Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2000, Blaðsíða 28
40
MÁNUDAGUR 15. MAl 2000
DV
Ættfræði
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára_______________________
Björg Sigurðardóttir,
Mýrargötu 18, Neskaupstað.
70ára________________________
Sigurveig Anna Stefánsdóttir,
Gunnólfsgötu 8, Ólafsfirði.
50 ára_______________________
Ingibjörg Jóna Gilsdóttir,
Sléttuvegi 11, Reykjavík.
Ingvar Ingólfsson,
Stórageröi 18, Hvolsvelli.
50 ára
Guðfinna Stefánsdóttir,
Grundargerði 5, Húsavík.
Guöfinnur D. Pálsson,
Aðalstræti 118a, Patreksfirði.
Hinrik Aðalsteinsson,
Mýrarseli 3, Reykjavfk.
ingunn Gísladóttir,
Grjótagötu 5; Reykjavfk.
Magnús H. Ólafsson,
Merkigerði 18, Akranesi.
40 ára__________________________
Ásta Þorleifsdóttir,
Efstalandi 22, Reykjavík.
Bragi B. Blummenstein,
Lokastíg 16, Reykjavík.
Eymundur Jóhann Þorsteinsson,
Suðurgötu 27, Keflavík.
Margrét Geirsdóttir,
Tangagötu 17, isafirði.
Sigríður Óladóttir,
Kópnesbraut 17, Hólmavfk.
Steinunn Eiriksdóttir,
Logafold 37, Reykjavík.
Þorvarður Árnason,
Austurgerði 7, Reykjavík.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Baldur Fredriksen
útfararstjóri
Utfararstofa Islands
Sufurhlíö35 • Sími 581 3300
allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is'
Smáauglýsingar
bflar og farartæki
markaðstorgið
atvinna
einkamál
550 5000
Guðmundur Indriðason
- garðyrkjubóndi og trésmiður í Lindarbrekku
Guömundur Indriðason, garö-
yrkjubóndi og trésmiður, Lindar-
brekku, Biskupstungum, er áttatíu
og fimm ára í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Ásatúni í
Hrunamannahreppi og ólst þar upp.
Hann nam í farskóla í þrjá vetur og
tók sveinspróf í trésmíði utan skóla
1972.
Guðmundur vann við bústörf hjá
Bjama, skólastjóra á Laugarvatni, í
tíu ár og einnig viö jarðvinnslu og
var einn af fyrstu jarðýtumönnum á
landinu.
Eftir að hann kvæntist bjuggu
þau hjónin eitt og hálft ár á Laugar-
vatni en haustið 1951 fluttu þau að
Laugarási í Biskupstungum og
stofnuðu þar nýbýlið Lindarbrekku.
Guðmundur vann við smiðar all-
lengi, þar á meðal við allar bygging-
ar í Skálholti. Seinni ár hefur hann
alfarið stundað garðyrkju.
Áhugamál Guðmundar eru hesta-
mennska, enda smíðaði hann skeif-
ur í tómstundum.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 24.6. 1950
Jónínu Sigríði Jónsdóttur, f. 6.2.
Halldór Hjartarson
tollvörður
Halldór Hjartarson, tollvörður
við Flugstöð Leifs Eirikssonar,
Klettahrauni 9, Hafnarflrði, er sjö-
tugur í dag.
Starfsferill
Halldór fæddist í Bæ við Stein-
grímsfjörð. Hann stundaði nám við
Bændaskólann á Hvanneyri, Lög-
regluskóla ríkisins og lauk skíða-
kennaraprófi.
Halldór var við jarðrækt og vega-
vinnu í Strandasýslu. Hann flutti til
Hafnarfjarðar 1953, stundaði sjó-
mennsku nokkrar vertíðir og starf-
aði einnig við skipa- og húsasmíðar.
Halldór var lögreglumaður
1966-72 og gerði út mb. Faxaborg
1973-76. Hann hefur starfað við toll-
gæslu og útlendingaeftirlit í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkur-
flugvelli sl. 22 ár.
Halldór var í keppnisliði skíða-
manna Strandamanna á árunum
1948-52. Þá var hann varaformaður
og stjómarmaður í Tollvarðafélagi
íslands um nokkurra ára skeið.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 28.12. 1956 Sig-
rúnu Sigurbjartsdóttur, f. 31.1. 1936,
Merkir íslendingar
Ingólfur Jónsson ráðherra fæddist í Bólu-
hjáleigu 15. maí 1909. Hann stundaði nám
við Hvítárbakkaskóla, vann m.a. við land-
búnað í Noregi, var á vertíðum í Vest-
mannaeyjum og var bamakennari.
Ingólfur varð framkvæmdastjóri
kaupfélagsins Þórs á Hellu 1935 og
gerði það að verslunarstórveldi. Hann
var þingmaður 1942-78, var viðskipta-
og iðnaöarráðherra í fjórða ráðuneyti
Ólafs Thors 1953-56 og landbúnaðar- og
samgönguráðherra í viðreisnarstjóm-
inni, samfellt, 1959-71.
Nánast eini ágreiningur viðreisnar-
stjómarinnar stóö miili Gylfa Þ. Gislason-
ar, sem vildi auka frjálsa samkeppni í land-
búnaði og grænmetisverslun, og Ingólfs, sem
gjaldkera við Tollgæsluna í Hafnar-
firði. Hún er dóttir Sigurbjarts Vil-
hjálmssonar húsasmíðameistara og
Þuríðar Magnúsdóttur.
Böm Halldórs og Sigrúnar eru
Þuríður Erla, f. 5.3. 1955, hár-
greiðslumeistari, gift dr. Kristni
Andersen rafmagnsverkfræðingi og
eru synir þeirra Halldór og Geir;
Sigurbjartur, f. 23.6. 1956, bygginga-
tæknifræðingur, var í sambúð með
Aðalheiði Jörgensen tækniteiknara
og eru böm þeirra Bent Bjami og
Sigrún Ásta; Jóhann, f. 1.8.1968, við-
skiptafræðingur, kvæntur Margréti
Lárusdóttur þjónustufulltrúa og er
dóttir þeirra Júlía Ósk.
Systkini Halldórs: Halldóra, í
Njarðvík; Sigrún, í Hafnarfirði;
Margrét, á Flateyri; Finnfríður, í
Keflavík; Lilja, í Garðabæ; Unnur, í
Hafnarfirði; Hermann, á Hólmavik;
Fjóla, i Kópavogi.
Foreldrar Halldórs: Hjörtur Sam-
sonarson, f. 15.4. 1893, d. 19.7. 1971,
sjómaður og bóndi, og Guðrún
Ottósdóttir, f. 14.12. 1899, d. 14.8.
1980, húsmóðir.
1927, hús-
freyju. Hún er
dóttir Jóns
Péturssonar,
pípulagninga-
manns í Nes-
kaupstað, og
k.h., Katrínar
Guðnadóttur
húsmóður.
Böm Guð-
mundar og
Jónínu eru
Indriði, f. 6.6.
1951, vélvirki í Reykjavík, kvæntur
Ester Gunnarsdóttur, þau eiga fjög-
ur böm; Jón Pétur, f. 15.6. 1955,
þungavinnuvélstjóri á Selfossi,
kvæntur Guörúnu H. Hjartardóttur
og eiga þau þrjú böm; Katrín Gróa,
f. 10.10. 1956, húsmóöir i Neskaup-
stað, gift Þórami Guðnasyni og eiga
þau þrjú böm; Grímur, f. 27.6. 1961,
b. í Ásatúni, kvæntur Guðbjörgu Jó-
hannsdóttur húsfreyju og eiga þau
þrjú böm, auk þess átti Grímur
dóttur fyrir hjónaband.
Systkini Guömundar: Guöný, f.
1902, lést þriggja vikna; Magnús, f.
22.9. 1903, d. 1994, lengi starfsmaður
slippsins í Keflavík, búsettur í
Keflavík; Sigríður, f. 13.8. 1905, d.
1973, saumakona, lengst af í Reykja-
vík; HaUgrímur, f. 7.9. 1907, d. 1982,
bóndi í Ásatúni; Óskar Guðlaugur,
f. 1.4.1910, d. 19.10.1995, bóndi i Ása-
túni; Guðný, f. 23.2.1912, vann lengi
í sælgætisgerðinni Víkingi, búsett í
Reykjavík; Helgi, f. 30.1. 1914, d.
1995, bóndi í Laugarási og síðar
verslunarmaöur í Málaranum í
Reykjavík; Laufey, f. 24.2. 1917, d.
9.6.1999, húsfreyja í Ásatúni; Jakob,
f. 11.11. 1918, d. 1991, lengst af kaup-
maður í Keflavík; Kristinn, f. 1.5.
1920, d. 1936.
Foreldrar Guðmundar eru Indriði
Grímsson, f. 17.5.1873,
d. 19.4. 1928, b. í Ása-
túni í Hrunamanna-
hreppi, og k.h., Gróa
Magnúsdóttir, f. 21.8.
1877, d. 6.6. 1939.
Ætt
Indriði var sonur
Grims, b. í Ásatúni,
Guðmundssonar, b. á
Kjaransstöðum í Bisk-
upstungum, Þor-
steinssonar, b. í Mið-
dalskoti, Vigfússonar, b. á Kiða-
bergi í Grímsnesi, Sigurðssonar, b. í
Ásgarði, Ásmundssonar.
Móðir Indriða var Helga Guð-
mundsdóttir, b. i Brekku, Guð-
mundssonar, og Helgu Jónsdóttur,
pr. á Klausturhólum. Móðir Helgu
Jónsdóttur var Ragnhildur Bjöms-
dóttir, pr. á Setbergi, Þorgrímsson-
ar, sýslumanns í Mýrasýslu. Móöir
Ragnhildar var Helga Brynjólfsdótt-
ir, sýslumanns í Hjálmholti, Sig-
urðssonar, sýslumanns, Sigurðsson-
ar.
Gróa var dóttir Magnúsar, b. í
Bryðjuholti, Jónssonar, b. í Efra-
Langholti, Magnússonar, b. í Efra-
Langholti, Eiríkssonar, b. i Bolholti
Jónssonar, b. í Bolholti, Þórarins-
sonar, b. í Næfurholti, Brynjólfsson-
ar.
Móðir Gróu var Guðný Einars-
dóttir, b. í Bryðjuholti í Hruna-
mannahreppi, Einarssonar, bróður
Sigurðar, b. í Gelti í Grímsnesi, ætt-
fööur Galtarættarinnar. Einar var
sonur Bjarna, b. á Sóleyjarbakka,
Jónssonar. Móðir Einars var Guð-
rún Kolbeinsdóttir, pr. og skálds í
Miðdal, Þorsteinssonar og Amdísar
Þorsteinsdóttur.
Þórður Jónsson
rafvirki í Hafnarfiröi
Þórður Jónsson raf-
virki, Úthlíð 2, Hafnar-
firði, er sextugur í dag.
Starfsferill
Þórður fæddist að
Hrútatungu í Hrútafirði
og ólst þar upp til sjö ára
aldurs. Þá flutti hann til
Hafnarfjarðar þar sem
hann ólst upp síðan.
Hann stundaði nám við Iðnskóla
Hafnarfjarðar 1960-64 og lauk
sveinsprófi í rafvirkjun 1964.
Þórður starfaði hjá Rafmótor hf. í
Hafnarfirði 1956, hjá íslenskum að-
alvertökum 1957, í Vélsmiðjunni
Kletti 1958, hjá Suðumesjaverktök-
um 1959, hjá Rafveitu Hafnarfjarðar
1960-62, hjá Jóni Bjamasyni verk-
taka 1962-67, hjá Ljósvirkja 1967-68
og hjá Bræðrunum Ormsson
1968-69. Þá hóf hann störf hjá ís-
lenska álfélaginu og hefur starfað
þar síðan.
Fjölskylda
Þórður kvæntist 29.8. 1964 Hall-
dóru Þorvarðardóttur, f. 13.10. 1942,
verkakonu og húsmóður. Hún er
Ingólfur Jónsson ráðherra
stóö vörð um tilskipunarverðmyndun, niður-
greiðslur og einokunarverslun í greininni.
Ingólfur var jarðbundinn stjómmála-
maður, virðulegur ásýndum og í háttum,
stilltur, orðvar og orðheldinn, vinafast-
ur og prýðilegur mannasættir þegar
sundurþykkja flokksforystu Sjálfstæö-
isflokksins var sem mest. Hann var
því að ýmsu leyti maklegur þess mikla
trausts sem hann ætíð naut á Suður-
landi og í Sjáifstæðisflokknum.
En það breytir ekki þeirri staðreynd
að hann barðist fyrir og viðhélt rangri
landbúnaðarstefnu sem er í andstöðu við
meginstefnu Sjálfstæðisflokkins og hefur
verið bændum, neytendum og skattgreiðend-
um dýrkeypt. Þar hafði Gylfi rétt fyrir sér.
dóttir Þorvarðar Júlíus-
sonar og Kristinar Jóns-
dóttur að Söndum i Mið-
firði.
Böm Þórðar og Hall-
dóm eru Sigrún Kristín
Þórðardóttir, f. 26.4. 1964,
bókari á Hvammstanga,
en maður hennar er
Sverrir Sigurðsson og
eiga þau tvö börn; Jón
Þórðarson, f. 13.5.1966, blikksmiður
í Kópavogi, en kona hans er Anna
Kristín Tryggvadóttur húsmóðir og
eiga þau tvö böm.
Systir Þórðar er Anna Dóra
Ágústsdóttir, f. 13.11. 1930, af-
greiðslumaður og húsmóðir, búsett
í Keflavík, gift Ingólfi Halldórssyni,
f. 8.1. 1930, kennara, og eiga þau
þrjú börn, Óskar Ingólfsson, tónlist-
armann í Reykjavík, Jónu Ingólfs-
dóttur, búsetta í Árhus í Danmörku,
og Ólöfu Maríu Ingólfsdóttur, bú-
setta í Árhus í Danmörku.
Foreldrar Þórðar: Jón Tómasson, f.
27.12. 1900, d. 22.1. 1982, bóndi í
Hrútatungu og síðar afgreiðslumaður
í Hafnarfirði, og Ósk Þórðardóttir, f.
11.7. 1901, d. 18.8. 1999, húsmóðir.
Andlát
Pétur Sigurösson, Skeggsstööum,
Svartárdal, Austur-Húnavatnssýslu, lést
fimmtudaginn 11.5.
Haraldur Hannesson, skipstjóri frá Fag-
urlyst, Vestmannaeyjum, andaðist á
Sjúkrahúsi Vestmannaeyja fimmtudag-
inn 11.5.
María Ástmarsdóttir, Einarsnesi 38,
lést á Sjúkrahúsi Selfoss miðvikudaginn
10.5.
Jaröarförin veröur auglýst síðar.
Kristófer Guðmundur Árnason, Hnit-
björgum, Blönduósi, andaöist á Heil-
brigðisstofnuninni á Blönduósi miöviku-
daginn 10.5.
Þórbjörg E. Magnúsdóttir Kvaran, frá
Sæbóli, Aöalvík, lést á heimili sínu, Aö-
alstræti 8, fimmtudaginn 11.5.
Jaröarförin veröur auglýst síöar.