gegn starf- seminni i Seliafield. Umhverfisráð- herra Danmerkur og orkuráðherra írlands hittust í Dyflinni á dögun- um tii að stilla saman strengi sína í baráttunni. íslendingar hafa heldur ekki legið á liði sinu og hafa krafist lokunar Sellafield. hann marki í dag. Útlagar frá Kúbu hóta að stöðva umferð í Miami og um- kringja flugvöllinn. Þeir ætla einnig að umkringja húsið sem Eli- an býr í ásamt ættingjum sínum í Miami. í þessari viku sendi bandaríska sjónvarpsstöðin ABC út það fyrsta af nokkrum viðtölum við Elian og ættingjana í Miami. Samkvæmt því sem talsmenn stöðvarinnar segja var þó ákveðið að senda ekki kafla úr viðtalinu þar sem drengurinn lýsir því sjálfur yfir að hann vilji vera í Bandaríkjunum. Talið var að það myndi kynda enn frekar undir deilunni sem þegar er orðin stórpólitísk. búinn að sækja Juan-Miguel Gonzalez, faðir kúbska drengsins Elians, er reiðu- búinn að fara strax til Bandaríkj- anna til þess að krefjast forræðis yflr syni sínum. Þetta sagði Fidel Castro Kúbuforseti í ríkissjónvarp- inu á Kúbu í gærkvöld. Með í för Juans-Miguels verða fjölskyldu- meðlimir og skólafélagar og kenn- arar Elians litla, að því er Castro greindi frá. Auk þess fara læknar og sálfræðingar með til þess að búa Elian undir heimkomuna. Castro sagði sendinefndina reiðubúna að hugsa um Elian í Washington þar til gengið yrði frá máli hans. Ættingjar Elians í Miami á Flór- ída neita að láta hann af hendi. Þeir hafa þó sagt að þeir sleppi drengnum komi faðir hans sjálfur til Miami. Ísíðustu viku úrskurð- aði dómstóll gegn ættingjunum í Miami. Alríkisdómari úrskurðaði að faðirinn hefði forræði yfir Elian Gonzalez Castro Kúbuforseti segir föður Eli- ans, skólafélaga og kennara reiðu- búna til að sækja hann. drengnum. Síðastliðinn þriðjudag kröfðust innflytjendayfirvöld í Bandaríkjunum að móðurbróðir Elians í Miami, Lazaro Gonzalez, lofaði skriflega að láta drenginn af hendi hafnaði áfrýjunardómstóll beiðni ættingjanna í Miami um for- ræði yfir drengnum. Annars rynni dvalarleyfi Elians út í dag. Móður- bróðirinn neitaði að skrifa undir. í gærkvöld var svo ákveðið að dval- arleyfið gilti þar til á morgun. Ættingjamir í Miami óttast nú að yfirvöld taki Elian með valdi. En að því er borgarstjóri Miami, Joe Carollo, greindi frá í blaðavið- taii mun lögregla borgarinnar ekki aðstoða alríkisyfirvöld við að senda Elian til „helvítis Castros". Deilan um örlög Elians litla, sem bjargað var undan strönd Banda- ríkjanna fyrir fjórum mánuðum, er móðir hans og stjúpi drukknuðu á flótta frá Kúbu, kann að ná há- Mco/w-Plastbakkar ffyrir öll verkfæri Öruggur staður fyrir FflCOM verkfærin, og allt á sínum stað! Síml: 533 1334 fax, 55B 0499 ..þafl sem fagmaðurinn notar! Lærðu QjiO Nú er í fyrsta sinn boðið upp á námskeið á íslandi. Kennslan er sem hér segir: 300 tíma kennsla í hagnýtu fóta- svæðanuddi (fodzonetherapy), líffræði/lífeðlisfræði, óhefðbundnum lækningaaðferðum, nálastungum (akupunktur) á eyra og næringarfræði. Próf í sept. 2000. Námskeiðið fer fram í maí til september 2000. Það er mjög samþjappað og endar með svæðanuddi (zonetherapy) til atvinnumennsku og er viðurkennt td. af samtökum óhefðbundinna lækninga-aðferða í Danmörku og samtökum norskra svæðanuddara. Kennslan fer fram eftir viðurkenndum aðferðum danska svæðanuddarans Lilian Holst (stjórnanda skólans). Kennararnir hafa rúmlega 30 ára kennslureynslu og margra ára víðtæka reynslu af eigin svæðanuddstofun. Kennslan og kennslubækurnar eru á léttum Norðurlandamálum og kennarinn skilur íslensku ágætlega. Hringið eða skrifið eftir kennsluáætlun. Vestegnens Zonetherapeutskole, Danmark. Umboð fyrir Færeyjar, Grænland og ísland: Föryoya Naturmedisinska Klinikk, Sundsvegur 10, FO-100 Torshavn Sími + 298 32 03 95 kl. 08-10 og kl. 19-21. Fax allan sólarhringinn: +298 32 03 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.