Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2000, Síða 12
12
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2000
DV
Utlönd
Tuttugu fórust í sprengingunum og eldinum í Hollandi:
Reynt að
kennsl á
SPENNANDI 0G ÖÐRUVÍSI
HÚSGAGNAÁKLÆÐI!
SÍMI555 3986 / 897 6666
HJALLAHRAUNI8
HAFNARFIRÐI
OPIÐ MÁNUDAGA -
FIMMTUDAGA13 -18
FÖSTUDAGA13 -16
www.romeo.is
Stórglæsileg netverslun!
Frábær verö!
Qtrúleg tilboö!
Hollensk yfirvöld reyndu í gær að
bera kennsl á kolbrunnin lík þeirra
sem fórust í sprengingu í flugelda-
skemmu í borginni Enschede síðdegis
á laugardag. Að minnsta kosti tuttugu
manns týndu lífi og 589 slösuðust.
Fimmtán lík hafa þegar verið
íjarlægð úr brunarústum húsa og
bíla sem enn rauk úr undir kvöld í
gær. Lögreglan gerir ráð fyrir að
tala látinna fari í tuttugu hið
minnsta.
„Því miður á enn eftir að bera
kennsl á 12 af 15 líkum og það segir
mikið um í hvemig ásigkomulagi
þau voru. Það gæti tekið nokkra
daga enn að bera kennsl á þau,“
sagði Erik Helder, einn aðstoðar-
borgarstjóra Enschede.
Um Qögur hundruð heimili
eyðilögðust í sprengingunni og eld-
hafmu sem á eftir fylgdi, þar á með-
al heimili að minnsta kosti einnar
íslenskrar fjölskyldu. Engir Islend-
ingar slösuðust í hamförunum.
Mörg hundruð heimili til viðbótar
urðu fyrir skemmdum. Björgunar-
sveitamenn hættu í gær að leita að
lifandi fólki í húsarústunum.
Mikil reiði var í íbúum Enschede
í gær sem fýsti að vita hvers vegna
borgaryfirvöld hefðu leyft flugelda-
skemmuna inni í miðju íbúðar-
hverfi.
bera
líkin
Embættismenn lögðu áherslu á
að vöruskemman sem sprakk hefði
uppfyllt allar kröfur um starfsleyfi.
Reyndar er ekki lengra síðan en á
miðvikudag í síðustu viku að allt
var þar i stakasta lagi þegar eftir-
litsmaður skoðaði aðstæður, að því
er talsmaður borgarinnar sagði
fréttamanni Reuters.
Beatrix Hollandsdrottning og
Wim Kok forsætisráðherra fóru til
Enschede í gær til að skoða
skemmdimar. Forsætisráðherrann
hét nánast ótakmarkaðri aðstoð
stjórnvalda við að endurbyggja
borgina þar sem búa 145 þúsund.
N]A 3
A K LÆ Ð 1
Barnastíqvél
st. 24-33
Litur: gulur m/rauðu
Opið kl. 12-18
smáskór
sérverslun með barnaskó,
í bláu húsi v/Fákafen.
---^---------
jjrval
- gott í hægindastólinn
Hörmungar í Enschede
íbúi hollensku borgarinnar Enschede þurrkar blóö af andliti sínu eftir sprengingu í flugeldaskemmu á laugardag. Tutt-
ugu manns aö minnsta kosti létust í sprengingunni og eldsvoöa sem fylgdi á eftir. Um fjögur hundruð hús eyöilögðust
og mörg hundruö uröu fyrir skemmdum. Nærri sex hundruö manns hlutu sár, sumir alvarleg.
ÁGÓÐUM PVOTTAVÉIJUM
crHeimilistœkjaverslun
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími: 533 2222
Veffang: www.pfaff.is
Enn allt á huldu
um framboðsmál
Rudys Giulianis
Blaðafulltrúi
Rudolphs Giulianis,
borgarstjóra í New
York, sagði í gær að
ekkert væri hæft í
fréttum um að
Giuliani hefði
ákveðið að gangast
undir tímafreka
meðferð við krabbameini í blöðru-
hálskirtli sem gæti svo orðið til þess
að hann yröi að hætta við að bjóða
sig fram gegn Hiiiary Clinton for-
setafrú til öldungadeildar Banda-
ríkjaþings.
í nýjasta tölublaði Newsweek er
haft eftir heimildarmönnum að
Giuliani hafl ákveðið að gangast
undir skurðaðgerð gegn krabba-
meininu og fara síðan í geislameð-
ferð á eftir. Af þeim sökum kynni
hann að vera fjarverandi í þrjá
mánuöi. Þaö gæti reynst dýrkeypt
því kosningamar eru í nóvember.
Heimildarmennimir sögðu
Newsweek að Giuliani hefði svo
gott sem ákveðið að hætta við fram-
boð fyrir tveimur vikum eftir að
hann frétti að hann væri með
krabbamein.
Sunny Mindel, fréttafulltrúi
Giulianis, sagði fréttir Newsweek
hins vegar alls ekki réttar. Engar
ákvaröanir hefðu verið teknar um
meðferð.
New York Times sagði í gær að
Giuliani kynni að tilkynna i dag
hvort hann ætlaði gegn Hillary
Clinton eður ei.
Færeyingar haldi ró sinni
Félag grind-
hvalsveiðimanna
og lögreglan í Fær-
eyjum segja mest
um vert að Færey-
ingar haldi ró
sinni, fari svo að
hvalfriðunarmaður-
inn Paul Watson
komi til eyjanna í sumar, og láti
ekki æsa sig til átaka. Þetta kemur
fram í færeyska blaöinu Sosialurin.
Svíar yfirheyra Olofsson
Sænskir lögregluþjónar koma til
Danmerkur á næstu dögum til að yf-
irheyra stórbófann Clark Olofsson
um morðið á Olof Palme forsætis-
ráðherra 1986. Olofsson, sem situr í
dönsku fangelsi, segir við Jótlands-
póstinn að hann hafi ekki komið ná-
lægt morðinu.
Átök á Vesturbakkanum
ísraelskir hermenn skutu á og
særðu að minnsta kosti tuttugu
Palestínumenn, þar á meðal barn, í
hörðum átökum á Vesturbakkanum
og Gaza í gær vegna palestinskra
fanga í ísraelskum fangelsum.
Obuchis minnst
Leiötogar þjóða heims minntust í
gær Keizos Obuchis, fyrrum forsæt-
isráðherra Japans, sem lést í gær,
62 ára að aldri. Obuchi lést af völd-
um heilablóðfalls sem hann fékk í
apríl. Hann hafði legið rænulaus
síðan. Obuchi hafði verið við völd í
20 mánuði þegar hann veiktist.
Færeyingar mótmæla ekki
Færeyska landstjómin hefur til-
kynnt dönskum yfirvöldum aö hún
setji sig ekki upp á móti því að átján
serbneskir flóttamenn, sem á að
vísa úr landi í Danmörku, komi til
Færeyja.
Boesak segist sakiaus
Suður-afríski
klerkurinn og bar-
áttumaður gegn
kynþáttaaðskilnaði
Allan Boesak sagði
í gær að hann væri
saklaus af þjófnaði
og fjársvikum.
Hann ætlar þó að
mæta í dag til afplánunar þriggja
ára fangelsisvistar sem hæstiréttur
dæmdi hann í fyrir helgi.
Pólland vill í ESB 2003
Aleksander Kwasniewski Pól-
landsforseti ítrekar í viðtali við
franska blaðið Le Figaro í dag að
Pólverjar séu reiðubúnir að ganga í
Evrópusambandið árið 2003.
Býli lans Smiths tekið
Landlausir blökkumenn í
Simbabwe hafa lagt undir sig naut-
gripabú Ians Smiths, síðasta hvíta
leiðtoga Rhodesíu.
Nyrup og Lone í siglingu
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, og Lone
Dybkjær, eiginkona hans, héldu upp
á brúökaupsafmæli sitt í gær með
siglingu í Kína.
Uppreisnarmenn reknir
Stjómarherinn í Sierra Leone
hrakti uppreisnarmenn burt úr
hemaðarlega mikilvægum bæ í
gær. Æðsti yfirmaður breska hers-
ins kom til þessarar fyrrum ný-
lendu Breta í gær tii að skoða sívax-
andi umsvif manna sinna þar.