Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Blaðsíða 24
36. FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 Tilvera DV 1 i f 1 ft KK og Maggi í Salnum KK og Magnús Eiríks veröa í Salnum í Kópavogi frá kl. 20.30. Sérstakir gestir á tónleikunum verða þeir Þórir Baldursson pí- anóleikari og Ásgeir Óskarsson trommuleikari. Miðaverð er 1500 krónur og er miðasala Sal- arins frá kl. 13-19 alla virka daga og til kl. 20.30 tónleikadag- inn. Böll ■ BALL I KAFFILEIKHUSINU Lista- hátlö byrjar á morgun og alveg tilval- iö aö hita upp á balli í Kaffilelkhús- inu meö sveitinni Six pack latinos. ■ NÆTURGALINN KÓPAVOGI Hljómsveitin Hafrót kitlar fæturna á gestum Næturgalans í Kópavogi. Ath.: frítt inn til miðnættis í kvóld. ■ UPP MEÐ DANSSKÓNAi Gömlu og nýju dansarnir veröa spilaðir af Kristbjörgu Löve og Guömundi Hauki á dúndrandi balli í Ásgaröi Glæsibæ. Opiö frá 12-02. Miöaverö 1000 krónur. Klassík ■ SUIVIARTONLEIKAR I LANG- HOLTSKIRKJU Nú tekur aö hýrna um hólma og sker er yfirskrift sum- artónleika Léttsveitar Kvennakórs Reykjavíkur sem haldnir veröa í Langholtskirkju kl. 20. Stjórnandi kórsins er Jóhanna Þórhallsdóttir. ■ KARLAR AF KJALARNESI Vor tónleikar Karlakórs Kjalnesinga veröa í Ými, Skógarhlíð, kl. 21. ■ ÓPERUGALAKVÖLD í FREY- VANGI Operudeild Tónlistarskólans á Akureyrl heldur vortónleika í Frey- vangi kl. 20.30. Kabarett ■ FEGURÐARDROTTNING IS- LANPS 24 feguröardísir af öllu land- inu keppa,til urslita í Feguröar- drottning íslands 2000 á Broad- way. Fyrir utan þaö að stúlkurnar sprangi um sviöiö eru einnig fjöl- breytt skemmtiatriöi í boöi, m.a. Stefán Hilmarsson, dansarar frá Better Bodies, Eyjólfur Kristjánsson og Brooklyn-five. Kynnar kvöldsjns veröa Dóra Takefusa og Bjarni Ólaf- ur Guömundsson. Miöasala og borðapantanir í síma 533 1100. Opnanir ■ SOLHEIMAR í PÉRLUNNI Á þessu góöa ári eiga Sólheimar 70 ára afmæll og veröa þeir svo aö segja fluttir í Periuna þessa helgi þar sem haldin veröur sýning á ollu því sem Sólheimar hafa aö sýna og selja. Opnunarathöfn verður kl. 16.30 T dag þar sem forseti Islands mun opna sýninguna með formleg- um hætti. Sýningin veröur svo opin á laugardag og sunnudag, milli kl. 13 og 17. Fundir ■ MANNLIF VIÐ OPH) HÁF I fræöa- setrinu í Sandgeröi flytur Jörundur Svavarsson fyrirlestur um hvað leyn- ist í íslenskum undirdjúpum kl. 20.30. Dagskráin er hluti af sam- starfsverkefni Menningarborgarinnar og sveitafélaga. Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is Geri aörir betur Hundrað og fimmtán kíló í hnébeygjunni, 75 i bekkpressu og 145 í réttstöðulyftu. Jóhanna Eiríksdóttir, íslandsmeistari í kraftlyftingum og flugfreyja: Með krafta í kögglum - rauða naglalakkið, varaliturinn og vöðvarnir eiga vel saman Jóhanna Eiríksdóttir verður aö teljast nokkuð óvenjuleg kona. Að minnsta kosti hefur hún valið að samræma ólík sviö en Jóhanna er flugfreyja, íslandsmeistari í kraft- lyftingum og einkaþjálfari hjá Gym 80. Aö auki lenti hún í öðru sæti á Islandsmeistaramótinu í vaxtarækt og nú síðast fór hún af stað með heilsuátak fyrir flugfreyjur sem skiptist í brennslu, æfingar með lóð- um og göngutúra auk þess sem hug- að verður að mataræði. En hvað rak hana út í vaxtarækt og kraftlyftingar og hvernig sam- ræmir hún þetta tvennt og flug- freyjustarfið? „Ég byijaði í Gym 80 fyrir sex árum og hef ekki getað slitið mig frá þessu síðan. Þetta er hluti af mínum lífsstíl," segir Jóhanna sem viður- kennir að henni hafi ekki óraö fyrir því í fyrstu að hún ætti eftir aö keppa í vaxtarækt, hvað þá í kraft- lyftingum. Henni tekst þó að sam- ræma hvoru tveggja nokkuð vel, segist fljúga einn mánuðinn og starfa sem einkaþjálfari hinn auk þess sem hún æfir sjálf af kappi. Jóhanna, sem æfir 4 sinnum í viku, segir þó alrangt að vaxtarækt- ar- og kraftlyftingafólk séu einhverj- ir „fanatíkerar" sem éti heilan kjúkling í hádeginu og láti hvorki sætindi né áfengi inn fyrir sinar varir. Þetta sé allt spurning um hæfilega blöndu. Jóhanna þarf þó að taka fæðubót- arefni enda prótín, og mikið af því, nauðsynlegt fólki í hennar fagi. Og það eru engar smáþyngdir sem Jó- hanna er að lyfta. „Hundrað og fimmtán i hnébeygjunni,“ segir hún afsakandi og kennir bakmeiðslum um. Sjötiu og fimm kíló í bekk- pressu og heil 145 kg. í réttstöðu- lyftu. Og hvaö er svo fram undan? „Ég ætla að hvíla mig á kraftlyft- ingum og einbeita mér að vaxta- rækt,“ segir Jóhanna en fyrir þá sem ekki þekkja muninn á þessu tvennu þá eru það þyngdimar sem skipta öllu i fyrmefnda flokknum á meðan þyngdimar eru minni í þeim síöarnefnda og skiptin fleiri. Jóhanna er heldur ekki í vafa um að flugið og lóðin eigi vel saman. „Ég viðurkenni að þetta er náttúru- lega heilmikil vinna aö samræma þetta tvennt en fyrir vikið hef ég miklu meiri orku,“ segir Jóhanna sem er á því aö allar flugfreyjur ættu að lyfta, brenna og vera glaðar. „Þetta er ekki endilega spumig um að auka vöövamassann," segir hún og blæs á hræöslu kvenna um að fá stóra kálfa og upphandleggsvöðva. „Þú getur byrjað að lyfta lóöum og samt grennst ef fitumassinn minnkar umfram það sem vöðvamassinn eykst.“ -KGP Biogagnryni Komnar í fangelsi í Tyrklandi Claire Danes og Kate Beckinsaie í hlutverkum hinna óheppnu amerísku skólastúlkna. 1 um heróín í farangri tiltekinna far- þega svo aðrir sem eru með mun meira magn sleppi í gegn. Brostnar vonir, sem hefur byrjaö sem hefðbundin bandarísk ung- lingaafþreying, tekur hér snöggum breytingum og er atriöiö á flugvell- inum áhrifamikið og vel gert. Stúlk- urnar tvær em saklausir einfeldn- ingar og eiga sér enga von gegn harðsvíruðum lögreglumönnum og tollvörðum og eru brátt komnar í fangelsi með langan fangelsisdóm á bakinu. Þegar hér er komið er ekki laust við að maður minnist hinnar ágætu Meö heróín Brostnar vonir (Brokedown Palace) hefur ýmsa kosti sem kvik- mynd og einnig ýmsa galla. Hún hefur einnig þann kost að vera að- vörun fyrir ungt fólk sem er á flakki á milli landa. Hætturnar leynast víða og það sem í fyrstu virðist vera spennandi ævintýri getur oröiö að martröð. Þessu fá þær stöllur Alice (Claire Danes) og Darlene (Kate Beckinsale) aö kynnast þegar þær svíkja lit, hætta við ferð til Hawaii og halda til TaOands að mennta- skólanámi loknu. „Hawaii er bara venjulegur ferðamannastaöur, Tailand er spennandi," segir önnur þeirra. Það er Alice sem er potturinn og pannan í öllu enda sjálfstæðari en Darlene sem kemur úr mun vemd- aöra umhverfi. Alice er fátt heilagt og þaö er hennar ákvörðun að þær laumi sér inn á dýrt hótel að degi til, þykist vera hótelgestir og noti sér þægindin sem þar er boðið upp á. Þegar þær lenda í vandræðum kemur björgunin í formi myndar- legs manns sem heillar þær upp úr skónum. Hann býöur þeim með sér til Hong Kong. Þegar á flugvöllinn er komið er gengið að þeim af lög- reglunni sem leitar á þeim og finn- ur tvö kíló af heróíni. Þær hafa ver- iö leiddar i gildru, gildru sem geng- ur út á það að láta lögregluna vita Leikstjóri: Jonathan Kaplan. Handrit: Adam Fields og David Arata. Kvikmynda- taka: Tom Sigel. Tónlist: David Newman. Aðalhlutverk: Claire Danes, Kate Beck- insale, Bill Pullman og Lou Diamond Phillips. Saga-bíó - Brostnar vonir: farangrinum Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. kvikmyndar, Midnight Express, sem sýndi á áhrifamikinn og heil- steyptan hátt lífið í fangelsi í Tailandi. Kvikmyndin Brostnar vonir á það aftur á móti til að rokka á milli raunsæis og melódrama og lífið í fangelsinu verður því aldrei áþreifanlegt. Það eru aftur á móti einstaka atriði sem ekki gleymast, eins og til dæmis þegar faðir Dar- lene kennir Alice um ófarir stúlkn- anna og þegar Alice í lokin tekur á sig sökina. Claire Danes og Kate Beckinsale ná ágætum tökum á persónum sín- um, sérstaklega Danes sem að vísu er meö bitastæðara hlutverk en ræður líka fullkomlega við það. Þá er vert að nefna Bill Pullman í hlut- verki lögfræðings stúlkanna. Per- sónan er að vísu mótsagnakennd en Pullman nær að lyfta henni upp með góðum leik. Brostnar vonir er brokkgeng, hún er áhrifamikil þeg- ar best lætur en á stundum einnig fullyfirborðskennd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.