Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2000, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2000
Fréttir
x>v
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vill vera borgarstjóri áfram eftir
næstu kosningar eða hverfa úr borgarpólitíkinni ella:
Mun verja Reykja-
víkurlistann með
kjafti og klóm
- Ný könnun Gallups mælir
fylgi D-lista 53% en fylgi R-listans
47%. Ertu sátt við þá útkomu?
„Já, við megum vel við una hjá
Reykjavíkurlistanum. Þetta eru
sömu tölur og við sáum viku fyrir
kosningar 1994 og 1998. Það hefur
alltaf verið þannig að fylkingarnar í
borginni eru álíka stórar og síðan er
það herslumunurinn sem ræður
hvorum megin við 50% mörkin
menn liggja."
- Þá hlýtur þú að vera himinlif-
andi með persónulega útkomu
þína - 58% eru ánægðir með störf
þín en aðeins 29% með störf Ingu
Jónu Þórðardóttur, oddvita Sjálf-
stæðisflokksins?
„Ég er mjög sátt og þakklát fyrir
það fylgi sem endurspeglast í þessu,
ekki síst fylgi stuðningsmanna
Reykjavikurlistans sem eru mjög
eindregnir í sínum stuðningi. Eins
þykir mér mjög vænt um það
hversu margir sjálfstæðismenn eru
ánægðir með mín störf.“
- Er þetta áfellisdómur yfir
Ingu Jónu?
„Inga Jóna hefur ekki haft tæki-
færi, sem Árni Sigfússon og Markús
Öm höfðu, til þess að leiða listann í
kosningabaráttu. Það skiptir miklu
máli fyrir forystumann að fá það
tækifæri til þess að sýna hvað í hon-
um býr. Hins vegar endurspeglast í
þessu hversu Sjálfstæðisflokkurinn í
borgarstjórn er ósamstæður og hef-
ur óskýra ímynd. Hann hefur marga
talsmenn og útkoma Ingu Jónu sýn-
ir kannski óánægju sjálfstæðis-
manna með hversu hópurinn er
tvístraöur."
- Ertu undrandi á örum leið-
togaskiptum hjá Sjálfstæðis-
flokknum?
„Sjálfstæðismenn þyrftu að fara
skoða eitthvað annað en horfa alltaf
á leiðtogana. Það er spurning
hversu marga menn þeir ætla að
taka af lífi og senda nýja inn á völl-
inn í staðinn og halda að það sé
alltaf lausnin á þeirri tilvistar-
kreppu sem flokkurinn er í hér í
borginni."
„Þingmenn eiga að gœta
hagsmuna sinna kjördæma
en það skiptir einfaldlega
engu máli hvort þingmenn
Reykjavíkur eru 18 eða 22
vegna þess að þeir eru telj-
andi á fingrum annarrar
handar sem beita sér fyrir
kjördœmið. “
- Ögmundur Jónasson segir R-
listann haldinn einkavæöingar-
áráttu og að einkavæðing SVR
muni verða banabiti listans.
„Það stendur ekki til að einka-
væða SVR. Það er bara rangt og
þetta er því misskilningur hjá Ög-
mundi. Einkavæðingin sem við höf-
um staðiö fyrir var að selja Pipu-
gerðina og hlut okkar í Skýrsluvél-
um rikisins og Reykjavíkurborgar.
Ég get ekki ímyndað mér að það sé
nokkur maður þeirrar skoðunar að
það hafi ekki verið rétt.“
- Af hverju er þessi kuldi á
milli ykkar Ögmundar?
„Ég get ekki svarað fyrir Ögmund
en það er enginn kuldi í mínum
huga í hans garð, nema síður sé.
Hins vegar hefur ögmundur tekið
að sér að gagnrýna Reykjavíkurlist-
ann og mér hefur stundum þótt
hann vera á dálítið persónulegum
nótum og stundum farið fram í því
af meira kappi en forsjá."
- Hefur þú áhyggjur af þvi að
Ögmundur sprengi Vinstri-græna
út í sérframboð í Reykjavík?
„Ég tel Ögmund ekki vera and-
stæðing Reykjavíkurlistans heldur
að hann líti á það sem sitt hlutverk
að halda okkur við efnið og vera
samviska Reykjavíkurlistans. Menn
geta sammælst um að komast að
skynsamlegri málamiðlun sín á
milli eða menn geta ákveðið að af-
henda andstæðingnum borgina. En
það er engin málefnaágreiningur
innan Reykjavíkurlistans og þess
vegna skil ég ekki hvers vegna slík-
ur klofningur ætti að verða til.“
- En er samt hætta á sérfram-
boði VG og væri það dauöadómur
yflr Reykjavíkurlistanum?
„Það er alltaf hætta á ágreiningi
og klofningi í pólitík en ég sé engin
teikn á lofti um slíkt. Ef þaö hins
vegar gerðist er ekki þar með sagt
að Reykjavíkurlistinn sé búinn að
vera því Samfylkingin og Framsókn-
armenn geta staðið áfram saman að
listanum. En þá yrði veruleg hætta
á því að sjálfstæðismenn fengju
meirihluta í borgarstjórn með
minnihluta atkvæða eins og var hér
oft á árum áður.“
- Þú varst ekki við setningu
stofnfundar Samfylkingarinnar.
Voru það pólitísk skilaboð þín
um að Reykjavíkurlistinn væri
eitt og Samfylkingin annað?
„Nei, það voru engin póltísk skila-
boð í þessu af minni hálfu heldur
var þetta einfaldlega vegna þess að
ég var á fundi hér í Ráðhúsinu þeg-
ar setningin var og átti ekki svo
auðvelt með að færa hann til. En ég
tók þátt í málstofu á stofnfundinum
og var með erindi þar. En hitt er
svo annað mál að mín áhersla er
hér í borginni og hjá Reykjavíkur-
listanum."
- Fagnaðir þú framboði svila
þíns, Össurar Skarphéðinssonar?
„Mér fannst það mjög gott. Össur
kom sterkur út úr þessum fundi og
hann hefur alla burði til að gera
þetta mjög vel.“
- Leitaði össur ráða hjá þér
áður en hann gaf kost á sér?
„Hann leitaði ekki sérstaklega
ráða hjá mér en ég vissi hvað hann
var að hugsa.“
- Er össur framtíðarleiðtogi?
„Já.“
- Þú ætlar þá ekki í landsmálin
til að taka forystu þar?
„Vika í pólitík er langur tími. Ég
veit ekkert hvar ég verða eftir nokk-
ur ár en ég ætla að vera hér núna
og ég ætla að bjóða mig fram hér í
borginni í næstu kosningum, þannig
að það sé alveg ljóst."
- Er ekki óhugsandi fyrir þig
að vera leiðtogi í stjómarand-
stöðu eftir átta ár í stól borgar-
stjóra?
„Ég held að það væri mjög
óheppilegt og geta skapað bæði óró-
leika og glundroða. Því tel ég rétt-
ast, ef sú staða kæmi upp, að fara
eitthvað annað, ekki mín vegna
heldur allra hluta vegna. Ég gæti
vel hugsað mér að fara út á hinn al-
menna vinnumarkað. Það er svo
margt sem ég gæti hugsað mér að
takast á við.“
- Hver verða áhrif nýrrar kjör-
dæmaskipunar fyrir borgarbúa?
„Skipanin er gerö undir formerkj-
um þess að verið sé að jafna vægi
atkvæða en þaö er skrýtið fyrir fólk
DV-MYND Pjetur
Nafn: Ingibjörg Sólrún Glsladóttir Staöa: Borgarstjóri
Efni: Framtíð Reykjavíkurlistans
í einu sveitarfélagi að vera í tveim-
ur kjördæmum. Borgaryflrvöld hafa
ekki haft sig mikið í frammi vegna
þessarar skiptingar því menn sögðu
að það yrði að fóma minni hags-
munum fyrir meiri; að það skipti
máli að jafna atkvæðavægið. Það
liggur í hlutarins eðli að þingmenn
eiga að gæta hagsmuna sinna kjör-
dæma en það skiptir einfaldlega
engu máli hvort þingmenn Reykja-
víkur eru 18 eða 22 vegna þess að
þeir eru teljandi á flngrum annarrar
handar sem beita sér fyrir kjördæm-
ið. Þeir líta á sig sem þingmenn alls
landsins á meðan hinir lita á sig
sem þingmenn síns svæðis. Ég hef
þá trú að þessi órökrétta kjördæma-
skipan verði ekki varanleg og rétt-
ast væri að menn stigu skrefið til
fulls og gerðu allt landið að einu
kjördæmi."
hii'fínT^—r
Garöar O. Ulfarson
og Reynir Traustason
blaöamenn
- Þú varðir Árna Þór Sigurðs-
son þegar hann gekk til liðs við
Vinstri-græna og sumir vildu að
hann léti af trúnaðarstörfum fyr-
ir R-listann.
„Það er annars vegar vegna þess
að ég læt ekki það sem er að gerast
í landsmálapólitíkinni hindra sam-
starfið í Reykjavíkurlistanum, ég
mun verja Reykjavíkurlistann með
kjafti og klóm gagnvart því, og hins
vegar vegna þess að Ámi er hæfur
einstaklingur og hefur unnið
Reykjavíkurlistanum vel og ég fóma
ekki slíku fólki.“
- Hvemig stendur fyrirhuguð
sala Reykjavíkur á hlut sínum í
Landsvirkjun?
„Við höfum óskað eftir því að fá
viðræðunefnd við ríkið og Akureyr-
arbæ um málið og hún mun verða
sett á laggimar. Við munum selja
hlutinn, hvemig sem það verður
gert, og ég vil sjá niðurstöðu i mál-
inu á þessu kjörtímabili. Hlutur
Reykjavíkur í eigin fé Landsvirkjun-
ar er 14 milljarðar króna og ég vil
ekki að við liggjum með alla þessa
fjármuni í fyrirtækinu þegar við
þurfum á þeim að halda til að fjár-
festa í annarri grunngerð og öðrum
atvinnutækifærum. Þar lít ég ekki
síst til ráðstefnu- og tónlistarhúss."
- Hvað um að einkavæða
Landsvirkjun?
„Það kemur alveg til greina. Það
er stefna ríkisstjómarinnar að inn-
leiða samkeppni á raforkumarkaði
og það verður ekki gert með Lands-
virkjun óbreytta. Þá væru menn
með eitt risastórt fyrirtæki og ein-
hver lítil mólikúl á sveimi í kring.
Ég tel eðlilegt að okkur sé frjálst að
selja okkar eignarhluta öðrum en
ríkinu, til dæmis til lífeyrissjóða og
einkaaðila. En ef við fömm I þessa
samkeppni er mögulegt að við leys-
um til okkar hluta af virkjununum,
til dæmis Sogsvirkjanimar."
- Hvernig er samstarf þitt við
Bjöm Bjarnason menntamálaráð-
herra?
„Ég hef átt ágætt samstarf við
Bjöm þrátt fyrir að við eldum oft
grátt silfur saman á pólitískum vett-
vangi. En ég hef veriö mjög ósátt við
þaö að eftir að við tókum við grunn-
skólunum frá ríkinu í miklu
fjársvelti og í mikilli uppsafnaðri
þörf fyrir meðal annars endurbætnr
og launahækkanir sitja þeir uppi í
ráðuneyti og semja endalaust nýjar
reglugerðir og námskrár sem setja
nýjar kvaðir á sveitarfélögin. Menn
fyllast aUt í einu miklum metnaði
um það sem grunnskólinn á að gera
þegar þeir bera ekki lengur ábyrgð á
honum, hvorki faglega né íjárhags-
lega.“
- Borgaryflrvöld hafa sagst
vilja hefta útbreiðslu nektarstaða
í miðborginni. Hvernig gengur
það?
„Við höfum einfaldlega ekki haft
tæki tU þess hingað tU en nú fyrir
þinglok vora samþykktar lagabreyt-
ingar sem gera okkur kleift að stýra
þessu gegnum skipulag. Ég vU sjá
þetta þannig að ef menn vUja endi-
lega fara á þessa staöi sé þeim það
heimUt en ég vU ekki að þessi staðir
setji mark sitt á ásýnd miðborgar-
innar.“
- Þú ætlar þá að setja klám-
staðina út úr miðborginni?
„Já.“
.......... Umsjön:
Gyifi Kristjánsson
netfang: sandkom@ff.ls
Aftur á pólinn
Pólfarinn Harald-
ur Öm Ólafsson
hefur afrekað það
sem sennUega er
einsdæmi, að ganga
tvívegis á norður-
pólinn með tveggja
daga mUlibUi. Strax
og hann náði þang-
að og hafði komið
sér fyrir í tjaldi sínu byrjaði hann
að reka í burtu af pólnum og er
m.a. haft fyrir satt að þegar hann
talaði við Sjónvarpið í beinni út-
sendingu „af pólnum" kvöldið fræga
hafi hann aUs ekki verið á pólnum.
Nokkur tími leið þar tU Sjónvarpið
komst að og á þeim tíma rak Harald
nokkur hundruð metra frá pólnum.
Svo tók kappinn á sig náðir og
hvUdi sig vel, en að því loknu tók
hann „hatt og staf‘ og gekk á pól-
inn að nýju. Þá hefði Sjónvarpið
geta hringt en gerði það ekki.
Þá eru knatt
spymuáhugamenn
hér á landi búnir
að sjá fyrri leik
Stoke og GUling-
ham í úrslita-
keppni 2. deUdar
ensku knattspym-
unnar í beinni út-
sendingu. Sjón-
varpsstöðin Sýn tók sig tU og sendi
tvo menn tU Englands og keypti
upptöku af leiknum fyrir sig prívat
og persónulega og sjónvarpaði heim
á klakann. Þykir mörgum þetta
með ólíkindum, að sjónvarpsstöð
uppi á íslandi sé að eltast við knatt-
spymuleik í þriðju bestu deUd í
ensku knattspymunni á sama tima
og mörgum íþróttagreinum hér
heima sé ekki sinnt sem vera ber.
Aðrir, og þeir eru flölmargir, segja
þetta endurspegla áhuga manna á
að fylgjast með því hvað töframað-
urinn Guðjón Þórðarson sé að
gera með íslendingaliðið Stoke, en
Guðjón er án efa vinsælasti og um-
talaðasti íþróttaþjálfari hér á landi
frá upphafi.
Póstflutningar
Svo ótrúlega
sem það hljóm-
ar, er það regl-
an að bréf sem
| sett er í póst á
Vopnafirði og
senda á tU Eg-
Usstaða sé þrjá
daga á leiðinni.
Það mun víst
vera svo að
bréf sem póstlagt er á Vopnafirði
og senda á tU EgUsstaða sé sent tU
Akureyrar, þaðan til Reykjavíkur
og svo austur aftur. Krakkar í 9.
bekk grunnskólans á Vopnafirði
„stungu upp í“ kerfi íslandspósts
með því að fá sér 14 klukkustunda
langan göngutúr með bréf sitt tU
EgUsstaða þar sem það var afhent
viðtakanda. Bréf tU EgUsstaða, sem
þau póstlögðu á fimmtudag í
heimabyggð sinni, mun hins vegar
vera væntanlegt tU EgUsstaða í dag
ef vel viðrar tU flugs.
Fær hann bækur?
Popparinn j-
heimsfrægi, Elton
John, sem vænt-
anlegur er tU
landsins á næst-
unni tU tónleika-
halds, mun hafa
lýst yfir áhuga á
að hitta Ólaf
Ragnar Gríms-
son forseta og
unnustu hans. Ef af verður, verður
án efa um mikinn fagnaöarfund að
ræða. Gárangamir, þessir sem
aUtaf eru með einhverjar leiðinda-
athugasemdir, era hins vegar famir
að ræða það að höfðingjarnir muni
skiptast á gjöfum, það er að segja ef
þeir hittast á annað borð. Líklegt er
talið að popparinn muni færa for-
setanum sólgleraugu og forsetinn
gefa popparanum íslendingasögum-
ar, það er að segja ef eitthvað er eft-
ir af upplaginu.