Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2000, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2000, Blaðsíða 32
44 MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2000 DV * Tilvera Gestgjafinn mótar dagskrána Jórunn haföi samband við fjölda manns til að sjá um uppákomur og segir hún að öllum hafi þótt hug- myndin mjög góð og spennandi. „Það sem ég hafði í huga við valið var fólk sem mögulega langaði til að gera þetta og myndi enn fremur sjálft treysta sér til að koma fram. Það ræður sjálft hvað það gerir og ber ábyrgð á því.“ Hvert kvöld mót- ast þannig af gestgjafanum og þau mynda því ekki neina heild heldur verður um einstök atriði að ræða. Úlíhildur Dagsdóttir bókmennta- fræðingur og Gerður Kristný Guð- jónsdóttir blaðamaður munu ríða á vaðið og bjóða gestum til teiti í anda níunda áratugarins. Af öðrum sem munu koma fram í Klúbbi Listahá- tiðar má nefna Völu Þórsdóttur leikkonu, Önnu Pálínu Árnadóttur söngkonu, Berg Þór Ingólfsson leik- ara og Alexöndru Mir myndlistar- konu. Formlega hefst dagskrá Bíógagnrýni Jórunn Siguröardóttir Klúbbur Listahátíöar er fyrsta stóra verkefni hennar sem framkvæmdastjóri Kaffileikhússins. DV-MYND E.Ól klúbbsins á laugardaginn kemur en kvöldið áður verður honum að vísu þjófstartað með tónleikum hljóm- sveitarinnar Six Pack Latino. Hljómsveitin er skipuð valinkunnu tónlistarfólki og eins og nafnið gef- ur til kynna spilar hún einkum seið- andi tónlist af suður-amerískum uppruna. Klúbbur Listahátíðar hefur verið starfræktur í tengslum við Listahátíð Reykjavíkur í um 20 ár og hefur starf- semi hans farið fram víðs vegar um borgina á þeim tíma, meðal annars á Hressingarskálanum heitnum, á Sól- oni íslandus og nú síðast í Iðnó. Sjálf segir Jórunn að starf klúbbsins hafi verið afar öflugt í upphafi en heldur hafi dregið úr kraftinum á seinustu árum. „Þá var skemmtanalíf með öðr- um hætti en nú og þetta var því gríð- armikilvægur staður fyrir ungt fólk eins og margt sem varð til i kringum hann. Skemmtanalandslagið hefur breyst gífurlega siðan með öllum þess- um krám og knæpum. Það er engin nauðsyn á einum bar enn og þess vegna verður maður að skera sig úr,“ sagði Jórunn að lokum. -EÖJ Háskólabíó - Ghost Dog: The Way of the Samurai: ★ ★ ★ Hundur bítur frá sér Jim Jarmusch er einn dáðasti leikstjóri seinni tíma og hefur átt mikinn þátt í uppgangi óháðrar kvikmyndagerðar í Bandaríkjun- um. Sumir ganga svo langt að segja að Stranger than Paradise (1984) hafi í raun komið henni á skrið. Hvað sem því líður var myndin óvenju falleg og áhrifarik og inn- leiddi lykilþema mynda hans: Ferðalang í framandi umhverfi. Down by Law (1986), Mystery Train (1989) og Night on Earth (1991) unnu frekar úr því og staðfestu stöðu Jarmusch sem eins mikilvægasta leikstjóra samtimans. Dead Man (1995) gekk síðan mis- jafnlega í gagnrýnendur hér heima og mátti jafnvel lesa um hroka leik- stjórans gagnvart áhorfendum. Slíkt er að sjálfsögðu herfileg mistúlkun því í myndum Jarmusch er áhorf- andinn kominn í stöðu ferðalangs- ins sem skoðar á nýjum og breytt- um forsendum - en ekki leiddur áfram af formúlunni. Og að mörgu leyti er Ghost Dog þessu trú og leik- stjórinn gerir það að leik sínum að riðla lögmálum formúlumynda. Slíkir ærslaleikir eru þó svo sem ekkert einsdæmi nú um stundir og Forest Whitaker Leikur hundinn fantavei. svo sannarlega ekki það sem gefur myndum Jarmusch sérstöðu. Reyndar er það helsti galli myndar- innar að ekki tekst að sameina galsa myndarinnar og ljóðrænan þunga hennar - sem hafði ávallt yf- irhöndina í Dead Man. Þó ber að nefna að kannski er fyndnasta at- riðið á ferli Jarmusch í Ghost Dog og ekki hefði maður viljað missa af því. Tilfinning mín er þó sú að nið- urstaðan hefði orðið heilsteyptari og áhrifameiri að gamninu slepptu. Draugshundurinn er kannski ekki ferðamaður í hefðbundnum skilningi en sem breiður blökku- maður í samúræklæðum stingur hann í stúf við umhverfi sitt. Ólíkir menningarstraumar leika í kring- um hann og reyndar myndina alla. Þá er hann, líkt og Terry (Marlon Brando) í On the Waterfront (1954) í Björn Ægir Norðfjörö skrifar gagnrýni um kvikmyndir. togstreitu skyldu og tilfinninga en tengsl þessara persóna eru gefin sterklega til kynna. Öll samskipti Draugshundsins og mafiunnar, sem hann drepur fyrir, fara í gegnum dúfur. Sakir óvæntrar uppákomu slettist upp á vinskap þeirra og maf- ían ákveður að svæfa hundinn. Hann er þó ekki tilbúinn að leggja upp laupana og bítur rækilega frá sér. Það er Forest Whitaker sem leik- ur hundinn og gerir það fantavel. Fjölmargir aukaleikarar sýna góð tilþrif, ekki síst mafíósarnir í gam- ansenum. Kraftmikil blökku- mannatónlist hæfir myndinni furðuvel. Engu að síður er Ghost Dog lituð af annarlegum árekstri gamanmála og ljóðrænnar alvöru - sem dregur úr henni bæði stemn- ingu og þunga. Bjöm Æ. Norðfjörð Leikstjórl: Jim Jarmusch. Handrit: Jim Jarmusch. Aöalhlutverk: Forest Whitaker, John Tormey, Cliff Gorman og Henry Silva. ■ TONLEIKAR A .U GAUKIIR Það verða tónleikar aö hætti hússins á hinum síunga Gauki á Stöng. Alltaf gaman á Gauknum. ■ CAFÉ ROMANCE Sænski píanó- snillingurinn Raul Petterson hamrar á píanóið á Café Romance. '■* ■ LIÚFT Á NAUSTINU Söngkonan og píanóleikarinn Uz Gammon styttir gestum stundir í koníakstofu Naustsins. Klassík ■ VORTONLEIKAR I GARÐABÆ Nemendur í söngdeild Tónllstar- skóla Garöarbæjar halda sína ár- legu vortónleika kl. 18 á sal skól- ans. Tónleikar þessir eru öllum opn- ir á meðan húsrúm leyfir. Kabarett ■ Hveragerfti - blómstrandi bær J dag hefst verkefnið Blómstrandi bær sem er eitt af samvinnuverk- efnum Reykjavíkur - menningar- borgar og sveitarfélaga. Þungamiöja • dagskrárinnar verður hverasvæöiö þar sem gestum og gangandi verður boðið í vettvangsferöfr, auk þess aö bragða á framleiðslu svæðisins. Þá verður sagt frá líf- og jarðfræði þess. Síðustu forvöö ■ SYNING A Lin UNGS FOLKS A 20. OLD Mundu mig, ég man þig er heiti á áhugaverðri sýningu í Safna- húsi Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, sem lýkur í dag. Sýningin flallar um líf ungs fólks i Reykjavík á 20. öld. Sýningin er margþætt og sam- anstendur af áhugaveröum Ijós- myndum, skjölum og alls kyns öðr- um gögnum. Fjallað veröur um tengsl borgarinnar við börn á ýms- um tímum með tilliti til leikvalla, skóla, félagslífs, heilbrigöismála o.fl. Fundir ■ HASKOLAFYRIRLESTUR Julia Bolton Holloway, fyrrverandi pró- fessors í miöaldabókmenntum við háskólann í Boulder í Colorado í Bandarikjunum, flytur opinberan fyrir- lestur j boði heimspekideildar Há- skóla íslands í stofu 101 í Odda kl. 16.15. Fyrirlesturinn nefnist Dante Allghlerl, Pilgrimage and Jubllee og verður fluttur á ensku. Til skýringar verða sýndar litskyggnur. Bíó ■ FILMUNDUR SYNIR Kvikmynda klúbburinn Filmundur sýnir myndina Wonderland eftir Michael Wlnter- bottom í Háskólabíói kl. 22. Til aö skrá sig í klúbbinn þarf að mæta í afgreiðslu Háskólabíós og ná sér í félagsskírteini. Sjá nánar: Líflö eftir vinnu á Vísi.ls T Listahátíð í Reykjavík: Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík heldur sína árlegu vortónleika í kvöld. Tónieikamir verða með vorlegu yfirbragði og flutt verða bæði veraldleg og kirkjuleg verk eftir Hafliða Hallgrúnsson, Báru Grímsdóttur, Trond Kverno, Francis Poulenc og fleiri. Einsöngvari verður Elma Atladóttir og stjómandi Kári Þormar. Krár - vanafestan brotin upp Margt er á döfinni hjá Kaffileikhús- inu á næstu misserum, verið er að smíða nýjan veitingastað í húsinu og hafnar eru æfingar á sex einleikjum sem sýndir verða út árið. Einnig mun Klúbbur Listahátíðar hefja starfsemi sína í húsinu þann 20. maí og verður hann starfræktur hverja helgi meðan á hátíðinni stendur. Sem fyrr mun hann gegna hlutverki samkomu- og gerjunarstaðar fyrir listunnandi borg- arbúa. Jórunn Sigurðardóttir er nýr framkvæmdastjóri Kaffileikhússins og er rekstur Klúbbs Listahátíðar fyrsta stóra verkefnið hennar. Hún segir meginhugmyndina að baki klúbbnum í ár vera þá að fólk skemmti sér með svolítið öðrum hætti en alla jafna í Reykjavík: „Við fáum 10 listamenn og ekki-listamenn til að leika gestgjafa og koma með atriði sem það hefur sjálft viljað upplifa á skemmtistöðum." Vill klúbburinn með þessu reyna að hrista upp í þeirri vanafestu sem einkennir íslendinga og skemmtanalíf þeirra. „Við ætlum prófa að brjóta þetta upp. Fólk leitar yfirleitt ekki mikið út fyrir sinn hóp þegar það fer út en við ætlum að fá það til að gera það og mæta hingað." Árlegir vortónleikar í Fríkirkjunni Klúbbur Listahátíð- ar í Kaffileikhúsinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.