Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Blaðsíða 4
Fréttir FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 I>V Glæsiskip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson, komið til landsins: Allt annað en gamli Arni - segir skipstjóri. Gríðarlegir möguleikar, segir sjávarútvegsráðherra „Þetta skip ætti að auka getu okkar til rannsókna til muna og gæði upplýs- inganna sem við höfum til að byggja ákvarðanir á munu aukast með þessu. Einnig vonumst við til þess að við getum jafhvel fundið áður óþekkt mið og farið að nýta nýjar tegund- ir. Það eru gríðarlega miklir möguleikar í þessu fyrir okkur og okkar að nýta þá,“ sagði Ámi M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra við DV í gærdag þegar Ámi Friðriksson, nýtt skip Hafrannsókna- stofnunar, hafði verið formlega afhent. „Það er afskaplega gaman að taka þátt í þessu og þetta er ein af þessum stóru stundum hjá þjóðinni," sagði Árni. Formleg afhending skips- ins fór fram á Miðbakkan- um og mættu þingmenn og ráðherrar ásamt fjöl- mörgum öðrum til að sjá skipið sigla i höfn. Auk Áma tóku til máls þeir Jó- hann Sigurjónsson, for- stjóri Hafrannsóknastofn- unar, Kristján Ragnarsson fyrir hönd útvegsmanna, Helgi Laxdal Ragnarsson benti í ræðu sinni á að þetta skip yrði hvatning fyrir fleira ungt fólk að huga að námi í sjávarútvegsfræðum, að- staöan byði upp á það. Nefndi hann að LÍÚ veitti árlega styrk til framhalds- náms erlendis en í ár hefði engin umsókn borist enn. Guðmundur Bjarnason skipstjóri segir að skipið hafi reynst mjög vel á sigl- ingunni heim frá Chile sem tekið hefur um mánuð. „Þetta gekk allt mjög vel hjá okkur og skipið reynd- ist mjög vel, allt öðravísi en gamli Árni,“ sagði Guð- mundur sem var brúnn og sællegur eftir heimfórina. Auk Guðmundar voru 11 aðrir í áhöfn. „Þetta leggst mjög vel í mig og þá sem ég starfa fyrir. Útvegsmenn hafa sýnt þessu máli sérstakan skilning með því að bjóða fram að kosta skipið og með því erum við að und- irstrika mikilvægi þess starfs sem unnið er af Haf- rannsóknastofnuninni," sagði Kristján Ragnarsson, formað- ur LÍÚ. -hdm DV-MYND ÞOK Móttökuathöfn Yfirmenn Hafrannsóknarstofnunar afhentu Guömundi Bjarnasyni skipstjóra blóm vió komuna. Ármi M. Mathiesen sjávarútvegsráöherra sést í baksýn. fyrir hönd sjómanna, Árni Þór Sig- og Hjalti Guðmundsson dómkirkju- urðsson fyrir hönd hafnarstjórnar prestur flutti blessunarorð. Kristján Rannsóknarskip í fremstu röð DV-MYND S Glæsifley Árni Friórikssona RE-200 kom til hafnar í gær. Ámi Friðriksson RE-200, hið nýja rannsóknarskip Hafrannsóknastofn- unar, ber höfuð og herðar yfir önn- ur rannsóknarskip stofnunarinnar. í engu var sparað við smíði skipsins sem er ákaflega glæsilegt og á allan hátt búið^fullkomnasta búnaði sem völ er á. Hafrannsóknastofnun hef- ur rekið þrjú rannsóknarskip og tvö þeirra sem eru öflugri eru orðin um þrjátíu ára gömul. Er því óhætt að segja að tími hafi verið til kominn að stofnunin fengi í hendumar nýtt skip sem svarar kröfum tímans. Skipið var smíðað í Chile og var samið um hana í ársbyrjun 1998. Smíðasamningurinn hljóðaði upp á 1200 milljónir króna. Að auki bætt- ust við kaup á vélbúnaði og ýmsum sérbúnaði frá innlendum og erlend- um framleiðendum. Alls nemur byggingarkostnaður skipsins því um 1650 milljónum króna. Smíðin er að mestu fjármögnuð úr Þróunar- sjóði sjávarútvegsins, um 1350 millj- ónir, en einnig kemur fé úr bygging- arsjóði hafrannsóknaskips sem fékkst við sölu rs. Haíþórs á sínum tíma. Fullkomið skip Skipið er hannað sem rannsókn- arskip með fullkomnum togbúnaði. Það er með fjórum heilum þilfórum og útsýnistum er á brúarþaki. íbúð- ir yfirmanna og leiðangursstjóra ásamt tækjaklefa og sjúkraklefa eru á bakkaþilfari, togþilfarið er opiö stafna á milli og íjórum grandara- spilum er komið fyrir fremst. Á þriðja þilfari eru rannsóknarstofur og sameiginlegar vistarverur áhafn- ar, s.s. matsalur, setustofa og fund- arsalur. Aðgerðar- og vinnslurými er þar aftast. íbúðir áhafnar eru á öðru þilfari og þar aftast er 140 rúmmetra frysti- og kælilest. Neðst er vélarrúm. Skipið er tæplega 70 metra langt, 14 metra breitt og djúprista 6,5 metrar. Ganghraði er 16 sjómílur. íbúðir eru fyrir 33 manns. I skipinu er fellikjölur sem hægt er að slaka þrjá metra niður fyrir fastan kjöl skipsins. 1 fellikilinum er botn- stykki fyrir bergmálstæki sem not- uð eru við stofnmælingar á uppsjáv- arfiskum. Með tilkomu þess búnaðar verður unnt að bergmálsmæla stofna upp- sjávarfiska í mun verra veðri en hægt hefur verið til þessa. Skipið hefur mikinn togkraft sem gerir því kleift að athafna sig með veiðarfæri á djúpslóð og í þvi eru þrjár tog- vindur. Almenningi gefst kostur á að skoða skipið við Miðbakka í Reykja- víkurhöfn milli kl. 11 og 17 á laugar- dag. -gk Siggi Hall Sló í gegn meö sjón- varpsfisk í Hollywood. Sjónvarp: Siggi Hall á NBC Sigurður Hall mat- reiðslumeistari gerði þrjá matreiðsluþætti fyrir bandarísku sjónvarpsstöðina NBC í Los Angeles á dögunum þegar hann var þar staddur sem hluti af fylgdarliði Landafundanefndar og forseta Islands. „Þættimir voru tekn- ir upp á Hollywood Roosevelt-hótelinu á Hollywood Boulevard í Los Angeles og síðan sýndir í fréttatengdum há- degisþætti NBC-sjónvarpsstöðvar- innar undir yfirskriftinni: Now You’re Cooking. Þama matreiddi ég íslenskan fisk með tilþrifum og vöktum við báðir stormandi lukku,“ sagði Sigurður Hall, sem í kjölfarið hefur fengið fleiri tilboð um að koma fram í bandarísku sjónvarpi með matreiðslu sína: „Það hafa ákveðnir aðilar ytra haft samband við mig vegna þessa en ég hef ekki tekið afstöðu til tilboða þeirra," sagði Sigurður Hall í gær. -EIR Kærir húsráðanda Innbrotsþjófur sem gómaður var aðfaranótt sunnudags hefur kært húsráðanda íbúðarinnar sem hann braust inn í fyrir líkamsárás. Hús- ráðandi vaknaði þegar maðurinn braust inn í íbúðina, sem staðsett er í Reykjavik. Til handalögmála kom á milli þeirra og hlaut innbrotsþjóf- urinn minniháttar meiðsl í stimp- ingunum. Innbrotsþjófurinn sagðist hafa farið íbúðavillt. Bryggjuhverfi: Stolið frá smiðum Svo mikiö hefur verið um þjófhaði í Bryggju- hverfi við Gullinbrú að fyrirtækið sem á bygg- ingarrétt á svæðinu, Björgun hf„ hefur sett______________ vaktmann á svæðið. „Við eram búin að vera með vakt á svæðinu í viku og það hefur gefið góða raun,“ sagði Sigurður R. Helgason, framkvæmdastjóri Björg- unar. Ýmsir aðilar vinna að bygg- ingu íbúðarhúsa og atvinnuhúsa í hverfinu en Björgun hf. bjó svæðið til og skipulagði það. Talsvert er um að stolið sé af nýbyggingasvæðum í borginni og skemmdarverk unnin en Sigurður segir að Bryggjuhverfi hafi sem betur fer sloppið við skemmdar- verk. -SMK Mikiö um þjófnaði Vaktmaóur hefur veriö ráöinn í Bryggjuhverfinu viö Gullinbrú. Veðríö í kvöld Svalt í kvöld Norðvestan 10-15 m/s og él viö noröausturströndina síödegis, en annars norölæg átt, 5-10 m/s og víöa léttskýjað. Fremur svalt verður í veöri síödegis og í kvöld, en hlýnar nokkuö á morgun. Sólargangur og sjávarföll REYKJAVÍK AKUREYRI Sólariag í kvöld 22.52 22.39 Sólarupprás á morgun 03.56 03.18 Síödegisflóö 19.20 23.53 Árdegisfióö á morgun 07.34 12.07 Skýrfagar á voöurtákntim ■K.VIN0ÁTT lO^HITI ^ -10° ^VINDSTYRKUR i niotmm á sekúmlu "Nfrost HEIÐSKÍRT O IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ SKÝJAD 1? 0 ö RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0IV1A w == ÉUAGANGUR RRUIVIU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA Færd Hálendisvegir lokaðir Á Vestfjöröum eru hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði. Einnig eru hálkublettir á Holtavöröuheiði. Þæfingsfærö er um Lágheiði. Hálka og skafrenningur er víða á vegum um Norðausturland. Sandfok er á Mýrdalssandi. Nokkuö hvasst er í Hvalnesskriöum en taliö fært. Auglýst hefur veriö lokun á öllum hálendisvegum. - GREIDFÆRT HÁLT ■ÞUNGFÆRT 1 ÓFÆRT Bjartviðri víðast hvar Snýst í suöaustlæga átt á morgun, yfirleitt 5-8 m/s með lítilsháttar súld viö suðurströndina, en þurrt aö mestu fýrir norðan. Að ööru leyti veröur bjart veöur í flestum landshlutum og hiti á bilinu 5 til 10 stig. Sunnuda Vindur: 8-13 „ m Mánuda Hiti 5° til 10° Vindun 5-10 Hiti 7° til 10° Sunnan og suövestan 8-13 m/s og víöa skúrir eöa dálítll rlgnlng, en úrkomulítlö fyrir noröan. Hltl 5 tll 10 stlg. Gert er ráö fyrlr suölægrl eöa breytllegri átt, 5-10 m/s og víöa skúrum eöa rigningu. Áfram veröur fremur mllt. Þríöjud Vindun 5-10 ny'* Hiti 8° til 12' Spáö er áframhaldandl suölægri eöa breytilegrl átt, 5-10 m/s. Víöa má búast vlð skúrum eöa rigningu. Áfram fremur mllt í veöri. ii ; AKUREYRI léttskýjaö í BERGSTAÐIR hálfskýjaö 0 BOLUNGARVÍK rigning 1 EGILSSTAÐIR 1 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 4 KEFLAVÍK léttskýjaö 1 RAUFARHÖFN alskýjaö -1 REYKJAVÍK léttskýjaö 1 STÓRHÖFÐI rykmistur 1 BERGEN skúrir 8 HELSINKi skýjaö 16 KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 12 OSLÓ alskýjaö 11 STOKKHÓLMUR rigning 11 ÞÓRSHÖFN ishagl 3 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 13 ALGARVE þokumóöa 18 AMSTERDAM skýjað 11 BARCELONA súld 17 BERLÍN léttskýjaö 10 CHICAGO alskýjaö 8 DUBLIN skúrir 7 HALIFAX rigning 12 FRANKFURT skýjaö 9 HAMBORG rigning 9 JAN MAYEN súld 1 LONDON skýjaö 10 LÚXEMBORG 7 MALLORCA skýjaö 20 MONTREAL léttskýjaö 5 NARSSARSSUAQ skýjaö 3 NEWYORK þokumóða 17 ORLANDO þokumóöa 19 PARÍS hálfskýjaö 9 VÍN rigning 12 WASHINGTON alskýjað 23 WINNiPEG léttskýjaö 9 !d;/:4*l3»Ii|;«-'M»'la^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.